Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 29.10.1958, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 29. okt. 195S MORGVISBLAÐIÐ 19 FullkomiÖ gefuleysi í kirkjubyggingar málum vofir yfir á nœstu árum — segir í álykfun trá kirkjuþinginu A KIRKJUÞINGSFUNDI hefur verið samþykkt áskorun til Al- þingis um að lögleiða frum- varp um kirkjubyggingar og þátttöku ríkissjóðs í stofnkostn- aði kirkjuhúsa. Var mál þetta flutt á Alþingi 1946 af þeim Gisla Sveinssyni og Jörundi Brynjólfs- syni, þáverandi alþingismönn- um, svo og Gunnari Thoroddsen borgarstjóra. Er þar gert ráð fyrir að. ríkissjóður greiði bygg- ingarkostnað ' kirkjuhúsa að % hlutum. Á kirkjuþingi kom málið til umræðu i fyrradag eftir að hafa verið til meðferðar hjá allsh,- nefnd þingsins. Er í greinargerð fyrir ályktuninni þannig komizt að orði að yfir vofi fullkomið getuleysi i kirkjubyggingarmál- um á komandi árum. Kirkjuþing samþykkti áskorun sína til Alþingis með samhljóða atkvæðum, en flutningsmaður þingsályktunartillögunnar er Gísli Sveinsson. Framsögumað- ur allsherjarnefndar Jón Ólafs- son, fylgdi ályktuninni úr hlaði. Hún er svohljóðandi: Kirkjuþingið ályktar að skora á Alþingi að lögleiða frumvarp það um kirkjubygg- ingar og þátttöku ríkissjóðs í stofnkostnaði kirkjuhúsa, sem áður hefir verið borið fram á þingi, síðast 1946, þar sem ákveðið er, að ríkissjóður beri % hluta stofnkostnaðar, en söfnuðir að öðrum hluta ásamt viðhaldskostnaði kirkn- anna. Telur Kirkjuþingið æskilegast og eðlilegast, að ríkisstjórnin annist um flutn- ing þessa máls á Alþingi, en ella verði það flutt úr hópi þingmanna, enda myndi mál- ið, ef framgang hlyti, leysa til hlítar hinn mikla vanda um kirkjubyggingar í þjóð- kirkju landsins. í greinargerð er komizt svo að orði: Frumvarpið, eins og það lá fyrir Alþingi 1946, fylgir þess- ari tillögu, og skýrir það sig í rauninni sjálft. Þó skal þetta tekið fram: Nákvæm greinargerð fylgdv málinu með frumvarpinu 1944, svo að eigi þurfti að endurtaka hana 1946. Að því hefur og ver- ið vikið í greinum og ræðum síðar um þessi atriði. En segja Vil kaupa nýlegan bíl, 4ra—5 manna gegn greiðslu í skuldabréfum, ríkistryggð. Tilboð sendist afgr. Mbl. í dag eða á morgun, | merkt: „1 dag“. Samkomur Hjálpræðisherinn í kvöld kl. 20,30 sýnir Major Helgi Hansen, kvikmyndir frá Kongo. Söngur og hljóðfæraslátt- ur, tvísöngur. Allir velkomnir. Kristniboðshúsið Betanía, Laufásvcgi 13 Almenn samkoma í kvöld kl. 8,30. — Frjálsir vitnisburðir. All ir velkomnir. Almennar samkomur. Boðun fagnaðarerindisins Hörgshlíð 12, Reykjavík, í kvöld klukkan 8. má, að höfuðmáli gegni eftir- greind fern atriði: A í fyrsta lagi. Ríkinu er samkvæmt stjórnarskrá landsins skylt að halda uppi þjóðkirkj- unni, sem raunar fram að þessu hefúr eigi verið staðið við að því, er varðar kostnað við kirkjuhúsin, sem það þó vissu- lega á að bera mestan hluta af. k í öðru lagi. Kirkja þjóðar- innar á samkvæmt sögulegum rökum of fjár hjá ríkisheildinni, síðan er það vald lét greipar sópa um allar kirkjueignir við siðaskiptin. A í þriðja lagi. Eins og nú er komið fjármálalífi íslenzku þjóð- arinnar (og reyndar fleiri) er það algert ofurefli einstökum söfnuðum að reisa á eigin spýtui viðunandi kirkjuhús og mun svo verða áfram, hvort sem til þess yrði efnt að öðru leyti með lán- tökum, samskotum eða því líku. A I fjórða lagi. I frumvarp- inu er ætlazt til, að á ríkið komi sama hlutfall í kostnaði við bygg ingu kirknanna eins og yfirleitt á sér nú stað að lögum við aðrar í GÆR var útbýtt á Alþingi til- lögu til þingsályktunar um skipu lagningu hagrannsókna. Flutn- ingsmaður Ólafur Björnsson. