Morgunblaðið - 13.01.1959, Qupperneq 18
18
m o r c r jv n iva f> i»
Þriðjudagur 13. jan. 1959
— /?// gero sögu
Framh. af bls. 8
aldahvörfin jafni stórlega sam-
keppnisaðstöðu Ríkisrita við
sum erlend háskólasöfn, ef ís-
lenzka safnið kæmist á nógu
hraðan skrið upp úr 1960. Hví
setti fslendingum að vera ofvax-
ið að eiga, að breyttu breytanda,
jafnverðmætt vísindabókasafn og
l>au t. d. verða við háskólana í
Abo og Björgvin?
Nú mun sagt, að ummæli min
séu áróður um að auka ríkisút-
gjöld og góðæri nútíðar þoli fátt
verr. Bót er þá í máli, að síðan
1943, er ríkið tók að sér eins
bókavarðar laun við Háskólabóka
safn, hefur enginn viðbótar-
gjaldaliður þess safns lagzt á
ríkissjóð né mun leggjast á fjár-
lög 1959. Ekkert er þar til að
klippa burt. Þetta er reiknings-
leg röksemd um það, að Alþingi
hefur ekki hugsað sér að geta
sparað einn eyri á þeirri samein-
ingu, sem það ákvað 29. maí 1957,
heldur hugsaði hana, eins og und-
irritaður, eingöngu í því skyni að
mynda stærra og árangursríkara
safn. Og þá þegar skildu allir, að
horfa mundi hún til einhvers auk
ins kostnaðar.
★
Óraunsæi það, að ég hef látið
égert í þessari hugleiðing að lýsa
L.bs. og Hbs. eins og þau eru í
daglegri starfsemi sinni 1959,
verður hver að lá mér eins og
hann vill. Hægt væri að gera það
í annarri grein. Betra yfirlit fæst
með sérstakri tegund óraunsæis.
Fremsti maður forngrískrar
heimspeki kenndi, að hugsjón
hvers hlutar, fullger og lastalaus,
byggi í æðra heimi og einungis
af því, að þar væri hún orðin
veruleikur, kynni mönnum að
takast að endurskapa hana á
jörðu án allt of mikilla galla.
Baslhagvirki þeirra manna, sem
of lítið þekktu tilheyrandi hug-
sjón, gat ekki orðið nýtilegt til
neins, en mannaverk, sem lík-
ömnuðu hugsjónina, virtust þess
eðlis að standast tortíming öxar
og báls; þau endurrisu með kyn-
slóðum eftir kynslóð, í þeim arfi
lifði menningin og tímgaðist.
Starfhæf háskólabókasöfn og
einkum þau þeirra, sem hafa
þjóðbókasafnshlutverk, eru ein
þeirra virku menningarstofnana,
sem fastasta tegundarmótun hafa
fengið og geta *». a. þess vegna
trautt lifað ósjúku lífi undir
vissri lágmarksstærð. Mörg af
menntasetrum Evrópu lágu í
rústum 1945, eljuverk kynslóð-
anna í söfnum þeirra höfðu farizt
í logum. En endurreisn kom, og
tvennt var, sem lifað hafði hrun-
ið: annað þörfin á jöfnum eða
betri bókakosti en fyrr handa sí-
stækkandi háskólum og hitt var
tegundarmótuð hugsjón safns,
sem krafðist að verða veruleiki
á ný.
Á einum 10—28 árum lyfta
stríðsþreyttar þjóðir grettistak-
inu að fullkomna þessa safnteg-
und sína miklu betur en áður
þekktist. Kjarnfræðiöldin heimt-
ar, segja þær, eins og enginn
hlutur sé sjálfsagðari.
Einnig hér þarf rit til sögu og
sóknar. Einnig hér teygjast há-
skólafr'æði á svið, sem lítt voru
stunduð af íslendingum, en
kunna að skipta þá miklu héðan
af. Einnig hér ætti styrjöldin,
sem er þó óblóðug, miklu sjaldn-
ar að tefja en flýta átökum við
að skapa vísindabókasafn. Dæmi
annarra sannfæra okkur um, að
jafnvel þótt tortíming gengi yfir
mikinn hluta núverandi bóka-
stofns, stæðist hugsjón hans eyð-
ingu elds; svo fremi að þjóðin
lifði, mundi hún endurskapa það
ríkulega.
