Morgunblaðið - 18.11.1958, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.11.1958, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 18. nóv. 1958 MORGUIVBL.4Ð1Ð 3 Meiri þátttaka en nokkru ferðum Ferðafé- sinm i lagsins Nœsta árbók fjallar um Barðastrandar- sýslu SL. SUNNUDAG bauð ferða- nefnd Ferðafélags íslands blaða- mönnum og ýmsum velunnurum félagsins til hinnar árlegu sviða- messu í skíðaskálanum í Hvera- dölum. Varaforseti félagsins, Jón Ey- þórsson, bauð gesti velkomna í forföllum forsetans, Geirs Zoega, og þakkaði fyrir hönd félagsins þeim Þorsteini Þorsteinssyni sýslumanni, sem stutt hefur fé- lagið á margvílegan hátt, Hákoni Bjarnasyni skógræktarstjóra, sem er landsdrottinn félagsins í Þórs- mörk, Ovaldi Knudsen, sem oft hefur lénað félaginu kvikmyndir sínar á skemmtifundi, og fleirum. Starfsemi félagsins að undan- förnu kvað hann aðallega hafa verið bundna við sæluhúsin og sumarferðirnar. Síðan ræddi hann þá hugmynd, sem fram hef- ur komið, að finna stað undir tjldbúðir nálægt Reykjavík, þangað sem fjölskyldufólk og aðrir gætu leitað um heigar og þegar ekki ynnist tími til lengri ferða. Slíkar tjaldbúðir eru al- gengar erlendis. Hefur komið til greina að setja slíkt tjaldbúða- svæði milli Hengilsins og Þing- vallavatns. Árbækurnar eru nú orðnar 31 og hefur félagið nú brátt iátið semja og birta lýsingu á öllu landinu. Síðast kom út bók um Vestur-Húnavatnssýslu, skrifuð af Jóni Eyþórssyni. Næst kemur löng bók um Barðastrandarsýslu eftir Jóhann Skaptason, fyrrver- andi sýslumann. Árið 1960 mun koma út lýsing á suðurjöklum, eftir Guðmund Einarsson frá Mið dal, í tilefni þess að þá á fjalla- nefnd merkisafmæli. Næstur talaði Lárus Ottsen, formaður ferðanefndar, og gaf stutt yfirlit yfir störf felagsins. Auk Reykjavíkurdeildarinnar eru nú deildir úr Ferðafélaginu á fjórum stöðum úti á landi, á Akureyri, ísafirði, Húsavík og í Vestmannaeyjum, auk þess sem starfandi er sérstök fjalladeild. Félagatalan er nú komin upp í 6000 og eru árgjöld ein aðaltekju lindin, en félagið nýtur engra opinberra styrkja. Árgjaldið er kr. 50,00 og er ferðabókin inni- falin í því. í tæp tvö ár hefir Ferðafélag- ið rekið sérstaka skrifstofu á Tún götu 5. Sér Helga Teitsdóttir um daglegan rekstur hennar og veitir upplýsingar um ferðir hér á landi. Á síðastliðinu ári voru farnar 60 ferðir á vegum Ferðaféiagsins og tóku 2000 manns þátt í þeim Er þetta meira en nokkru sinni upp til óbyggða Hefur áhuginn fyrir slíkum ferðum farið vax- andi og þeim ferið fjölgandi, s?n vilja dvelja í sæluhus i n. Ekki er þó leyfð lengri dvöl en ein vika á einu. Á árina voru gróðursettar 6000 trjáplöntur x lai.'di Ferðacéugsins í Þórsmörk, og mun láta nærri að Ferðafélagið hafi gróðursett um tuttugasta hlutann af þeim plönturn, cem þar hafa verið settar niður. Á sl. vetri hélt félagið fimm skemmtifundi, við mjög góða að- sókn, og tók auk þess þátt í Tóm stundasýningunni í Listanranna- skálanum. Ferðafélag fslánds á nú 8 sælu hús í óbyggðum. í sumar fór fram endurbygging á húsinu við-Hvítár vatn, sem er 30 ára gamalt og elzta hús félagsins. Kostaði við- gerðin það, sem húsið kostaði í upphafi. Húsin á Hveravöltum og í Kerlingafjöllum voru málúð og venjuleg viðgerð fór fram á öðr- um húsum. Við Hveravallahúsið hefur nú verið gerð heit sund- laug. Á árinu hefur Ferðafélagið sett upp 5 útsýnisskífur. Ýmsir fleiri tóku til máls, m. a. Þorsteinn Þorsteinsson sýslu- maður, Hallgrímur Jónasson kennari, Hákon Bjarnason, skóg- ræktarstjóri og Guðbrandur