Morgunblaðið - 04.01.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 04.01.1959, Blaðsíða 1
20 síður 46, árgangur 2. tbl. — Sunnudagur 4. janúar 1959 Prentsmiðja Morgiriblaðsins Rússneska eldflaugin komst ekki á hraut kringum tunglið Stytzta vegalengd hennar frá tunglinu 6 Jbús. kilómetra MOSKVU OG LONDON, 3. jan. — Reuter. — Rússneska Tass- fréttastofan tilkynnti í dag, að hin nýja tunglflaug, sem skotið var á loft í gær yrði komin í um 7500 kílómetra fjarlægð frá tunglinu í fyrramálið og yrði þá jafnframt ný „pláneta“ í sólkerfi okkar. Kl. 1 e. h. í dag (rússneskur tími) sagði fréttastofan að tungl- flaugin væri komin í 209.000 km hæð, sem er rúmlega hálf vega- lengdin til tunglsins. Segir í fréttinni að mælingar hafi gefið til kynna, að tunglflaugin fari „nálægt tunglinu og verði ný pláneta sólarinnar". Fer út í sólkerfið Þekktur rússneskur vísinda- maður, Anafoli Blagonravov, sagði síðar að tunglflaugin hefði svo mikinn hraða, að hún mundi ekki fara inn á segulsvið tungls- ins. Hann sagði að flaugin mundi ekki verða fylgihnöttur tunglsins. heldur fara fram hjá því og halda áfram út í sólkerfið. 6000—8000 km fjarlægð í frétt Moskvu-útvarpsins í gærkvöldi var sagt, að flaugin mundi komast í námunda við tunglið, en ekki gefnar neinar nánari upplýsingar um hve ná- lægt tunglinu hún færi. í dag sagði Tass-fréttastofan að minnsta fjarlægð eldflaugarinn- ar frá tunglinu yrði milli 6000 og 8000 kílómetrar. „Flugstöð“ á tunglinu Tækin í eldflauginni vinna samkvæmt áætlun og móttöku- stöðvar á jörðinni taka jafnt og þétt við vísindalegum upplýsing- um frá þeim. Rússneskir vísinda- menn eru þegar farnir að tala um að byggja „flugstöð“ á tungl- inu til frekari ferðalaga út í geiminn. Umfangsmeiri undirbúningur Stjörnufræðingurinn Kozyrev sagði í dag, að ekki væri hægt að gera neinn samanburð á rúss- nesku tunglflauginni og þeim flaugum sem Bandaríkjamenn hafa reynt að senda til tunglsins. Sagði hann að vísindalegur und- irbúningur Rússa hefði verið miklu umfangsmeiri. Hann sagði að eitt helzta markmiðið með sendingu tunglflaugarinnar hefði verið að komast að raun um hvort tunglið hefði segulsvið. Annar kunnur rússneskur vís- indamaður, Gavriil Tikhov, sagði að nú væri loksins hægt að eygja þann möguleika að ráða gátuna um Mars og komast að raun um, hvort þar væri líf. Fyrirlestrar 1 dag voru auglýsingar í mörg- um litum límdar á veggi stjörnu- turnsins í Moskvu og var þar skýrt frá fyrirlestrum um rúss- nesku tunglflaugina. Forstjóri stjörnuturnsins, Victor Bazikin, sagði að auglýsingarnar hefðu verið gerðar fyrir alllöngu, þar eð það hefði verið augljóst mál, að flauginni yrði skotið einn góð an veðurdag. Nýtt frímerki Póstmálastjórn Sovétríkjanna hefur gefið út nýtt frímerki í tilefni af fyrstu rússnesku tungl- flauginni. Á frímerkinu er mynd af Kreml og næturhimni þar sem hinir þrír rússnesku gervihnettir eru á sveimi, en tunglflaugin á leið út í geiminn. Á vinstri hlið frímerkisins er letrað rauðum stöfum: „21. flokk'þing komm- únistaflokksins". Þingið á að hefjast síðar í þessum mánuði. Almenningur ósnortinn Fréttamenn Reuters, sem stadd ir eru í Moskvu, síma að ekki hafi ríkt neinn sérstakur fögnuð- ur í borginni yfir hinum nýju tíðindum. Menn hefðu haldið til vinnu sinnar í sama skapi og Aref dæmdur til dauða BAGDAD, 3. jan. Reuter. — Aref ofursti hefur verið dæmdur til dauða af dómstóli í Bagdad. Aref var einn af helztu samstarfs- mönnum Kassems, þegar bylting- in var gerð í frak í júlí í fyrra. Hann var um skeið yfirmaður herráðsins og varaforsætisráð- herra. Svo var hann gerður að sendiherra í Bonn, en