En helzt vill hún eiga það ó-
eytt og hrinda fram verki, sem
auðsóttara er, að auka við gaml-
an, heilbrigðan stofn.
Björn Sigfússon.
Breyting á skipan skóla-
missera í Iðnskólanum
Þriðja námstimabilið oð hefjast með
340 nemendum
EFTIR áramótin hófst í Iðnskól-
anum í Reykjavík þriðja náms-
tímabilið á þessu skólaári, og um
leið var námstilhögun að nokkru
breytt. Hefur skólaárinu fram að
þessu verið skipt niður í þrjú 8
vikna námstímabil, auk mánaðar
undirbúningsdeildar að haustinu,
en nú lengist skólavist hvers nem
endaflokks í 9 vikur. Er þetta
gert til að létta á nemendum, sem
áður þurftu oft að vera upp undir
10 stundir á dag í skólanum.
Ýmsar nýjungar hafa verið upp-
teknar í Iðnskólanum að undan-
förnu, að því er skólastjórinn, Þór
Sandholt tjáði fréttamanni, er
leitað var upplýsinga hjá honum
um þetta efni.
í fyrsta skipti er nú einn fimmti
bekkur í skólanum, vegna nem-
enda í flugvirkjun, sem er 5 ára
nám. Nemendur í þeirri deild
nema allir iðn sína hjá Flugfélagi
Islands og munu útskrifast með
full réttindi í marzmánuði. Nú
starfar einnig í skólanum verk-
námskeið fyrir málaranema í
stærri stíl en hingað til. Og rekið
er í fyrsta sínn námskeið í ljós-
tækni, í samráði við framkvæmda
stjóra Ljóstæknifélagsins. Þá er
verið að koma af stað námskeið-
um fyrir rafmagnsvirkja, pípu-
lagningarmenn og fleiri í með-
ferð olíukyndingartækja og byrj-
ar það væntanlega í næsta mán-
uði. Á það að bæta úr brýnni
þörf fyrir að kynna þessi tæki
og uppsetningu þeirra, og verður
haldið í samráði við meistara-
félög þessara iðna og innflytjend-
ur olíutækja. „Við teljum að
skylda okkar sé að greiða fyrir
menntun og þekkingu á sviði iðn-
og iðntækni“, sagði skólastjórinn,
er þetta bar á góma.
Um 1200 nemendur á þessu ári
I skólanum eru nú um 340 nem-
endur i 17 deildum. Er þetta
venjulega fjölmennasta námstíma
bilið, m. a. vegna þess að sumar
iðnir eru mjög háðar veðri. Á
síðasta námstímabili voru 268
nemendur í 13 deildum og luku
þeir prófi í desember. Og í haust
stunduðu alls rúmlega þrjú hundr
uð nemendur mánaðarnám í skól-
anum til undirbúnings undir inn-
tökupróf og önnur próf. Ef reikn-
að er með að á síðasta skólamiss-
eri nú verði um 300 nemendur,
þá verða nemendur alls 920 á ár-
inu í hinum reglulega skóla og
allt að 1200, ef allar deildir eru
meðtaldar. Eru það fleiri nem-
endur en verið hafa í skólanum
á einu ári áður. Kennarar í skól-
anum eru 30—40, ýmist fastir
keiyiarar eða kennarar fengnir úr
atvinnulífinu.
Enginn í bakaraiðn, skósmíði,
úrsmíði o. fl.
Nemendur í Iðnskólanum nú
eru úr 28 iðngreinum og eru iðn-.
irnar ákaflega misfjölmennar.
Húsasmiðir eru fjölmennastir
bæði í ár og í fyrra, Þá voru
málmiðnaðarmenn í meirihluta.