Jör- undsson. Að lokum var forseta félagsins, Geir Zoega, sendar kveðjur frá blaðamönnum og öðrum viðstödd um. Biokkhús á Akureyri. — Um þessar mundir er unnið að því að gera fyrstu blokkhúsin á Akureyri fokheld, en þau hafa verið reist á túnunum sunnan Þórunnarstrætis og ofan Hús- mæðraskólans. — (Ljósm. vig). Kvenstúdentafélag Is- lands 30 ára KVENSTÚDENTAFÉLAG fs- lands er 30 ára á þessu ári. Stofn fundur félagsins var haldinn 7. apríl 1928 og hlaut félagið fyrst nafnið Félag íslenzkra háskóla- kvenna, en 2 árum síðar var nafn inu breytt í Kvenstúdentafélag íslands. Frú Björg C. Þorláksson dr. phil. bar upp tillöguna um stofn- un félagsins og var tillagan sam- þykkt einróma. Fyrsta stjórn félagsins var aðeins skipuð tveim konum, þeim frk. Katrínu Thor- oddsen yfirlækni, sem kosin var formaður, og frú Önnu Bjarna- í lögum félagsins segir um til gang þess, að hann sé tvíþættur. í fyrsta lagi að efla kynningu og samvinnu íslenzkra kvenstúd- enta og vinna að hagsmuna- og áhugamálum þeirra, og í öðru lagi að taka þátt í starfsemi Al- þjóðasambands Háskólakvenna og þannig vinna að samúð og samvinnu háskólakvenna um heim allan. í anda þessara laga hefur fé lagið reynt að haga starfsemi sinni á undanförnum þrem ára- tugum. Félagið hefur haldið umræðu- og skemmtifundi, oftast mánaðar lega. Á þessum fundum hafa ver dóttur B. A. í Reykholti, sem j ið rædd hagsmunamál félags kosin var ritari og gjaldkeri. Frk. Laufey Valdemarsdóttir cand. phil. starfaði af lífi og sál í félag- inu meðan hennar naut við og | sat lengst af í stjórn þess. Jónatan Olafsson hlaut aðalverðlaun S.K.T. „Tólfti september" hlaut I. og 2. verðlaun i gömlu dönsunum DANSLAGAKEPPNl S.K.T., sem staðið hefir yfir að undanförnu, er nú lokið. Voru úrslit. keppn- innar kunngerð á dansleik í Góð- templarahúsinu sl. laugardags- kvöld. Eins og kunnugt er, gafst fólki kostur á að greiða atkvæði um þrjú beztu lögin við gömlu dans- ana og þrjú við nýju dansana (af þeim lögum, sem valin voru til úrslitakeppninnar) á dansleik í Góðtemplarahúsinu og miðnætur skemmtun í Austurbæjarbíói fyr- ir skömmu. Auk þess voru öll lögin í úrslitakeppninni leikin í útvarp, svo útvarpshlustendum gæfist einnig kostur á að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. — Þátttakan varð og mjög mikil — yfir 1300 manns greiddu atkvæði. S.K.T. veitti tvenn aðalverð- laun, önnur fyrir lag það, er hlaut flest atkvæði allra í keppn- inni (far með Gullfossi til Hafn- voru veitt viðurkenningarskjöl fyrir tvö lög önnur úr hvorum flokki. Fyrst voru afhent verðlaun fyrir lögin við gömlu dansana. Úrslitin þar urðu þau, að „Halló“, tangó eftir „Heppinn“ fékk flest atkvæði, eða 696. Þetta lag hlaut 500 króna verðlaunin, en höfund- ur þess reyndist vera „Tólfti september“, Reykjavík. „Land- helgispolkinn", fékk næstflest atkvæði, en „Tólfti september" er einnig höfundur þess. Hlaut SIAKSTtlMAR kvenna og ýmis þau mál, sem efst eru á baugi hverju sinni þjóðfélaginu. Félagið hyggst framtíðinni,'eftir því sem ástæð ur leyfa, styrkja efnilega ís lenzka kvenstúdenta til háskóla' náms bæði hérlendis og erlendis, Á þessum merku tímamótum er það félaginu fagnaðarefni að geta skýrt frá því, að fyrsta slík- an styrk mun félagið veita á næsta ári, sennilega að upphæð 13 til 14 þúsund krónur, og er ákveðið að hann verði veittur kvenstúdent við nám við erlend- an háskóla. Styrkur þessi verður innan skamms auglýstur til um- sóknar með nánari ákvæðum. Margir íslenzkir kvenstúdentar hafa á undanförnum