Morgunblaðið - 04.01.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.01.1959, Blaðsíða 18
18 ÍUORCI’ISBL 4Ð1Ð Sunnudagur 4. Jan. 1959 jSöcf uíecý hru&arhöhu u tii t^ei^bjauíbur UM JÓLIN voru nokkrir ungir menn boðnir til nýstárlegrar og skemmtilegrar brúðkaupsveizlu hér í bæ. Brúðhjónin voru sem sé ekki viðstödd — og sem meira var: Brúðurin hafði -fsland aldrei augum litið. Brúðhjónin voru suður í svörtustu Afríku — og þar hafði brúðkaupið farið fram. En ungu mennirnir, sem sátu brúðkaupsveizluna inn í Tómas- arhaga við Laugarásveg voru æskuvinir brúðgumans, Ómars Tómassonar, sem nú er starfandi Aff hjónavígslunni lokinni. Maður ársins De Gaulle NEW YORK, 2. jan. Bandaríska vikuritið Time hefur kjörið De Gaulle, forseta Frakklands, mann ársins 1958. í greinargerð blaðs- ins segir m. a., að De Gaulle hafi „gefið Frökkum sjálfstraust sitt aftur“. Þess má geta, að blaðið kjöri Krúsjeff mann ársins í fyrra. Til viðbótar því, sem að fram- an segir um gremargerð blaðs- ins umþessaútnefningumá benda á þau ummæli þess, að De Gaulla hafi með því að „setja sitt per- sónulega mark á stórviðburðina og með því að sanna þau grund- vallarsjónarmið vestrænna þjóða, að einstaklingar skapi söguna, en ekki biind önög eða óbifandi lögmál marxismans, hafi Frakk- lands Charles Joseph Andvé Marie de Gaulle, 68 ára gamall, orðið sjálfkjörinn maður ársins", segir Time. ^flugmaður hjá Nigerian Airways og er búsettur í Kanó í Nigeríu. ★ Ómar kvæntist á enskri stúlku þarna Nigeríu og það, sem telja frásagnarvert í við brtyikaupið, var, pantaði brúðarkökuna dögunum suður í helzt má sambandi að Ómar alla leið frá Jóhannesarborg í S-Afríku Kakan kom flugleiðis til Kanó á tilsettum tima, hún var mikil að vöxtum, vó víst ein 15—16 kíló. ★ Veizlugestir Ómars og konu hans snæddu ekki nema helming brúðarkökunnar og hugkvæmdist Ómari þá að senda það, sem eftir var, heim til íslands, til móður sinnar — og láta fjölskylduna og gamla vini sína njóta kræsing- anna. ★ En nú voru góð ráð dýr, því að það er engin smávegis vega- lengd frá Nigeríu til íslands — og varla hefði svarað kostnaði að borga fullt „fargjald" undir kök- una alla leið. Það var ekkert höf- uðatriði að kakan yrði fljót í för- um, því að hún átti að haldast óskemmd heila eilífð. Þær er.u víst búnar út til ferðalaga brúð- arkökurnar í Suður-Afríku. ★ Ómar sá þann kost vænstan að biðja vin sinn, flugmann, sem flýgur á milli Evrópu og Afríku, að reyna að ko'ma kökunni til Amsterdam. Og einn góðan veð- urdag steig þessi vinur út úr flug- vél á flugvellinum í Amsterdam — með kökuna góðu í töskunni. Ykkur finnst e. t. v. ekki ýkja- langt frá Amsterdam til Reykja- víkur, og að kaka Ómars hafi nú átt „stutt í land“. En það lá ann- að og meira fyrir þessari köku, ferðalagið var langt í frá á enda. ★ Albert Tómasson, bróðir Óm- ars, er flugmaður hjá hollenzka flugfélaginu KLM — og flýgur mestmegnis milli Evrópu og Ameríku. Nú tók hann brúðar- kökuna frá S-Afríku og hafði hana með sér alla leið til New York — og þar hitti Albert landa sína hjá Loftleiðum að máli. Þeir tóku svo að sér að ferja kökuna síðasta spottann, frá New York Wlllfjón inífi Brúffhjónin skera í kökuna. og heim til Reykjavíkur. Þetta var ekki nema 12 stunda flug, sú suður-afríkanska hafði séð hann svartari — og þegar ferðalaginu lauk loksins á Reykjavíkurflug- velli voru engin þreytumerki að sjá á henni — hún lét sem sagt ekkert á sjá. A. m. k. báru pilt- arnir í brúðkaupsveizlunni í Tómasarhaga kökunni vel orðið. Hún var frábær fannst þeim. En áður en veizlan hófst var þeim sýnt hvernig fyrri helmingur hennar hafði verið snæddur. Óm- ar hafði nefnilega sent stutta kvikmynd með kökunni. Þessi mynd var tekin í brúðkaupinu og u menn- O'dtcel ómycýla ERLEND BLÖÐ skýra svo frá, iff kínverskur verzlunarmaður i Hong Kong hafi fyrir ikemmstu veriff fangelsaffur í •Seoul í S-Kóreu vegna þess, iff hann gat ekki greitt sekt, sem hann hafffi verið dæmdur til aff greiffa vegna smygls. Hann sagði lögreglunni, aff hann hefði smyglaff — til þess að