Morgunblaðið - 08.01.1959, Blaðsíða 1
2(1 síður
46. árgangur
Rústirnar hreinsaðar í
Leopoldville
Orsök óeirðanna er mikið atvinnuleysi
svertingja sem stafar af „afturkippnum44
LEOPOLDVILLE, 7. jan. (NTB) — ! dag hafði verið komið
á lögum og reglu í Leopoldville, höfuðborg belgíska Kongó,
eftir hinar alvarlegu róstur, sem staðið hafa þar í tvo daga.
Nú hafa um 90% verkamanna tekið upp vinnu að nýju og
unnið er að því að hreinsa húsarústir og fjarlægja af göt-
unum brennd bílflök, sem liggja eins og hráviði um allt.
reglu hafa samskipti hvítra og
dökkra manna verið bönnuð eftir
að skyggja tekur á kvöldin í
borgunum Leopoldville, Stanley-
ville og Elisabethville.
Það er álit manna í Belgíu að
óeirðirnar eigi rætur sínar að
rekja til vaxandi atvinnuleysis
í borginni. Síðan afturkippurinn
Framh. á bls. 19.
Bobby Bandaríkja
Lögregla og herlið eru farin að
leita uppi muni sem rænt var og
stolið úr verzlunum borgarinnar.
Hins vegar berast um það lausa-
fregnir frá ýmsum héruðum í
Kongó að komið hafi til smá-
vegis árrekstra í öðrum bæjum
nýlendunnar, milli svertingja og.
lögregluliða.
Kongómála-ráðherra Belgíu-
stjórnar átti í dag langt samtal
vig Baldvin Belgakonung og á
morgun mun hann væntanlega
gefa belgíska þinginu skýrslu um
atburðina í Leopoldville.
Það er álit manna í Briissel, að
óeirðirnar í Leopoldville þurfi
ekki að tákna að stofnuð hafi
verið þjóðfrelsishreyfing í ný-
lendunni. Er á það bent að sam-
komulagið milli þeirra 13 milljón
svertingja sem byggja Kongó og
hinna 100 þúsund hvítu land-
nema hafi ætíð verið fremur gott.
Er sérstaklega bent á það að
Baldvin konungur sé vinsæll og
elskaður meðal hinna svörtu
íbúa. Hann fór í opinbera heim-
sókn til nýlendunnar í hitteðfyrra
og var vel fagnað af svertingjum.
Hins vegar viðurkenna Belg-
ar það að leiðtogar svertingja
æski nú æ meiri framfara á sviði
stjórnmála og félagsmála nýlend-
unnar. Síðan 1955 hafi farið að
gæta óþolinmæði meðal þeirra.
Það ýtir undir kröfur þeirra um
réttarbætur að ýmis héruð í V-
Afríku séu ýmist búin að fá sjálf-
stæði eða fái það á næstunni.
Þótt kynþáttum sé ekki mis-
munað opinberlega í belgíska
Kongo, þá veldur mismunandi
efnahagur nokkrum aðskilnaði
og vitað er að lögregla nýlend-
unnar lætur ekki alltaf hið sama
ganga yfir svertingja og hvíta
landnema. Til þess að halda uppi
meistari í annað
sinn
NEW YORK, 7. jan. — Ungling-
urinn Bobby Fisher vann Banda
ríkjameistari í skák annað árið
í röð. Bobby er aðeins 15 ára.
Meistaramótið fór fram í New
York. Síðasta tafl Bobbys þótti
óvenjulegt. Yar það á móti Ro-
bert Byrne og sömdu þeir um
jafntefli eftir átta leiki..
Bobby Fisher varð efstur með
8% vinning, en næstur kom
Samúel Rezhevsky stórmeistari
með IVz vinning. Hafði Bobby
m.a. unnið Rezhevsky.
Kommúnistar hefja inn
rás i Laos
SAIGON, 7. janúar. — Um
síðustu helgi hófu kommúnist-
ar í Norður Viet-Nam innrás
í konungsríkið Laos í Indó-
Kína. Óttazt er að styrjöld sé
að nýju að brjótast út austur
þar. Ilerma fregnir frá Laos
að innrásarlið kommúnista sé
komið 100 km inn fyrir landa-
mærin.
„Liili heimur" í höfn
Áhöfn loftbelgslns, vlnstra megin Colln-hjónln og hægra megin
Eiloart-feðgarnir.
Með innrás þessari hafa
kommúnistar í Norður Viet-
Nam rofið vopnahléssáttmál-
ann, sem gerðtur var í Genf
1954. Samkvæmt þeim sátt-
mála var Viet Nam skipt um
17 breiddarstig milli kommún-
ista og andkommúnista en
lýst var yfir hiutleysi kon-
ungsríkjanna Laos og Kam-
bodja.