árum sótt alþjóðleg þing sambands háskóla kvenna og .fylgst með og tekið þátt í starfi þess. Sambandið hef- ur auk margs annars safnað fé til styrktar barnahjálp S. Þ., og hefur Kvenstúdentafélag fslands um nokkurt árabil annazt jóla- kortasölu til ágóða fyrir sjóð barnahjálparinnar. Ennfremur veitir alþjóðasambandið árlega fjölda kvenna innan samtakanna styrki til vísindaiðkana í ýmsum hann skrautritað viðurkenning- “ y Á, ■* ív. 7 “ ’ londum. Megnið af þessum styrkj arskjal fyrir þetta lag, svo og & i- j ar og heim aftur), en hin fyrir fyrr. Er hér um að ræð* land-1 atkvæðahæsta lagið í hinum kynningarferðir, aðallega ferðir I flokknum (500 krónur). Auk þess Heilræði lil neytenda I SÍÐASTA bæklingi Neytendasamtakanna eru neytendum lögð ýmis heilræði. Þau eru eflaust hverjum manni noll: Vandið vel til allra kaupa. Frestið kaupum, séuð þér í vafa. Aflið yður vöruþekkingar. Vöruþekking er peningar. Hafið bókhald yfir útgjöld yðar. Það auðveldar yður að verja fé vðar af hyggindum. Kaupið þér hlut með ábyrgð, þá kynnið yður nákvæmlega, hvað í ábyrgðinni felst. Takið greinilega fram, hvort átt sé við endurgreiðslu eða skipti, sé keypt með fyrirvara. Gerið seljanda viðvart án tafar, komi galli á vöru í Ijós. Biðjið um dagsettan reikning, þegar þér gerið kaup, sem máli skipta. Verzlið sem mest gegn staðgreiðslu og veljið vörurnar sjálf. Athugið verðið. Það er ekki hið sama alls staðar. Munið, að lágt verð þarf ekki að tákna lélega vöru, og hátt verð er engin trygging fyrir gæðum. Kaupið aðeins það, sem þörf er á, í dag, svo að þér neyðist exki til að vera án þess, sem þér þarfnist, á morgun. höfundur þriðja atkvæðahæsta lagsins, „í Egilsstaðaskógi" — en það reyndist vera eftir Þórhall Stefánsson, Reykjavík. Fjórða atkvæðahæsta lagið í þessum flokki var „Við fljúgum", sem tileinkað er flugfélaginu Loftleiðum. Ákvað félagið að heiðra það lag með sérstökum verðlaunum, og flutti fulltrúi fé- lagsins, Sigurður Magnússon, ávarp í tilefni þess. — Sagði Sig- urður, að verðlaunin skyldu ná bæði til höfundar lags og Ijóðs, en svo skemmtilega vill til, að hér eiga hjón hlut að máli. Guðný Richter er höfundur lagsins, en maður hennar, Reinhold Richter, hefir samið textann. Verðlaun Loftleiða eru flugfar til megin- landsins og heim aftur. Þá voru afhent verðlaun fyrir lögin við nýju dansana. — Það lag, sem flest atkvæði fékk í þeim flokki — og jafnframt í allri keppninni — var „f landhelg- inni“, foxtrott, eftir N.N.. Hlaut það 769 atkvæði. Höfundur reyndist vera Jónatan Ólafsson, Reykjavík. Hlýtur hann að verð- launum förina til Kaupmanna- hafnar. — Annað í röðinni varð lagið „Sprett úr spori“, en höf- undur þess er „Tólfti september“, Reykjavík. Hlaut hann viður- kenningarskjal, sem og Árni ís- leifsson, höfundur þriðja atkvæða Framh á bls 18 um er framlag einstakra félaga. Kvenstúdentafélag íslands hefur veitt einn slíkan styrk og naut hans á þessu ári ung ensk mennta kona, Ursula Brown, sem starfar við Sommerville College í Ox ford. Ungfrú Brown hefur á und- anförnum árum kynnt íslenzkar fornbókmenntir í heimalandi sínu, og nú sem stendur vinnur hún að Eddu-þýðingu, sem koma mun út innan fárra ára. Félaginu er það mikið ánægjuefni að hafa að nokkru getað veitt stuðning til þessa verks. Kvenstúdentafélagið óskar eft ir að mega líta á alla íslenzka og erlenda kvenstúdenta búsetta hér sem meðlimi sína og væntir með því móti að geta betur rækt það hlutverk, sem forustukonur félagsins ætluðu því í upphafi. Formenn félagsins hafa