Rafvirkjar eru næstfjölmennastir
í skólanum, 90 talsins í fyrra. í
suraum iðngreinum eru fáir eða
engir, ýmist af því að með fram-
förum og tækni er iðnin úr sög-
unni, eins og t. d. vagnasmíði,
eða af öðrum og lítt skiljanlegum
ástæðum. T. d. er aðeins um 1 í
gullsmíði í ár, enginn í hljóðfæra-
smíði og enginn í bakaraiðn, en
hvorri þeirri iðngrein var einn í
fyrra. úrsmíði, mjólkuriðnaði,
netagerð og skósmíði er enginn,
og ekki var heldur iemn í skó-
smíði í fyrra.
Talsverðar framkvæmdir
innanhúss
Af framkvæmdum er það að
segja að alltaf er unnið að því
að ljúka skólahúsinu. Hefur nú
allt kennsluhúsnæði verið tekið
í notkun, en herbergi fyrir sér-
greinar eru ekki öll enn tilbúin,
nemendasalur, þar sem m. a.
er gert ráð fyrir greiðasölu
í smáum stíl, er ófenginn og enn
vantar mikið af húsgögnum og
tækj um.
Gert hefur verið ráð fyrir les-
stofu og sýnishornasafni, til af-
nota fyrir nemendur og aðra. Er
reiknað með að því verði komið
upp í vetur og er nú verið að
leita til framleiðenda og innflytj-
enda ýmiss konar tækja og hluta,
sem sýna á. Er yfirleitt unnið að
því að bæta kennslukerfið, endur
bæta kennsluaðferðir og koma
skólanum betur fyrir í nýja skóla
húsinu. Til þess-þarf enn töluvert
átak, þó húsið sjálft sé fengið.
Eins og kunnugt er, var aáms-
tilhögun í Iðnskólanum breytt
talsvert með nýju iðnlöggjöfinni
árið 1955. Áður voru þriðji og
fjórði bekkur kvöldskólar, sem
störfuðu allan veturinn, en í
fyrstu bekkjunum var kennt á
styttri dagnámskeiðum eins og
nú.
Hin nýja tilhögun hefur að
mörgu leyti gefist vel, að því er
Þór Sandholt sagði, og meistar-
arnir eru ánægðir með hana. Þó
hefur sá ókostur fylgt, að allt
skólalíf og félagslíf hefur að
mestu fallið niður. Nemendur
tengjast ekki skólanum sínum,
þegar þeir eru þar aðeins 8 vikur
á ári í þrjú ár. Reynt var í fyrra
að bæta úr þessu með stofnun
karlakórs, en nemendur entust
ekki til að sækja söngæfingar
eftir að þeir voru farnir úr skól-
anum.
Brattabrekka
illfær bifreiðum
SVOKÖLLUÐ Brattabrekka á
veginum í Dalina mun nú illfær
bifreiðum vegna svellbunka, sem
myndast hafa á henni. Þar sem
vegurinn er brattur þarna og
djúpt gil fyrir neðan hefur vega-
málaskrifstofan varað menn við
að aka þarna, nema þegar ein-
hverjar ráðstafanir hafa verið
gerðar til að bægja frá hættunni.
Verður reynt að halda veginum
auðum á þriðjudögum, en þá daga
er áætlunarferð. Ættu aðrir, sem
erindi eiga um veginn, að reyna
að njóta góðs af.
+ KVIKMYNDIR *
Tripólíbíó:
R I F I F I
KVIKMYND þessi fjallar um
fjóra innbrotsþjófa, meistaralegt
innbrot í skartgripaverzlun og
afleiðingar þess. í mynd sem þess
ari er ekki vert að rekja efnið
náið, og læt ég því staðar numið
við svo búið. Um gildi myndar-
innar má deila: flestir munu —
að ég hygg — kalla hana skað-
lega, sumir jafnvel hættulega
veikgeðja unglingum, aðrir munu
líta svo á, að laun ódyggðanna
séu nægilega undirstrikuð til að
setja hroll að áhorfendum, af
hvaða tegund sem þeir kunna að
vera. Myndin er í stuttu máli
óvenjulegt listaverk á sínu sviði,
og ekki aðeins það: heldur ó-
venju hryllileg. Ástæðan er sú,
að hún er sönn og látlaus, en að
sama skapi hlífðarlaus í lýsingu
sinni. Spennan er slík, að ráða
verður taugaveikluðu fólki að
sitja heima. Endalok hennar ætti
að kenna villugjörnu fólki að
halda sér á vegi sjálfsagðra dygða
og heiðarleika. Hún er mjög vel
leikin, en ekki er ástæða að geta
eins öðru fremur sakir frábærs
leiks. Hlutur leikstjórans, Jules
Dassin, er þó sýnu mestur.
