Morgunblaðið - 13.01.1959, Page 2

Morgunblaðið - 13.01.1959, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 13. jan. 1959 * # Bátarnir, sem hyrjaðir eru, afla sœmilega KEFLAVÍK, 12. jan. — Á sjón- um voru 21 bátur í dag og var afli þeirra frá 4—8 lestir. Dag- lega bætast fleiri bátar við flot- ann, en það sem einkum háir hér útgerð er eins og annars staðar mannekla. Vantar sjómenn á nokkuð marga báta og geta þeir ekki hafið veiðar af þeipi sökum. Það þykir nokkrum tíðindum sæta, að er vertíð hófst þurfti nú í fyrsta sinn að auglýsa eftir sjómönnum á þau skip sem hér hafa verið aflahæst undanfarin ár. — Ingrar. ★ AKRANE5I, 12. jan. — 12 bátar voru á sjó. Helmingur þeirra eða sex bátar voru komnir að, og er afli þeirra 4—7 tonn á bát. Á laug ardaginn voru þeir einnig 12 á sjó, og fengu þá samtals 77 lest- ir. Aflahæstir voru Sigrún og Höfrungur með 10 lestir hvor. — Oddur. ★ GRUNDARFIRÐI, 12. jan. — Fimm bátar eru byrjaðir róðra og eru í þriðju sjóferðinni í dag. Þrir munu bætast við á næstunni, ef mannekla ekki háir. Aflinn hef ur verið sæmilegur, frá 4—7 lest- ir á bát. — E.M. ★ HORNAFIRÐI, 12. jan. — Horna- fjarðarbátar hafa róið alla daga í góðu veðri og fengið sæmileg- an afla, 5-8 lestir á bát. — G.S. ★ SANDGERÐI, 12. jan. — í síðast- liðinni viku fóru Sandgerðisbátar í þrjá róðra og fengu yfirleitt ágætan afla. f þessum þremur róðrum fiskuðu 10 bátar 270 tonn. Fimmtudaginn 8. var aflahæstur Víðir II með 11 tonn, föstudag- inn 9. var Hamar hæstur með 13 tonn og laugardaginn 10. var Pétur Jónsson hæstur með 12 tonn. Allir Sandgerðisbátar eru á sjó í dag, en þeir eru ekki komnir að, svo ekki er vitað um afla þeirra. — Axel. Vetrarhörkur í Evrópu LONDON, 10. jan. (Reuter) — Vetur konungur ríkir nú í Vest- ur-Evrópu. Hefur fannkoma og ísing tafið umferð á vegum í hlutum Bretlands, Hollands, Belgíu og Austurríkis. Hins vegar hefur flóð hlaupið í nokkrar ár í Frakklandi og Þýzkalandi. Signa og Marne hafa flætt yfir bakka sína skammt austur af París. Hafa nokkur hús verið yfirgefin í bænum Villen- eauve St. Georges. Þá er flóð hlaupið í Moselle. Fyrsti snjórinn féll í dag í Rómaborg og skjálfa Rómverjar af kuldanum. Mikil fannkoma var í Austurríki og í Hollandi hefur 10 tommu þykkur snjór lagzt yfir landið. Balgía er sömu- leiðis þakin fönn frá ströndinni og upp til fjalla. Var dimmasta hríð í Ardennafjöllum. Dagskrá Alþingis FUNDIR eru boðaðir í báðum deildum Alþingis á venjulegum tíma í dag. Eitt mál er á dagskrá efri deildar. Kosning tveggja fulltrúa og jafnmargra varafulltrúa úr hópi þingmanna í Norðurlandaráð, að viðhafðri hlutfallskosningu, samkv. þingsályktun, samþykktri á Alþingi 29. jan. 1953, um kjör fulltrúa í Norðurlandaráð. Gildir kosningin þar til ný kosning hef- ur farið fram á næsta reglulegu Alþingi. Á dagskrá neðri deildar eru tvö mál: 1. Bann gegn botnvörpuveið- um, frv til 2. umr. 2. Tekjuskattur og eignarskatt- ur, frv. til 1 umr. ★ HAFNARFIRÐI. — Fjórir bátar reru héðan á sunnudaginn. Tveir fóru í útilegu, Fákur óg Faxa- borg, en Fiskaklettur og