Morgunblaðið - 18.11.1958, Page 12

Morgunblaðið - 18.11.1958, Page 12
12 M ORCViynJ * niB Þriðjudagur 18. n6v. 1958 Guðlaugur Rosinkranz Þjóöleikhússtjóri: Til hvers er leikgagnrýni? GAGNRÝNENDUR blaðanna, þ.e.a.s. þeir, sem hafa það starf með höndum að skrifa um leik- sýningar, virðast heyja heilagt stríð gegn Þjóðleikhúsinu, já, hafa raunar lengst af gert það, flestir þeirra, síðan sú stofnun tók til starfa. Að dómi þeirra flestra, undantekningar eru þó, á fæst af því, sem í Þjóðleikhúsinu hefur verið sýnt, erindi þangað. Ef það eru verk fraegra höfunda, sem mikið er um í alfræðiorða- bókum, er sagt að þetta sé ekki bezta verk höfundarins og hefði auðvitað átt að taka eitthvað annað. Ef það er eitthvað minna þekktur höfundur eða leikrit, þá er talað um hve furðulegt það sé að hafa getað grafið upp svo ómerkilegt leikrit. Ég tala nú ekki um ef það er gamanleikur, þá á hann ekkert erindi til okk- ar hér úti á íslandi, hann er ómerkilegur, og ekki samboðinn Þj óðleikhúsinu. ★ Gagnrýnendurnir eru víst svo alvarlega hugsandi, eða taka sjálfa sig að minnsta kosti svo alvarlega, að þeir geta ekki bros- að, nema þá Loftur, sem þráfald- lega hefur bent fólki á, að það sé alveg óhætt að hlæja á frum- sýningu. Ekki tekur betra við þegar við sýnum nýtt, íslenzkt leikrit. Þá er það alveg forkastan legt, að áliti þessara dómara. Þá er sagt, að það sé andleg flat- neskja, örli ekki á heilbrigðri hugsun, sé argasta klám, o.s. frv. Það er ekki verið að hafa fyrir því að segja í hverju veilurnar liggi, eða benda á eitthvað, sem gæti verið til uppörvunar. Nei. Það er sagt, að með því að sýna ísl. leikrit sé verið að eyðileggja íslenzka leikritagerð, og að ekki eigi að taka ísl. leikrit til sýn- ingar í næstu 10 ár. En til hvers eigum við að hafa íslenzkt þjóð- leikhús, ef ekki má sýna þar ís- lenzkt leikrit? Leikararnir fá svo sitt, það er sagt að þeir komi að vísu á svið- ið, og sýni sig. Þar sjáist atvinna þeirra, en listin hafi orðið eftir utansviðs. Ástæðan fyrir því, að þeir vinni ekki listrænt starf á svo að vera sú, að Ieikurum þjóð leikhússins eru tryggð góð húsa- kynni til þess að starfa í, og að þeir fái sæmileg laun, sem tryggja sjálfum þeim og fjöl- skyldum þeirra mannsæmandi lifskjör. En hverjum ætti að vera meira í mun að leysa verkefni sitt vel af hendi heldur en leik- ara, sem stendur í sviðsljósinu frammi fyrir hudruðum áhorf- enda, sem meta og vega hvert orð, svipbrigði og hreyfingu leikarans? Ætli hann sé þá að hugsa: ég þarf ekki að leggja mig fram, ég hef mín föstu laun. Allt líf og starf leikarans veltur Ibúd til leigu notaleg 2ja herb. risíbúð í Hlíðunum til leigu nú þegar. Tilboð merkt: „6000 fyrir- fram — 7286“, sendist Mbh, fyrir kl. 6 í kvöld. SKÓSALAN jZautjiiLWt} ! - J>ími Í6f 84 á því, hvort þessu fólki, sem í salnum situr, likar vel eða illa við hann. Svo kemur samanburðurinn hjá þessum miklu gagnrýnend- um. Einn þeirra sagði eitt vorið, þegar hann „gerði upp“ leikárið, að merkasti leiklistarviðburðúr ársins hefði verið leiksýningar nokkurra félaga utan af landi, er sýndu farsa í Iðnó. En þetta var sama árið og Þjóðleikhúsið sýndi öndvegisverk eftir ekki ómerkari höfunda en Ibsen, Shakespare og O’Neill. Þegar þeir fara svo að gera samanburð á Þjóðleikhúsinu og Leikfélagi Reykjavíkur til þess að sanna, hvað leikritaval og leiklist sé á hærra stigi hjá Leikfélaginu en í Þjóðleikhúsinu, þá er borið saman alvarlegt drama eftir Arthur Miller, (höf- und, sem er ekki með öllu óþekktur á sviði Þjóðleikhússins) og gamanleikurinn „Sá hlær bezt . . .