— Ego.
Manchester Ufd. slegið
út af Norwich 3-0
ÞRIÐJA UMFERÐ bikarkeppn-
innar var leikin í frosti og snjó
sl. laugardag. Liðið sem hefur
undanfarin tvö ár komist í úrsiit
í þessari keppni, Manchester
United, var slegið út úr keppn-
inni af 3. deildar liðinu Norv/ich
City með þremur mörkum gegn
engu. Miðherjinn Terry Bly, tvö
og Crossan skoruðu mörkin. Eina
áhugamannaliðið, sem enn er í
keppninni Tooting & Mitcham
hafði tvö mörk yfir Nottingham
Forest í hálfleik, en sjálfsmark
og vítaspyrna gerði út um leik-
inn og Forest fær að reyna aftur
á morgun og þá á heimavelli.
Peterbrough Utd. gerðu jafntefli
við 2. deildar liðið Fulham í
London 0:0 og leiða þessi tvö lið
saman hesta sína í Peterbrough
á fimmtudag. Fulham komst í
undanúrslit í fyrra. Bolton, sem
eru handhafar bikarins, áttu erf-
itt með Scunthorpe framan af, en
tvö „tækifærismörk" skoruð af
Nat Lofthouse í seinni hálfleik
gerðu út um leikinn. Arsenal var
heppið að vinna Bury ,því eftir
fyrstu 30 mín. hefði staðan eins
getað verið 3:0 fyrir Bury, svo
mörg tækifæri misnotuðu þeir.
Eftir að Herd skoraði fyrir Arsen-
al á 68. mín. dofnaði mjög yfir
Bury og Arsenal hefði getað unn-
ið stærra. Framkvæmdastjórinn
hjá Arsenal Geirge Swindin, lét
svo ummælt eftir leikinn að ef
Bury hefði skorað fyrsta markið
hefðu þeir unnið. Tottenham, sem
hefur tapað tvisvar fyrir West
Ham á þessu leiktímabili verð-
skulduðu sigurinn á laugardag.
Jones og Smith skoruðu fyrir
Tottenham snemma í seinni hálf-
leik. Luton „burstaði“ Leeds Utd.
5:1. Útherjarnir Billy Bingham
og Tony Gregory skoruðu tvisvar
hvor og Bob Morton eitt. Shackle-
ton skoraði fyrir Leeds. Þetta
er sjöunda árið í röð sem Leeds
er slegið út úr bikarkeppninni í
3. umferð. Everton vann Sund-
erland 4:0. Mörkin skoruðu: Dave
Hickson tvö, J. Harris og Thomas
eitt hvor. Sunderland var fyrir
því óhappi að leika án h.frmv.
Stan Andersons í seinni hálfleik.
Stanley Matthews kom enn við
sögu á laugardag, er hann tók
hornspyrnu, á 88. mín. mjög
snilldarlega og Ray Charnley
skallaði sigurmarkið fyrir Black-
pool. Dennis Wilshaw skoraði 3
fyrir Stoke, sem unnu 4. deildar-
liðið Oldham með 5:1. V.úth. Sam
Lawrie skoraði á fyrstu mín.
fyrir Charlton gegn Bristol Rov-
ers, sem komust aldrei í „gang“
og töpuðu 4:0 á heimavelli. Hin
þrjú mörkin skoruðu Lawrie aft-
ur, White og Summers.