Álfta- nesið komu að í gærkvöldi, sá fyrmefndi með 7 lestir og hinn með 5. Þeir reru aftur og var sjóveður ágætt. Ekki eru fleiri bátar byrjaðir róðra, en búast má við að fleiri bætist í hópinn næstu daga, þ. e. a. s. ef ekki verður boðað verkfall hjá báta- sjómönnum. Surprise kom frá Þýzkalandi á sunnudagsnótt og fer á veiðar seinni hluta vikunnar. Aðrir tog- arar eru á veiðum, að Júní undan skildum, sem er á heimleið frá Þýzkalandi. — G.E. — Tillögum Rússa Framhald af bls. 1. sameiningu kynnt sér rússnesku orðsendinguna. Formælandinn kvað tlllögur Rússa miða að því að skaða Sam- bandslýðveldi Vestur-Þýzkalands og vestræna samvinnu. Hann bætti við, að vestur-þýzka stjórn in vildi ekki gefa ýtarlegri yfir- lýsingu, fyrr en hún hefði ráðgazt við sendimenn erlendra ríkja í Bonn og umræðum innan Atlants hafsbandalagsins væri lokið. For- mælandinn gaf í skyn, að það ylti á þeim viðræðum sem nú standa yfir, hvort haldinn verður ráðstefna forsætisráðherra til að ræða rússnesku tillöguna. Gagntillögur nauðsynlegar Fyrr í dag hafði Adenauer lýst þvi yfir á fundi með leiðtogum Kristilegra demókrata, að eng- inn vegur væri að fallast á tillög- ur Rússa. Einn leiðtoganna, dr. Gradl, fór þess á leit, að svarið til Rússa yrði ekki takmarkað við afdráttarlausa neitun, heldur kæmu þar einnig fram gagntillög- ur. Stjórn Sósíaldemókrataflokks ins, sem er í stjórnarandstöðu, krafðist þess líka á fundi í dag, að bornar væru fram gagntillög- ur. Fundur í fastaráði NATO Frá París símar fréttaritari Reuters, að fastaráð Atlantshafs- bandalagsins hefði í dag tekið til umræðu tillögur Rússa um friðar- samninga við Þýzkaland. Er það haft eftir góðum heimildum að fundum ráðsins verði haldið áfram í því skyni að finna grund- völl fyrir jákvæðar viðræður milli austurs og vesturs um Þýzkalandsvandamálið. Vesturveldin standa öll fast á því, að sameining Þýzkalands verði ekki framkvæmd án frjálsra kosninga í öllu Þýzka- landi, sem verði undir eftirliti al- þjóðlegrar stofnunar. Tillaga Rússa um friðarsamninga við bæði þýzku rikin, sem síðar reyni að bræða sig saman, er því úti- lokuð I augum vestrænna leið- toga, sem einnig hafa vísað á bug tillögunni um að gera Vestur- Berlín að hlutlausu borgarríki, en hún var tekin með í uppkasti Rússa að friðarsamningum. Raunhæfar gagntillögur Fulltrúar í fastaráði NATO voru í meginatriðum sammála um, að ekki kæmi til mála að semja við Rússa á öðrum grund- velli en þeim, að Þýzkaland yrði sameinað. Fundurinn í dag stóð yfir rúma tvo tíma, og tóku flestir fulltrúanna til máls. Heimildir, sem eru nákomnar fastaráðinu, herma að flestir fulltrúanna hafi lagt á það megináherzlu, að nú væri brýn þörf á að koma fram með jákvæðar og raunhæfar gagn tillögur, án þess að hvikað væri frá skuldbindingum og réttind- um vestrænna ríkja. Walter Urbricht, einræðisherra Austur-Þýzkalands, hefur mjög gaman af hersýningum. Að undirlagi Rússa stofnaði hann fyrir mörgum árum öflugan her austur-þýzkra kommúnista. Fyrir nokkru hélt hann ræðu í Berlín og krafðist þess að Vestur- Berlín yrði gerð að