Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 8
8 MORGUISBLAÐIÐ Mifivik'uclagur 29. okt. 1958 Vatteraðir nælonsloppar, léttir en hlýir. Stíf undir- skört, Blússur og vesti úr efni, sem ekki þarf að strauja. Hanzakar og margt fleira HATTAVERZLUNIN „HJÁ BÁRU“ Austursiræti 14. Verz'unarhúsnœBi DÖMUR NÝTT óskast við Hverfisgötu, eða annars staðar í Austur- bænum innan Hringbrautar. Gott geymslupláss þarf að fylgia. Svar merkt: „Austurbær ■— 7120“ sendist afgi'. Ivíbl. fyrir 5. nóv. n.k. verðlaun og heiðursskjöl á „FRÍMEX-1958“. — Sitjandi frá vinstri: Brynjottu. Sveinsson, frú Torfhildur Steingrímsdóttir, Guðmundur Árnason og Sigmundur Ágústsson. — Standandi frá vinstri: Björgvin Finnsson, Helgi Gunnlaugsson, Karl Þorsteins, Sigurjón Björns- on, Guido Bernhöft, Sigurður Ágústsson og Jónas Hallgrímsson. (Ljósm.: Vigfús Sigurgeiij_c 1 Kápuefni og svört dragtaefni nýkomin. Guðmuixdiir Guðmundsson Kirkjuhvoli. Brynjólfur Sveinsson með 'verðlaunagripinn, LINDER frí- merkjaalbúm, sem er tvöfalt, þannig að hægt er að koma þar íyrir öllum íslenzKum frímerkjum, notuðum og ónotuðum. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) er þarna var, en til eru menn, sem ávallt eru reíðubúnir til að leggja dóm á verk annarra, þótt ég sé vantrúáður á, að þeir sömu geti gert betur sjállir. En eitt er vitað, að mikil reynsla fékkst við framkvæmd þessarar fyrstu íslenzku frí- merkjasýningar og ef önnur siík yrði haldin hér á næstu árum, verður það eflaust bætt, sem á vantaði. Á sýningunni var sérstakt póst hús er notaði póststimpil sem á var letrað „FRÍMEX — 1958 — REYKJAVÍK", auk dagsetningar þeirra daga, sem sýningin stóð yfir. Það voru hundruð safnara, er sóttust eftir að fá bréf stimpi- uð með þessum stimpli og má vænta þess, að umslög þau, er þarna voru stimpluð, komist í sæmilegt verð áður en langt um líður. Það er álit þeirra safnara, sem ég hef talað við, að ef póst- stjórnin hefði gefið út sérstök frímerki í tilefni sýningarinnar og í ekki mjög stóru upplagi, þá væru þau nú þegar að mestu uppseld. Verðlaunaafhending til þeirra, er hlutu verðlaun á „FRÍMEX“ fór fram í Tjarnarcafé 20. þ. m. á fjölmennum fundi í Félagi frí- merkjasafnara, og notaði ég tæki- færið til að spjalla svolítið við Brynjólf Sveinsson frá Ólafsfirði, en hann hlaut sem kunnugt er 1. verðlaun fyrir bezta íslenzka safnið, en þau voru vandað frí- merkjaalbúm fyrir öll íslenzk frí merki, notuð og ónotuð, auk 2500 kr. í ónotuðum ísl. frímerkjum, en verðlaun þessi gaf íslenzka póststjórnin. f þessu verðlaunasafni Brynj- ólfs eru eingöngu ónotuð íslenzk frímerki og þótt þar vanti aðeins 4—5 merki, tel ég það góðan ár- angur í söfnun hans, þar sem hann tjáði mér, að hann hefði ekki byrjað að safna frímerkjum fyrr en árið 1930 og auk þess lagði hann þessa tómstundaiðju á hilluna í .nokkur ár. En hann byrjaði aftur og á nú vand- að safn frímerkja frá mörgum löndum. Til dæmis safnar Brynjólfur frímerkjum frá Norðurlöndunum, Þýzkalandi, Hollandi og Sviss, auk þess sem hann á ágætis söfn margs konar sérútgáfa, eins og t. d. frímerki gefin út í ýmsum löndum vegna 50 ára afmælis Rotary-félagsamtakanna, svo nefnd Evrópufrímerki, frímerki Sameinuðu þjóðanna o. fl. o. fl. Ég spurði Brynjólf einnig hvort hann hefði samband við marga skiptivini erlendis og svaraði hann því til, að flest öll frímerki er hann á í safni sínu, hafi har.n fengið í skiptum fyrir íslenzk frímerki, notuð og ónotuð, og er það því undirstaða fyrir góðu safni erlendra merkja, að kom- ast í samband við safnara errend- is, sem hafa fengist við söínun Þýzkt Evrópumerki. I lengri tíma, því þeir eiga oítast í fórum sínum frímerki sem erfitt er að ná i. Þá lék mér forvitni á að heyra álits Brynjólfs um hvenær hann teldi tímabært að halda næstu frímerkjasýningu á Islandi og var svar hans á þá leið, að eftir 4—5 ár mætti aftur halda sýn- ingu, því þar ættu að geta komið fram mörg góð söfn og sá sér- staklega fleiri íslenzk söfn og þá einnig hvernig ætti að setja þau upp, vegna fenginnar reynslu á „FRÍMEX". Að lokum segir svo Brynjólfur í þessu stutta samtali, að hann hafi haft mikla ánægju af sýning- unni og að honum hlotnaðist sá heiður að fá þessi rausnarlegu verðlaun póststjórnarinnar. 