Morgunblaðið - 06.11.1958, Page 15
Fimmtudagur 6. nóv. 1958
MoncvNnrAÐití
15
M/S „SELFOSS", hið nýja 3500
tonna skip Eimskipafélags ís-
lands fór réynsluför sína í Lima-
firði í Danmörku í fyrradag, og
var að henni lokinni afhent fé-
laginu. Ganghraði í reynsluför
reyndist 15.38 sjómílur. Skipt var
um fána kl. 4 síðd., og hélt for-
stjóri skipasmíðastöðvarinnar,
Aalborg Værft, S. Krag ræðu
um leið og hann afhenti skipið.
Jón Guðbrandsson fyrrv. skrif-
stofustjóri Eimskipafélagsins í
Kaupmannahöfn flutti einnig
ræðu, en hann tók við skipinu
fyrir hönd félagsins.
M.s. „Selfoss“ fer frá Álaborg
Það hefur vakið athygli að í glugga Rammagerðarinnar í Hafnarstræti er komin jólaútstilling
— jólasveinn, sem kinkar kolli glaðlegur á svip til vegfarenda og minnir þá á hve stutt sé
til jólanna. Ljósmyndari Mbl. tók mynd af þessum fyrsta jólaglugga þessa árs. Við forvitnuð-
umst síðan um, hver væri ástæðan til að svo snemma er gerð jólaútstilling og fengum það
svar að nú væri tími til þess kominn fyrir fólk, sem ætlar að senda jólapakka til útlanda að
gera innkaupin, og Rammagerðin hefur því viljað koma til móts við viðskiptavini sína í vali
þeirra á slíkum gjöfum, og aðstæður með sendingar á slíkum pökkum um allan heim.
Hugþekkt vísnasafn
H J Á L M A R Þorsteinsson frá
Hofi, bóndi að Jörfa á Kjalar-
nesi, er löngu góðkunnur fyrir
skáldskap sinn, og þá ekki sízt
fyrir vísnagerð sína, enda hafa
margar stökur hans orðið land-
fleygar heima á ættjörðinni og
sumar þeirra einnig borizt vestur
yfir álana. Hann hefur einnig
ort prýðisgóð lengri kvæði, svo
sem sjá má af fyrri ljóðabókum
hans.
Hjálmar varð nýlega sjötugur,
en liggur enn stuðlað mál létt á
tungu, eins og nýjasta vísnasafn
hans ber fagurt vitni, en það
nefnist Munarósir og kom út
Akranesi síðastliðið haust. Hef-
ur lcverið inni að halda 100 stök-
ur, og er hið smekklegasta að
frágangi. Um stökurnar og til-
orðningu þeirra fer höfundur
annars þessum orðum í formála
sínum:
„Stökur þessar hafa fæðst á
löngum tíma, því að sú elzta er
á sextugs aldri, en sú yngsta svo
að segja nokkurra klukkutíma
gömul. Þær eru spegill af sálar-
lífi mínu í örðugleikum og vel-
gengni á langri æfi. Þær eiga
undir flestum kringumstæðum að
skýra sig sjálfar, þótt nokkrar
séu teknar úr framhaldi. Þær eru
margar til orðnar við hin ýmsu
störf fjölskyldubóndans, út um
haga og uppi á fjöllum og sumar
á andvökunóttum, sem áhyggjur
vilja skapa ómagamanni.“
Á sama streng slær höfundur
í vísunni „Geislabrot", er hann
segir:
Ljóðin eru ljósaskipti úr lífi
mínu.
Gleðibros, sem glepur elja,
geislabrot á milli élja.
Hjálmar er ágætlega hagorður,
enda hefur ferskeytlan verið og
er honum sérstaklega tiltæk, þeg
ar hann finnur tilfinningum sín-
um og hugarhræringum framrás
í Ijóði, t. d. í vísunni snjöllu,
„Ullin mín“:
Varð mér á að vefa lín,
þó væri þráður brunninn,
oft var bezta ullin mín
illa kemd og spunnin.
Og hún á almennt gildi, stakan
þessi, því að hver er sá, sem
kominn er á fullorðins ár, hvað
þá efri ár, sem eigi geti með
skáldinu játað þann sannleika
um sjálfan sig, stingi hann hrein-
skilnislega hendi í eigin barm?
Hringhendan er Hjálmari þó
sýnilega bezt að skapi, enda fer
hún oft á kostum hjá honum.
Fallega minnist hann margra
vina sinna, lífs og liðinna, með
þeim hætti, eins og í þessari
stölsu til minningar um merkis-
bóndann Magnús Þorláksson á
Blikastöðum:
Brustu fætur, föl er kinn,
fjörs á rætur gengur;
jörðin grætur soninn sinn,
sá var mætur drengur.
Ekki er hringhendan Hjálmari
síður nærtæk, er hin ytri nátt-
úra með blæbrigðum sínum legg-
ur honum ljóð á vör, og er eftir-
farandi kvöldvísa gott dæmi
þess:
Glitra öldur, glóey hlý
grímu völdin tefur:
rjóð á kvöldin rósir í
rökkurtjöldin vefur.
En lesi menn þetta vísnasafn
í heild sinni, þá verður það deg
inum ljósara, hve fylgispök stak
an hefur verið skáldinu í blíðu
og stríðu, og ekki sízt þegar syrt
ir í álinn og vetur guðar
glugga:
Byljir þjaka ©g bylta grein,
blómin nakin særa;
hjá mér vakir aðeins ein
eftir stakan kæra.
