Morgunblaðið - 08.01.1959, Page 10

Morgunblaðið - 08.01.1959, Page 10
10 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 8. jan. 1959 tjtg.: H.f. Arvakur, Reykjavllc. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Ejoar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, sími 33045 Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 224ÍU’ Askriftargjald kr 35.00 á mánuði innanlands 1 lausasölu kr. 2.00 eintakið. KJÖRDÆMABREYTING MÁ EKKI DRAGAST MARGT kemur upp þegar hjúin deila. í orðaskipt- um Framsóknar og Al- þýðuflokksmanna út af aðskiln- aði þeirra nú og myndun minni- hlutástjórnar Alþýðuflokksins hefur það t. d. borið á góma, hversu marga þingmenn hvor flokkurinn um sig hafi fengið ranglega kosna vegna Hræðslu- bandalagsins 1956. Einn af frammámönnum Al- þýðuflokksins hefur haldið því fram, að „4—5 Framsóknarmenn sitji nú á Alþingi vegna braut- argengis Alþýðuflokkskjósenda“. Með sama móti telur hann, að Alþýðuflokkurinn hafi fengið kjörna „sennilega" einum eða tveim fleiri þingmenn en ef hann hefði gengið einn til kosn- inga. Sjálfsagt er hér varlega reikn- að, enda er ekki að sjá, að Fram- sóknarmenn hafi neitt við þenn- an útreikning að athuga. Eigin játning er þess vegna fram kom- in um, að þessir tveir flokkar hafi ranglega aflað sér 5—7 þing- manna umfram það, sem þeir hefðu fengið með eðlilegum hætti. ★ Engan getur furðað þó að al- menningur uni því ekki, að slík- ir klækir séu viðhafðir. Kjör- dæmaskipun og kosningalöggjöf á íslandi eru ærið ófullkomin, þó að ekki sé gerður leikur að því að brengla niðurstöðuna. Óhjákvæmilegt ei’ að sett verði löggjöf, sem hindri, að slikt sé endurtekið. Er þá lang eðlileg- ast, að alveg sé breytt um skip- an, því að meira en lítið er bog- ið við þá gömlu, úr því að slík- ur óskapnaður hefur upp úr henni vaxið. Alþýðuflokknum er það til lofs, að hann hefur séð, að svo má ekki framvegis til ganga sem upp var tekið. Framsókn situr hins vegar enn við sama hey- garðshornið. Hún talar fagurlega um þjóðareiningu og galla nú- verandi kjördæmaskipunar. Þó setur hún það sem óhjákvæmil- egt skilyrði fyrir samvinnu sinni við aðra, að haldið sé fast við þá skipun, sem engir hafa vítt harðar en sjálf Framsókn. ★ Framsóknarmenn láta nú eins Og það sé alger nýjung að kraf- izt sé endurskoðunar kjördæma- skipunarinnar. Þetta mál er þó búið að vera eitt mesta baráttu- mál í íslenzkum stjórnmálum nú í meira en aldarfjórðung. Og strax og innlend stjórn var sett í landinu fyrir meira en hálfri öld, sáu hinir framsýnustu menn, að gjörbreytingu varð að gera á þágildandi skipulagi. Hannes Hafstein bar fram tillögu um kjördæmaskipun, sem er merki- lega lík þeirri, sem nú mun reyn- ast hagkvæmust. Ágreiningur um kjördæma- skipunina hefur hindrað, að endurskoðuð yrði stjórnarskrá íslenzka lýðveldisins, svo sem alþjóð ætlast til. í stjórnarskrár- nefndinni voru það Sjálfstæðis- menn einir, sem fluttu ákveðnar tillögur um kjördæmaskipun. Jafnskjótt og taka þurfti afstöðu til þeirra tillagna gerðu Fram- sóknarmenn nefndina óstarfhæfa. Annar fulltrúi Framsóknav hljóp úr nefndinni, hinn bar fram tillögu um að eyða starfi hennar með því að skjóta málinu til sérstaks þjóðfundar. Aldrei hafa þó fengizt ákveðnar tillögur um það, hvernig