1X1 Ný erlend frímerki. Undanfarnar vikur hafa komið út margar athyglisverðar erlendar frímerkjaútgáfur og má þar m. a. nefna frímerki Sam- einuðu þjóða'nna, sem út komu 24. þ. m. og eru litir þeirra smekk- iegir. Þá hafa komið út í Ji gó- siavíu 9 frímerki með myndum úr fuglalífi landsins og eru þau eink- ar fögur, enda litprentuð í Sviss. Vestur-þýzk 10 og 40 pfenninga frímerki tilheyrandi Evrópu út- gáfunum voru nýlega gefin út og verða þessi Evrópu-merki, sem út eru gefin í ýmsum iöndum, brátt ágætt heildarsafn. Saar gaf út þann 1. þ. m. þrjú hjálpar- merki, 12x6 fr., 15x7 fr. og 30x10 fr. og voru þessi merki gefin út í 1.200,000 eintaka, þ. e. af hverju verðgildi. IXI Að lokum skal söfnurum á það bent, að 1. desember nk. koma út, eins og tilkynnt hefur verið, tvö ný íslenzk frímerki, kr. 3,50 og kr. 50,00, en vegna þess hve há verðgildi þessi „seria“ hefur, ber að hafa gætur á, að merkin séu vel ,.centeruð“ þeg- ar safnarar láta þau á fyrstadags- bréf eða kaupa þau ónotuð, en vonandi verður vandað til prent- unar þessara nýju merkja, þannig að óþarfi sé að óttast slæma „centeringu“. — J. Hallgr. Það hefur orðið nokkur dráttur á, að þáttur þessi birtist, en orsakir til þessa eru m. a. þær, að sá er hann ritar, var störf- um hlaðinn vegna frímerkja- sýningariwnar, en í þessum þætti verða frásagnir af sýn- inf unni, þótt stiklað verði á st< ru. IX SÝNINGIN fékk mjög góð- ar undirtekúr hja öllúm þeim sýningargestum er ég hafði ta’ »f og það má fullyrða að þetta einnig getið, að margt ágætra safna og einstakra frímerkja voru þarna til sýnis, og má þar t. d. geta um bæði Noregs-söfnin, og fékk annað þeirra 1. verðlaun og hefði sómt sér á hvaða alþjóðafrí merkjasýningu sem væri, og auk þess voru allmörg athyglisverð ’motiv‘-söfn, er menn veittu sér- taka athygli. Þess skal og getið, að sýningin var ekki haldin til að sýna hve langt frímerkjasöfn- un er komin hér á landi, eða hve Ný iríiucrki frá Sameinuðu þjóðunum. framtak Félags íslenzkra frí- merkjasafnara hefur orðið lyfti- stöng fyrir frímerkjasöfnun í landinu. En þótt hins vegar þess váeri getið, við opnun sýningar- innar, að sýningarnefndinnj væri vel ljóst, að margt hefði rnátt betur fara, því hér væri um al- gjört brautryðjandastarf að ræða, þá virðast ýmsar hjáróma raddir ekki hafa viljað taka þessa af- sökun nefndarinnar fyúilega til greina. Það skal játað, að finna mátti að ýmsu af sýningarefninu en fáir eru smiðir í fyrsta sinn og ég er þess fullviss að enginn af þeim, sem sýndu þarna frí- merki, hafa áður tekið batt í frí- merkjasýningu, og vera má, að einhver hluti af sýntngarefninu hafi ekki verið sýningarhæfur á frímerkjasýningu erlendis, þar sem mikil reynsla hefur fengíst af slíkum sýningum. En hér var heldur ekki um að ræða neina alþjóðasýningu, heldur næstum einvörðungu „lokal“ sýningu innan Félags frímerkjasafnara, þótt utanfélagsmönnum væri boðin þátttaka. En svo skal þess fullkomin frímerkjasöfn eru hér til, heldur fyrst og fremst til að vekja áhuga manna á söfnun frí- merkja. íslenzku söfnin á sýningunni hefðu mátt vera fleiri, því vitað er, að mörg ágætis söfn íslenzkra Nýja Saarmerkið. frímerkja eru til í eigu safnara hérlendis. Um uppsetningu og fyrirkomu- lag í sýningarsalnum voru allir sammála að því hefði ekki orðið betur fyrir komið, og þá sérstaklega þegar þess er gætt, að sýningarsalurinn var of lítill fyrir þann fjölda sýiningarramma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.