Morgunblaðið - 09.12.1958, Síða 8

Morgunblaðið - 09.12.1958, Síða 8
8 MORGVIS RL AÐIÐ Þríðjudagur 9. des. 1958 Birkikrossviður 4 mm. B og 5 mm. BB fyrirliggjandi. Sendum heim. Harpa h.f. Einholti 8. ■ K Ondvegis- svefnherbergishúsgögn Á ÖNDVEGIS VERÐI: Rúm og náttborð 4.200.00 Snyrti-kommóður 2.100.00 2 st. kollar, klæddir gærusk. 900,00 2 st. Visprigndínur 2.750,00 Samtalskr. 9.950,00 Öndvegis-greiðsluskilinálar. Öndvegi hf. Laugaveg 133 STEYPUJARN 16 m.m. Steypujárn. H.F. AKUR Hamarshúsinu (Vesturenda) Símar 13122 og 11299. Ctlækð Hárgreiðsludama óskast strax. Hárgreiðslustofan Lotus Bankastræti 7 — Sími 11462. Krisfmann Cuðmundsson skrifar um BÓKMENNTIR 1 dagsins önn. Eftir Sigurð Sveinbjörnss. Bókaforlag Odds Björnss. Aldraður verkamaður kveður sér hljóðs með þessari ljóðabók á eftirtektarverðan hátt. Auðséð er a* hann hefur verið góðri skáld- gáfu gæddur, en litla möguleika mun hann hafa haft til að þjálfa hana og þrosk-a. Líklegt er að hann sé að hugsa um sitt eigið líf, er hann kveður svo — í ljóð- inu: „Umhverfi og ættarfylgja": „Hve margur hefur staðið einn á strönd og starað út á hafið breiða og þráð að nem-a ný og fögur lönd og nálgast þekking bjarta og heiða? En örlaganna þykki þokuskafl fær þrána veikt með dómsins orði. Hve margur hefur teflt sitt ævitafl og tapað leik á hverju borði?“ Sigurður hefur ágæta rímgáfu, en smekkurinn er ekki öruggur, sem naumast er að búast við, og alloft er notast við setningar, er mörg skáld hafa notað áður. En furðu oft lyftir skáldið sér upp úr hversdagsleikanum og hefur þá gott að bjóða: „Rökkurkyrrðin gefur gullna stund, gl-aðan eld, sem rór og stilltur brennur. Blóðsins elfur hljótt um huglönd rennur. Hjartað leitar, þráir draumsins fund“. Beztur er ’iann í svona smá- Ijóðum, lakari í stærri kvæðum, þegar hann ætlar að taka mikið á, eins og t.d.: „Á Gimli“, „Guð- mundur á Sandi“, „Island talar“, og fl. slík. Miklu athyglisverðari eru ljóð eins og: „Sigling", „Ég hlýddi á þína söngva“, „Tregi“, „I Fagradal". Prýðilega gerð kvæði eru: „Verkamaður," og „Hinn hljóði gestur", en „I sval- viðri haustsins" er perla, sem m-argur vildi kveðið hafa. Þar og í „Grásteini" fer hið aldna skáld á kostum, sem gleðja jafnvel vand fýsinn lesanda. „1 álagaviðjum" er gott kvæði. Margt er fallega hugsað í bók þessari og lesandinn finnur að fleira býr í barmi skáldsins en það megnar að klæða orðum. Og manni verður hlýtt til gamla mannsins við lesturinn; kverið skilur eitthvað eftir, sem gerir mann ríkari, — og ekki gera all- ar bækur það þótt listfengari geti talist! — Loks skulu hér tilfærð tvö erindi úr kvæðinu: „Nókkv- inn“: „Lengjast skuggar. Blása kann að kveldi kul um gamlan nökkva. Brennur glóð. En frá þeim arin- eldi engir neistar hrökkva. Veiku skipi verður margt að grandi, það velkist öðrum fremur. En ef til vill mun nökkvinn ná þar landi, sem nóttin ekki kemur“. Innan hælis og utan Eftir Vilhjálm Jónsson frá Fcrstiklu. Forlag höfundar. Vilhjálmur Jónsson er í öryggri framför, þótt enn geti hann ekki talist neitt stórskáld. En hann hef ur skemmtilega