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að skora á rikisstjórnina að skipa nefnd til : þess að gera tillögur um skipu- lagningu hagrannsókna á veg- um hins opinbera. Skal nefndin | skipuð 5 mönnum. Eftirtaldar stofnanir skulu tilnefna sinn manninn hver til þess að taka sæti i nefndinni: Hagstofa ís- lands, Landsbanki íslands, Fram kvæmdabanki íslands og laga- og viðskiptadeild háskólans, en einn nefndarmanna skal skipaður af ríkisstjórninni án tilnefningar. Nefndin athugi, hvernig koma megi á sem hagkvæmastri verka- skiptingu milli þeirra opinberra stofnana, er nú hafa með hönd- um hagrannsóknir í einhverri mynd, og geri erín fremur tillög- ur um það, hvernig hagkvæmast muni að leysa önnur viðfangsefni á þessu sviði, er hingað til hefur eigi verið unnt að sinna. í greinargerð segir: Þótt hagrannsóknum sé enn svo skammt á veg komið hér á landi, að varla sé hægt að tala um meira en vísi til þeirra, má þó telja tímabært, að hafizt sé handa um skipulagningu þeirra af hálfu hins opinbera. Verkefni nefndar þeirrar, er hér er lagt til að skipuð verði, væri í fyrsta lagi bað að athuga, hvort koma mætti á hagkvæmari verkaskipt- ingu milli þeirra stofnana, er að sambærilegar opinberar bygg- ingar og stofnanir (mennta- og heilsustofnanir), þar sem þær eru þá ekki að öllu leyti á veg- um ríkisins, svo sem er um sum- ar þeirra. í sjálfu sér ætti hvert þessara atriða að véra nægilegt til þess að réttlæta lögfestingu framan- greindra frumvarpsákvæða, hvað þá heldur þau öll saman. Og þá yrði málið söfnuðunum viðráðanlegt, en fyrr ekki. Nú er það á valdi kjósendanna í land- inu og fulltrúa þeirra á löggjaf- arþingi, auk ríkisstjórnar og kirkjuvalda, að sjá svo um, að málið nái til fullnustu fram að ganga. Má og sá vansi sízt henda ráðamenn þjóðarinnar að doka nú lengur við að gera þessu máli rétt skil, enda fellur vitaskuld á þessa aðila öll ábyrgð á með- ferð og gangi málsins nú og framvegis, því að án þessara að- gerða, er nú hafa verið greindar, vofir yfir kirkju- og kristnihaldi þjóðkirkjunnar fullkomið getu- leysi í kirkjubyggingarmálum á komandi árum, og þar af leið- andi tómlæti og auðn víðs vegar um land, og mun þó mörgum þykja sem nú sé nóg---------. einhverju leyti hafa slík störf með höndum nú, og í öðru lagi að gera tillögur um það, hvern- ig bezt verði sinnt öðrum við- fangsefnum á þessu sviði, er að- ksllandi má telja, þótt eigi hafi enn verið unnt að taka þau til meðferðar. í nágrannalöndum vorum er miklu fé varið til hagrannsókna, bæði á vegum opinberra aðila og einkaaðila. Er ekki ástæða til þess að ætla annað en íslenzkum atvinnuvegum og þjóðarbúskap í heild gæti einnig orðið mikið gagn að slíkum rannsóknum, ef þeim væri skynsamlega hagað og þær framkvæmdar af hæfum mönnum. Hvað kostnað við rannsóknir þessar snertir, verðum við auð- vitað að sniða okkur stakk eftir vexti, enda er megintilgangur tillögu þeirrar, er hér liggur fyr- ir, sá, ef samþykkt verður, að tryggja sem