var hand- tekinn, þegar hann kom heim í óleyfi. aðra daga, og einstaka maður sagt „sérlega gott“ eða „athygl- isvert", þegar hann las fréttina í blaði. Bretar fylgjast með Það var ákveðið í dag, að radíókíkirinn í Jodrell Bank í Englandi skyldi fylgjast með tunglflaug Rússa, en þessi kíkir er hinn stærsti í heimi. Snemma í fyrramálið verður kíkinum beint að flauginni, en þá er búizt við að eldflaugin komi upp eins og stjarna á austurhimninum um leið og hún nálgast tunglið. Rússar skutu eldflauginni þeg- ar tunglið var í síðasta fjórðungi, m. a. til þess að tryggja það að ekki væri hægt að fylgjast með henni með venjulegum sjónauk- um eða taka myndir af henni nema frá suðurhluta Sovétríkj- anna, Krímskaga og Trans- Kákasíu, og frá Mið-Asíu. Öflugri mótorar Hinn þekkti þýzki eldflauga- sérfræðingur, Hermann Oberth, sagði í dag, að Rússum hefði tek- izt tilraunin með að koma tungl- flaug út í geiminn vegna þess að þeir hefðu lagt megináherzlu á stóra og sterka mótora. Slíkir mótorar brygðust síður. Banda- ríkjamenn hefðu byggt miklu fíngerðari og margbrotnari vél- ar til að hafa þungann minni. Oberth sagði að rússneska tungl- flaugin vajri eins og vekjara- klukka, en tunglflaugar Banda- Framh. á bls. 2. Það er gaddur úti þessa dagana og því nauðsynlegt að búa sig vel. Ungu stúlkurnar á myndinni klæðast hlýjum ullar- fötum, sem bregðast engum. — (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Mikojan á leið fil Banda- ríkjanna Gubfræbi i Moskvu-útvarpinu: Kristur hefur aldrei verið fil og jólin eru hátíð arðrœningja LONDON, 3. jan. — Reuter. — Moskvuútvarpið skýrði frá því í dag, að aldrei hefði verið til mað- ur með nafninu Jesús Kristur. Ef hann hefði verið til, hefði hann verið nefndur af samtíma sagnfræðingum. Þessar upplýsingar komu fjór- um dögum áður en grísk-orþó- doxa kirkjan í Rússlandi heldur jól sín hátíðleg. Benti útvarpið á, að þar sem grísk-orþódoxir, kaþólskir og aðrir kristnir söfn- uðir héldu jól hver á sínum tíma, þá væri augljóst að uppruni kristindómsins væri goðsöguleg- ur. Erin var frá því skýrt að jóla- haldið væri gamall heiðinn sið- Alaska 49. ríki Bandaríkjanna WASHINGTON, 3. jan. Reuter. Eisenhower Bandaríkjaforseti hef ur gefið út opinbera tilskipun um að Alaska skuli vera 49. ríki Bandaríkjanna. Jafnframt til- kynnti hann, að nýr þjóðfáni yrði tekinn upp. Verða í honum 49 stjörnur í stað 48 áður. Verða sjö stjörnur í sjö röðum í staðinn fyr- ir átta stjörnur í sex röðum áður. Hinn nýi þjóðfáni verður tekinn í notkun á þjóðhátíðardegi Banda ríkjanna. 4. júlí nk. ur, sem kristnir menn hefðu tek- ið upp. Og orðrétt: „Hátíðin vegna fæðingar Krists, eins og aðrar trúarlegar hátíðir, hefur fyrst og fremst þann tilgang að venja kristna m«nn við hegðun, sem þjónar hagsmunum arðræn- ingjanna". Mun rasða við Dulles og aðra bandaríska leiðtoga WASHINGTON, 3. janúar. — Reuter. — Anastas Mikojan, fyrsti varaforsætisráðherra Sovétríkjanna, kemur til New York á morgun og verður æðsti valdsmaður Rússa sem heimsótt hefur Bandaríkin eftir heims- styrjöldina. Enda þótt heimsókn hans sé ekki opinber, mun hann eiga viðræður við Dulles utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, að því er hann tjáði fréttamönnum í Kaupmannahöfn í dag. Allt útlit er fyrir, að Mikojan geti líka rætt við Eisenhower forseta, ef hann fer þess á leit. Búizt er við, að Mikojan ferðist um þver Bandaríkin, meðan hann á tveggja vikna dvöl þar, og skoði helztu borgir landsins, en stjórnmálafréttaritarar telja víst, að hann muni einnig ræða við bandaríska leiðtoga um Ber- línarmálið og önnur vandamál kalda