Morgunblaðið - 09.01.1959, Qupperneq 2
r
d
MORGUNrtLAÐlfí
FöstisdaErur 9. jan. 1959
Róðrar hafnir eða í þann
veginn að hefjast víðast hvar
Akranes
AKRANESI, 8. jan. — Linubát-
arnir hér komu að með sæmileg-
an afla í dag. Voru þeir sex
á sjó og fengu frá 7 og upp í 914
lest á bát. Helmingur aflans er
þorskur, helmingur ýsa. Átta eða
níu bátar róa héðan í kvöld. Hing
að kom Dísarfell í morgun og
lestaði um 400 lestir af sementi,
er það flytur til Reykjavíkur.
— Oddur.
Hellissandur
Hellissandi, 8. jan. — Róðrar hóf-
ust héðan í gærkvöldi. Eins og er,
stundar aðeins einn bátur, Ár-
mann, róðra. í kvöld hafði hann
farið tvo róðra. í gær fékk hann
rúmlega 6 lestir, en í dag rúm-
lega 9% lest. Fiskurinn er mjog
sæmilegur. — Fréttaritari.
Ólafsvik
FRÉTTARITARI Mbl. í Ólafsvík
símaði í gærkvöldi að vertíðin
væri hafin þar og hefðu sex bát-
ar farið í fyrsta róðurinn á ver-
tíðinni. Voru nokkrir bátanna
komnir að er hann símaði frétt-
ina og höfðu þeir aflað ágætlega,
4—6 tonn, og búist var við að
hæsti báturinn myndi vera með
enn meiri afla ,en hann var ó-
kominn að.
Sjómenn í Ólafsvík hafa sam-
þykkt sjómannasamningana að
öllu öðru leyti en því, að þeir
telja nauðsynlegt að fá nánari
skýrgreiningu stjómarvaldanna
varðandi yfirlýsingu þeirra samn
ingana varðandi.
Stykkishólmur
í Stykkishólmi átti fundur að
vera í gærkvöldi um sjómanna-
samningana. Var búist við að af-
staða sjómanna þar verði hin
sama og í Ólfsvík og að róðrar
muni hefjast þar nú um helgina.
hamkomulag
i Grundarfirði?
GRUNDARFIRÐI, 8. jan. - Samn
ingar hafa ekki tekizt enn milli
sjómanna og útgerðarmanna í
Grundarfirði. Hins vegar hafa
FYRIR réttu ári var haldið nám-
skeið fyrir sölu- og afgreiðslufólk
smásöluverzlana á vegum félags-
ins Sölutækni. Hér var um nokk
urs konar kvöldskóla fyrir verzl-
unarfólk að ræða, og má segja, að
slíkt hafi verið alger nýjung hér
á landi. Fluttir voru fyrirlestrar
um sölufræði og vörufræði og
fjallað um ýmislegt, er snertir
dagleg störf verzlunarfólks. Þátt
takendur voru alls 48 og komust
þó færri að en vildu. Nemendum
var skipt í tvo flokka, og var
starfsfólk í matvöruverzlunum í
öðrum flokknum, en starfsfólk
úr öðrum greinum smásöluverzl-
ana í hinum. Alls fluttu yfir 20
manns fyrirlestra og önnuðust
kennslu á námskeiðinu, og sýnd-
ar voru fjölmargar kennslukvik-
myndir.
Dagskrá Alþingis
í DAG er boðað til fundar í neðri
deild Alþingis. Tvö mál eru á
dagskrá.
1. Bann gegn botnvörpuveið-
um, frv. 1. umr. 2. Atvinnuleys-
istryggingar, frv. 2. umr.
samninganefndir beggja aðila set
ið á stöðugum viðræðufundum,
og standa málin þannig í dag, að
boðað hefir verið til fundar í
sjómannadeild Verkalýðsfélags-
ins í kvöld. Verður tekin þar af-
staða til málamiðlunartillögu,
sem samninganefndir hafa komið
sér saman um. Ágreininsatriðin
eru ekki stórvægileg, og almennt
ér gert ráð fyrir, að samkomuiag
náist innan skamms.
Búizt er við, að héðan gangi
í vetur sjö bátar, sem allir róa
með línu framan af vertíð og sá
áttundi bætist í hópinn, er netja-
vertíð hefst. Nokkuð skortir á,
að búið sé að fá nægan mannafla
á alla bátana, en telja má nokk-
uð öruggt, að þegar sé fengið
fólk á 5—6 báta. — E.M.