frásagnargáfu, það er líf í frásögn hans, sem fær lesandann alloft til að gleyma kunnáttuskorti í vinnubrögðum og slælegum listatökum. Ekki er því að leyna, að margir gallar eru á þessari sögubók hans, en í henni eru að minnsta kosti tvær sögur, sem geta talist eftirtektarverður skáldskapur: sú fyrsta og næst síðasta: „Endui-minningin eilífa", og „Sláttulúinn kirkjuþjónn". Hin síðarnefnda er um engan minni en séra Hallgrím Pétursson og bregður upp all-ljósri mynd af sá'maskáldinu og konu hans, Tyrkja-Guddu. Þetta er það bezta, sem Vilhjálmur hefur gert fram að þessu, og á vdðurkenn- ingu skilda. Lesandinn sér og skynjar þau bæði, Hallgrím og konu hans, og myndin af Hall- grími er nýstárleg, skemmtilega dregin og athyglisverð. — „End- urminningin eilífa“ er skrambi langdregin, en í henni er skáldleg stemning, fínleg og falleg. Vilhjálmur Jónsson þyrfti að temja sér meiri strangleika í með ferð efnis sins og vandaðri vinnu brögð. Allvíða í sögum hans kenn- ir óþarfa mælgi og gamburs og hann er ekki nógu sparsamur á ur enn ekki tamið hana til hliðni við lögmál listarinnar. Sjö skip og sin ögnin af hverju. Eftir SigurS Harulz. IsafoIdarprentsmiSja. Sjóferðaþættir Sigurðar Har- alz eru góður c 'emmtilestur. Hann segir hispurslaust frá og lendir í óteljandi ævintýrum, allt frá því aó hann er tekinn fastur fyrir að sofa standandi í miðri umferðinni í Sydney, og þar til hann kemur með „Islandinu" upp til Vest- mannaeyja á sjálfan lokadaginn eitt vorið. En lesandinn, sem fylg- ist með honum, hittir á þeirri leið mikinn fjölda af hressilegum ná- ungum, sem gaman er að kynn- as;. Oft er óviðrasamt og allraka- samt, bæði á sjó og 1-andi og ekki nærri alltaf af náttúrunnar völd- um. Höf. gerir mikið úr þorsta sínum, það mikið, að lesandinn hugsar sem svo: Sjóferðabókin hans hefur líklega verið þokkaleg! En viti menn: kemiur þá ekki ein- mitt mynd af sjóferðabókar- skömminni og þar stendur undir „Report of character" hvorki meira né minna en „very good“ í hverri linu. Ekki er því að neita, að sú einkunn veikir trú vora á sannleiksgildi frásagnarinnar. — En það gerir ekki svo mikið til, því höf. kann vel þá list, að láta lesandanum ekki leiðast; hann hef ur ágæta frásagnargáfu. F élagslíl Knattspyrnufélagið Valur. Skíðanefndin heldur skemmti- fund í félagsheimilinu í kvöld kl. 8,30. Dagskrá: 1. Eysteinn Þórðarson segir frá skíðamótum erlendis. 2. Sýndar úrvals skíðakvik- myndir. Allir Valsmenn velkomnir. Skíðanefndin. Körfuknattleiksdeild K.R. Piltar! Munið æfinguna í kvöld kl. 9 í íþróttahúsi Háskólans. Stjórnin. Félag austfirzkra kvenna. Fundur fimmtud. 11. des. í Garðastræti 8. Hefst kl. 8,30 stundvíslega. Spiluð verður fé- lagsvist. Stjórnin. MÁLFLUTNINGSSKRIFSEOFA pAll s. pálsson Bankaslræti 7. — Sími 24-200. ISf6T l“*JS ngissiSjjr giA uingaoj) ■j-« iinajHB ivn ^NnsKiaaHRU Emi seni frrr e** GUDRUN FRÁ LUNDI vinsælasli ritliöl'iimliiriiiii. rTu e.' siðasla liók liennar: SVÍGUR SÁRT BRENNDUM l»ví nær ii|>|»»el<l. SlragiTfe ekki að kanpa bókina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.