Og hvað sem á gengur, skal
henni trúnaður sýndur fram að
leiðarlokum, en þetta er seinasta
vísan í safninu:
Út við sundin ægis blá
— enn skal bundin staka,
— fram að blundi ef eg á
eina stund að vaka.
Richard Beck.
(Lögberg, fimmtudaginn
6. febrúar 1958)
Sálmar og hugvekjur
Hallgrsms Péturssonar
í DÁG kemur út þriðja og síðasta
bindi af verkum Hallgrims Pét-
urssonar í útgáfu Tónlistarfélags-
ins. Er útgáfunni þar með lokið.
í þessu síðasta bindi eru Sálmar
og hugvekjur skáldsins, og er það
stærsta bindið. Séra Bjami Jóns-
son vígslubiskup skrifar formála
að bindinu, en Lárus Blöndal
bókavörður eftirmála.
Bókin er öll prentuð í tveimur
litum eins og fyrri bindin. Hún
er 241 blaðsíða í mjög stóru broti
og hin smekklegasta að öllum
frágangi.
Þessar bækur Tónlistarfélags
ins eru aðeins til sölu í Unuhúsi
við Veghúsastíg og í Tónlistar
skólanum.
Enn verður reynt að eyða
lyktinni frá Kletti
Nýi „Selfoss" er 2339 tn
og gengur 15,38 mílur
8. þ. m. og fermir vörur í Kaup-
mannahöfn og Hamborg. Skipið
er væntanlegt hingað ' il Reykja-
víkur síðari hluta mánaðarins.
Lengd skipsins er 334T0” eða
102.05 mtr. (álíka og m.s. „Trölla-
foss“) en brúttó-tonnatala þess
er 2339 tonn. Burðarmagn skips-
ins er um 3500 tonn. Nánari
lýsing á skipinu mun verða gefin
eftir að skipið er komið hingað
til Reykjavíkur.
Skipstjóri á m.s. „Selfossi“ er
Jónas Böðvarsson, I. stýrimaður
er Magnús Þorsteinsson og L
vélstjóri Jón Aðalsteinn Sveins-
son.
Á FUNDI í heilbrigðisnefnd
bæjarins, er haldinn var fyrir
nokkru, var rætt um síldar- og
fiskimjölsverksmiðjuna á Kletti.
Var lagt fram á fundinum bréf
frá verksmiðjustjórninni varð-
andi athugun, er gerð hefur ver-
ið á nýjum gerðum lykteyðingar-
tækja, sem sett hafa verið upp
í samskonar verksmiðjum er-
lendis.
Nefndin var sammála um og
taldi sig geta fallizt á, að verk-
smiðjunni verði veitt starfrækslu
leyfi á meðan sett verði upp og
reynd lykteyðingartæki þessi.
Skal þegar hafizt handa um
framkvæmdir og þeim lokið eigi
síðar en 1. maí n.k. Heilbrigðis-
nefnd taldi sig ekki geta mælt
með, að lóðarsamningur verði
framlengdur nerna því aðeins, að
tekizt hafi að eyða lykt frá verk-
smiðjunni á viðunandi hátt, að
dómi nefndarinnar.
Á þetta sjónarmið hefur bæj-
arráð einnig fallizt.
Öllum þeim, sem heiðruðu mig á 70 ára afmælisdegin-
um með gjöfum, skeytum og heimsóknum, færi ég mitt
innilegasta þakklæti.
Sigurður Kristjánsson,
Siglufirði.
Þakka hjartanlega vinum og venzlamönnum, sem
sýndu mér margs konar vinsemd á fimmtugsafmæli
mínu 2. þ.m.
Marino Jakobsson, Skáney.
LOKAÐ
í dag vegna jarðarfarar firá kl. 1—4
PÓLAR Ifl.F.
Borgartúni 1 — Einholti 6
Sonur okkar og bróðir
ÁRNI BJARNI HANNESSON
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju 7. þ.m. kl.
10,30 f.h.
Hlíf Bjarnadóttir,
Hannes Árnason og synir.
Konan mín
SIGURBJÖRG ÁMUNDADÓTTIR
sem andaðist 31. október, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 7. nóvember kl. 1,30. Athöfninni
í kirkjunni verður útvarpað. Blóm og kransar afbeðin.
En þeim, sem vildu minnast hinnar látnu er bent á
krabbameinsfélagið.
Fyrir hönd vandamanna.
Friðrik J. Ólafsson.
Jarðarför móður okkar
SOFFlU PÁLSDÓTTUR
fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugard. 8. þ.m. kl. 1,30.
Kveðjuathöfn verður í Laugarneskirkju kl. 10,30 sama
dag og verður henni útvarpað.
Fyrir hönd systkina minna og annarra vandamanna.
Elías Sigurðsson.
Við þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu
INGIBJARGAR ÞORLÁKSDÓTTUR
Við þökkum einnig öllum er önnuðust hana í veikind-
um hennar. .
Elínborg Jónsdóttir, Guðjón Benediktsson,
Bjarni Jónsson, Fanney Ófeigsdóttir,
Þuríður Jónsdóttir, Jóhannes Jónsson,
Ásta Halldórsdóttir og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför eiginmanns míns og föður okkar
SAMÚELS GUÐMUNDSSONAR
frá Hrafnabjörgum.
Hildur Hjaltadóttir og börn.