Morgunblaðið - 09.01.1959, Page 9

Morgunblaðið - 09.01.1959, Page 9
Fostníla'nJr 9. jan. 1959 MORGVlSTtr rnif) 9 Uppreisnarmenn i stjórn Eisenhowers Rogers dómsm.ráðh. Mitchell verkamálarh. Nixon varaforseti Seaton innanrík.rh. Flemming heilbrigðism.rh. Bandaríska stjórnin klofin um sparnað í opin- berum útgjöldum Nixon telur slikt óvænlegt fyrir vinsældir sinar DJÚPSTÆÐUR ágreiningur er nú kominn upp milli Eisenhow- ers forseta og Nixons varaforseta um íjárlagafrumvarp stjórnar- innar. Ágreiningurinn snertir meginstefnu republikanaflokks- ins og ríkisstjórn Bandaríkjanna er klofin niður úr og í gegn í J>essu máli. Ágreiningsins varð fyrst litil- lega vart í kosningabaráttunni I október sL Þá vildi Eisenhower leggja áherzlu á það hve vitur- leg og ábyrgðarfull fjármála- stjórn republikana hefði verið. Þeir væru andstaða demokrata sem vildu endalaust eyða og sóa fé i opinberar framkvæmdir. í hinum fjö'.mörgu kosninga- ræðum lagði Nixon varaforseti hins vegar litla áherzlu á þessa sparnaðarstefnu. Og það var tek- ið eftir þvi í eitt eða tvö skipti, að hann komst í bera mótsögn við hann, þegar hann lofaði aukn- um opinberum framkvæmdum. X kosningunum 4. nóvember kom í ljós, að sparnaðarstefna Eisenhowers hafði lítið aðdráttar- afl á kjósendur. Þvert á móti voru það þeir sem mestum skólabygg- ingum og vegalagningum lofuðu, sem flest hlutu atkvæðin. Sú staðreynd hefur nú orðið til þess að auka mótspyrnu Nixons vara- forseta gegn sparnaðarviðieitni forsetans. Ágreiningurinn er ekki ræddur á opinberum vettvangi, og þess verður að geta að Nixon og allir ráðherrarnir bera enn sem fyrr virðingu og hollustu til Eisen- howers. En öruggar heimildir eru þó fyrir því að ágreiningurinn er djúpstæður og þótt einhver lausn finnist verður það aðeins á yfir- borðinu. Eisenhower ber það mjög fyrir brjósti, þegar hann skilar af sér stjórn landsins eftir tvö ár, að hann geti sýnt fram á að efna- hagsmálum landsins hafi verið vel stjórnað. Hann óttast hættuna af verðbólgu. Dró hann t. d. úr hófi að auka opinberar fram- kvæmdir, þegar afturkippurinn í atvinnumálum var að hefjast síð- asta vetur, — allt af ótta við verðbólgu. Fjármálaráðherra hans Robert B. Anderson er ákveðnasti stuðn- ingsmaður sparnaðar hins opin- bera. Hann óttast jafnvel að mætti dollarans á alþjóðavett- vangi sé hætta búin með auknum ríkisútgjöldum og verðbólgu. Það er staðreynd, að á einu ári hafa Bandaríkjamenn misst úr landi 2 milljarða dollara í gulli. Og hvar lendir það, ef verðbólga í Bandaríkjunum eykst á sama tíma og Evrópugjaldeyrir heldur áfram að styrkjast. Talið er hins vegar, að afstaða Richards Nixons mótist eingöngu af því, hvað kemur honum sjálf- um bezt í næstu forsetakosning- um árið 1960. Nú eru aðeins þrjú misseri, þar til flokkarnir eiga að útnefna frambjóðendur sína í þeim kosn- ingum. Nixon hefur nýlega eign- azt skæðan keppinaut um fram- boðið, Nelson Rockefeller ríkis- stjóra í New York. Svo hann verður að hafa hraðann á, ef hann á eltki að biða lægri hlut, þegar á úrslitastund kemur. Meginatriðið fyrir Nixon er fyrst að telja flokksþingi repu- blikana trú um, að hann sé per- sónulega vinsæll og geti safnað saman atkvæðum