Morgunblaðið - 18.11.1958, Side 19

Morgunblaðið - 18.11.1958, Side 19
Þriðjudagur 18. nðv. 1958 lUOnCVWBI AÐ1Ð 19 um árum á Vesturlöndum, hinn síðari á bezta aldursskeiði, einnig búsettur á Vesturlöndum. Þetta sannar glöggt, að meðal þessa fólks hafa risið heimskunnir brautryðjendur í myndlist engu síður en annars staðar. Þetta verður þó hvergi séð á þeim verk um, sem sýnd eru í Þjóðminja- safninu. Það er því enn ótrúlegra að kynnast þeirri íhaldssemi og hægagangi, sem er greinilegur á verkum þeirra viðurkenndu listamanna, sem unnið hafa síð- ustu árin í heimalöndunum, Ráð st j órnarríkj unum. Eitt er það enn, sem maður saknar á þessari sýningu: það fyrirbrigði, sem til er með öllum þjóðum og alltaf hefur verið til, þ.e. hinir ungu, fersku listamenn og óþægu, er berja í borðið og brjóta hlekki hefðar og smekks, en halda eigin leiðir í trássi við yfirvöld og almenningsálit. Ein- mitt þessi tegund listamanna hef- ur oft mikið til síns máls og hefur ósjaldan orsakað endurnýjun í hinum ýmsu listgreinum, þótt þeir jafnan hafi stillzt með aldri og reynzlu. Einmitt þeir eru sterk asti þátturinn í því að forða list- inni frá algerri stöðnun og tor- tímingu. Stöðnun er það hættu- légasta, er yfir hverri listgrein vofir; sá sjúkdómur, sem leiðir al geran dauða yfir listina, eða gerir hana að hvimleiðri smáborgara- venju, svo hversdagslegri, að hún missir kraft og gildi. Þótt ótrúlegt megi virðast, er ekki sjáanlegt, að þessi flokkur ungra og uppivöðslusamra listamanna sé til hjá Sovétlistamönnum, og maður sem veltir yfir því vöng- um, hvort hægt sé að útiloka slíkan hóp eða útrýma. Það held ég, að engri þjóð hafi enn tekizt. Jafnvel tókst það ekki á árunum fyrir síðustu heimsstyrjöld í þriðja ríkinu. Aðeins einn maður á þessari sýningu í Þjóðminjasafninu finnst mér svolítið frábrugðinn starfsbræðrum sínum í vinnu- brögðum. Hann hefur mynd- rænni tök á verkum sínum en hin ir og virðist hafa meiri tilfinn- ingu fyrir tjáningarformi sínu. Sá heitir Vedérnikov. Það er sannarlega leitt að geta ekki tekið betur á móti erlendri sýningu en þessar línur vitna um, því það er vissulega mikils virði fyrir okkur íslendinga að fá sem mest að sjá af list annarra þjóða. Það er að vísu lærdómsríkt að sjá þessa rússnesku sýningu, en ég held, að mörgum listamanni í Evrópu hljóti að koma í hug, það sem Shakespeare leggur Hamlet í munn um Danaveldi, og heim- færa það á sovézka myndlist. Valtýr Pétursson. - S.K.T. Frh af bls 3 hæsta lagsins í þessum flokki, „Syngdu“. Höfúndar flestra verðlauna- laganna voru viðstaddir, er úrslit in voru birt, og var þeim vel fagnað af áheyrendum og klapp- að lof í lófa. ★ Morgunblaðið efndi til sér- stakrar verðlaunakeppni um það, hver kæmist næst réttum heild- arúrslitum danslagakeppninnar — á atkvæðaseðli blaðsins. Sex- hundruð atkvæðaseðlar bárust, en á aðeins einum þeirra var rétt getið til um úrslitin, seðli Ragnhildar Jónsdóttur, Grjóta- götu 9, Reykjavík. Morgunblað- ið hafði heitið 1000 króna verð- launum í þessari sérstöku keppni, sem var eins konar getraun, og veitti Ragnhildur þeim viðtöku í Góðtemplarahúsinu á laugar- dagskvöldið. Aðalfundur Stúdenta- féla^s Akureyrar AKUREYRI, 17 nóv. — Fimmtu- daginn 13. nóv. var