Morgunblaðið - 13.01.1959, Side 13
Þriðjudagur 13. jan. 1959
MORGVISM. 4Ð1Ð
13
Hér sjást akureyrskir krakkar fylkja liði til j»ess „að slá köttinn úr lunnunni", en það er sér-
kennilegur leikur, sem börnin iðka á öskudaginn.
Veðurfar.
Að síðustu vil ég gera stutta
grein fyrir veðurfarinu á Akur-
eyri og í nágrenni. Framan af
árinu var snjóþungur vetur og
færð ill lengi vel. Hinn 30. apríl
er Öxnadalsheiði rudd og þá talin !
fær öllum bifreiðum. í lok marz !
taka vegir um nánasta nágrenni
að opnast og verða smátt og smátt
færir. Vor er kalt framan af og
þurrt og spretta ein. Sláttur byrj-
ar með seinna móti því kuldar eru
fram eftir sumri. Haust er ð»
venju hlýtt og bjargar það miklu
því sumarheyfengur var lélegur.
Þegar á allt er litið, verður sum-
arið að teljast fast að því meðal-
lagi fyrir bændur og búalið. —
Haustið og veturinn fram í des-
ember er gott.
Er litið er yfir árið í heild,
verður ekki annað sagt, en að það
hafi verið fengsælt til lands og
sjávar. —vig.
Frystihusvinna
Okkur vantar nokkrar stúlkur til vinnu í frysti-
iiúsinu.
Upplýsingar hjá verkstjórum, sími 18 og 47
Sandgerði og Ólafi Jónssyni, sími 11673 og 16323.
— Akureyrarbréf
Frh. af bls. 11.
vél ferst með 4 ungum mönn-
um. Þeir voru Bragi Egilsson,
Geir Geirsson, Jóhann Möller og
Ragnar Ragnars, allt stúdentar
frá M.A.
Júlí: Bifreið fer fram af hafn-
arbakkanum á Akureyri með
þeim afleiðingum að 3 börn
drukknuðu af 4, sem í bifreiðinni
voru, auk tveggja fullorðinna
kvenna, er af komust.
sundi karla á 7:46,4 mín.*
Nokkrar andlátsfregnir.
Janúar: Halldór Jónsson and-
ast á Fjórðungssjúkrahúsinu.
Febrúar: Ásgeir Árnason yfir-
vélstjóri andast erlendis.
Brynleifur Tobíasson fyrrum yf
irkennari andast í Reykjavík.
Frú Sigríður Guðmundsdóttir,
kona Jónasar Kristjánssonar sam
lagsstjóra andast á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu.
Vigfús Einarsson bókhaldari
andast á Akureyri.
Sigurður Sumarliðason fyrrum
bóndi í Bitrugerði andast á Ak-
ureyri.
Jón G. Guðmann bóndi á
Skarði andast að Bifröst í Borg-
arfirði.
Inge A. Hansen vélstjóri verð-
ur bráðkvaddur að heimili sínu
hér í bæ.
Október: Gunnar Þórðarson frv.
fiskimatsmaður frá Höfða andast
Júlí: Tveir drengir missa fram-
an af fingrum beggja handa, er
verið var að draga hey í hlöðu
að Grund í Eyjafirði.
Ágúst: Jón Forni Sigurðsson,
bóndi að Fornhólum í Fnjóska-
dal verður undir traktor og bíður
bana.
Október: Ung stúlka, Halldóra
Helgadóttir í Svarfaðardal, verð-
ur undir traktor og bíður bana.
Desember: Ungur togarasjómað
ur, sikpverji á Sléttbak, hverfur
af skipinu í hafi, er það var á
leið til miða.
íþróttir:
Janúar: Nokkrir ungir menn
gangast fyrir skíðakennslu á
Akureyri.
Stórhríðarrwót haldið í Hlíðar-
fjalli.
5 Akureyrskir skautamenn fara
til Noregs. Einn þeirra Björn
Baldursson setti þar 4 ísl. met í
skautahlaupi.
Marz: Skautamót Akureyrar
fer fram. Sigurvegari Björn Bald
ursson.
Apríl: Magnús Guðmundsson
íslandsmeistari í bruni og Alpa-
þríkeppni á landsmóti skíða-
manna við Reykjavík.
Maí: Sett 3 Akureyrarmet í
sundi á sundmpti hér.
Einarsmót Skíðaráðs Akureyr-
ar haldið i Hlíðarfjalli. Sigur-
vegari Matthías Gestsson.
Júní: Sundmeistaramót íslands
haldið á Akureyri dagana 7. og
8. júní.Meðal gesta er forseti ís-
lands og forsetafrú.