meirihluta þjóðarinnar. Til þess mun Nixon nú sizt telja það henta, að íara að berja sér og prédika sparnað og halla- laus fjárlög. Bandarískur almenn ingur lifir og unir sér mæta vel við lán til langs tíma. Bandarísk meðalfjölskylda kaupir venjulega með afborgunum húsið, bílinn, ísskápinn og innanstokksmunina. Þetta fólk hefur sáralítinn áhuga á því, hvort ríkið sparar. Jafnvel skiptir það engu meginmáli, hvort skattarnir hækka eða lækka. Hitt er miklu þýðingarmeira atriði í þess augum, hvort skóli er reistur í bæjarhverfi þess, hvort bílabraut er iögð og hvort nóg er byggt af íbúðarhúsum handa öllum. Nixon hyggst skapa sér vinsældir með því að gerast talsmaður vaxtar og útvíkkunnar. En þá rekst hann á sparnaðar- stefnu Eisenhowers. Á bandi Nixons eru þegar nokkrir ráðherrar, svo sem James Mitchell verkamálaráðherra, Will iam Rogers dómsmálaráðherra, Arthur Flemming heilbrigðis- málaráðherra og Fred Seaton innanríkisráðherra. Á hans bandi er einnig fjöldi hinna yngstu þingmanna repu- blikanaflokksins, sem eru orðnir leiðir á íhaldssemi og þróttleysi Eisenhowers. Enn er málið rætt bak við læst- ar dyr, en allt bendir til þess, að ekki muni líða á löngu þar til Nixon telur tima til kominn að vera opinberlega á annarri skoð- un en Eisenhower forseti. Bernharð Stefánssyni árnað heilla í efri deild FUNDIR voru settir í báðum deildum Alþingis á venjulegum tíma í gær. Tvö mál voru á dag- skrá efri deildar, kosning fyrri varaforseta deildarinnar og frum varp um tekjuskatt og eignar- skatt. Áður en gengið var til dagskrár kvaddi Jóhann Þ. Jósefs son, þm. Vestmannaeyinga, sér hljóðs og sagði, að eins og kunn- ugt væri, ætti forseti deildarinn- ar, Bernharð Stefánsson, sjötugs- afmæli. Flutti hann honum árn- aðaróskir og þakkir fyrir hönd deildarinnar og árnaði honum og konu hans allra heilla. Þingdeild armenn tóku undir orð Jóhanns Þ. Jósefssonar með því að rísa úr sætum. Var nú gengið til dagskrár. Er skýrt frá kosningu fyrri vara- forseta deildarinnar annarsstaðar í blaðinu, en frv. um tekjuskatt og eignarskatt, sem var til 3. umr., var samþykkt samhljóða og afgreitt til neðri deildar. Tvö mál voru á dagskrá neðri deildar. Frumvarp um viðauka við lög um virkjun Sogsins var til 1. umr. og vísað samhljóða til 2. umr. Frumvarp um breytingu á lögum um búnaðarmálasjóð var til 2. umræðu, en umræðunni varð ekki lokið og verður sagt frá henni síðar hér í blaðinu. Fyrsta vélstjóra helzt með meiraprófi, vantar á m.b. Sigurkarfa frá Njarðvík. Einnig vantar háseta. Báturinn stundar veiðar með línu og þorskanet. Nánari uppl. hjá Frið- jóni Jónssyni, Hótel Vík, herbergi nr. 5. Handsetjari Getur fengið atvinnu hjá oss, við umbrot nú þegar f-^rentsmi&ja ffjorc^unllaksins Innfluttur áburður greið ist niður til að hindra hækkun landbúnaðar- vara Jón á Reynistað og Ingólfur á Hellu tlytja þáltill. þess efnis TVEIR þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, þeir Jón Sigurðsson og Ingólfur Jónsson flytja í samein- uðu þingi þingsályktunartillögu um niðurgreiðslu á innfluttum áburði. Er tillagan á þessa leið: „Alþingi ályktar að fela rikis- stjórninni að greiða niður verð á innfluttum áburði árið 1959, þann ig, að