skynsamlegasta ráð stöfun þess fjár, er hér er til þessarar starfsemi veitt og veitt kann að verða til viðbótar, eftir því sem fært þykir að sinna nýj- um viðfangsefnum. Eðlilegt er, að nefnd sú, er hér er lagt til að skipuð sé, verði einkum skipuð fulltrúum þeirra opinberu stofnana, er hingað til hafa einkum haft slíka starfsemi með höndum og hafa því eink- um hagsmuna að gæta í sam- bandi við afrgeiðslu máls þessa, og eru þær tillögur, er hér eru gerðar um skipun nefndarinnar, úð það miðaðar. Kaupendur eru vinsamlega áminntir um að borga blaðið skil- víslega. Kaupendum úti um land er um þessar mund- ir sendar póstkröfur fyrir blaðgjaldinu. Athugið að innleysa þær í tæka tíð. Þeim kaupendum, sem ekki innleysa póstkröfuna eða greiða á annan hátt verður hætt að senda biaðið án frekari aðvörunar. Hagrannsóknir skipu- lagðar af hinu opinbera TilBaga þess efnis flutf á Alþingi — Pasternak Framh. af bls. 1 út, að Pasternak sé sjúkur Fyrir nokkru hefði hann þjáðst af hjartasjúkdómi, sem nú hefði tekið sig upp. A Vesturlöndum var ályktað, að þetta væri e. t. v. fyrirboði þess, að Ráðstjórnin mundi segja umheiminum, að Past- ernak gæti ekki farið til Stokkhólms sakir sjúklcika. Simanúmer okkar er 2-24-80 2R0r@}in!>!u&i3> Sigurður Ólason Hæstarcttarlögmaður Þorvaldur Lúðvíkssoo Héraðsdómslögma5ur Málflutningsskrifstofa Austurstræti 14. Siini 1 -55-35. BúÖarínnrétting tóbaks- og sælgætisbúðarinnar Hverfisgötu 50, ásamt ísskáp til sölu. Hagstætt verð. PÉTUR GUÐJÓNSSON, Sími 15167 Hjartanlega þakka ég vinum mínum og vandamönnum, sem heimsóttu mig á 60 ára afmælisdaginn 14. október. Ég bið guð að blessa ykkur,þegar ykkur liggur mest á. Lárus Pétursson, Káranesi, Kjós. Hjartans þakkir óska ég öllum þeim, sem heiðruðu mig á 80 ára afmæli mínu með gjöfum, skeytum og heim- sóknum. Sigurður Guðbrandsson, Helgafellsbraut 17, Vestmannaeyjum. Ég þakka hjartanlega öllum þeim, sem sýndu mér ógleymanlega vináttu á sextugsafmæli mínu 21. þ.m. Jón Hörtur Jónsson. Bróðir minn JÖRUNDUR GÍSLASON vélstjóri. verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 30. október kl. 1,30 e.h. Jón Gíslason. Jarðarför SIGURBJARGAR GUÐBRANDSDÓTTUR frá Litla-Galtadal, Sigtúni 53, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. okt. kl. 3 eftir hádegi. Vandamenn. Elskulegi maðurinn minn og faðir okkar KRISTJÁN huseby sem andaðist að heimili sínu 25. þ.m. verður jarðsunginn föstud. 31. þ.m. kl. 10,30 f.h. frá Fossvogskirkju Jarðar- förinni verður útvarpað. Matthildur M. Huseby og böm. Konan mín og móðir okkar SIGRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR sem andaðist 22. október verður jarðsett frá ísafjarðar- kirkju fimmtudaginn 30. október. Athöfnin hefst með húskveðju kl. 2 e.h. frá heimili hinnar látnu. Finnbjörn Finnbjörnsson, börn og tengdaböm. Jarðarför móður okkar og tengdamóður INGIBJARGAR ÞORLAKSDÓTUR fer fram frá Þjóðkirkjunni, Hafnarfirði fimmtudaginn 30. október kl. 2 e.h. Elínborg Jónsdóttir, Guðjón Benediktsson, Bjarni Jónsson, Fanney Ófeigsdóttir, Þuríður Jónsdóttir, Jóhannes Jónsson, Asta Halldórsdóttir. Alúðarfyllstu þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmans míns og föður okkar. GUÐJÓNS JÓNSSONAR kaupmanns, Hverfisgötu 50 Sigríður Pétursdóttir og böm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.