Morgunblaðið - 07.11.1958, Side 1
20 siður
Myndin er tekin á þeirri hátíðlegu stundn, er Jóhannes páfi XXIII. var krýndur í Rómaborg.
Heppnast tunglferðin
í fjórðu tilraun?
Demokratar rába lög-
um og lofum á þingi
Krefjast Jbe/r Jbjóbaratkvæðagreiðslu
á Formósu um framtið eyjarinnar ? 1
WASHINGTON, 6. nóv. — Engum blöðum er um það að fletta,
að demókratar ráða lögum og lofum á Bandaríkjaþingi eftir hinn
glæsilega sigur þeirra í kosningunum. Fullvíst er talið, að þeir
muni fyrst og fremst leggja áherzlu á það að framkvæma stefnu-
skrá sína í utanríkismálum landsins, en sú stefna er opinberlega
studd bæði af Stevenson, fyrrum frambjóðanda þeirra til forseta-
kosninga og Truman, fyrrum forseta.
SAMKVÆMT tilkynningu frá
Washington í gærkveldi ætluðu
Bandaríkjamenn að gera fjórðu
tilraunina til þess að skjóta eld-
flaug til tunglsins í dögum í morg
un. I þessari eldflaug er full-
kominn tækniútbúnaður til að
leiðrétta stefnuskekkjur, sem
kollvörpuðu síðustu tilraun að
nokkru leyti, því að sú eldflaug
komst ekki nema 128,000 km frá
jörðu, en snéri þá við. Ef allt
gengur nú að óskum verður eld-
fiaugin, eða síðasta þrep hennar,
í 320,000 km fjarlægð frá jörðu
eftir tvo sólarhringa og 16 stund-
Pasternak
yfirbót
MOSKVU, 6. nóv. — Pravda
birti í dag opið bréf frá Nóbels-
verðlaunahöfundinum Boris Past
ernak, þar sem hann gerir grein
fyrir því hvers vegna hann hef-
★------------★
Föstudagur, 7. nóvember.
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 2: Aldurshámark tekur ekki til
hinna virðulegustu embætta.
Biskupsfrumvarpið afgreitt til
3. umr. á Alþingi.
«— 3: Ríkisstjórnin vill hafa hervarn-
ir, en engar varnir til öryggis
almennum borgurum. Frá bæj-
arstjórnarfundi í gær.
— 8: Adlai E. Stevenson: Járntjalds-
löndin eru ekki öll eins.
— 9: Rafmagnsmálið mesta hags-
munamál Breiðdælinga. Rætt
við Pál á Gilsárstekk.
— 10: Ritstjórnargreinin nefnist: —
Spilaborg blekkinganna er
hrunin til grunna.
Við hvað voru þeir hræddir?
Crankshaw skrifar um Paster-
nak-málið.
— 11: Ég hefi reynt allt mitt líf að
gera öllum hið bezta. Samtal
við Vilhjálm Finsen 75 ára.
Boris Pasternak, ljóð eftir
Matthías Johannessen.
★---------------------------★
ir, en þá hefur hún hringferð sína
umhverfis tunglið. Hámarkshrað
inn á þessari ferð á að verða
28,400 km. Eldflaugin er fjögurra
þrepa, af gerðinni Thor-Able —
og er í allri sinni lengd 26,4 m.
Sjálft gervitunglið vegur 38,25
kg. þar af vega mælitæki alls
konar 25. kg. Ætlunin er m.a. sú
eins og kunnugt er, að gervitungl
ið sendi sjónvarpsmyndir af fjar
lægari hlið tunglsins til jarðar.
Vísindamenn segja, að líkindin
til þess að tilraunin heppnist sé
látinn gera
| ur hafnað Nóbelsverðlaununum.
Segist Pasternak hafa verið
! hrifinn og hrærður yfir verð-
launaveitingunni, en síðar hafi
orðið Ijóst, að þau hafi verið
veitt af pólitískum ástæðum. —
Fyrstu viðbrögð hans hefðu þvi
verið mistök.
Síðar hafi verðlaunin valdið
miklum úlfaþyt. Hafi hann þá
af frjálsum vilja hafnað þeim.
Hafi honum aldrei komið til
hugar að skaða þjóð sína.
Getur hann þess að lokum, að
ritstjóri bókmenntatímaritsins
Novy Mir, sem ekki vildi gefa
út „Zhivago lækni“, hafi varað
hann við því að bókin yrði mis-
skilin sem árás á októberbylt-
inguna og sovétskipulagið.
Loks tekur Pasternak það
fram, að hann hafi ekki verið
neyddur til þess að taka ókvarð-
anir sínar.
Ræða fríverlzim
LONDON, 6. nóv. — Fulltrúar
iðnaðarins í Skandinavisku lönd
unum, Sviss, Austurríki og Bret-
landi koma saman í London í
næstu viku til þess að ræða
vandamálin í sambandi við frí-
verzlunarsvæðið fyrirhugaða.
Situr við það sama
í Genf
GENF, 6. nóv. — Enn er sömu
sögu að segja af fundum fulltrúa
þríveldanna um bann við kjarn-
orkutilraunum. Sátu fulltrúarnir
stuttan fund í dag og ræddu dag
skrártillögu Vesturveldana svo
og tillögu Rússa um eilífðarbann
við tilraunum. Aðeins eitt nýtt
atriði kom fram á þessum fundi:
Skjöl, sem brezki fulltrúinn lagði
fram, um sérstaka tæknilega örð-
ugleika á stofnsetningu alþjóð-
legs eftiriitskerfis með því að til
raunabann yrði haldið.