Afli tregur á
Bildudal
BÍLDUDAL, 8. jan. — Bátarnir
héðan fóru I fyrsta róðurinn í
gærkvöld. Afli mun hafa verið
fremur tregur. Dálítil vinna hef-
ir verið við að undirbúa frysti-
húsið undir vertíðina. Horfur eru
á, að mikill hörgull verði á stúlk
um til að starfa í frystihúsinu.
Von var á færeyskum stúlkum
hingað, en nú er allt í óvissu um,
hvort þær koma.
Rækjuveiði liggur enn niðri
hér, þar sem ekki hefir náðst
samkomulag um kjör þeirra, er
vinna að því að skelfietta rækj-
una. — Hannes.
Suðureyri
SUÐUREYRI, 8. jan. — Bátar
hafa það, sem af er þessu ári,
farið þrjár eða fjórar legur. Afli
hefir undanfarið verið mjög treg
ur og gæftaleysi mikið. Hefir
tíðarfarið verið svo vont, að ekki
hefir gefið á aflasælustu miðin,
sem eru um 40 mílur undan landi,
en mjög lítill afli er á grunn-
miðum. Mannekla er hér mikil,
og hefir því verið fylgzt hér með
samningum við Færeyinga af
miklum áhuga, enda sennilegt, að
nokkrir yrðu ráðnir hingað, ef
kostur væri á því. — H.G.
Bolungarvik
BOLUNGARVÍK, 8. jan. — Frá
Bolungarvík eru nú gerðir út
Námskeiðið þótti takast með
ágætum, og síðan það var haldið
hafa oftsinnis komið fr; m óskir
bæði frá kaupmönnum og verzl
unarfólki, um að námskeiðið yrði
endurtekið. Auk þess hafa marg
ir látið í ljósi þá skoðun að nauð
synlegt væri, að námskeið sem
þetta yrði fastur liður í fræðslu
verzlunarfólks, og að það yrði
eigi haldið sjaldnar en einu sinni
á ári.
Stjórn Sölutækni vill gera sitt
til að koma til móts við þessar
óskir og hefur hún nú ákveðið að
endurtaka námskeiðið. Námskeið
inu verður breytt nokkuð í sam-
ræmi við þá reynslu, sem fékkst
í fyrra. Námskeiðið mun hefjast
2. febrúar og standa til 19. marz.
Að líkindum verður höfð svipuð
flokkaskipting og í fyrra og
kennt tvö kvöld í viku í hvorum
flokki.
Þeir sem áhuga hafa á þátttöku
í námskeiðinu, eru beðnir að til
kynna sig sem fyrst, þar sem
gera má ráð fyrir að takmarka
verði þátttöku eins og í fyrra.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðið gefur framkvæmdastjóri
félagsins, Gísli Einarsson, í sima
14099 og 13694.
fjórir stórir línubátar, Einar
Hálfdáns, Þorlákur, Hugrún og
Víkingur, og að auki Heiðrún,
sem fer á útilegu með línu og
net. Auk þess er héðan gerður út
togarinn Guðmundur Péturs á tog
veiðar. Héðan róa sennilega á
þessari vertíð þrír smærri bátar,
Húni, Kristján og Álftin. Farn.-
ir hafa verið fimm róðrar í
janúar, og afli hefir verið frá 3
upp í 6 smálestir. Tíð hefir verið
frekar stirð. — Fréttaritari.
ísafjörður
ÍSAFIRÐI, 8. jan. — Bátarnir
fóru allir á sjó í gær og voru
flestir að vestanverðu. Afli var
frekar misjafn. Allir bátarnir eru
á sjó í dag. — Fréttaritari.
Sex bátar róa
frá Höfn
HÖFN, Hornafirði, 8. jan. — Sex
bátar munu róa héðan á vertíð-
inni, sem nú er að hefjast, og
eru þeir allir byrjaðir að róa.
Fyrstu róðrarnir voru farnir sl.
mánudag, og var aflinn þá að
meðaltali 5 lestir á bát. Aflinn
var heldur betri í gær, 7—8 lest-
ir að meðaltali, enda var ágætis-
veður. Veðrið var aftur verra í
nótt og aflinn minni, 5—6 lestir
á bát. Aflinn er mestmegnis ýsa.
