Morgunblaðið - 13.01.1959, Side 16

Morgunblaðið - 13.01.1959, Side 16
16 MORCUNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 13. jan. 1959 J>ok New York-iborgar. Eins og í epegli il!a stilltrar ijósmyndavél- ar, færðust þeir sem viðstaddir voru í fjarska. Hinir sjö öldruðu kar]menn_ konan í fjólu-bláa kvöldkjólnum, gylltu veggirnir og TOkoko-stóIarnir — allt hvarf þetta sjónum hennar, en í stað iþess birtist maðurinn í hinum tötralega næturklúbb, „Feminu“- maðurinn sem var sonur nazista og sjálfur hafði hlotið riddara- Ikrossinn og hataði Hitler. Hvernig átti hún að útskýra það fyrir þess um gestum í ævintýrahöllinni „Santa Maria“, að svona Þjóðverj ar væru í raun og veru til? Hún brosti og vissi að enginn skildi bros hennar. Að lokum sagði hún alvarlega: „Það er gagnslaust að hamra þvi stanzlaust inn í höfuðin á mönnum hvað vondir þeir séu. Þeir verða ekkert betri við það. Hins- vegar myndi það hafa undursam- leg áhrif að sýna þeim traust og tiltrú — líka í Þýzkalandi". ,,Þér eruð barn“, svaraði Ruth Ryan. Morrison horfði á hana. Helen hafði það á tilfinningunni að hann myndi hugsa eitthvað svipað og hún sjálf: Heimsk kona, sem kallaði keppinaut sinn „barn“. Þessi hugsun gerði hana sjálfa undrandi. Áleit hún þá sjálfa sig keppinaut Ruth Ryans? Hún hafði ekki tíma til a?j gefa sér svar við þeirri spurningu. Það eitt var víst, að henni virtist þessi stóri, sköll- ótti maður ekki ógeðfelldur leng- ur. Svo mikið vald var ekki nein tilviljun. Svo áhrifaríkur var kyn- þokkinn. Athygli hins volduga og áhrifamikla manng kitlaði hégóma girnd hennar. Hún ákvað að hefja árás. „Ungfrú Ryan“, sagði hún — „skjátlist mér ekki því meira_ þá. eruð þér fylgjandi Morgenthau- áætluninni". „Að sjálfsögðu er ég það. Fyrir hverjum hefur ungfrúin okkar eig inlega fallið?“ Helen beindi orðum sínum til karlmannanna. „Morgenthau“, sagði hún — „var f jármálaráðherra Roosevelts. Ef við fyigjum honum að málum, þá styðjum við um leið Demo- krata. Hvernig ættum við_ Repu- blikanar, að sigra í næstu kosning- um, ef við höfum ekki annað að bjóða en stjórnmálaandstæðinga okkar“. Forstj óri útvarpsstöðvarinnar spratt á fætur og klappaði saman höndunum. „Bravo, bravo“, hrópaði hann í hrifningu sinni. — „Þetta var svei mér hyggilega mælt. — Þér ættuð að gerast stjórnmálakona, ungfrú Cuttler“. ,_Rétt“, sagði kaliforniskf stjórn málamaðurinn öllu rólegri. „Allur fjandskapur í garð Þjóðverja er vatn á myllu kommúnistanna. Við verðum að hugsa um næstu kosn- ingar“. Helen var orðin æst í skapi og greip sér vindling í hálfgerðu hugsunarleysi. Þrír af karlmönn- unum flýttu sér óðar að bjóða henni eld. Morrison sat þegjandi í stólnum sínum og fitlaði annars hugar við úrfestina. Hann var lík- astur ánægðum gesti á nautaati. Ruth Ryan var orðin föl yfirlitum. Jafnvel hvassi nefbroddurinn á henni var fölur. Hún leit ögrandi Símastúlka óskast Skrifstofu ríkisspítalanna vantar stúlku nú þegar til símavörslu í 2—3 mánuði. Umsækjendur um þetta starf hafi samband við skrifstofuna á Klapparstíg 29, sími 1-17-65. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA Starfsfólk óskast Eftirtalið fólk óskast til starfa í kjörbúðina Aust- urveri, við Miklubraut og Stakkahlíð: Afgreiðslumaður vanur kjötverzlun. 3 afgreiðslustúlkur. Afgreiðslumaður. (Þarf að hafa bílpróf.) Stúlku við afgreiðslu í söluturni (Vaktavinna.) Ræstingarkona. Ráðningartíini frá næstu mánaðamótum. Upplýsingar í dag e. h. í Melabúðinni, Hagamel 39. — Ekki í síma. á Morrison. Helen vonaði að hús- ráðandinn myndi veita Ruth ein- hverja aðstoð. En Morrison lagði ekki orð í belg. Hann sat í stúku sinni og horfði afskiptalaus á það hvernig hinn grannvaxni nautavígsmaður espaði hið volduga naut, særði það og lagði það síðast að velli. Þögn Morrisons var Ruth Ryan sterkari áskorun en hin fram- hleypnu orð ungu blaðakonunnar og hún ákvað að snúa næstu árás sinni að honum. „Þér þegið, Dick?“ sagði hún og ávarpaði hann nú með fomafn- inu. — „Ætlið þér kannske áður en líkur að styðja þýzkan áróður í blöðum yðar? Rússar eru banda- menn okkar. Með þeim unnum við stríðið. Þér hljótið að sjá það eins vel og við hin, að yður ber að skipa þessum unga _,sérfræðing“ yðar að hætta öllum opinberum nazistaáróðri". „Mér þætti mjög vænt um það, ungfrú Ryan, ef þér vilduð gera svo vel að vera ekki alveg svona persónuleg“, svaraði Morrison kuldalega. _,Ég bað ungfrú Cuttl- er með berum orðum að segja okk- ur sína skoðun“. — Hann hneigði sig lítillega í áttina til Helen. — „Ég er ungfrú Cuttler þakklátur fyrir það að hún hefur veitt okkúr hlutdeild í sinni eigin reynslu". — Svo sneri hann sér aftur að Ruth með niðurbældri gremju: „Annars eru blöð mín ekki í þjónustu neins sérstalcs áróðurs. 1 þeim er, enn sem fyrr, bað eitt birt, sem ég álít rétt og sannleikanum samkvæmt, annað ekki“. „Þetta er hinn mikli Morrison“_ hugsaði Helen með sér. Það var eitthvað hrífandi við þótta hans og sjálfsvitund. Þessar ávítur blaðakóngsins gat þingkonan ekki þolað. Hún stóð snúðugt á fætur. „Það sem þér álítið rétt og sann leikanum samkvæmt, Diok, er ekki alltaf skilyrðislaust sannleikur", sagði hún drembilega. Svo- brosti hún hæðnisbrosi og yppti öxlum: „Sjálf nenni ég ekki að hlusta 1 lengur á þvaðrið í þessum ábyrgð- arlausa unglingi. Ég verð að fljúga aftur til New York klukk- an sjö í fyrramálið og kýs því heldur að nota tímann til að hvíla mig og sofa þangað til. Getur bif- reiðin yðar ekið mér til borgarinn- ar nú þegar?" Svo varð henni það ljóst að hún hafði gengið full langt. Hún neyddi bros fram á varir sér, um leið og hún kvaddi gestina með handabandi. — ,>Ég vona að við getum einhvern tíma haldið þessum samræðum áfram í New York“. Helen stóð kui'teislega á fætur um leið og hún rétti Rubh Ryan höndina. Svo sneri hún sér að Morrison: „Ég held að ég ætti að verða ungfrú Ryan samfer........