vopnlausu fríríki. Við það tækifæri fóru hersveitir úr austur-þýzka hernum á gæsagangi um strætið og hylltu Ulbricht, eins og myndin sýnir. Nœfurrennslið meira en allt vatnið frá Reykjum í BLÓÐUM bæjarins hefur nú undanfarið verið hvað eftir ann- að skýrt frá því, að þeir bæjar- búar, sem búa á hitaveitusvæðinu hafi með öllu daufheyrzt við þeirri áskorun að láta ekki vatn renna inn á hús sín um nætur. Slíkt hefði í för með sér, að vatnslaust myndi vera á miðjum degi eða svo. Aðfaranótt sunnudagsins keyrði þó úr hófi fram í þessum efnum, er næturrennslið var 335 sek.lítrar, en það er meira magn en fæst frá aðalheitavatnsupp- sprettum Hitaveitu Reykjavíkur að Reykjum í Ölfusi. Hefur það aldrei fyrr skeð að næturrennsl- ið hafi verið svona mikið, enda var ekki nema rúmlega 2 m. vatnsborð í Öskjuhlíðargeymun- um á sunnudagsmorguninn, og hitaveitusvæðið meira og minna vatnslaust af þeim sökum þegar um miðjan dag eða svo. f gær var ástandið strax orðið betra, enda frostlaust orðið að heita mátti. Enginn brczkur togari í landhelgi f GÆRKVÖLDI voru engir brezk ir togarar að ólöglegum veiðum í fiskveiðilandhelginni. Voru tog- arar á veiðum djúpt út af Aust- fjörðum og munu hafa haft sæmi- legan afla þar. Brezku herskiþin halda sig í námunda við verndarsvæðin, sem eru í grennd við Hornafjörð og Ingólfshöfða og voru nokkrir tog arar þar að veiðum utan 12 sjó- mílna markanna. Sá dauði reis upp í GÆRKVÖLDI um klukkan hálf tíu var lögreglunni tilkynnt um bifreiðaslys, sem orðið hafði í Borgartúni, á móts við Höfða- borg, og átti það að vera bana- slys. En þegar lögreglan kom á vettvang reis sá dauði upp. Hafði Bakkus konungur lagt hann velli, en ekki bifreiðin. Hann var samt fluttur til vonar og vara á Slysavarðstofuna, en læknar fundu ekkert að honum. — Mikojan Framhald af bls. 1. urnar eru einkum við það miff- affar að koma í veg fyrir starf- semi njósnara." Hann sagði, aff Vesturveldin ættu sök á skipt- ingu Þýzkalands, þar sem þau hefðu gefiff út nýjan gjaldmiffil. „Einu sinni var sama tegund marks gildandi fyrir alla Þjóff- verja“, sagffi hann, „en svo tókuff þiff upp gjaldmiðil, sem var ólík- ur fyrri gjaldmiffli. Vestur- Þýzkaland er meðlimur í hern- aðarbandalagi ykkar. Þiff fenguff þýzka hernum vopn og eruð nú nú búa hann kjarnavopnum. — Jaltasáttmálinn segir ekkert um þessi atriði.“ Frjálsar kosnlngar óhugsandi Mikojan spurði, hvort menn gerðu sér ljóst, hvað það hefði í för með sér að Þjóðverjar fengju kjamavopn, og sagði að þessum vopnum væri beint gegn Sovétríkjunum. Hann kvað kröfu Vesturveldanna um frjáls- ar kosningar í Þýzkalandi öllu, ósamrýmanlegar þessari þróun. „Konrad Adenauer kanslari Vest- ur-Þýzkalands vill ekki hafa nein afskipti af austur-þýzku stjórn- inni. Hann vill ekki einu sinni tala við Austur-Þjóðverja“, sagði Mikojan. Skaffar málstaffinn! færri ferðir — fleiri farþegar 70% sœtanýtin< HELZTU niðurstöðutölur flug- reksturs Loftleiða á liðnu ári eru nú kunnar,, en samkvæmt þeim er auðsætt að tekizt hefir að efla hann verulega og spá þær góðu um framtíð