Morgunblaðið - 14.12.1958, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 14.12.1958, Qupperneq 20
20 MORCUNRLAÐ1Ð Sunnudagur 14. des. 195S. JÓLABÆKUR IM O R Ð R A Sjálfsœvisaga Björns Eysteinssonar Nafn Björns hefir lifað á vörum alþýðunnar í meir en mannsaldur, mannsins, sem átti mikinn þátt í því, að af lagðist flóttinn frá íslandi til Kanada. Þegar fjöldinn flýði land til þess að leita betri lífskjara fluttist Björn upp í óbyggðir — land útilegumanna — bjó þar í fimm ár og greiddi það- an skuldir sínar við fyrri granna og kom til baka sem góður bóndi, fékk góða jörð og varð innan fárra ára einn ríkasti bóndi á Norðurlandi. Björn batt ekki bagga sína sem annað fólk og kyrrlátu lífi lifði hann ekki. Hann var hamhleypa til munns og handa, og hafa myndazt um hann þjóðsagnakenndar sögur. Astrid Lundgren: Karl Blómkvist og Rasmus Leynilögreglumaðurinn Karl Blómkvist, vaknar til dáða, þegar hann verður þess var, að barnaræningjar nema Ras- mus litla á brott. En skyldi Kalla heppnast, að bjarga Rasmusi úr klóm ræn- ingjanna? Skemmtileg bók handa drengjum og stúlkum á aldr- inum 9—90 ára. Guðmundur Ingi Krist jánsson: Sóldögg Þetta er tvímælalaust bezta ljóðabók Guðmundar Inga. Hann magnar beztu kvæði sín listrænum töfrum, sem hefja þau hátt yfir stund og stað. i Allir, sem ljóðum unna kaupa Sóldögg. Benedikt Gíslason frá Hofteigi: Fólk og saga íslandssagan og þjóðsagnir eru nátengdar hvor annarri. En saga landslýðs er þó hin réttasta lýsing á lífinu fyrr og nú. Benedikt frá Hofteigi fer ekki troðnar brautir sagnfræð inganna og þótt hann ef til vill trúi á tröll og hindurvitni, læt ur hann þau ekki villa sér sýn. En smælingjarnir eru samt ávallt honum næstir, og þegar penni hans segir frá þeim, þá heyrist annar og þýðari ómur en frá nokkrum öðrum. Elinborg Lárusdóttir: Leikur örlaganna Elinborg Lárusdóttir er fyrir löngu orðin landsþekkt fyrir skáldsögur sínar, en fæstir vita, að hún er og vel þekkt langt út fyrir landssteina. Fyrsta saga þessarar bókar, „ÁSTIN ER HÉGÓMI“, er til dæmis þegar komin út á sex tungumálum auk íslenzkunn- ar. Frú Elinborg mun vera af- kastamesti kvenrithöfundur vor og um leið sá vinsælasti Bók þessi mun vera talin gott innlegg kvenna á vettvangi ís- lenzkrar listar. Guðmundur G. Hagalin: Virkir dagar Ævisaga Sæmundar Sæmundssonar skipstjóra: Með þessu stórmerka riti ir Guðmundur Hagalín að rita nýjar íslendingasögur, aldar- spegil þjóðarinnar á mótum sérkennilegrar fortíðar og um svifamikillar nútíðar. Enginn hefir reynzt Haga- lín snjallari í þessari bók- menntagrein. Virkir dagar eru og munu verða, sem hinar gömlu ís- lendingasögur, hornsteinn að varðveizlu islenzkrar tungu og íslenzks þjóðernis. Vilhjálmur Finsen: Hvað landinn sagði erlendis í bókinni birtast viðtöl m.a. við eftirtalda menn: Pétur Jónsson söngvara Sigurð Eggerz Svein Björnsson Lárus Bjarnason Sæm. Bjarnhéðinsson Geir Zoega Gunnar Egilsson Knud Zimsen Finn Jónsson prófessor Bjarna frá Vogi Jón Þorláksson Þorstein Gíslason Davíð Stefánsson Jóh. Jóhannesson bæjarf. Tryggva Þórhallsson Pétur A. Ólafsson Jón Árnason Ólaf Johnson Magnús Sigurðsson Einar Benediktsson Gunnar Ólafsson Garðar Gíslason Pál Eggert Ólason Jón Laxdal Guðm. Jónsson skipstjóra Ágúst Kvaran Ragnar Ólafsson Gunnar Gunnarsson Þórarin Kristjánsson Sigurð Nordal Ben. G. Waage Carl Sæmundsson Lúðvík Guðmundsson Sig. Sigurðsson Klemenz Jónsson