Júlí: Heimsmeistarinn í þrí-
stökki, Da Silva, sýnir þrístökk á
Akureyri.
Golfmeistaramót íslands haldið
á Akureyri. Sigurvegari Magnús
Guðmundsson.
Ágúst: íslandsmót í handknatt
leik karla á Akureyri. Sigurveg-
ari Fimleikafélag Hafnarfjarðar.
Meistaramót Akureyrar í golfi.
Sigurvegari Hermann Ingimars-
son í 4. sinn í röð.
Róðrarklúbbur Æskulýðsfélags
Akureyrarkirkju sigrar á íslands
móti í kappróðri á Skerjafirði.
Tveir unglingspiltar synda yfir
Oddeyrarál, þeir Vernharður
Jónsson og Björn Arason, báðir
úr K.A.
September: 5 unglingar synda
yfir Oddeyrarál, 2 drengir, Björn
Þórisson og Júlíus Björgvinsson
úr Þór og 3 stúlkur úr K. A.,
Súsanna Möller, Rósa Pálsdóttir
og Ásta Pálsdóttir, en hún var að
eins 12 ára.
Norðurlandalandsmót í knatt-
spyrnu. Sigurvegarar úr K.A.
Nóvember: Valgarður Egilsson
frá Hléskógum, nemi í M.A. set-
ur íslandsmet í 500 m. bringu-
Framan af árinu var óvenju snjóþungt á Akureyri og í Eyjafirði.
Myndin var tekin á Oddeyri seint í febrúar síðastliðnum.
Marz: Maron Sölavson tré-
smiður verður bráðkvaddur á
götu.
Júní: Haraldur Guðmundsson
fyrrum skipstjóri andast á Fjórð
ungssjúkrahúsinu.
Ágúst: Bjarni Vilmundarson
verkstjóri andast í Reykjavík.
á Fjórðungssjúkrahúsinu.
Að sjálfsögðu er þetta aðeins
lítið brot þeirra mörgu merkis-
manna og kvenna, er létust hér á
Akureyri á árinu, en því miður
eru engin tök á að birta nöfn
þeira allra. Bið ég velvirðingar
á pví.
Hús óskast
til kaups helzt á hitaveitusvæðinu. Stærð ca. 70—
100D.
Mikil útborgun. Upplýsingar í síma 19060 kl. 5 til
10 síðdegis daglega.
Lokað
í dag frá kl. 12—15 vegna jarðarfarar
Þoreyjar Þorleifsdóttur
Blindiravinafélag íslands
Ingólfsstræti 16
Erum fluttir í
Ingólfsstræti 12
Kr. Þorvaldsson & Co.
heildverzlun — Sími 24478.
Skíðafólk — Skíðafólk
Smíða skíðaskó eftir máli. — Ólabindingar fyrir
liggjandi. — Sendi gegn póstkröfu.
Skóvinnustofa
PÁLS JÖRUNDSSONAR
Miklubraut 60
Dodge Weapon til sólu
Dodge Weapon með stálboddý, undirvagn og véi
í góðu lagi, en boddý skemmt að framan, selzt í
því ástandi, sem hann er í. Tilboð óskast. Réttur
áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna
öllum. Bíllinn er til sýnis í Bílasmiðjunni h.f.
Rafsuðuvír
KJELLBERG og P & H
fyrirliggjandi í flestum stærðum
6.ÞBB8IHH88flH 8 J0HH80H ?
Grjótagötu 7 — Sími 2-42-50
Sá, sem getur lánað
kr. 125.000,00
getur fengið lánaðar olíuhreinsunarvélar og hús-
næði félagsins, sem óleigt er, í eitt ár.
Tilboð óskast sent til Olíuhreinsunarstöðvarinnar,
Sætúni 4, Reykjavík, fyrir 20. janúar, og sendist í
ábyrgðarpósti.
OLlUHREINSUNARSTÖÐIN H.F.
SIWA
Þvottavélarnar
nýkomnar.
Þær bæði þþvo og þurvinda
pvottinn á skömmum tíma.
Heildverzlun
K. LORANGE
Klapparstíg 10
Símar 17223 & 17398.
Ein merkasta og stærsta bújörð á Norðurlandi
Þingeyrar í Húnaþingi
er laust til ábúðar í næstu fardögum.
Tilboð um ábúð óskast send undirrituðum fyrir 25.
þessa mánaðar.
PÁLL S. PÁLSSON
HÆSTARÉTTARLÖGMAÐUR
Bankastræti 7, — Reykjavík
Pósth. 1177 — Sími 24200