Morgunblaðið - 09.01.1959, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.01.1959, Blaðsíða 8
8 MORGVNBL4ÐIÐ Föstudagur 9. jan. 1959 sjónleikur eftir Vilhelm Moberg Leikstjóri: Ldrus Pálsson Þjóðleikhusið: SÆNSKI rithöfundurinn Vilhelm Moberg, höfundur sjónleiksins „Dómarinn“, sem Þjóðleikhúsið frumsýndi s.l. þriðjudagskvöld, er af mörgum talinn í fremstu röð sænskra rithöfunda núlif- andi. Hann stendur nú á sextugu og hefur að baki sér þrjátíu ára merkan rithöfundaferil, bæði sem sagna- og leikritaskáld. Hef- ur oft staðið allmikill styrr um ritverk Mobergs, ekki síst síðasta verk hans, leikrit það, sem hér er um að ræða, enda er Moberg aðsópsmikill á ritvellinum, óvæg inn og ekki myrkur í máli, þegar hann deilir á samtíð sína og þá einkum á það, sem honum finnst miður fara í sænsku þjóðlífi. Slíkir menn eru ekki alls staðar jafnvel séðir, og hefur Moberg vissulega fengið að kenna á því, enda mörgum sviðið undan harðri ádeilu hans. En þó að Moberg hafi mætt þungri mót- spyrnu úr ýmsum áttum, þá á hann miklum vinsældum að fagna meðalalmenningsíSvíþjóð og er mikið lesinn þar, og leik- rit hans hafa verið sýnd í öllum helztu leikhúsum landsins. Hefur „Dómarinn“ verið sýndur þar rúmiega fimmhudruð sinnum og auk þess víða erlendis. Hér á landi mun Moberg einnig eiga marga lesendur, 'og ein af skáld- sögum hans, Mans kvinna (Kona manns) hefur komið út í ís- lenzkri þýðingu. Moberg hefur jafnan verið ótrauður baráttumaður fyrir mannúð og mannréttindum, fyrir frelsi einstaklingsins til orða og athafna, en hatað hvers konar kúgun og ofbeldi. Því hefur hann alla tíð verið svarinn óvinur naz- isma og kommúnisma, svo sem verk hans bera með sér, enda verið of raunsær til þess að láta blekkjast af áróðri þessara öfga- stefna, sem því miður hefur hent svo marga mæta rithöfunda. Moberg hefur í verkum sínum deilt á margt í fari þjóðar sinn- ar, en hin síðari ár hefur ádeila hans einkum beinst að misfellun- um í sænsku réftarfari. Hefur hann tekið það mál til meðferðar í leikritinu „Dómarinn", sem er mjög opinská og vægðarlaus ádeila á embættismannastéttina, einkum dómara og lögfræðinga, samábyrgð þeirra og samvinnu um að hylma yfir afglöp og jafn- Róbert Arnfinnsson sem læknirinn og Baldvin Halldórsson sem skáldið. — vel glæpi hvers annars, og hindra menn, á hinn kaldrifjaðasta hátt, í því að ná sjálfsögðum rétti sínum, ef það gæti orðið hinum lögspöku mönnum til óþæginda. — Fjallar leikritið um ungan mann vel efnum búinn, er dval- izt hefur erlendis í nokkur ár, en hefur falið dómara einum umsjá eigna sinna. En þegar hann kem- ur heim verður hann þess áskynja, að dómarinn hefur dreg ið sér allar eigur hans. Reynir hinn ungi maður nú að leita rétt- ar síns með aðstoð yfirvaldanna, en árangurslaust. Samábyrgð og samvinna dómaranna er í fullumann, þetta samvizkulausa mann- gangi og lýkur málinu með þvíhrak, að fulltrúa heillar stéttar. að ungi maðurinn er tekinn nauðEr slíkur málflutningur vitan- ugur og settur á geðveikrahæli. lega fjarri öllum sanni. — Ann- — Mun Moberg, er hann samdiars er leikritið að ýmsu leyti Haraldur Björnsson sem réttarfulltrúinn og Guðbjörg Þor- bjarnardóttir sem ritarinn. gott verk og áhrifamikið, þó að nokkuð skorti þar á listræn vinnubrögð. Höfundurinn segir að leikritið sé sorgarleikur, og er það vissulega rétt, ekki hvað síst vegna þess, að þeir menn, sem tekið hafa að sér að berjast fyrir sigri réttlætisins, reynast þegar á herðir, lítilmenni og leggja árar í bát. Og þó er höf- undurinn ekki vonlaus um fulln- aðar sigur réttlætisins áður enn lýkur. Það hefur aðeins tapað í fyrstu lotu. ■— Lárus Pálsson hefur sett leik- inn á svið og haft á hendi leik- stjórnina. Er ekki nema allt gott um leikstjórn hans að segja, enda er Lárus öruggur leikstjóri og skilur jafnan viðfangsefnin til hlýtar. Hlutverk leiksins eru mörg og flest allveigamikil. Baldvin Hall- dórsson leikur Kristar, unga manninn, sem settur er á geð- veikrahæli, mikið hlutverk og vandasamt. Fer Baídvin með hlut verkið af næmum skilningi og miklum tilþrifum, ekki síst í leikslok, er hann hefur verið lát- inn laus af hælinu til reynslu. Unnusta hans, Britu, leikur Her- dís Þorvaldsdóttir. Herdís er mikil leikkona og fjölhæf en að þessu sinni finnst mér hún ekki njóta sín fyllilega. — Réttarfull- trúann, hinn steinrunna em- bættismann, leikur Haraldur Björnsson. Er gervi hans ágætt Framh. á ols. 12 ELDURIN \l GERIR EKKI BOÐ Á UNDAN SÉR TRYGGIÐ í TÍMA tryggið fyrir sannvirði TRYGGING ER NAUÐSYN! Austuistræti 10 — Sími 1-77-00 UmboBsmenn um land allt leikrit þetta einkum hafa haft í huga tvö hneykslismál, er upp komu í Svíþjóð fyrir skömmu óg er dómari ein af aðalpersónunum í öðru þeirra. — Það er hvort tveggja, að ég er ekki kunnugur þessum málum og þekki lítið til sænskra dómara — og lögfræð- ingastéttar og réttarvörzlu þar í landi og get því ekki um það dæmt hversu réttmæt er hin hatrama ádeilda höfundarins í leikritinu á þessar stéttir. Senni- lega er í Svíþjóð, sem svo víða annars staðar, pottur brotinn á þessu sviði, en bágt á ég með að trúa því, að dómara- og lögfræð- ingastéttin í því ágæta menning- arríki, sé svo spillt og réttar- varzlan svo rotin, sem ætla mætti af lýsingu höfundarins. Ég þykist reyndar vita, að hinn skapmikli höfundur hafi dregið hér upp mjög ýkta mynd af þeim ósóma, sem hann vill uppræta, og er í sjálfu sér ekkert við það að athuga. Ýkjur að vissu marki eru góð og gild vinnubrögð skálda, ef svo ber undir, en gangi þær of langt er hætt við að þær rýri sannleiksgildi verksins og dragi úr áhrifum þess. Og ein- mitt í þessu atriði finnst mér fólgin veila leikritsins, — að ádeilan sé svo öfgakennd, að hún verði ósanngjörn og missi því að nokkru leyti marks. Á ég þá öðru fremur við það, að höf- undurinn hefur bæði óbeint og með beinum orðum gert dómar- „Dómarinn”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.