“. En sanngirnin er ekki svo mikil, að þeir beri sýninguna á „Allir synir rnínir" saman við sýningu á „Föðurnum“ eftir Strindberg eða „Horfðu reiður um öxl“ eftir John Osborne, leik rit sem samtímis hinum eru sýnd í Þjóðleikhúsinu. Að mínum dómi væri það þó eðlilegri sam- anburður, þar sem í báðum til- fellum er um alvarleg bók- menntaleg verk að ræða. En hjá gagnrýnendunum virðist tilgang urinn með þessum samanburði, ekki vera sprottinn af þörf til þess að ræða og kryfja til mergj- ar listræn viðfangsefni, heldur sá einn að sverta Þjóðleikhúsið, og ófrægja okkur, sem þar störf- um, líklega vegna þess að við sitjum í sæmilegum stólum og höfum föst laun, ef dæma má af ummælum eins þessara postula. Þarna á að taka öfundina í þjón- ustu illgirninnar og reyna þannig að skapa illindi og ósamkomu- lag á milli þeirra, sem að leik- listarmálum vinna hér í höfuð- borginni. En það er vonlaust verk. Það er hin bezta samvinna milli Þjóðleikhússins og Leikfé- lags Reykjavíkur. Margir leikar- ar leika til skiptis á báðum stöð- um, þótt það ótrúlega skeði að gagnrýnendurnir sjái ekki eins vel list þeirra þegar þeir leika í Þjóðleikhúsinu eins og í Iðnó. Formaður Leikfélagsins lék t.d. aðalhlutverkið í síðasta verkefni Þjóðleikhússins á síðastliðnu vori og er að æfa hlutverk fyrir næstu óperusýningu Þjóðleik- hússins, þar sem hann jafnframt vinnur að leikstjórn ásamt danska leikstjóranum Holger Bo- land. Það er því alveg vonlaust verk fyrir gagnrýnendurna að ætla sér að vekja einhvern fjand skap okkar í milli. — Sumum gagnrýnendum finnst ekki minna duga, þegar þeir skrifa um sýninguna á „Allir synir mínir“, sem er mjög góð sýning og á lof skilið, en segja að nú sé loks þáttaskil í íslenzkri leiklist, með þéssari sýningu sé loks horfið frá leikaraskapnum, „dilettantismanum", og byrjað að vinna af fullri alvöru að list- rænni sköpun. Mörgum mun þykja óþarfi, þó einni leiksýn- ingu sé hælt, að fordæma og lítils virða allt, sem í landi þessu hef- ur verið gert í leiklist til þessa dags. Það minnsta, sem maður getur ætlast til er að þeir, sem slíka dóma kveða upp, færi skýr- ari rök fyrir dómi sínum en gert hefur verið. ★ Þegar þessi mál hafa borið á góma hafa sumir gagnrýnend- anna sagt við mig^-,,Við dæmum Þjóðleikhúsið harðara vegna þess, að við gerum meiri kröfur til þess en annarra". Það út af fyrir sig er sjónarmið, sem að vissu leyti er réttmætt. En hvernig á lesandinn að sjá það, þegar aldrei er neitt tekið fram um það í leikdómunum, og sést ekki á neinu, sem þar er sagt. Ekki verður neitt slíkt t.d. af því ráðið, sem leikdómari eins dag- blaðsins sagði fyrir skömmu, er hann ritaði um leiksýningu hjá Leikfélaginu á Selfossi, og sagði, að sú sýning hefði verið betri en nokkur leiksýning, sem sést hef ði á landi hér til þessa, nema ef vera kynni leikur hinna dönsku gesta frá Folketeatret í Kaup- mannahöfn á „30 Árs Henstand“ í Þjóðleikhúsinu á síðastliðnu vori. Þarna er ekki verið með neinar vangaveltur um aðstöðu- mun eða „höfðatölureglu“. Já, og hvers vegna á í raun- inni að vera