Bent er á í fréttaskeytum, að I
utanríkismálanefnd öldunga-
deildarinnar, sem hefur mjög
mikil áhrif á mótun utanríkis-
stefnunnar, verði nú algerlega
í höndum demókrata. Að undan-
förnu hafa 8 demókratar og 7
repúblikanar setið í nefndinni,
en búizt er við því að demókrat-
arnir verði nú jafnvel 10. Talar
það sínu máli um vaxandi óhrif
þeirra.
Þrátt fyrir að Eisenhower hafi
lýst því yfir í gær, að utanríkis-
stefnan yrði hin sama þrátt fyrir
sigur demókrata, er fastlega bú-
izt við því, að demókratar reyni
að knýja fram hið bráðasta ætl-
anir sínar um lausn ýmissa
vandamála — m. a. Formósu-
málsins. Yfirlýst stefna þeirra í
því máli er sú, að S. Þ. beri
að fjalla um málið og tryggja,
— sagði Mikoyan
MOSKVU 6. nóv. — Hátíðahöldin
í tilefni byltingarafmælisins hóf
ust í Moskvu í dag rneð útisam-
að vopnaðir landvinningar eigi
sér aldrei stað á Formósusundi.
Hins vegar skuli S. Þ. sjá um,
að Formósubúar fái sjálfir a3
ákveða framtíð sína.
Hafa demókratar gagnrýnt
stefnu Dullesar á mörgum svið-
um og kvartað undan því að
hann skelli allt of oft skollaeyr-
um við áliti utanríkismálanefnd-
arinnar. Vafalaust munu þeir
krefjast nánari samvinnu nefnd-
arinnar ög utanríkisráðherrans.
PARÍS, 6. nóv. — Indverski full-
trúinn á fundi UNESCO lagði i
dag til, að aðild kínverskra
kommúnista að samtökunum
yrði lögð fyrir Alþjóðadómstól-
inn. Áður hafði fundurinn fellt
tillögu Rússa um að kínverskum
kommúnistum yrði heimiluð
þátttaka.
komu á íþróttaleikvangi í Moskvu
— og þar flutti Mikoyan, aðstoð-
arforsætisráðherra, ræðu.
Ræddi hann fyrst um tækniaf-
rek Rússa, Spútnik og kjarnork-
una, en sagði síðan, að Rússar
væru þeir einu, sem berðust hinni
raunverulegu friðarbaráttu. kapi
talisku ríkin væru sífellt að
kveikja eld, sem Kússar hefðu
ekki við að slökkva — og vitnaði
hann í því sambandi í Líbanons-
málin. Bann við kjarnorkutilraun
um væri líka mál Rússa. Vestur-
veldin sýndu þar aðeins þver-
móðsku. Sagði hann og, að Banda
ríkin væru lögregluríki, þar sem
jafnvel þingmenn þyrðu ekki að
kalla Dulles utanr.ráðh. hrein
hreinræktað fífl.
Mikojan sagði, að sú stefna
Dullesar, að ramba á barmi
styrjaldar, væri hötuð af Banda-
ríkjamönnum sjálfum, — og úr-
slitin í þingkosningunum væru
yfirlýsing um vantraust á stefnu
Eisenhowers og Dullesar.
Þá sagði hann, að framleiðsla
Rússa færi sífellt vaxandi, en
efnahagsþróun kapitalisku ríkj-
anna væri neikvæð. Þá gat hann
þess, að Rússar framleiddu ekki
nægilega mikið af ýmsum nauð-
synjum svo sem lyfjum — og
kvartaði jafnframt yfir drykkju-
skap og afbrotahneigð unglinga.
Þó voru þeir verstir, sem svikið
höfðu flokkinn, eins og t. d. Mal-
enkov, Molotov, Kaganovitj og
Shepilov.
Búizt er við, að mikið verði
um dýrðir í Moskvu á morgun —
hersýningar munu þó aðallega
setja hátíðarsvip á borgina.
BRUSSEL, 6. nóv. — Eyskens,
forsætisráðherra Belgíu, birti í
dag ráðherralista sinn. Eiga 12
kaþólskir og 7 frjálslyndir sæti
í samsteypustjórninni. Eyskens
er sjálfur kaþólskur og utan-
ríkisráðherra hans, Pierre
Wigny, er líka kaþólskur.
Myndin var tekin nokkrum dögum eftir byltinguna í írak í
sumar. Þá sátu þeir hlið við hlið Aref (t. v.) og Kassem (t. h.)
foringjar byltingarinnar. Ljóst var frá upphafi, að þeir mundu
berjast um völdin. Aref er æstur Nassersinni og boðaði inn-
göngu fraks í ríki hans, Arabiska sambandslýðveldið. Kassem
virtist hins vegar standa stuggur af valdagræðgi Nassers —
og vildi halda honum í hæfilegri fjarlægð. Fyrst eftir bylting-
una fóru þeir Aref og Kassem með æðstu völd. Síðan náði
Kassem undirtökunum, Aref var sendur í „útlegð“, skipaður
sendiherra í V-Þýzkalandi, En svo kom hann heim í „óleyfi“
og var þá þegar handtekinn — og verður síðar dreginn
fyrir rétt.
1:25.
Rússar björguðu friðinum
í Líbanon