aðeins verið fjórir frá upphafi: Frk. Katrín Thoroddsen yfirlæknir var formaður í tæp 20 ár. Síðan hafa gegnt formennsku þær frú Hildur Bernhöft, cand. theol., frk. Rannveig Þorsteinsdóttir, lögfræðingur, og frú Ragnheiður Guðmundsdóttir, læknir, núver- andi formaður. Næstkomandi miðvikudag 19. nóvember mun félagið minnast þessara tímamóta með sam- kvæmi í Þjóðleikhússkjallaran- um, og væntir þess að sem flestir kvenstúdentar geti verið þax við- staddir. Skýlausar yfirlýsingar Lúðvíks Hinn 19. ágúst sl. skýrði Þjóð- viljinn frá ummælum Lúðvíks Jósefssonar um landhelgismálið, sem hann hafði þá viðhaft í Kaup mannahöfn. í frásögn Þjóðviljans er þetta m. a. haft eftir Lúðvík: „Síðan sagði hann að ísland myndi ekki leita á náðir Atlants- hafsbandalagsins, ef Bretland gerði alvöru úr hótunum sínum um vopnaða aðstoð við togara að veiðum innan 12-mílna takmark- anna eftir 1. september". Tii frekari áherzlu bætti Lúð- vík að sögn Þjóðviljans þessu við: „Atlantshafsbandalagið kemur hér alls ekki við sögu.“ Nú er Lúðvík Jósefsson þekktur að öðru fremur en orðheldni og staðfestu í málflutningi. Hann hélt sig þó í fyrstu óhagganlega á þeirri línu, að Atlantshafsbanda laginu kæmi þetta mál ekkert við. Þannig var í Reutersskeyti frá London, sem Morgunblaðið birti hinn 5. sept. sl. sagt svo: „Fréttamaður Reuters í Reykja vík átti í dag samtal við Lúðvík Jósefsson og spurði hann m. a. hvort íslendingar mundu fara úr NÁTO vegna landhelgisdeilunn- ar. Ráðherrann svaraði því til, að það væri heimska að blanda saman landhelgisdeilunni og aðild íslands að Atlantshafsbandalag- inu“. Lúðvík undi „makkinu“ Þessu hélt Lúðvík frain á með- an það hentaði. Þá varð að koma í veg fyrir, að Atlantshafsbanda- lagið veittti okkur aðstoð. En nú er bandalaginu kennt um hvernig komið er. Nú hefur Lúð- vík og öll hans hersing snúið blað inu alveg við. T. d. sagði Þjóð- viljinn sl. sunnudag: „Hvar er „vernd“ Atlantshafs- bandalagsins, þegar sterkasta her veldi Vestur-Evrópu ræðst á fs- land og herskip þess sigla i dauða færi við sjálfar aðalstöðvar „varn arliðsins“ svonefnda í Keflavík?" Þjóðviliinn veit vel, að það eru einmitt kommúnistar með Lúð- vík Jósefsson í broddi fylkingar, sem hafa liindrað, að málinu væri á réttan liátt skotið til Atlants- hafsbandalagsins. Lúðvík Jósefs- son og þeir kumpánar sættu sig við það, að í allt sumar væri verið að „makka“ um málið á vegum bandalagsins suður í Par- ís. En þegar Sjálfstæðismenn kröfðust þess, að breytt væri um vinnubrögð og málið tekið upp á þann veg, að okkur mætti að gagni verða, þá umhverfðust kommúnistar. Friðhelgi ógnað Sjálfstæðismenn gerðu það að tillögu sinni þegar í ágúst, að Englendingar yrðu kærðir fyrir Atlantshafsbandalaginu vegna þess, að þeir ógnuðu friðhelgi íslenzks landsvæðis. Því miður var ekki orðið við þeirri tillögw. Kommúnistar réðu því. En ein • mitt þess vegna getur Atlants- hafsráðið nú svarað því, að ís- Iendingar hafi ekki viljað skjóta málinu til þess. Hinir síðustu at- burðir sanna, að það hefði átt að gera þegar í upphafi, og nú verð- ur alls ekki hjá því komizt, nema menn vilji fallast á hina ZVi mán- aðar gömlu skoðun Lúðvíks Jós- efssonar, að Atlantshafsbandalag inu komj þetta mál hreint ekki við. En tvöfeldni kommúnista verð ■ ur æ augijósari f öðru orðinu ólmast þeir yfir, að Atlantshafs- bandalagið verndi okkur ekki, ea ætla þó alveg að ærast, ef tiilaga er gerð uno að leita til þess á lögformlegan hátt!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.