með slíkt tillit. Leik- sýning, sem aðgangur er seldur að, ef ekki er tekið fram að sýnt sé í góðgerðaskyni eða inn- an skóla eða félags og fyrir fé'- lagsmenn, á að dæmast sem leik- sýning, án tillits fil þess hverjir að henni standa eða hver kostar hana. Það getur verið jafn list- ræn sýning í litlu leikhúsi með litlu leiksviði og lélegum bekkj- um, eins og í stóru leikhúsi með stóru sviði og mjúkum sætum. Og það vita allir, sem við leiklist hafa fengizt, að það er oft auð- veldara að ná listrænum áhrif- um í litlu „intimu“ leikhúsi, þar sem sviðið er lítið og í nánum tengslum við áhorfendur heldur en í stóru húsi, þar sem langt er á milli sviðs og sals. Þetta þekkja þeir, sem séð hafa sýningar í hinum litlu kjallaraleikhúsum stórborganna, þar sem öll þæg- indi vantar, en eigi að síður tekst að skapa listræna sýningu, ef leikritið hæfir þessu umhverfi og góðir listamenn leika og stjórna. Það er því engin sönnun fyrir því að stærra leikhús í sama bæ hljóti að vera lélegt þótt liltu leikhúsi með lélegri bekkjum og með minna svið, takist að gera góða sýningu. Það er líka vitað, að sýning, sem er mjog góð og áhrifarík í litlu leikhúsi, getur orðið áhrifalaus og misst marks í stóru leikhúsi, jafnvel þótt þar væru sömu leikarar og léku í sams konar leiktjöldum. Það þarf aðra og fullkomnari leiktækni til þess að leika á stóru sviði og fyrir stóran sal heldur en á litlu sviði í litlu leikhúsi. í þessu felst munur, sem gangrýnanda ætti að vera ljós. Ekki má þó skilja þetta svo, að ekki sé hægt að gera listræna, „intima“ sýningu í stóru leikhúsi. Góður leikstjóri getur auðveldlega leyst þann vanda, enda þráfaldlega gert það hér. ★ Sá hugsunarháttur virðist mjög ríkjandi hjá gagnrýnend- tun, að í orðinu gagnrýni felist það eitt að finna að, rífa niður eða níða. Ég hef alltaf litið svo á, að í orðinu gagnrýni felist hugtakið að gera sér og öðrum grein fyrir kostum og löstum þess, sem gagnrýnt er, og dæma síðan. En gagnrýni sé ekki að dæma án mats. Sumir gagnrýn- endur virðast gera sér mikið far um að ófrægja og særa sem mest. Einkum virðast leikkonurnar verða fyrir því. Þannig segir gagnrýnandi um eina leikkon- una, þegar hún leikur átakan- legt atriði með tilfinningu, að hún hafi verið með þetta kerl- ingajarm, önnur gengur svo gleið, að það er eins og spelkur séu bundnar við lærin á henni. Um eina er sagt, að hún hafi verið eins og stóðmeri á sviðinu, önnur hafi verið eins og hún væri með magapínu, af því að hún lék af innileik, sársauka og hryggð. Hverju þjónar nú svona orðbragð? Er ekki hægt að benda á veilur í leik, ef gagnrýnanda finnst þess þörf, með svolítið kurteislegra orðbragði? Ég skil ekki þessa voðalegu reiði gagn- rýnendanna við þessar' prúðu og elskulegu leikkonur. Þeir virðast sannarlega líta reiðir um öxl, ekki síður en Jimmy Porter. Það er bara eins og blessaðar leik- konurnar hafi hryggbrotið þá og þeir ætli nú að ná sér niðri á þeim þegar þær eru þarna varnarlausar áe sviðinu. ★ Þá er það atriði, sem gagnrýn- endurnir virðast sára litla hug- mynd gera sér um, það er þáttur leikstjórans í sýningunni. Það er kannske af því að þeir sjá hann ekki fyrr en að lokinni sýningu, er hann kemur fram og hneigir sig. Þeir segja að vísu, hver hafi stjórnað leiknum, og að staðsetn- ingar hafi verið góðar, og stund- um, að