geta greitt fyrri sekt fyrir smygi. irnir <£infaritari cJLaróanó taunaciur af L lommum, ÞAÐ er haft fyrir satt, að komm únistaflokkurinn danski sé skuld bundinn til þess að greiða einka- ritara Axels Larsen sex mánaða laun. Larsen var sem kunnugt er rekinn úr flokknum fyrir skemmstu, en einkaritari hans var á íöstum launum hjá flokkn- um. Mun Larsen því halda áfram að teijast gegn Moskvumönnum með einkaritara sínum, sem verð ur enn á föstum launum hjá lokknum um hálfs árs skeið. — Ætli ég hafi ekki losað lið- lega 12,000 stundir, sagði hann, kveikti í pípunni og þrýsti flöt- um eldspýtustokknum yfir glóð- ina. Púaði síðan eins og allir pípumenn gera — og hélt áfram. — Annars týndi ég loggbókinni minni, þegar Hekla brann í Róm um árið með kynbótanautin. Ég hef því engar nákvæmar tölur, en é'g er kominn eitthvað á þrett- ánda þúsundið. Það var Kristinn Olsen, flug- stjóri hjá Loftleiðum, sem við vorum að ræða við — og spyrja, hve margar flugstundir hann ætti að baki. Kristinn hefur sem sé verið á lofti töluvert á annað ár. í einu ári eru ekki nema tæp- lega 8,800 stundir. Og þeir eru fleiri íslenzku flugmennirnir, sem ekki eru komnir yfir árið, en Kristinn mun eiga flesta flug- tíma íslenzkra flugmanna. Jó- hannes Snorrason, flugstjóri hjá Flugfélaginu, hefur líka flogið um 12000 stundir, næstur mun vera Magnús Guðmundsson, flugstjóri hjá Loftleiðum, með 11,500 flugstundir. Fjórði er svo Smári Karlsson, líka hjá Loft- leiðum. Hans flugstundir eru um 10,500. Allir eru þeir löngu orðn- ir „Milljón mílu menn“. Við höf- um ekki reiknað það út, en senni lega eru þeir búnir að fara sem svarar hundruðum ferða um- hverfis jörðu. Þeir voru saman í Kanada á stríðsárunum, Kristinn, Magnús, Jóhannes, Sigurður Ólafsson og Alfreð Elíasson. Lærðu þar allir, sumir a.m.k. hjá Konna og kenndu síðan hjá kanadíska flug hernum. — Við kenndum sprengjukast, segir Kristinn og hlær, þjálfuð- um líka siglingafræðinga og loft- skeytamenn við að miða út skot- mörkin. Við vorum allir sérlega snjallir sprengjukastarar — og veizlunni — svona til þess að veizlugestirnir heima á íslandi gætu þó alltaf sagt, að þeir hefðu séð brúðina. í Qói orcjun I CANTERBURY fangelsinu í Bretlandi var a. m. k. einn ham- ingjusamur fangi yfir jólin. Það var Cornelius Davies, jólagestur fangelsisins. f desember 1956 stóð Davies við almenningssímaklefa einn og þegar honum fannst hæfilega mörg vitni nálægt sparkaði hann í eina rúðu símaklefans og braut hana. Síðan beið hann hinn rólegasti eftir lögreglunni. Hann hlaut tveggja mánaða fangelsi. í desember 1957 sparkaði hann öðru sinni í símaklefa, beið og fékk tveggja mánaða fangelsi. í desember 1958 endurtók sama sagan sig. Hann brosti sínu breið asta þegar dómurinn var kveð- inn upp: Tveggja mánaða fang- elsi. — Langar þig í rauninni til að sitja inni um jólin? spurði réttar- þjónninn, sem farinn var að þekkja Davies, þegar hann fylgdi honum úr salnum. Davies kinkaði kolli: — Ég kýs ekkert frekar. Tveggja mán- aða frí með fæði og húsnæði fyr- ir að sparka í eina rúðu — það er góð borgun. LOefjulind Ljc aóóeró ENDA þótt Nasser vildi sízt af öllum mönnum njóta góðs af Farouk konungi, sem Nasser og félagar hans gerðu landrækan á árunum, þá er Nasser samt ekki svo vandlátur að hann slái hend- inni á móti fé þó það sé fengið út á nafn gamla konungsins. Þannig er nefnilega mál með vexti, að Nasser hefur látið breyta lysti- snekkju Farouks í fljótandi hót- el, sem nú liggur við hafnarbakka í Kairó. Þetta hótel er ætlað ferðamönnum og auðvitað er margfalt dýrara að gista í snekkju Farouks en nokkru öðru hóteli í Kairó. En dýrasta hótel- rúm í Kairó er rúm Farouks í snekkjunni góðu — og þetta eina rúm hefur að undanförnu orðið egypzka ríkiskassanum dágóð tekjulind. Efnaðir ferðamenn eru á löngum biðlista — og bíða ó- þreyjufullir eftir að fá að liggja í rúmi Farouks þó ekki sé nema eina nótt, því að það er góð saga að segja í Texas — að hafa sofið „heila nótt“ í þessu konunglega rúmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.