Morgunblaðið - 09.01.1959, Side 19

Morgunblaðið - 09.01.1959, Side 19
Föstudagur 9. jan. 1959 MORCT!Nnr,4fílÐ 19 Mikojan lofar skipulag og framleiðslu Banda- Berlínarfillögurnar ekki urslitakostir WASHINGTON, 8. jan. — Þegar Mikojan, fyrsti varaforsætisráð- herra Sovétríkjanna, kom til Detroit í dag, eftir að hafa fengið sér- stakt leyfi bandarískra stjórnvalda til þess, biðu 50 menn í hnapp á flugvellinum til að mótmæla ferðalagi ráðherrans. I tilefni af þessu sendi Eisenhower út tilkynningu til banda- rísku þjóðarinnar og biður faana að sýna Mikojan fyllstu kurteisi, meðan hann dveljist í Bandaríkjunum. I tilkynningunni biður Eisenhower landsmenn sína að sýna Mikojan sömu kurteisi og þeir sýni annarra þjóða gestum, sem heimsæki Bandaríkin. á gerðir Eisenhowers en hópur- inn í Detroit. Þegar Mikojan kom þangað, mótmæltu nokkur hundr Fréttamenn segja, að fram- koma fólks í Cleveland í gær hafi kannski haft enn meiri áhrif Götulýsing við Laugaveg Hverfisgötu og Miklu- braut bœtt VEGFARENDUR í Austurstræti munu hafa veitt því athygli und anfarin kvöld, að svo virtist sem ólag væri á hinum nýju götuljósum, ljóspípunum, sem ýmist hafa verið stöðugt að „blikka" eða ekki logað á. Ástæðan til þessa er ekki sú, að um bilun sé að ræða, sagði Aðalsteinn Guðjohnsen verkfræð ingur hjá Rafmagnsveitunni, blaðinu í gær, heldur vegna jóla- skreytinganna 1 Austurstræti.Hef ir skreytingin orsakað spennu- fall, svo ekki hefur verið nægi- leg spenna á ljóspípunum. Einnig hafa frostin haft áhtif. Er von á öðrum ljóspípum frá Ameríku, sem þola allt að 20 stiga gadd. Þessar ljóspipur eru frá Spáni. Aðalsteinn kvað forráðamenn Rafmagnsveitunnar vera ánægða með hina nýju lýsingu, hún hent- aði vel við þessa verzlunargötu, og samskonar götuljós myndu verða sett upp x Aðalstræti síðar í vetur, þegar aðstæður leyfðu. Þá sagðj Aðalsteinn, að meðal SAS býður tólf farþegavélar til kaups SKANDINAVISKA flugfélagið SAS vill á þessu ári selja tólf risastórar farþegaflugvélar af teg undinni Douglas DC-6 Cloudmast er. Flugvélar þessar eru í mjög góðu standi. Þrátt fyrir það verð- ur örðugt að finna kaupendur, vegna þess að stóru flugfélögin eru nú óðum að fá sér farþega- þotur og þurfa öll að losna við hinar eldri skrúfuknúnu flugvél- ar. Ástæðan til þess að SAS þarf að losna við þessar flugvélar er sú, að félagði er nú að fá marg- ar farþegaþotur af tegundinni DC-8. Hinar 12 flugvélar sem nú eru til sölu, vonar félagið að fá 75 milljónir danskra króna fyr- ir. Svo mikið framboð verður á farþegaflugvélum á heimsmark- aðnum, að nú hefur verið ákveð- ið að stofna í Lundúnum sórstak an flugvélamarkað og verða hin ar norrænu flugvélar til sölu á honum. Loftorusta yfir Nagev. í dag varð loftorusta yfir Nagereyði- mörkinni milli þrýstiloftsor- ustuþotu ísraelsmanna og fjög- urra flugvéla Egypta. Ekki ber aðilum saman um úrslit orust- unnar. EGGERT CLAESSEN og GtTSTAV A. SVEINSSON hæstaréttarlögmenn. Þórf hamn við Templarasuno þeirra framkvæmda á sviði götu- lýsingarinnar, sem nú væri unnið að undirbúningi á, væri ný og betri lýsing við Hverfisgötu og Laugaveg, raflýsing á allri Miklu brautinni allt inn að Elliðaám, einnig væri ráðgerð endurbót á raflýsingu með kvikasilfursljós- um, sem vel hafa reynzt. — Myndi verða unnið að þessum endurbótum á sumri komanda. uð manna komu hans, og sumir höfðu í frammi skrílslæti, köst- uðu eggjum og tómötum í átt til ráðherrans. Eisenhower þykir þessi framkoma landsmanna sinna fyrir neðan