slíkur þjóðfundur skyldi kosinn. Það er þó að sjálf- sögðu undirstöðuatriði, sem menn verða að gera sér grein fyrir, áður en endanleg afstaða er tekin til hans. Á meðan slík greinargerð kemur ekki fram, eru tillögurnar um þjóðfund tómt tal, ætlaðar til þess að hindra raunverulega afgreiðslu mikils og aðkallandi vandamáls. ★ í umræðunum, sem nú hafa orðið um kjördæmamálið, þ. á. m. við tilraunir til stjórnarmynd- unar fyrir jólin, hafa Framsókn- armenn og ekki fengizt til að segja, hverjar tillögur þeirra yrðu í málinu. Hið eina, sem um afstöðu þeirra er kunnugt, er það, sem formaður annars sam- starfsflokks þeirra sagði í ára- mótagrein sinni: „Framsóknarflokkurinn hafði lofað verkalýðsflokkunum end- urskoðun stjórnarskrárinnar „á starfstíma stjórnarinnar", en svikið það heit stjórnarsáttmál- ans eins og fleiri". Hugsanlegt er, að setning nýrr- ar kjördæmaskipunar hefði dreg- izt, ef Hræðslubandalagsklæk- irnir hefðu ekki komið til. Þeir gerðu óumflýjanlegt, að málið yrði tekið upp og því fylgt fram til úrslita svo fljótt sem verða mátti. En vandamálið var fyrir hendi áður, og afstaða Fram- sóknar hefur í engu breytzt. Hún er enn hin sama og ætíð fyrr: Það er afstaða sérréttindamanns- ins, sem veit, að hann þrífst í skjóli ranglætisins. ★ Framsókn hefur verið boðið upp á að reyna samninga um einmenningskjördæmi á öllu landinu, og enn talar hún fagur- lega um hættuna af hlutfalls- kosningum. En þegar til á að taka, vill hún alls ekki hafa einmenningskjördæmi alls stað- ar, a. m. k. ekki í Reykjavík. Þar á að hafa allt annan hátt á, að því, sem næst verður kom- izt um hug Framsóknar. En vitanlega er það undirstöðu atriði að sama kjördæmaskipun gildi um allt landið. Sömu meg- inreglurnar verða að vera hvar- vetna. Framsóknarflokkurinn hefur sjálfur með hegðun sinni kom- ið í veg fyrir, að einmennings- kjördæmi komi framar til greina. Þá er ekki um annað að ræða, eins og Sjálfstæðismenn sýndu fram á strax í nóvember 1952, en að taka upp nokkur stór kjör- dæmi með hlutfallskosningum. Því fer fjarri, að á þann veg sé rýrður réttur héraðanna úti um land. Ætlunin er ekki að fækka þingmönnum þar. Hvert byggðalag fær einmitt aðgang að fleiri þingmönnum en áður. Til viðbótar hafa Sjálfstæðismenn lagt til ,að þingmenn skyldu bú- settir í því kjördæmi, sem þeir eru kosnir fyrir. Með þessu móti er í senn hægt að tryggja rétt hinna einstöku héraða og heild- arinnar ólíkt betur en verið hef- ur. — UTAN UR HEÍMI Kákasískur dans ræður í Kreml og skála- ar, og komu þar fram hinir frægu rússnesku fiðluleikarar David og Igor Oistrakh og negrasöngvar- inn Paul Robeson. Krúsjeff hélt tiu ræður — án jbess að ráðast á vesturveldin UM áramótin var haldin gleði mikil í Kreml, og voru þangað boðnir m.a. erlendir sendiherrar í Moskvu. Fögnuð þennan sóttu alls um sjö hundruð manns — og Krúsjeff: — Munum skjóta ykkur ref fyrir rass ... var glatt á hjalla fram eftir nóttu. Mikið var dansað, og mikið talað — og skálað. • ★ • Á miðju kvöldi bauð Anastas Mikojan, varaforsætisráðherra, konu bandaríska sendiherrans upp í dans. Er þau voru komin út á gólfið og byrjuð að stíga kákasískan dans, af fótamennt mikilli, drógu aðrir dansendur sig í hlé. Sendiherrafrúin og Miko jan dönsuðu þá „sóló“ góða stund, en