stríðsins. „Rangtúlkaðar tillögur“ Mikojan sagði fréttamönnum í Kaupmannahöfn í dag, að Rúss- ar hefðu engar óskir um að taka Berlín eða koma henni undir j rússneska stjórn. Hann sagði að Vesturveldin hefðu rangtúlkað Mikið um dýrðir þegar Castro kemur til Havana rússnesku tillögurnar, og þes* vegna bæri þeim að kynna sér þær nánar. Flýgur með SAS Mikojan kom til Kaupmanna- hafnar í morgun í 2104-þotu og snæddi hádegisverð með H. C. Hansen forsætisráðherra Dana og öðrum ráðherrum dönsku stjórn- arinnar. Hann var gestur stjórn- arinnar í dag, en flýgur svo á- fram til Ameríku með venjulegri farþegaflugvél frá SAS. Gerðar hafa verið sérstakar ráðstafanir til að tryggja öryggi hans, þegar hann kemur til New York, og hafa 350 lögregluþjónar verið fengnir til að gæta hans. Hann mun aka til rússneska sendiráðs- ins frá flugvellinum, en halda áfram til Washington nokkrum stundum síðar með bíl eða járn- brautarlest. Sérfræðingur stórblaðsins „The New York Times“ í rúss- neskum málefnum sagði í dag, að tunglflaug Rússa mundi auka mjög á hróður Mikojans meðan hann dvelst í Ameríku og styrkja aðstöðu hans í viðræðum við bandaríska stjórnmálamenn. Kemur Krúsjeff seinna? Embættismenn í Washingtnn vita sama og ekkert um fyrir- ætlanir Mikojans, en hann verð- ur gestur rússneska sendiherr- ans, Mikhails Mensjikovs. Hann sagði í Kaupmannahöfn í dag: „Ég er í fríi, og ég er algerlega frjáls. Ég á marga vini, og ég vonast til að eignast marga nýja.“ Það er álit margra, að Mikojan muni leitast við að greiða fyrir því, að Krúsjeff komi í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna seinna á árinu. HAVANA, 3. jan. — Reuter. — I kvöld var flugvél frá Flugfé- lagi Kúbu til taks í Santiago til að flytja Fidel Castro, foringja uppreisnarmanna, og forsetaefni hans, dr. Manuel Urruita, til Havana, höfuðborgar Kúbu. Allt er nú með kyrrum kjörum í Havana eftir bardaga og grip- deildir síðustu tveggja daga. Borgarbúar undirbjuggu glæsi- lega móttökuhátíð fyrir hinn 32 ára gamla lögfræðing, sem safnaði til sín skæruliðasveitum og myndaði hinn sigursæla upp- reisnarher, er steypti Batista ein- ræðisherra af stóli. Cantillo handtekinn Havana er nú örugglega í höndum uppreisnarmanna. — Eugenio Cantillo hershöfðingi, yfirmaður herforingjaklíkunnar, sem var við völd um hríð, eftir að Batista og margir samstarfsm. hans flýðu til Dóminíkanska lýðveldisins á fimmtudaginn, var handtekinn í dag samkvæmt fyr- irmælum Castros. Hæli fyrir útlaga Castro sagði, að Cantillo hefði svikið samninga um, að her Kúbu gengi í lið með uppreisnarmönn- um á tilteknum tíma, og að kom- ið yrði í veg fyrir flótta Batista. I sambandi við flótta Batista er það haft eftir Castro, að ef upp- reisnarmenn í Dóminíkanska lýð veldinu ætluðu að gera uppreisn gegn Rafael Trujillo einræðis- herra, þá væri tækifærið ein- mitt núna, þar sem þeir gætu dregið lærdóma af reynslu upp- reisnarmanna á Kúbu. Ennfrem- ur á hann að hafa boðið útlögum frá Dóminíkanska lýðveldinu hæli á Kúbu. Jtlrr0w!M&íu& Sunnudagur 4. janúar. Efni blaðsins m.a.: BIs. 2: Hin alvarlega stjórnarkreppa Finna. — 3: Séra Óskar J. Þorláksson: Hið nýja ár. Úr verinu, eftir Einar Sigurðs- son. — 6: Bréf frá París, eftir Jörgen Schleimann. —* 8—9: Fróðleiksmolar úr sögu land helgisgæzlunnar í byrjun ald- arinnar. — 10: Ritstjórnargreinin: — Bráða- birgðaráðstafanir gegn verð- bólgunni. Vinsælasta leiksviðsverk allra tíma (Utan úr heimi). — 11: Reykjavíkurbréf. — 12: Grein um VilheJm Moberg, eft- ir dr. Sigurð Þórarinsson. — 13: Kvennadálkar. —- 18: Sitt af hverju tagi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.