verðið til bænda verði sem líkast því, sem það var árið 1958“. f greinargerð segir svo: „Þegar innfluttur fóðurbætir var stórhækkaður í verði sl. vor með lögum um útflutningssjóð o. fl., var það haft mjög á orði af talsmönnum þessarar ráðstöfun- ar, að henni væri ætlað að koma því til leiðar, að bændur drægju j stórlega úr fóðurbætiskaupum frá | útlöndum. í þess stað áttu bænd- , ur að afla meiri og betri heyja og spara sér þannig kaup á er- lendu kjarnfóðri. Þá hagaði svo til, að búið var að kaupa til landsins það magn af fosforsýsu- og kalíáburði, sem áætlað var að bændur mundu nota á því ári. Að svona heppi- lega vildi til, kom sér mjög vel fyrir bændur og varð til þess, að hækkunin á rekstrarútgjöldum bænda sl. ár varð allmiklu minni en ella hefði orðið. Nú verður þessi hækkun ekki lengur um- flúin. Fosforsýru- og kalíáburð- urinn, sem bændur þurfa á þessu ári, mun hækka um a. m. k. 40%, ef ekkert er að gert, miðað við söluverð þessara áburðartegunda sl. ár, en auk þess verður að flytja inn nokkurt magn af köfn- unarefnisáburði. Þessi hækkun veldur bændum nýjum erfiðleik- um, sem óséð er, hvernig leysast. Áburðartilraunir víðs vegar um land hafa sýnt og sannað, að víða er tilfinnanlegur skortur á fos- forsýru og kalí, sem stendur gróðri fyrir fullum þrifum. Verði bændur að draga úr þessum á- burðarkaupum, gæti það því haft alvarlegar afleiðingar. En hér kemur fleira til greina. 40% hækkun á innfluttum á- burði hækkar allverulega rekstr- arútgjöld bænda og verkar með fullum þunga næsta haust, þeg- ar verð á landbúnaðarvörum verður ákveðið. Áætlað er, að þessi hækkun muni valda tals- verðri hækkun á vísitölunni. Þessi hækkun á landbúnaðarvör- um verður bezt umflúin með því að stemma á að ósi og greiða niður verðið á innfluttum áburði, þannig að verðið til bænda á næstkomandi vori verði sem lík- ast því, er það var sl. ár. Slík ráðstöfun mundi áorka þrennu: í fyrsta lagi létta bændum á- burðarkaupin í vor. í öðru lagi stuðla að betri ræktun og öflun meiri og betri heyja, sem mundi draga úr þörfinni fyrir aukin kjarnfóðurkaup. f þriðja lagi koma í veg fyrir hækkun á vísi- tölunni. Loks má benda á það, að yfir- færslugjald af áburði, 55%, sem lagt var á sl. vor, en kom ekki til tekna á því ári, verður nú innheimt af innfluttum áburði, mun nægja til þeirrar niður- greiðslu, sem þessi þingsályktun- artillaga gerir ráð fyrir. Frost og stormur í N-k ÞÚFUM, N-ÍS., 6. jan. — Ný- byrjaða árið hefst með frosti og stormi, látlaus norðanátt þessa viku oftast með miklu frosti, 8— 13 stigum. Sauðfé var flutt í land úr Borgarey fyrir nýárið í bezta ástandi. Fannkoma er ekki mikil daglega vestan djúps, en nokkur fannkoma norðan þess. Er því hörkuveðrátta þessa daga. Héraðsskólinn byrjar í Reykja- nesi í dag. Skólinn er sóttur af um 50 nemendum víðs vegar að og er fullsetinn. Fékk hann fleiri umsóknir en hægt var að veita viðtöku. — P. P. Motróðskono og stúlka til framreiðslustarfa óskast nú þegar. Uppl. í Iðnó, sími 12350. Karlmanna- bomsur með rennilás stærðir 39—46 Drengjabomsur með spennu stærðir 34—40. Sendum í póstkiröfu. HECKTOR Laugav. 11 — Laugav. 81.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.