þær hafi ekki verið góð- ar, en í hverju það hafi legið, að staðsetningar voru ekki góðar, er yfirleitt ekki sagt. Ekki kemur það heldur fram, hvern þátt leik- stjórinn á í því að móta verkið, hvort honum hafi tekizt vel eða illa að fá fram aðalatriði leiksins, eða hvort honum hafi tekizt að túlka höfuðtilgang verksins eða stefnu höfundarins Það hlýtur þó að vera aðalatriði hvers leiksviðs verks, ef ekki er þá um algerðan farsa að ræða, sem engan annan tilgang hefur en að láta áhorfend ur hlæja. Allir, sem þekkja leik- hússtarf, vita þó, hve geysi þýð- ingarmikið verk leikstjórn er, hvað heildarsvip og túlkun verks ins snertir. Gagnrýnandi má ekki kenna leikaranum um allt það, sem hann telur að áfátt sé eða öðru vísi en hann telur réttast. Eitt af slagorðum gagnrýnend- anna er það, að þau leikrit, sem Þjóðleikhúsið sýni, hafi ekkert erindi til okkar á íslandi. Er okkur þá allt óviðkomandi, sem við þekkjum ekki úr okkar dag- lega lífi? Hvað er það í mann- legu lífi, sem oss er alveg óvið- komandi? Getur það ekki verið vænlegt til þroska og andlegrar uppbyggingar að kynnast hugs- unarhætti, lífsviðhorfum, sálar- ástandi og viðbrögðum fólks við vandamálum lífsins þó það sé í Ameríku, Rússlandi, Sviss eða Frakklandi, eða þótt það lifi við önnur kjör en við hér á íslandi og bregðist eitthvað öðru vísi við atburðum en við, ef höfundurinn hefur skapað listrænt verk? ★ Því er haldið fram, af gagn- rýnendum, að mest af því, sem Þjóðleikhúsið hafi tekið til með- ferðar til þessa, sé „einskisvert gutl“. Svona sleggjudómar eru í rauninni ekki svara verðir. Þótt ekki séu nefnd nema nöfn nokk- urra erlendra höfunda, sem Þjóð leikhúsið hefur sýnt eftir, sanna þau allt annað. Nöfn eins og Shakepeare, Moliere, Holberg, Ibsen, Strindberg, Tjechov, Shaw, Priestley, Arthur Miller, Tennessee Williams, O’Neill, Sean O’Casey, Verdi, Mozart, Puccini, Strauss og Lehar, svo nokkur nöfn höfunda, sem sýnt hefur verið eftir, séu nefnd, ættu að geta talist nokkur trygging fyrir góðu verki. Flestir myndu veigra sér við að kalla verk þess ara höfunda einskivert gutl. Þeir, sem nokkurt skynbragð bera á leikbókmenntir vita, að þetta eru einhverjir merkustu höfund- ar, sem uppi hafa verið, hver á sínu sviði, og að hér er um að ræða bæði sígild verk og þau nútímaskáldverk, sem mesta at- hygli hafa vakið hin síðari ár, enda leikin í flestum stærstu og beztu leikhúsum heimsins. En þar sem gagnrýnendurnir telja sig vita svo mikið af betri leik- ritum, sem henta okkur betur en þau, sem við höfum sýnt, hvers vegna segja þeir ekki frá þeim? Hversvegna leggja þeir ekki fram óskir sínar og færa rök að þeim? Sem betur fer hefur gagnrýn- endum ekki ennþá tekizt að glepja fólki svo sýn, að það hætti að sækja Þjóðleikhúsið. Þó sum- ir séu svo ósjálfstæðir, að þeir láti segja sér fyrir um, hvað sé gott og hvað ekki, þá eru hinir þó fleiri, sem reyna sjálfir að mynda sér skoðun, og á því bygg- ist það, að ekki hefur tekizt að fæla fólk frá því að horfa á leik- sýningar Þjóðleikhússins. Auð- vitað kemur mismunandi margt fólk á sýningarnar, vegna þess að þær eru mismunandi að efni og gæðum. Sumt efni, sem um er fjallað í leikritum, er þannig, að allur fjöldinn hefur áhuga á þvi, en annað leikrit þannig, að til- tölulega fáir kæra sig um að sjá það, en