Úrslit 3. umferðar:
Accrington — Darlington 3:0
Aston Villa - Rotherham Utd. 2:1
Barrow — Wolverhampton 2:4
Blackburn — Leyton Orient 4:2
Brentford — Barnsley 2:0
Brighton — Bradford City 0:2
Bristol Rovers — Charlton 0:4
Bury — Arsenal 0:1
Colchester Utd. - Chesterfield 2:0
Derby County — Preston N. E. 2:2
Everton — Sunderland 4:0
Fulham — Peterbrough 0:0
Grimsby Town — Manch. City 2:2
Ipswich Town — Huddersfield 1:0
Leicester City — Lincoln City 1:1
Luton Town — Leeds Utd. 5:1
Middlesbrough - Birmingham 1:1
(Leiknum var frestað eftir 60
mínútur).
Newport — Torquay Utd. 0:0
Norwich — Manchester Utd. 3:0
Plymouth — Cardiff City 0:3
Portsmouth — Swansea Town 3:1
Scunthorpe Utd. — Bolton W. 0:2
Sheff. Utd. — Crystal Palace 2:0
Southampton — Blackpool 1:2
Stoke City — Oldham Athl. 5:1
Tooting & M. — Nottm. Forest 2:2
Tottenham — West Ham Utd. 2:0
Eftirfarandi leikjum var frest-
að:
Doncaster/Bristol City, New-
castle/Chelsea, Sheff. Wedn./
West Bromwich, Stockport/
Burnley, Worcester/Liverpool.
í gær var dregið fyrir 4. um-
ferð bikarkeppninnar, sem fer
fram laugardaginn 24. jan., en þá
leika þessi lið saman, heimalið
á undan:
Newcastle eða Chelsea — Aston
Villa
Blackburn — Stoekport eða
Burnley
Wolverhampton — Bolton!!!
Tottenham — Newport eða
Torquay
Doncaster eða Bristol C. — Black-
pool
Worcester eða Liverpool — Shef-
field Utd.
Stoke City — Ipswich Town
Accrington — Portsmouth
Middlesbro eða Birmingham —•
Fulham eða Peterbrough
Totting eða Nottm. Forest —
Grimsby eða Manchester City
Charlton — Everton
Derby eða Preston — Bradford
City
Leicester eða Lincoln — Luton
Town
Norwich City — Cardiff City
Sheffield W. eða West Brom. —.
Brentford
Colchester — Arsenal.
Nýtt heimsmet
í þrístökki
CARACAS (Venesúela), 11. jan.
— Pedro Camaeho frá Puerto
Rico setti í dag nýtt heimsmet
í þrístökki á Mið-Ameríkuleik-
unum. Stökk hann 16,67 m, en
núgildandi heimsmet, sem Rúss-
inn Oleg Kyrkhovski á, er 16.59
m. — Reuter.
Nýtt heimsmet í há-
stökki imianhúss
BOSTON, 12. jan. — John Thom-
as, nítján ára gamall stúdent við
Bostonháskólann setti í dag nýtt
heimsmet í hástökki innanhúss.
Stökk hann 2,107 m, en fyrra
heimsmetið, sem landi hans Ed
Meibner frá Chicago átti, var
1,088 m. — Reuter.
Körfuknattleikur
S.L. sunnudagskvöld gekkst ÍR
fyrir hraðkeppni í körfuknatt-
leik. Keppt var í þrem flokkum,
meistaraflokki karla og kvenna
og 2. flokki karla. Áhorfend-
ur voru fleiri en oft hefur tíðkast
á körfuknattleiksmótum hér og
keppnin skemmtilegri og gekk
betur en slík mót áður.
Úrslit urðu þau að ÍR sigraði
bæði í Meistaraflokki karla og
kvenna, en Ármann í 2. flokki.
Leiktími í mfl. karla var 10x2’
mín. og 2x7 mín. mfl. kvenna og
2. fl. karla.
Úrslit leikjanna:
Meistaraflokkur karla: — ÍR—■
ÍKF 21:10, KFR—ÍS 19:12, ÍR—
KRF 14:12.
Meistarflokkur kvenna: — ÍR
—KR 9:5, ÍR—Ármann (8:) 12:8.
2. flokur karla: — ÍR—KRF
11:4, Ármann— ÍR 22:8.