Morgunblaðið - 09.12.1958, Side 23

Morgunblaðið - 09.12.1958, Side 23
Þriðjudagur 9. des. 1958 MÖRGTINfíLAÐIÐ 23 biskupsfrumvarps- ins ráðin í dag FUNDIR voru settir í báðum deildum Alþingis á venjulegum tíma í gær. Eitt mál var á dag- skrá efri deildar, útflutningssjóð- ur o. fl., frv. Var það til annarrar umræðu og vísað til 3. umr. sam- hljóða. Á dagskrá neðri deildar var eitt mál. Almannatryggingar, frv. — Var það til 2. umr. og visað til 3. umr. samhljóða. — Var fundi síð- an slitið, en settur samstundis aftur og leitaði forseti afbrigða hvort málið fengist tekið til 3. umr. og var það veitt. Umræður urðu engar en frumvarpið var samþykkt samhljóða og afgreitt til efri deildar. Ný þingskjöl Fjórum nef-idarálitum var út- býtt á Alþingi í gær. Frá meiri Hraðkeppni í körfuknattleik á Akureyri AKUREYRI, 8. des. — Síðari hluti hraðkeppni í körfuknattleik fór fram í íþróttahúsi Mennta- skólans á Akureyri í gær. Úrslit urðu sem hér segir: B-lið KA vann A-lið ÍMA 22:21 stig, Þór vann A-lið ÍMA 41:36, A-lið KA vann Þór 64:32, B-lið KA vann ÍMA 36:26 og A-lið KA vann B-lið ÍMA 63:26. A-lið KA vann því mótið með 8 vinningum, sigraði alla mót- herja og hlaut 256 stig gegn 122. Annað varð B-lið KA, hlaut 6 vinninga og fékk 114 stig gegn 141. Þriðja varð Þór með 4 vinn- inga, hlaut 141 stig gegn 165. íþróttafélag MA sá um mótið, sem fór hið bezta fram. — vig. Vel heppnað kynningarkvöld Ferðafélags Akurey rar AKUREYRI, 8. des. — í gær- kvöldi efndi Ferðafélag Akureyr ar til kynningarkvölds í sam- komuhúsi bæjarins. Dr. Sigurður Þórarinsson, jarðfræðingur, kom hingað norður og sýndi skugga- myndir og Heklukvikmynd þeirra Steinþórs Sigurðssonar og Árna Stefánssonar. Flutti hann langar og ýtarlegar skýringar með myndunum, og var erindi hans bæði fróðlegt og skemmti- legt. Því næst var sýnd Horn- strandakvikmynd Ósvalds Knud- sen með skýringum Kristjáns Eldjárns, þjóðminjavarðar, en þær eru á hljóðræmu á filmunni sjálfri. Samkomuhúsið var þétt setið og þótti kynningarkvöld þetta takast ágætlega. Formaður Ferðafélags Akureyrar, Kári Sigurjónsson, kynnti atriði. SKIPAUTGCRB RIKISINS HERÐUBREIÐ austur um land til Þórshafnar hinn 13. þ.m. Tekið á móti flutn- ingi til Hornafjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Borgarfjarðar, Vopnafjarðar, Bakkafjarðar og Þórshafnar í dag og árdegis á morgun. Farseðl ar seldir á föstudag. Æskilegt er að fólk athugi, að þetta er síðasta ferð Herðubreiðar til nefndra hafna fyrir jól. M.b. BALDUR fer til Hvammsfjarðar og Gils- fjarðarhafna á morgun. Vörumót taka í dag 'og minni hluta allsherjarnefndar efri deildar um frv. til laga um breytingu á lögum um biskups- kosningu. Leggur meiri hlutinn (Friðjón Skarphéðinsson, Björn Jónsson og Páll Zóphóníasson) til að frv. verði fellt, en minni hlut- inn (Friðjón Þórðarson og Jón Kjartansson) leggur til að það verði samþykkt. — Nefndarálit um frv. um dýralækn-a og frv. um almannatryggingar voru