Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 12
12
MORCUNTilAÐlh
Miðvikudagur 29. okt. 1958
Theódóra
árdal —
HUN lézí í Landsspítalanum í
Reykjavík 9. sept. sl. Hafði hún
kennt nokkurrar vanheilesu hin
síðari ár, en hafði þó fótavist þar
til síðastl. vetur, að hún dvaidi
nm tíma í Sjúkrahúsinu hér í bæ.
Létti þá vanheilsu hennar í bil!
og hvarf hún þá af sjúkrahúsinu.
En bráðlega vildi sækja að því
sam’a. Fór hún þá til Rvíkur og
lagðist inn á Landsspítalann í
þeirri von, að hún fengi bót á
vanheilsu sinni. En sú von brást,
og smátt og smátt jukust þrautir
og þungi sjúkdómsins, þar til 9.
sept., að hún var kvödd héðan
yfir á land lifenda. Þar hvarf
af sjónarsviðinu merk kona og
mætur borgari Siglufjarðaj bæjar
um iangt skeið.
Frú Theódóra var dóttir hins
þjóðkunna Ijóðskálds og sórigva
svans okkar Norðlend’.rga Páis J.
Árdal og konu hans, Áifhe’ðar
Eyjó'fsdóttur. Var Páii, svo sem
kunnugt er, af ágætum eyfirzkum
ættum. Páll, afi Páls Árdal, var
giftur Rannveigu Davlðsdóttur,
systur Sigríðar ömmu -Jóns Magn-
ússonar fyrrv. forsætisraðherra,
en Davíð faðir þeirra systra var
móðurbróðir Jónasar Hallgríms-
sonar. Álfheiður kona Árdals var
ættuð af Fljótsdalshéraði. Bjuggu
foreldrar hennar Þoorgerður Jóns
dótíir og Eyjólfur Magnússon á
Hamborg í Fljótsdal. Voru það
merkishjón af góðum og greind-
um bændaættum þar eystra.
Þó fljótt sé hér yfir sögu farið,
má þá merkja, að frú Theódóra
var af stórmerkum ættum komin
sem settu sinn svip á íslenzkt
sveitalíf og tóku merkan og
Pálsdóttir
sninsiingi
ógleymanlegan þátt í íslenzku
þjóðlífi á sinni tíð.
Frú Theodóra var fædd á Akur
byri 15. okt. 1885. Ólst hún upp
hjá foreldrum sínum þar, og naut
ágætrar kennslu föður síns, og
var sú leiðsögn henni gott vega-
nesti út í lífið.
Ung að árum giftist frú Theó-
dóra Magnúsi Franklín verzlun-
armanni og eignuðust þau einn
son, Karl að nafni, er dó í æsku.
Eftir fárra ára sambúð slitu þau
samvistum.
Árið 1913 fluttist frú Theódóra
til Siglufjarðar. Hér kynntist
hún ungum glæsilegum manrti,
Guðmundi Hafliðasyni kaup-
manni og síðaT hafnarstjóra.Sama
ár gengu þau í hjónaband og
stofnuðu hér heimili. Heimili
ungu hjónanna varð brátt mjóg
snoturt og híbýlaprýði þar mikil.
Bæði voru þau hjón með afbrigð-
um vinsæl. Sótti fjölda gesta þang
að, enda bæði hjónin aðlaðandi,
greind og menntuð og fylgdust
vel með á sviði mennta og menn
ingar. Þá voru þau bæðí list-
hneigð, voru söngvin, og þegar
húsbóndinn greip í hljóðfærið
voru gestirnir leiddir inn i un-
aðsheima sönglistarinnar. Höfð-
ingsbragur var þar á öllu, og veitt
af mikilli rausn.
Munu bæði innlendir og erlend •
ir menn, sem nutu góðs af gest-
risni þeirra, minnast þeirra ávallt
með hlýjum huga.
Sérstætt fyrir þetta heimili var
það, að jafnhliða því, sem tekið
var á nióti virðulegu ög hámennt
uðu fólki, gleymdust ekki þeir,
sem lægra voru settir í mann-
félaginu. Til þeirra, sem í skugga
bjuggu, var fært ljós, olnboga-
barna jarðlífsins var gætt, og
mörg voru þau einnig fostur-
börnin, sem heimilið rétti hjálp-
arhönd. Er það enn í fersku mmni
margra.
Þessi ágætu hjón eignuðust sér
lega mannvænlegan barnahop, en
þau eru:
Sigríður, gift Hirti Ármanns-
syni lögregluþjóni, Hafliði, kenn-
ari við gagnfræðaskólann hér,
kvæntur Þuríði Helgadóttur, Álf-
heiður, gift Emil Björnssyni,
presti Óháða fríkirkjusafnaðar-
ins í Reykjavík, Páll Árdal, giftur
Æsu Karlsdóttur sálfræðingi og
Jóhannes, tónlistarmaður, dó ung
ur í Kaupmannahöfn.
Allir eru þessir niðjar gott fólk,
vel gefið og mjög listhneigt, eins
og það á kyn til í báðar ættir.
Auk þess átti frú Theódóra einr.
son, Inga Árdal, heildsala í Rvík.
Frú Theódóra var mjög glæsi-
leg img stúlka, tæplega meðalhá,
snotur í vexti og bauð af sér kven
legan yndisþokka. Hún var frið
N ý h úð
RScCaíPs
4470
McCall’s
4469 J V'
Ný Mac Call-snið
Nýjar vörur
I»vottekta Orlon kjólaefni.
Hvít nælonsloppaefni.