— Gunnar.
Vestmannaeyjar
VESTMANNAEYJUM, 8. jan. —
Þó samningar útgerðarmanna og
sjómanna fyrir komandi vertíð,
hafi enn ekki verið gerðir, þá eru
róðrar nú að hefjast.
í kvöld munu sjómenn og vél-
stjórar á bátaflotanum halda
fund, þar sem lagt verður fram
samningsuppkast það sem sjó-
mannafélögin hafa verið að taka
afstöðu til undanfarn daga.
Þó ekki hafi verið gerðir samn
ingar milli útvegsmánna og sjó-
manna, hafa viðræður farið fram
milli fulltrúa aðila.
Hér er mikill hörgull á sjó-
mönnum til starfa á bátaflotan-
um, svo til vandræða horfir og
getur svo farið að leggja verði
einhverjum hluta bátaflotans
vegna manneklu. — Bj. Guðm.
Afli Sandgerðis-
báta 6-11. lestir
SANDGERÐI, 8. jan. — Sand-
gerðisbátar reru í gærkvöldi og
öfluðu 6—11 lestir á bát. Aflinn
var mestmegnis þorskur og ýsa.
Átta bátar voru á sjó, og í dág
bættust 2 í hóp þeirra. Alls verða
19 bátar gerðir út héðan á vertíð-
inni, sem nú er að hefjast. Ágæt-
isveður er hér í dag. — E.G.
5—9 lestir
i Keflavik
KEFLAVÍK, 8. jan. — Tíu bátar
voru á sjó í dag, og var afli þeirra
frá fimm og upp í níu lestir. Afli
þeirra var nokkuð jafn og mikið
af aflanum ýsa. Allir bátarnir
munu róa í kvöld. Nokkrir bátar
hafa þegar bætzt í hóp þeirra,
sem reru í dag, og aðra er sem
óðast verið að búa á vertíðina.
— Ingvar.
Hafnarfjörður
HAFNARFIRÐI — Ekki hefur
stjórn Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar og trúnaðarmannaráð
enn boðað vinnustöðvun, en eins
og sagt var frá hér í blaðinu í
gær, felldu sjómenn fiskverðs-
og kjarasamningana á fundi, sem
haldinn var í fyrrakvöld, með 34
atkvæðum gegn 5. — Bátar hér
Námskeið tyrir söfu- og
afgreiðsl ufólk
munu ekki almennt vera tilbúnir
að hefja róðra.
Tveir togarar héðan, Surprise
og Júní, seldu afla sinn í Þýzka-
landi núna í vikunni, sá fyrr-
nefndi á þriðjudag í Cuxhaven,
145 lestir fyrir 82,245 mörk, og
síðarnefndi í gær í Bremerhaven,
130 lestir fyrir 77 þús. mörk.
— G. E.
HVERT skip sem í höfnina kem-
ur þessa daga er meira og minna
í klakaböndum, eins og þessi bát-
ur, sem lá við eina af gömlu ver-
búðarbryggjunum í gærdag. Það
er ekki skemmtilegt á sjónum í
svona miklum frostum, sagði
gamalreyndur sjómaður er stóð
fyrir ofan bryggjuna á tali við
nokkra kunningja.
(Ljósm.; Mbl. Ól. K. M.)
Ungur, einhleypnr bifvélonemi
hreppti þriggjo herbergjn íbúð
í GÆR var dregið í 9. fl. Happ-
drættis DAS um 10 vinninga,
eins og venjulega. Fyrsti vinn-
ingurinn, þriggja herbergja íbúð
að Hátúni 4, fullgerð, kom á miða
nr. 35949 í aðalumboðinu Vest-
urveri. Eigandi er Pétur Björns-
son, einhleypur, ungur, bifvéla-
nemi, Týsgötu 3. Annar vinning-
urinn, Chevrolet fólksbifreið
módel 1959, kom á miða nr. 24214
í umboðinu Vesturveri. Eigandi
er Elízabet Hauksdóttir, Boga-
hlíð 18. Þriðji vinningurinn er
Fiat 600 fólksbifreið, sem kom
á miða nr. 7569 í umboðinu Vest-
urveri. Eigandi er Lilja Ólafs-
dóttir, Skjólbraut 11, Kópavogi.