★
Jafnframt innrásinni hefur
útvarpsstöð kommúnista í
Hanoi hafið svæsnar árásir á
Pou Sannaikone forsætisráð-
herra Laos.
Mikoyan, varaforsætisráðherra Rússa, átti í fyrradag tveggja
klukkustunda fund með Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna og féll vel á með þeim, eins og mynd þessi sýnir, sem
tekin var við það tækifæri.
Mikojan í veizlu hjá
milljónamæringi
Ósáttfýsi hins volduga Rússa veldur
Bandaríkjamönnum vonbrigðum
WASHINGTON og CLEVELAND
7. jan. (NTB). — í dag átti Mik-
oyan varaforsætisráðherra Sovét
ríkjanna viðræðufund við Rich-
ard Nixon varaforseta. Ræddu
þeir m. a. um Berlínarvanda-
málið. Virðist sýnt af tilkynn-
ingu, sem Nixon gaf út um fund-
inn, að Rússar hafa ekkert breytt
afstöðu sinni varðandi Berlín.
Þeir ætla að rifta samningum un
stöðu borgarinnar og heimta að
fríríki verði stofnað í Vestur-
Berlín, sem skal vera varnar-
laus. Endurtekur Mikoyan að
Vestur-Berlín þurfi ekkert að
óttast þótt borgin verði varn-
arlaus.
Eftir þennan fund flaug Mik-
oyan til hinnar fögru stálborgar
Cleveland í Ohio-ríki á strönd
Erie-vatns. Verður hann þar
einkagestur milljónamæringsins
Cyrils Eatons, sem heimsótti
Kremlbúa sl. sumar. Milljóna-
mæringurinn og frú hans tóku
á móti Mikoyan á flugvelli borg-
arinnar. Menshikov sendiherra
Rússa í Washington er í fylgdar-
liði Mikoyans. Þeir munu sitja
matarveizlu hjá milljónamær-
ingnum á fimmtudagskvöld, en
síðan halda þeir för sinni áfram
til bílaborgarinnar Detroit.
Bandaríkjamenn hafa orðið
fyrir nokkrum vonbrigðum af
heimsókn Mikoyans og viðræðum
hans við bandaríska ráðamenn.
Það er ekki að heyra af ummæl-
um hans, að Rússar vilji í neinu
slaka til frá fyrri afstöðu sinni í
Berlínarmálinu eða öðrum deilu-
málum. Mikoyan hefur jafnvel
ekki fengizt til að skilgreina nán-
ar á hvaða sviði hana býst við að
auka megi viðskipti Bandaríkj-
anna og Rússlands. Haan hefur að
eins sagt, að halda mætti ráð-
stefnu um það.
Við komu Mikoyans til Cleve-
land hafði urmull flóttafólks frá
Austur-Evrópu, sem flutzt hefur
til Ameríku, safnazt saman við
flugvöllinn til að sýna hinum
rússneska valdamanni andúð
sína. Bar fólkið stór sjöld, þar
sem krafizt var frelsis til handa
Loftbelgurinn „Litli heimur" er komlnn fram, eða réttara sagt karfan. sem loftsiglingafólkið hafðist við í. — Sjálfur Ioftbelgurinn
' onaði á miðju Atlantshafi, en leiðangursmenn sigldu körfunni þá eins og báti til Vestur-Indía. Myndin sýnir landtöku þeirra
unni Barbados. Söfnuðust innfæddir saman í hóp á ströndinni til að fagna komu ferðalanganna.
austur-evrópskum þjóðum. Lög-
regluvörður hélt mannfjöldanum
þó í skefjum.
*---------------------*
Efni blaðsins m.a.:
Fimmtudagur 8. janúar.
Bls. 2: Líf hvers einstaklings er tak-
mark í sjálfu sér (Frá fyrir-
lestri Vilhelms Mobergs).
— 3: 1400 manns á spilakvöldi
Varðarfélagsins.
— 6: Fyrsta ríkisstjórn 5. franska
lýðveldisins (Erl. yfirlitsgrein).
— 8: Hvaða eiginleika þarf stúlka
að hafa tU að falla fólki vel
í geð (Kvennasíða).
— 9: „Gamla Heidelberg“ sýnt á
Akranesi.
— 10: Forystugreinin: — Kjördæma-
breyting má ekki dragast.
Kákasískur dans og skálaræð-
ur í Kreml (Utan úr heimi).
— 11: Blindlendingarkerfi sett upp á
Keflavíkurflugvelli.
— 12: Bókaþáttur.
— 18: Vegakerfi um Vestfirði (Frá
Alþingi).
*