Amerískt fóðurtaft 18 litir.
ÚJpu- og galla-orlon margir litir
Ný amerísk og þýzk kjólaefni,
^fUoGiue
Skólavórðustíg 12.
sýnum, augun dökk, stundum
dálítið hvöss, gáfuleg og að jafn-
aði hýr og góðleg. Skapgerðin
var dálítið ör en hrein. Hún vilai
öllum til góðs vera og lifa í sátt
og samlyndi við allt og alla. Enda
átti hún fjölda vina.
Þó frú Theódóra væri viðkvæm
og tæki mjög sárt mótlæti sam-
ferðamannanna, var hún, þegar
hún sjálf átti í hlut, andlega sterk.
Hún var gáfuð kona og glögg í
mótstreymi í mannlegu lífi og
því sýndi hún frábæran hetju-
skap, er hún varð fyrir þeim stóru
áföllum að missa sinn ágæta eigin
mann fyrir tímann, og son sinn
Jóhannes, sem var að hefja lista-
mannsbraut sína. Við fráfall
feðganna, sá frú Theódóra hverf-
ulleik mannlegs lífs, vonir og
óskir bundnar við þessa feðga,
brostnar og verða að engu.
Við þetta sætti frú Theódóra
sig, og var það hennar mesta fró-
un, að mega hlynna að börnunum
sínum, sem hún síðar naut verð-
skuldraðrar umönnunar og ást-
úðar hjá.
Við söknum frú Theódóru úr
samferðamannahópnum, en gleðj
umst með henni yfir kærkomnum
endurfundi vinanna, sem yfir
móðuna miklu eru komnir á und-
an henni.
Blessuð sé minning hennar.
Páll Erlendsson,
Siglufirði.
Nýr vafnsgeymir í
Stykkishólmi
STYKKISHÓLMI 19. okt. 1958.
Togarinn Þorsteinn þorskabítur
kom til Stykkishólms í íyrrinótt
með um 270 tonn af karfa af Ný-
fundnalandsmiðum. Var hann
rúman hálfan mánuð í túrnum.
Er þetta góð vara og var þegar
hafin uppskipun úr togaranum
og taka nú bæði fiskiðjuverin
við aflanum og er gert ráð fyrir
að lokið verði vinnslu fyrir miðja
þessa viku. i’ogarinn mun svo
fara á veiðar í kvöld með við-
komu á ísafirði til að taka ís þar.
★
Grundfirðingar og Stykkis-
hólmarar kepptu í gærkveldi í
Axelskerfinu í íþróttahúsinu i
Stykkishólmi. Komu Grundfirð-
ingar með tvo flokka, eldri og
yngri drengi og stóð keppnin í
tæpa tvo tíma. Var hún bæði
drengileg og skemmtiieg. Sigraði
eldri flokkur Grundfirðinga, en
yngri flokkur Hólmara. Axel
íbúðarhœð
Ytri-Njarðvík
Til sölu er efri hæð í nýlegu
steinhúsi, 3 herbergi og eldhús
á bezta stað i Ytri-Njarðvík.
Laus til íbúðar. Bílskúr fylg-
ir. Uppl. gefur:
EIGNASALAN
Keflavík. — Sími 49.
Andrésson stjórnaði keppninni
og ávarpaði keppendur og gesti,
en aðsókn var góð. Axel hefir nú
um skeið æft í Grundarfirði og
voru þetta lokin.
Iðnskólinn í Stykkishólmi var
settur sl. miðvikudag í barna-
skólahúsinu í Stykkishólrni, þar
sem hann eins og undanfarin ár
verður til húsa. Skólastjóri verð
ur sem áður Ólafur Haukur Árna
son en nemendur verða 6 í vetur
þriðji bekkur starfar nú ekki.
★
Undanfarna daga hefir verið
unnið að því að steypa vatns-
geymi í Stykkishólmi og hefir
hann verið steyptur upp með
skriðmótum. Var lokið að steypa
hann upp í gær, laugardag, en
eftir er að loka honum, en það
verður gert mjög bráðlega. Var
unnið að þessu á vöktum jafnt
nótt sem dag og gekk verkið vel,
þrátt fyrir vont veður, rigningu
og rosa. Er þá góðum áfanga náð
í þessu hagsmunamaxi kauptúns
búa, en ákveðið hefir verið að
gera stór átök til að bæta úr
vatnsskortinum í bænum.. Eru
nú komnir tveir geymar undir
vatn og eru þessar framkvæmdir
á vegum hreppsnefndar Stykkis-
hólmshrepps.
Þá er hreppsnefndin einnig að
láta byggja stóran áhaldaskúr,
þar sem fyrírhugað er að geyma
tæki bæjarins, svo og slökkvi-
tæki o ,fl. — Árni.
HAFNARFJÖRÐUR
Börn, unglinga, eða eldra fólk vantar nú
þegar til bíaðburðar í:
SUÐURGÖTU (I hluti)
og BREKKUGÖTU
Talið s^ax við afgreiðsluna. Álfaskeið 40.
Sími 50930.
fltorgiifiiiKit&ife
LEIGA
Lítið verzlunarpláss við miðbæinn eða Laugaveginn,
óskast til leigu. Tilboð merkt: „7112“ sendist af-
greiðslu blaðsins fyrir mánaðarmót.
Bílleyfi óskast
Vil kaupa leyfi fyrir brezkum eða V-þýzkum fólks-
bil. Þeir sem vilja sinna þessu, leggi tilboð á afgr.
blaðsins fyrir fimmtudagskvöld merkt: „Bílleyfi
— 7117“.