félagsins. Árið 1958 ferðuðust 26.702 far- þegar með flugvélum félagsins. Er það tæplega 1.800 farþegum fleira en árið 1957 og nemur aukn ing farþegatölunnar um 7%. Vöruflutningar jukust um svip- aða hundraðstölu, en póstflutn- ingar minnkuðu lítillega. Alls voru flutt um 250 tonn af vörum. Flugkílómetrar urðu 3 millj. og 270 þúsund, farþegakílómetrar um 121 milljón. Aukningin ein, sem orðið hef- ir á farþegafjölda og vörumagni, segir ekki nema lítið eitt um það, sem mestu máli skiptir í flug- rekstrinum, en það er hversu tekizt hefir að nýta flugkostinn, því að sá þáttur er jafnan at- hyglisverðastur og örlagaríkast- ur í starfsemi flugfélaganna. Við athugun á því kemur í ljós, að tala floginna kílómetra lækkaði á árinu um 139 þúsundir, en til þess liggja þau rök, að sumarið 1958 var farið einni ferð færra í viku fram og aftur milli Banda- rikjanna og Evrópu en árið áður, ‘eða sex í stað sjö, en hins vegar j hjá Loftleiðum var engin breyting á fjölda vetr- arferðanna. Aukning flutninganna — þrátt fyrir þessa fækkun ferðanna leiddi vitanlega til þess að töl- urnar um sætanýtingu á árinu eru nú mjög glæsilegar, en meðaltal hennar hefir hækkað um 17,5% og reyndist 70%. Er það miklu betra en víðast hvar annars stað- ar þykir mjög sæmilegt í hlið- stæðum rekstri. Gefur þetta ör- ugga vísbendingu um, að afkoma félagsins hafi orðið mjög góð á hinu liðna ári. — Sukselainen Framhald af bls. 1. lýstum sjónarmiðum sínum, þeg- ar til kastanna kom. Bændaflokkurinn myndar stjórn? Síðustu fregnir frá Helsingi herma, að Bændaflokkurinn munj mynda minnihlutastjórn. Þing- flokkur Bændaflokksins sat á fundi í allt kvöld og kemur saman til fundar aftur í fyrramálið til að ræða stjórnarkreppuna, sem nú hefur staðið rúman mánuð. Enn er ekki ljóst, hvaffa flokka Bændaflokkurinn muni biðja um stuðning á þingi. Um sambandið milli Sovétríkj- anna og Júgóslavíu sagði Miko- jan: „Við gagnrýnum aldrel innanríkismál júgóslavneskra stjórnarvalda, heldur affeins af- stöðu Júgóslava til annarra ríkja. Viff teljum ekki að sam- skipti Rússa og Júgóslava versni. Þegar á allt er litið, fá Júgóslav- ar árlega 100 milljónir dollara frá Bandaríkjunum, og þeir vilja helzt hegffa sér þannig, aff Banda ríkjamenn séu ánægðir með þá og gefi þeim enn meiri dollara. Tilraunir af háifu Rússa til að stjórna kommúnískum hreyfing- um utan Sovétríkjanna mundu skaða málstaff kommúnismans.“ Mikojan sagði, að það væri ætlun Rússa að framleiða sjálfir öll sín vopn. Hins vegar kvað hann þá hafa áhuga á að kaupa ýmsar aðrar framleiðsluvörur. Hvatt til kurteisi Dagblaðið „Daily Mirror“ í New York birti í dag leiðara þar sem skorar er á Bandaríkjamenn að koma kurteislega fram við Mikojan, en jafnframt er lögð áherzla á, að Bandaríkin taki meira mark á athöfnum en orð- um. „Lögmál kurteisinnar gildir líka óvina á milli", segir í leið- aranum. „Og þetta er ekki í fyrsta sinn, sem kommúnískur leiðtogi kemur til Bandaríkjanna til að vinna kapítalista og póli- tíska leiðtoga með elskulegheit-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.