leiksýningm getur þó átt jafn mikinn rétt á sér eigi að síður. ★ Þrátt fyrir alla þá ósanngjörnu og stundum ruddalegu gagnrýni, sem Þjóðleikhúsið og við, sem störfum þar verðum að þola, er ég ennþá sömu skoðunar og við opnun Þjóðleikhússins, að gagn- rýni sé betri en deyfð og logn- molla. Stöðugur kuldaþræsingur er þó ekki heppilegur fyrir vor- gróðurinn. Verst væri, ef allir létu sér á sama standa. Ekki dett ur mér heldur í hug að halda því fram, að allt það, sem gagn- rýndurnir finna að sýningum og leikritum sé alveg ástæðulaust. Nei. En það er oft mikil ósann- girni, illkvitni, einhliða og nei- kvæð gagnrýni og stundum jafn vel níð í leikdómunum eins og að framan hefur verið sýnt fram á. Gagnrýni er gagnleg og nauð- syn, sé hún byggð á velvilja, rökum og réttvísi. Verði gagn- rýnin bannig í framtíðinni, get- ur hún orðið Þjóðleikhúsinu til leiðþeiningar, stuðnings og þroska, og þá er tilganginum með gagnrýni náð, en annars ekki. Guðl. Rósinkranz. — Ólafur Johnson Framh. af bls. 11. árið 1918. Höfðu þau eignazt fjóra syni, er upp komust. Agnar læknir í Danmörku, kvæntur Kristine Holck. Friðþjófur, fram- kvæmdastj., nú látinn, kvæntur Ágústu Jónsdóttur, Ólafssonar alþingismanns. Pétur, verzlunar- maður í New York, kvæntur Margréti Þorbjörgu Hallgríms- son læknis, og Örn, framkvæmda stjóri Flugfélags íslands, kvænt- ur Margréti Þorbjörgu Hauksdótt ur Thors, framkvæmdastjóra. — Að Helgu var hinn mesti sjónar- sviptir, er hún féll frá á bezta aldri, kona glæsileg og vel virt, er búið hafði Ólafi og sonum þeirra ánægjulegt heimili, gætt ríkum fegurðarþokka. Árið 1929 kvæntist Ólafur Guð- rúnu Árnadóttur frá Geitaskarði. Með henni og sonunum tókst ekki einungis góð vinátta, held- ur reyndist hún þeim þegar við fyrstu kynni sem hjartahlý og ástúðleg móðir og hefur svo alla tíð verið. Guldu þeir henni atlæt- ið og umsjána með því að reyn- ast henni þá og ætíð sem dreng- irnir heiínar. Guðrún og Ólafur eignuðust þrjú börn: Hannes, for- stjóri, kvæntur Sigríði Pálsdótt- ur Sigfússonar skipstjóra. Helga, búsett í Ameríku, gift þarlendum manni Charles Hersy að nafni og Ólafur, framkvæmdastj., kvænt- ur Guðrúnu Gunnlaugsdóttur Loftssonar kaupmanns. Heimili Guðrúnar og Ólafs var um langt skeið vestur í Ameríku. Hvar sem þau fóru reynd- ust þau hinir ágætustu full- trúar þjóðar sinnar. Heimili þeirra vestra var íslenzkt, í sömu sniðum og hér heima, og fengu því hinir mörgu erlendu gestir, er þangað komu, náin kynni af því sem bezt gerist hér á landi í þeim efnum. Gestrisni þeirra hjóna var viðbrugðið, og á margur landinn, sem verið hef- ur vestra hugljúfar minningar um komu sína á það heimili. Voru þau hjón sámhent í því að aðstoða landa sína er einhvers þurftu með og til þeirra leit- uðu, og töldu þá hvorki eftir fé né fyrirhöfn. Ólafur bjó við mjög ótrausta heilsu mörg undanfarin ár. Hann reyndi það af Guðrúnu alla tíð, að hún var mikilhæf kona, sem þó kom bezt í Ijós, þegar mest þurfti liðsinnið. Fyrst þegar ég leit Ólaf John- son, sat hann gegnt sólarátt, kát- ur og viðmótshlýr í vinahóp. Nú, þégar hann er horfinn, mun marg ur sakna vinar í stað. En þá er að leita á náðir minninganna, þær hlaupa ekki undan, og minnast þess, að fátt er dýrmætara en | fundur góðra vina. L. K.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.