“ „Nei“, svaraði Morrison hvat- lega. — „Þér verðið hér kyrr“. Allir karlmennimir kepptust við að fullvissa Helen um að þeir skyldu aka henni til San Franz- isko. Enginn af karlmönnunum varð Helen samferða aftur til San Franzisko. Hún varð vitni að því, hvernig þeir hurfu sína leið, einn eftir annan. Þetta voru allt meiri háttar menn. En þeir virtust hlýða Morrison jafnskilyrðislaust og taflmenn ská Ikmanninum. Um miðnætti voru allir farnir nema aðalritstjórinn frá San Franzisko. Þegar Helen kom aft- ur inn í salinn með Morrison, sem hafði verið að sýna henni hinn stóra og veglega vínbar hallar- innar_ hafði aðalritstjórinn einn- ig hypjað sig í burt. Hún var ein með Morrison í „Santa Maria". Hún tæmdi koníaks-glasið sitt. „Ég held að þér verðið nú að fara að sjá mér fyrir bifi-eið, hr. Morrison", sagði hún. „Riddararn- ir mínir eru nú allir flúnir, eins og ég væri líkþrár vesalingur". ,_Þér þurfið ekki að fljúga til New York klukkan sjö í fyrramál- ið. Langar yður ekki til að skoða „Santa Maria?“ „Viljið þér í raun og veru sýna mér allt húsið?“ „Að sjálfsögðu". Helen leit í kringum sig. „Ég er bara hrædd um að eitt kvöld nægði ekki til þess“. ,_Við gætum að minnsta kosti byrjað núna“. Hann tók undir handlegginn á ! henni og leiddi hana út úr herberg | inu. Snertingin var létt og næst- ! um hikandi. í Berlín hafði hún verið hrædd við hinar stóru, þungu ' hendur hans. Nú virtust henni þær . hins vegar hlýlegar og geðþekkar. J Þegar hún kom fyrst til „Santa ’ Maria“ nokkrum klukkustundum ! áður, hafði hún aðeins haft mjög óljósa hugmynd um hina glæstu höll á hæðum Norður-Kaliforníu. Með þeirri skipulagsfræði sem honum var svo í blóð borin, hóf nú Morrison II. leiðsögnina. Fyrst lagði hann leið sína um þann hluta hallarinnar sem mest var notaður. Eldhúsið á neðstu hæðinni var svo stórt að það hefði mjög auðveldlega fullnægt þörf- um hvers fjölsóttasta gistihúss. — Matreiðslumenn og eldabuskur voi'u á þönum^nnan um glansandi áhöld og eldhústæki, svo að Helen fannst því líkast sem hún væri komin á nýtízkulega matreiðslusýn ingu. I mótsetningu við hin stóru og smáu eldhús voru samkvæmissal- irnir, sem útbúnir voru á hinn margbreytilegasta og ólíkasta hátt — allt frá austurrískuin borgarastíl til amerísks nýlendu stíls. Veiðisalir tóku við af knatt borðsstofum og þar næst komu svo vínstúkur, spilaherbergi og bóka söfn. Morrison fylgdi henni í gegnum langan gang og allt í einu birtist henni nýr heimur. Hér tóku vinnu stofurnar við — röð af herbergj um, ekki færri en tíu_ sem til- heyrðu eingöngu blaðakonungsríki Morrisons. Hér voru ekki aðeins heil tylft rafknúinna ritvéla, held- ur og líka útvarps-hlustunartæki, fjarritarar og símritunarvélar í beinu sambandi við alla staði sem nöfnum tjáði að nefna, frá San Franzisko til New York, — tal- símatæki, ritsímaáhöld og loft- skeytastöðvar. Á veggjunum héngu úr og klu'kkur, sem sýndu tíma hinna fjarlægustu staða og fyrir ofan þær litlar töflur með yfirskriftunum: „Tokio“, Lond- on“_ „Chicago", „Rio de Jeneiro", „Berlín“. Allir þessir tímamælar gengu og kliður þeirra rann sam- an og fyllti loftið. Helen staðnæmdist. Það fór kuldahi'ollur um hana og hún huldi brjóstin og beran hálsinn með því að sveipa þunnu silkikáp- unni þéttar að sér. „Þetta er sem sagt heilinn, sem stjórnar öllum smáheilunum", sagði hún bæði í gamni og alvöru. „Og ég sem hélt að höllin í New York. . . .