sam- hljóða. — 1 dag verður frumvarpið um breytingu á lögum um biskups- kosningu tekið til 2. umr. í efri deild og fæst þá væntanlega úr því skorið hvort það verður fellt eða samþykkt í deildinni. Fyrstu tónleikar Tónlistarfélags Keflavíkur KEFLAVÍK, 8. des. — Sl. föstu- dag efndi Tónlistarfélag Kefla- víkur til fyrstu tónleika sinna á þessu starfsári. Voru þeir haldn- ir í Bíóhöllinni og voru fyrir styrktarmeðlimi félagsins og aðra gesti. Listamaðurinn, sem kom fram á þessum tónleikum var hinn kunni píanóleikari Jón Nor- dal. Vígði hann nýjan flygil, er Tónlistarskóli Keflavíkur hefur nýlega fest kaup á frá Þýzka- landi. Flygill þessi er af gerðinni Bliiter, og verður hann notaður við kennslu í skólanum í vetur. Á efnisskrá tónleilcanna voru verk eftir Handel, Beethoven, Chopin og Béla Bartók. Var lista- manninum ákaft fagnað, og bár- ust honum blóm. f tónlistarskóla félagsins eru nú 63 nemendur, er skiptast í þrjár deildir, barnadeild, blásturshljóð færadeild og píanódeild. Skóla- stjóri Tónlistarskólans er eins og áður, Ragnar Björnsson, en frú Vigdís Jakobsdóttir er formaður Tónlistarfélagsins. Tónlistarskól- inn er nú til húsa í kjallara Bíó- hallarinnar, og eru skilyrði þar hin beztu fyrir skólann. — Ingvar. Elínus á Galta- hrygg látinn ÞÚFUM, N.-ís., 5. des. — Hinn 3. þ. m. varð bráðkvaddur að heimili sínu Elínus Jóhannesson óðalsbóndi á Galtahrygg, fædd- ur 12, jan. 1888, og því rúmlega sjötugur að aldri. Með Elínusi er fallinn í val- inn dugandi bóndi, er um mjóg langan aidur hefur búið m’klu rausnar og myndarbúi, lengst af í Heydal, því þar V'ar hánn upp- alinn og var þar alian sinn aldux. Elínus var mikill mannkostamað- ur, greiðvikinn og gestrisinn höfðingi heim að sækja, hélt jafn an uppi sérstakri risnu á haim- ili sínu, glaðsinna og góðviljaður, vinsæll svo a' bar og laðaði alía að sér. Með honvm er falli.m í valinn einn ágætasti borgari sinn ar sveitar. E iv us var kvæntur Þóru Run- ólfsdóttur Jónísunar, fyrrurn bónda í Heydal, et. dáin er hin fyrir mörgum irvm. Þeim varð 3 sona auðið og eru 2 þeirra á liíi, Runólfur, verzlunarmaður í Reykjavík, og Guðmundur, bíl- stjóri, búsettur í Kópavogi, dug- andi menn «»g vel metnir. Fyrir nokkrum árum brá Elín us búi í Heydal og seldi jörðina öðrum á leigu, en hóf brátt bú- skap aftur og tók þá eyðijörðina Galtarhrygg, er hann átti, og hélt þar áfram margskonar endurbót um, bæði í húsabótum og rækt- un, er allt miðaði að því, að gera þar gott ábýli. Hann tók laug rétt hjá bæ sínum og hitaði með henni íbúðarhúsið, ásamt margs- konar umbótum öðrum. Elínus ól upp fósturson, Sverri Gíslason. I. O. G. T. St. Verðandi nr. 9. Fundur í Rvöld kl. 8,30. 1. Inntaka nýliða. 2. Áfengisbölið í Grænlandi: Þorst. J. Sigurðsson. 3. Spila- og kaffikvöld. Allir velkomnir. _________ Spilakvöld Templara í Hafnarfirði. Síðasta kvöldið í 5 kvölda keppninniverður miðvikud. 