allar hellur og vill, að Mikojan geti farið heim með góðar endurminningar frá Bandaríkjunum, bæði hvað snei-t ir framkomu fólks og annað. Hjálpuðu Rússum Þegar Mikojan kom til Detroit í dag, sagði hann, að bifreiðasérfræðingar frá þess- ari miklu bílaiðnaðarborg hefðu hjálpað Rússum til að gera sinn bílaiðnað að þvi, sem hann er í dag. Ráðherr- ann hafði áður farið iofsam- legum orðum um bandariskan iðnað og sagt, að Bandaríkja- menn stæðu Rússum framar í kaupmennsku og Rússar gætu margt lært af skxpulags- hæfni Bandaríkjamanna í framleiðslu. Berlínarmálið Loks herma fregnir, að Mikojan hafi oft í einkasam- tölum sínum við ráðandi menn vestra ymprað á Berlínarmálinu á þann hátt, að menn eru ekki lengur á þeirri skoðun, að Berlínartil- lögur Krúsjeffs séu neinir úr- slitakostir Rússa. Meira að segja hefur Mikojan oft spurt menn um skoðanir þeirra á Berlínarmálinu. Hjartanlega þakka ég börnum, tengdabörnum, barna- börnum og öðrum vinum og kunningjum, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 80 ára afmæli mínu 30. nóvember s.l. Guð blessi ykkur öll. Kristín Jónsdóttir, Grenimel 31. Lokað í dag eftir hádegi vegna jarðarfarar. HÚSAMEISTARI RtKISINS og TEKNISTOFA SIÍIFULAGSINS. Skrifstofur vorar verða lokaðar eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar. Brunabótafélag íslands Skrifstoiui vorui verða lokaðar frá hádegi í dag vegna jarðarfarar frv. vegamálstj. Geirs Zoega. Hlutafélagið Hamar Lokað í dag vegna jarðarfarar. Gluggar h.f. Skipholti 5. Lokað í dag vegna jarðarfarar Geirs Zoega, fyrrum vegamálastjóra. Ferðaiélag íslands Vegna jarðarfarar verður skrifstofum okkar og vörugeymslum lokað í dag eftir hádegi. Kp Itew & Olsem %l Skrifslofum vorunt o«f verzlun er lokað frá hádegi í dag vegna jarðarfarar. Slippfélagið í Reykjavík hi. Lokað í dag vegna jarðarfara frá kl. 12. Verzl. G. Zoega Vesturgötu 6. Móðir mín INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR Höfðaborg 86 lézt í Landsspítalanum í gærmorgun. Gunnar Arndal. Faðir minn HALEDÓR ARNASON frá Höfnum, lézt að heimili sínu í Winnipeg aðfaranótt mánudagsins 5. janúar. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á líknarstofnanir. Sigfús Halldórsson frá Höfnum. Hjartkær eiginmaður, faðir og tengdafaðir JÓN GUÐMUNDSSON verzlunarstj. andaðist að kvöldi þess 7. janúar að Heilsuverndarstöð- Reykjavíkur. Kristin Pálmadóttir, Pálmi Jónsson, Guðmundur Jónsson, Hulda Kristinsdóttir. Okkar hjartans þakklæti færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hluttekningu við fráfall og jarðar- för móður okkar og tengdamóður ÞÓRUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR Læk j arh vammi. Berta Sveinsdóttir, Einar Ólafsson, Theódóra Stefánsdóttir, Þormóður Sveinsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför MARGRÉTAR TH. BJARNADÓTTUR RASMUS Sérstaklega ber að þakka þeim, sem veittu hinni látnu hjálp í veikindum hennar. Einnig þökkum við öllum þeim mörgu, sem heiðruðu minningu hennar, með gjöfum í styrktarsjóð fyrir bágstætt mállaust fólk. Börn, tengdabörn og barnaböm. Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu í veik- indum og við fráfall mannsins míns og föður okkar ÓLAFS ELfSSONAR forstjóra. Sérstaklega þökkum við Elísabetu Erlendsdóttur, hjúkr unarkonu, alla hennar umönnun og umhyggju. Gyða Bjömsdóttir og börn. Alúðar þakkir fyrir auðsýndan vinarhug við andlát og útför fósturföður míns JÓHANNESAR HJARTARSONAR Ásta Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.