Morgunblaðið - 14.12.1958, Blaðsíða 1
II
fH0¥0iltitl>lll3!>Í$
Sunnud. 14. des. 1958)
JÓLA-BÆKIJR
fyrir alla fjölskylduna
BÓKAÚTGÁFAN SETBERG. HÖFÐATÚNI12. SÍMI 17554.’
MeS þessu þriðja þindi lýkur bókaflokknum „Við sem bygrgðum þessa
borg“. Alls hafa 25 Reykvíkingar úr öllum stéttum sagt frá, en í þessu
bindi segja átta kunnir borgarar sögu sína: Halldór Jónasson cand. phil.;
Guðjón Jónsson kaupmaður; Guðmundur Bjarnason bakari; Jóhanna Egils-
dóttir húsfrú; Grímur Þorkelsson skipstjóri; Jónas Jónsson frá Grjótheimi;
Kristinn Brynjólfsson skipstjóri; Garðar Gíslason stórkaupmaður. —
Sögumenn segja skemmtilegar persónusögur, — þeir lifðu æsku borgar-
innar og hafa á einn eða annan hátt unnið að því að byggja hana. í frá-
sögnum þeirra endurspeglast Reykjavík aldamótanna, lífsönn þess fólks,
sem nú er að kveðja, en tímarnir, sem það lifði, koma aldrei aftur.
Vilhjálmi S. Vilhjálmssyni lætur vel ævisagnaritun og leiðir sögumenn
iína örugglega fram á sjónarsviðið og glæðir frásögnina lífi hins snjalla
Bvisagnaritara. — Kr. 168,00.
Kjartan Ólafsson, höfundur bókarinnar „Sól
í fullu suðri“, hefur skrifað nýja ferðabók:
ELDÓRADÓ. Hann býður lesandanum að
ferðast með, sjá og njóta, dansa við Indíána-
meyjar, ræða við milljónera, heimsækja
glæsilegasta fornminjasafn Suður-Ameríku,
ferðast um frumskóga, heimsækja nætur-
klúbba. Kjartan ræðir við alfonsa og betlara
á strætinu og gengur á vit mannætu í
Kólombíu. ELDÓRADÓ á sérstöðu meðal
íslenzkra ferðabóka; Neistandi myndræn
frásagnargáfa, mikill fróðleikur og frumleg
stílsnilld. — Kr. 148.00.
Dod Orsborne er mikill ævintýramaður, —
honum er ævintýraþráin í blóð borin. í
DAUÐANS GREIPUM er síðasta bók hans,
skrifuð nokkrum mánuðum fyrir hinn
voveiflega dauða hans í febrúarmánuði síð-
astliðnum. Allar þrjár fyrri bækur hans hafa
komið út á íslenzku á vegum Setbergs: „Skip-
stjórinn á Girl Pat“, „Hættan heillar" og
„Svaðilför á Sigurfara“. Orsborne fer að
þessu sinni tvær ferðir á skútunum „Argosy“
og „Mirage", sem báðar sökkva, en Orsborne
er tekinn höndum, — sleppur þó, nær dauða
en lífi, eftir miklar þrengingar. — Kr. 145.00.
FJÖLFRÆÐIBÓKIN er full af fróðleik fyrir fólk á öllum
aldri. í bókinni eru 1800 myndir og uppdrættir, fullur helmingur lit-
myndir. Fjörutíu fræðimenn og þjátíu listamenn unnu að frumút-
gáfunni. Bókin er í mjög stóru broti og kostar kr. 198,00.
KRISTÍN LAFRANZDÓTTIR
Öll þrjú bindin, í snilldarlegri þýðingu Arnheiðar Sigurðardóttur og
Helga Hjörvar, eru 1227 blaðsíður og kosta 450 krónur í fallegu rexin-
bandi. „Kristín Lafranzdóttir“ sameinar það tvennt: að vera eitt af
öndvegisritum heimsbókmenntanna og um leið stórbrotin ættar- og
ástarsaga.
...og tvö öndvegisverk
■ ALDUR PÁLMASON hefur um
árabil séð um marga barnatíma Ríkisút-
varpsins. Hann hefur nú tékið saman í
eina bók allar skemmtilegustu vísurnar
og kvæðin, sem börnin syngja á jólun-
um: Göngum við í kringum einiberja-
runn — Nú skal segja — Dansi, dansi
dúkkan mín — Adam átti syni sjö —
’Þyrnirós — Jólasveinar einn og átta —
og margar fleiri skemmtilegar vísur og
kvæði. Með hverri einustu vísu fylgir
teikning. — Kr. 25,00.
SIGURBJÖRN EINARSSON
hefur tekið saman litla og fallega bók
með morgunbænum, kvöldbænum og
öðrum barnaversum, svo sem: Ó, Jesú,
bróðir bezti — Nú er ég klæddur og
kominn á ról — Ástarfaðir himinhæða —
Ó, faðir, gjör mig lítið ljós — Guð vill að
ég sé honum sólskinsbarn — Ungum er
það allra bezt — Ó, ljóssins faðir, lof sé
þér — Faðirvorið — Blessunarorðin og
fleira, sem öllum börnum ætti að vera
hollt að kynnast. Kosta kr. 20.00.
Fyrir yngstu lesendurna: Fjórar nýjar bækur um Snúð og Snældu: „Snúður og
Snælda í jólaskapi“ — „Lappi, vinur Snúðs og Snældu“ — „Lappi og Lína“ —
„Snuður, Snælda og Lappi í skólanum”. — Hver bók kostar kr. 22,00.
HEIÐA og PÉTUR eftir Jóhönnu
Spyri er meðal þekktustu barnabóka,
sem nokkru sinni hafa verið ritaðar,
enda þýdd á flest tungumál veraldar.
Fjöldi íslenzkra barna sáu kvikmynd-
irnar um Heiðu og Pétur, en þær voru
sýndar hér á landi fyrir skömmu. „Heiða
og Pétur“ hefur til að bera alla beztu
kosti barna- og unglingabókar: er skrif-
uð á léttu máli, spennandi bók og fram-
úrskarandi falleg að efni og myndum.
Islenzku þýðinguna hefur gert frú Lauf-
ey Vilhjálmsdóttir. Bókin er mynd-
skreytt og kostar kr. 65.00.
BÖÐVAR FRÁ HNÍFSDAL skrifaði
þessa nýju drengjabók síðastliðið sum-
ar. — „Ævintýralegt jólafrí“ er fram-
hald bókarinnar „Strákarnir sem
struku“, en hún kom út fyrir síðustu jól
og vakti mikla hrifningu allra röskra
drengja. í þessari nýju bók, „Ævintýra-
legt jólafrí“, segir frá því, er vinirnir
þrír, Ingólfur, Maggi og Kalli hittast i
jólafríinu. Þeir komast í mörg ævintýri:
lenda í eltingaleik við aðra stráka, kom-
ast allir þrír í lífsháska, fara í flugferð,
útvega sér bát og fara um allan Eyrar-
fjörð, villast í þoku. Kostar kr. 58.00.