augu sjö hundruð veizlugesta fylgdu hverri hreyfingu þeirra. Er dansinum var lokið, kvað við mikið lófaklapp í salnum. — Þótti þetta víst bezta skemmtun kvöldsins. Meðal veizlugesta var einnig Ivan Serov, sá er nýlega var leystur frá störfum sem yfirm. öryggislögreglunnar rússnesku. Hann klæddist herforingjabún- <3 borginni. Maria Callas á ítölsku ------------sviði á ný? ingi sínum — og hafði ekki gleymt heiðursmerkjunumheima. Serov dansaði mikið við konu sína og kinkaði kolli á báða bóga — virtist vera í bezta skapi. • ★ • í áramótagleði þessari þótti ríkja mjög vinsamlegt „andrúms- loft“ — og var sérstaklega til þess tekið, að Krúsjeff hélt að minnsta kosti tíu skálaræður — án þess að ráðast nokkru sinni á vesturveldin. Hann lét sér nægja að segja í léttum tón: „Kommúnisminn mun sigra — ekki með því að beita valdi, held- ur eftir friðsamlegum leiðum, enda myndu þjóðir heimsins smám saman sannfærast um yfirburði hins sósíalíska skipu- lags yfir kapitalismann“. Krúsjeff lyfti glasi sínu og hyllti árið 1958: „Það var gott og merkilegt ár“, sagði hann, og mér þykir leitt, að því skuli lok- ið. — Sjö ára áætlunin okkar er mjög þýðingarmikil í verzlunar- samkeppninni milli Sovétríkj- anna og Bandaríkjanna.“ — Hann gekk að borði bandaríska sendiherrans, lyfti glasi sínu og sagði kanvíslega: „Mr. Thompson, við erum í þann veginn að skjóta ykkur ref fyrir rass“. — Seinna talaði Krúsjeff við sendiherrann í einar tíu mín- útur — en minntist ekki á nein alvarleg deilumál. • ★ • Áramótafagnaði þessum lauk ekki fyrr en kl. 3 um nóttina, og þótti hann hafa heppnazt vel. — Áður en sjálfur mannfagnaður- inn hófst voru haldnir hljómleik- Söngkonan Maria Callas var hlýlega klædd er hún kom til Parísar á dögunum, enda var kuldagjóstur og næðingur í Vopnaðir verðir úr uppreisnarher Castros á Kubu standa vörð á götuhorni í Havana til að beina umferðinni frá aðalbæki- stöðvum uppreisnarmanna í borginni, hvíta húsinu tU vinstri á myndinni. HIN FRÆGA og skapstóra óperu söngkona, Maria Meneghini Call- as, hefur nú í rúmt ár verið „út- læg“ úr óperuhúsum á Ítalíu. — Nú er hins vegar útlit fyrir, að hin einstæða rödd hennar hljómi brátt á nýjan leik á ítölsku óperu- sviði — og þá sennilega fyrst í Feneyjum. Munu samningaumleit anir við söngkonuna þegar vera vel á veg komnar. ★ ★ ★ Eins og fólk mun minnast, olli Maria Callas miklu hneyksli á Ítalíu í byrjun síðastliðins árs, er hún hætti að syngja í miðri sýningu á óperunni „Normu" í Róm, en viðstaddur sýninguna var Giovanni Gronchi, forseti Ítalíu og margt annað stórmenni. Callas þóttist hafa gildar ástæð- ur til að yfirgefa sviðið, þar sem hún hefði verið mjög slæm í hálsi, en um gervalla Ítalíu var þetta framferði hennar fordæmt og þótti hin versta hneisa. Atburð- urinn var fréttaefni blaði um all- an heim, og itölsku óperuhúsin lokuðu dyrum sínum fyrir hinni óstýrilátu prímadonnu. En nýlega kom Maria Callas fram í sjónvarpi í París og vakti gífurlega athygli og hrifningu. Virðist sem henni hafi þar með tekizt að bræða mesta ísinn úr hjörtum ítalanna - og nú er verið að byggja aftur þser brýr, sem hún braut að baki sér fyrir ári. — Maria Callas hefur ekki sungið í Feneyjum síðan 1954.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.