Jón Sívertsen Óskar Halldórsson Guðm. Grímsson dómara Ingvar Guðjónsson Ásgeir Ásgeirsson forseta Ólaf Proppé Ólaf Thors Steingr. Jónsson rafm.stj. Árna Eylands Magnús Jónsson Jónas Þorbergsson Hermann Jónasson L. H. Muller Agnar Kofoed-Hansen Thor Jensen Emil Nílsen O. Tynæs Ludvig Kaaber Harald Faaberg Vilhjálmur Finsen jöfur og öldungur íslenzkra blaða- manna, var um lengri tíma starfsmaður hinna stærstu blaða Noregs. Fyrr og síðar hefir hann kynnt land sitt og þjóð á erlendum vettvangi með fjölda viðtala við ýmsa merkustu menn þjóðarinnar. Mun lesandinn fá í bók þess- ari giögga mynd af gangi landsmálanna hér heima. Auk viðtalanna er frásögn af undirbúningi og fram- kvæmd „Dönsku nýlendusýn- ingarinnar 1905“, er vakti óhemju gremju meðal íslend- inga, en gerði um leið landan- um ljóst, hve mikill fjöldi verð mætra forngripa hafði farið úr landi á ólöglegan hátt. Björn J. Blöndal: Örlagaþrœðir Björn J. Blöndal er löngu orðinn landskunnur fyrir rit- störf sin. Hamingjudagar, Að kvöldi dags og Vatnaniður bera höf- undi sínum fagurt vitni. Héc leggur hann út á nýjar braut- ir, en samur er hljómurinn, mjúkur og hreinn, og undir- tónninn í hverri setningu gef- ur birtu, sem endast mun les- andanum lengi. Hannes J. Magnússon: Á hörðu vori Þetta er sérstæð bók, og þarna er lagt inn á nýjar braut ir í skrásetningu endurminn- inga. Líkist frásögn höfundar meir skáldsöguformi en venju lengum endurminningastíl, þótt atburðir allir muni vera raunverulegir, og verður því bókin öll skemmtileg aflestrar. Benedikt Gísalson frá Hofteigi: Eiðasaga Eiðasaga er saga höfuðbóls- ins Eiða, þar sem löngum sátu hinir merkustu menn og ætt- feður þjóðarinnar, sem létu jörðina ekki ganga úr ætt- setu í ábúð né eignarhaldi sömu ættar, fyrr en á síðustu og verstu dögum miðrar 18. aldar. Eiðasaga segir frá bjart- sýnni stofnun Eiðaskóla og síðar baráttu fyrir tilveru hans. Eiðasaga segir frá mörgum ágætismönnum, er fórnuðu Eiðaskóla kröftum sínum. Eiðasaga er saga hins stærsta og merkasta staðar á Austur- landi á þessum tímum. Þórleifur Bjarnason: Tröllið sagði Þorleifur Bjarnason lýsir hér stórbrotnum átthögum sínum á Hornströndum, rekur bar- áttu mannsins við umhverfið og umhverfisins við manninn, bregður upp myndum atburða og þjóðhátta liðins tíma, en fellir inn í heildarmynd nátt- úrunnar örlagaríka persónu- sögu húsbóndans á Hóli, sem hefst úr fátækt og umkomu- leysi til karlmennsku, auðs og mannvirðingar. Diek Laan: Ævintýri Trítils Trítill er vinur allra dýra og fram úr hófi hjálpsamur, en hann er ákaflega forvitinn og hugvitsamur og lendir þess vegna í ótrúlegustu ævintýr- um. Öllum börnum um víða Evrópu þykir vænt um Trítil og á ýmsum slóðum er hann orðinn þeirra búálfur og jóla- sveinn. Gotland og Dempster: Líf í alheimi Vopn er hægt að smíða til eyðingar og dráps, en hver blés lífsandanum í nasir vor- ar? Vísindamenn vorir hafa nú enn komizt að því sem hugsuðir fyrri alda gerðu sér grein fyrir að því meir sem vér lærum, því betur verðum vér oss meðvitandi, hve lítið vér vitum. Trúarbrögð ograun vísindi hafa færzt nær hvort öðru, þekking hefur aukizt, en alltaf er þessari spurningu ósvarað. Hverjir erum vér? Hvaðan komum vér? Hvert stefnum vér? Þessi bók fjallar um hið fjölbreytta og óþrjótandi efni, sköpun heims, þróun vísinda og trúarbrögð. Bókaúfgáfan N O RD RI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.