aðalfundur Stúdentafélags Akureyrar hald- inn. Fram fóru venjuleg aðal- fundarstörf. Formaður var kjör- inn Ingvar Gíslason, ritari Brjánn Jónasson og gjaldkeri Stefán Haukur Einarsson. Skrifstofur vorar og félagsmanna verða lokaðar í dag milli 2—4 vegna jarðarfarar Ólafs Johnson, stórkaupmanns. Félag íslenzkra stórkaupmanna Vegna jar&arfarar verða skrifstofur okkar, verksmiðjur og vörugeymslur lokaðar í dag 18. nóv. O. Jonson & Kaaber hf. ... I..... , II.! LokaS í dag frá kl. 12—4 vegna jarðarfarrar. Sverrir Bernhoft H.f. Verzlanir okkar verða lokaðar í dag vegna jarðarfarar frá kl. 1—4. GEYS9R H.F. Fatadeildin Veiðarfæradeildin. Teppa og Dregladeildin. Lokað í dag frá kl. 12—4 vegna jarðarfarar. Verzlun Ingibjargar Johnsson LækjargÖtu 4 Lokað í dag frá kl. 1—4 vegna jarðarfarar. Vátryggingafélagið hf. Klapparstíg 26. Trolle & Rothe Hf. Klapparstíg 26. Lokað eftir hádegi í dag, vegna útfarar Ólafs Johnson stórkaupmanns. TRYGGING H.F. Lokað vegna jarðarfarar frá kl. 12 til 4 e.h. H. Ólafsson & Bernhoft Skrifstofa vor verður lokuð frá kl. 1—3 í dag vegna jarðarfarar Ólafs Johnson stórkaupmanns. * Verzlunarráð Islands Hjartans þakkir færum við börnum, tengdabörnum, venslafólki og vinum fyrir ógleymanlegan kærleika okk- ur auðsýndan á gullbrúðkaupsdegi okkar 7. þ.m. Guð blessi ykkur öll. Rannveig Pálsdóttir, Hans Wíum, Sandgerði. Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem glöddu mig á 75 ára afmælisdegi mínum 7. nóv. s.l. með gjöfum, skeytum og blómum og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. • Áskell Þorkelsson frá Hrísey. Alúðarþakkir til allra þeirra, sem sýndu mér vinsemd og virðingu á áttræðisafmæli mínu 9. nóvember s.l. Guðrún Pétursdóttir. Litla dóttir okkar SIGRÍÐUR andaðist í sjúkrahúsinu á Akranesi þann 16. þ.m. Jarð- sett verður frá Akraneskirkju föstudaginn 21. þ.m. kl. 2 e.h. Björg Hermannsdóttir, Vaiur Jóhannsson. Móðir okkar ELlSABET ÞÓRÐARDÓTTIR Kvisthaga 10, andaðist í Landsspítalanum 16. nóvember. Börnin. Móðir okkar, tengdamóðir og amma KARITAS E. BJARNADÓTTIR frá Flatey á Breiðafirði, andaðist á Hvítabandinu laugard. 15. þ.m. Dsetur, tengdasynir og barnabörn. Systir min STEINUNN JAKOBSDÓTTIR forstöðukona á sjúkrahúsinu Sólheimum. andaðist aðfaranótt 16. þ.m. Fyrir hönd aðstandenda. Svafa Jakobsdóttir. Útför mannsins míns og föður okkar MAGNÚSAR MAGNÚSSONAR verkstjóra, fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 20. þ.m. kl. 1,30 e.h. Blóm afbeðin, þeim sem vildu minnast hins látna er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Ragnheiður Jónasdóttir og dætur. Maðurinn minn séra BJÖRN STEFANSSON frá Auðsúlu fyrrv. prófastur, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikud. 19. þ.m. kl. 2 e.h. Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Blóm og kransar afbeðnir. Valgerður Jóhannsdóttir. Þökkum auðsýndan hlýhug við andlát og jarðarför HARALDAR ERLENDSSONAR Jóhanna Einarsdóttir, Sjöfn Haraldsdóttir, Eygló Haraldsdóttir. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við jarðarför GUÐFINNU GÍSLADDÓTTUR Eiríksgötu 17. Ósk Kristjánsdóttir, Marino Erlendsson, Sigþrúður Jónasdóttir, Þórður Erlendsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.