10. des. Heildarverðlaun og kvöld verðlaun. Byrjað verður á nýrri keppni miðvikudaginn 7. janúar 1959. — Spilanefndin þakkar þátt tökuna og óskar eftir framhaldi ánægjulegra kvölda. Lokað í dag vegna jarðarfarar. JÓN SIGMUNDSSON skartgripaverzlun. Lokað í dag vegna jarðarfarar. RAGNAR JÓNSSON hæstaréttarlögmaður. Innilegar þakkir færi ég læknum og starfsfólki á sjúkra húsinu Hvítabandinu og á Sólvangi fyrir ágæta hjúkrun konu minnar KRISTJÖNU SIGURÐARDÓTTUR og umönnun alla í hennar löngu sjúkdómslegu. Guð blessi ykkur öll. Tryggvi Á. Pálsson, Reykjavíkurvegi 31. Minningarspjöld Stofnendasjóðs Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar eru afgreidd á skrifstofu Elliheimilisins og í Verzlun Jóns Þórðarssonar. Mitt innilegasta þakklæti færi ég hér með öllum þeim mörgu vinum mínum, körlum og konum, er sýndu mér ógleymanlega vináttu í sambandi við 70 ára afmæli mitt með heiðurssamsætum, greinum, ljóðum, ræðum, bréf- um, skeytum og gjöfum. Hamingjan fylgi ykkur öllum. Jón Pálmason, Akri. Faðir minn ÁSMUNDUR BJARNASON Minneapolis, Minnisota, andaðist í sjúkrahúsi þar í borg, laugardaginn S. des. 1958. Fyrir hönd vandamanna. Ingólfur Ásmundsson. Móðir okkar GUÐRÚN GRlMSDÓTTIR frá Ásgarði, andaðist 6. þ.m. að heimili sínu Búrfelli í Grímsnesi. Börnin. Maðurinn minn og faðir okkar ÓSKAR JÓNSSON Ásvallagötu 31 Rvík., andaðist að Landsspítalanum aðfaranótt 8. desember. Jarðarförin ákveðin síðar. Sigríðnr Stefánsdóttir og börn. Útför móður okkar RAGNHILDAR SIGURÐARDÓTTUR Laugavegi 8, fer fram Fossvogskirkju á morgun miðvikudaginn 10. des. kl. *2 s.d. — Athöfninni verður útvarpað. F.h. okkar systkinanna. Ragnar Jónsson. Jarðarför MARGRÉTAR ÞORVARÐARDÓTTUR fer fram miðvikudaginn 10. þ.m. og hefst með húskveðju að heimili hennar, Týsgötu 8, kl. 13,15. Athöfnin í Dóm- kirkjunni hefst kl. 14,00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Stofn- endasjóð Elli- og hjúkrunarheimilisins Grundar. Rafn Júlíusson, Sigurrós Júlíusdóttir Lára og Þorvarður Jón Júlíusson. Fósturfaðir minn BRYNJÓLFUR BJÖRGÚLFSSON verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 10. þ.m. kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað. Þeim, sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir. Stefán Stefánsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför HERDlSAR STlGSDÓTTUR Álfhólsveg 15, Kópavogi. Einar Júliusson og f jölskylda. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og j£u~ð- arför KRISTJÖNU SIGURÐARDÓTTUR frá Kirkjubóli í Skutulsfirði. Reykjavík, 8. desember 1958 Tryggvi Á. Pálsson, börn og tengdabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns BJARNA JÓNSSONAR Meiri-Tungu. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Þórdís Þórðardóttir. Innilegar þakkir til allra, er auðsýndu samúð og vinar- hug, við andlát og útför föður míns ÖLAFS HELGASONAR Bergstaðastræti 8. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna. Guðríður Ólafsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.