Fjórði vinningurinn, Hornung &
Möller píanó, kom á nr. 44276 í
Vesturveri. Ekki tókst að ná tali
af eigandanum í gær. Fiinmti
vinningurinn er Zimmermann
píanó, sem kom á miða nr. 16541,
í umboðinu á Akureyri. Eigandi
er Sigurður Baldvinsson, Þing-
vallastræti 8A. Sjötti vinningur,
húsgögn eða heimilistæki fyrir
20 þús. kr., kom á miða nr. 40925
í Vesturveri. Eigandi er Marie
Guðmundsson, Gunnarsbraut 40.
Sjöundi vinningur, húsgögn eða
heimilistæki fyrir 20 þús., kom á
miða nr. 57087 í umboðinu að
Réttarholtsvegi 1. Eigandi er
Karl Sigmundsson, Lindargötu
6SA. Áttundi vinningur, húsgögn
eða heimilistæki fyrir 15 þús.
kr., kom á miða nr. 4636 í umboð
inu Vesturveri. Eigandi er Krist-
ín Guðmundsdóttir, Otrateig 6.
Níundi vinningurinn, útvarps-
grammófónn með segulbands-
tæki, kom á miða nr. 46034 í um-
boðinu í Vesturveri. Ekki tókst
heldur að ná tali af eiganda þessa
miða í gær. Tíundi vinningurinn,
húsgögn eða heimilistæki fyrir
10 þús. kr., kom á miða nr. 6165
í umboðinu á Selfossi. Eigandinn
er Einar J. Hallsson, Austurvegi
8, Selfossi.
Stefnuskrárrœða
Eisenhowers í dag
WASHINGTON, 8. jan. — Á
morgun flytur Eisenhower for-
seti Bandaríkjanna stefnuskrár-
ræðu sina fyrir sameinuðu þingi
Bandaríkjanna. — Fréttamenn
Nýjar ráðstafanir
í umf erðarmálum
SEM kunnugt er lét lögreglan
grípa til ýmissa ráðstafana hér í
bænum, vegna jólaumferðarinn-
ar.
Nú hefur komið í ljós, að svo
vel hefur þetta þótt gefast, að
umferðarnefnd bæjarins hefur
skrifað bæjarráði um þær. Legg-
ur nefndin það til, að þessar
margháttuðu ráðstafanir verið nú
fastákveðnar að fengnu sam-
þykki bæjarstjórnarinnar.
Hér er sem kunnugt er, m.a.
um að ræða akreinaskiptingu
neðst á Laugavegi og Skólavörðu
stíg, svo og Klapparstíígnum
milli Laugavegs og Hverfisgötu,
einstefnuakstur á nokkrum göt-
um og uppsetning stöðumæla
neðst á Skólavörðustígnum og í
Ingólfsstræti milli Bankastrætis
og Amtmannsstígs.
Bæjarráð samþykkti að mæla
með þessum till. néfndarinnar
við bæjazstjómina.
segja, að hann muni leggja
áherzlu á, að varðveitt verði sam
heldni lýðræðisríkjanna, svo að
þau geti staðizt allar ógnir
kommúnismans, og aðstoð við
vinveitt ríki verði stóraukin. Þá
muni hann einnig ræða um geim-
vísindi og fara fram á hækkaða
fjárhæð til þeirra hluta.
— Churchill
Framhald af bls. 1
-jlr Þá var hann spurður um
Ungverjaland. Hann sagði, að
Rússar hefðu gripið þar í taiwn-
ana til að koma löglegri ríkis-
stjórn til hjálpar, alveg á sama
hátt og Bandaríkjamenn hefðu
gert í Líbanon. Hann viður-
kenndi að Kadar-stjórnin stæði
höllum fæti, og hún hefði beðið
Rússa að koma aftur til þess að
viðhalda lögum og rétti í land-
inu.
if Þá sagði hann að Banda-
ríkjamenn myndu hagnast meira
á því að viðurkenna alþýðustjórn
ina í Kína heldur en hagnaður
Kinverja myndi verða af slíkri
viðurkenningu.
Á- Að lokum ræddi hann um
Berlínarmálið og sagði, að Sovét-
stjórnin óskaði þess aðeins, að
Berlínar-búar væru hvorki háðir
austri né vestri.