“ „Höllin í New York er armur fyrirtækisins“_ sagði Morrison. Hann horfði á hana. Á andliti hans, sem var breitt og ekki laust við mongólsk einkenni, vottaði fyrir bi-osi. — „Yður langar til að vita hvað muni ske, þegar ég dey?“ bætti hann svo við. ,,J4“, svaraði hún, örlítið hissa á þessarri spuniingu hans. — ,_Það gæti verið nógu fróðlegt að vita“. „Vélin mun ganga af sjálfu sér fyrsta kastið á eftir“, sagði hann „en svo stanzar hún, eins og klukka sem ekki hefur verið dreg- in upp“. „Og stendur yður á sama um það?“ ,_Ég hef ekki í hyggju að deyja fyrst um sinn“, svaraði hann ákveðnum rómi. Þau gengu áfram, upp stiga og niður stiga. Maðurinn hélt enn um handlegg stúlkunnar. í hverju herbergi sem þau skoðuðu, kveikti hann ljósin, en slökkti þau svo ekki aftur og lokaði ekki dyrun- um á eftir sér, svo að fyrir aftan þau var heilt Ijóshaf, en fyrir framan þau ríkti hins vegar allt- af sama rökkrið. Þau höfðu ekki mætt einni einustu lifandi sálu 4 ferð sinni í a. m. k. tuttugu mín- útur. a r L / u 2) „Sjáðu, Jói, þarna kemur | 3) Inni í lögreglustöðinni situr Vaskur aftur. En Andi er hvergi^Frank og les bréfið frá pápa íjáanlegur". gamla. „Stór St. Bernhard hund- ur elti Vask hingað. Ég geymi hann. Verndaðu mig ef hætta er á að upp um mig komist“. aUltvarpið Þriðjudagur 13. janúar: Fastir liðir eins og venjulega. 18.30 Barnatími: Ömmusögur. — 18,50 Framburðarkennsla í esper anto. 19,05 Þingfréttir. — Tónleik ar. 20,30 Daglegt mál (Árni Böðvarsson kand. mag.). 20_35 Erindi með tónleikum: Baldur Andrésson talar um íslenzk tón- skáld; I: Pétur Guðjohnsen. —- 21.30 íþróttir (Sigurður Sigurðs- son). 21,45 Tónleikar. 22,10 Upp- lestur: Jón Aðils leikari les smá- sögu. 22,30 íslenzkar danshljóm- sveitir: K.K.-sextettinn leikur. —• Söngfólk: Elly Vilhjálms og Ragn ar Bjamason. 23,00 Dagskrárlok. Miðvikudagur 14. janúar: Fastir liðir eins og venjulega. 12 50—14,00 Við vinnuna: — Tón- leikar af plötum. 18,30 Útvarps- saga barnanna: „1 landinu, þar sem enginn tími er til“ eftir Yen Wen-ching; IV. (Pétur Sumarliða son kennari). 18,55 Framburðar- kennsla í ensku. 19,05 Þingfréttir. Tónleikar. 20,30 Lestur fornrita: Mágus-saga jarls; X. (Andrés Björnsson). 20,55 Frá tónleikum þýzka píanóleikarans Gerds Kám- per í Austurbæjarbíói 30. f.m. — 21,25 Viðtal vikunnar (Sigurður Benediktsson). 21,45 Islenzkt mál (Jón Aðalsteinn Jónsson kand. mag.). 2210 „Milljón mílur heim“, geimferðasaga; I. þáttur. 22,40 Á léttum sti-engjum: Wayne King og hljómsveit hans leika (plötur). 23,10 Dagskrárlok. Hann vann / tíafifu&iaetti. HÁSKÓLANS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.