Morgunblaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 13.01.1959, Blaðsíða 19
 ÞriSjudagur 13. jan. 1959 MORCUNRLAÐIÐ 19 Fjölsótt samkoma Náttúrufræði- félagsins í gærkvöldi í GÆRKVÖLDI hélt hið ísl. náttúrufræðifélag samkomu í há- skólanum. Eyþór Einarsson mag- ister flutti frásöguþátt frá ferð sinni um Norð-austur Græn- land. Var samkomusalurinn, fyrsta kennslustofan, þétt skipuð áheyrendum og mun þetta með fjölmennari samkomum félagsins í Háskólanum. Áheyrendur gerðu prýðisgóðan róm að máli hins unga fyrirlesara. Var frásögn hans öll lifandi og látlaus, en máli sínu til skýringar sýndi hann á tjaldi fjölda litmynda, er sýndu stórbrotna náttúru aust- urstrandar Grænlands og heim- skautagróðurinn inn af hinum djúpu fjörðum og út við strönd- ina. Eyþór var í rannsóknarleið- angri dr. Lauge Kochs á þess- um slóðum á síðastliðnu sumri. Var honum klappað óspart lof í lófa, að loknum fyrirlestrinum. Tómas Ániason tek ur sæti á Alþingi I GÆR var settur fundur í sam- einuð'U Alþingi kl. 1,30. Á dag- skrá var rannsókn kjörbréfs Tómasar Árnasonar deildarstjóra. Tekur hann sæti Halldórs Ás- grimssonar á Alþingi, en Halldór verður fjarverandi um skeið vegna sérstakra anna heima fyr- ir. Var kjörbréf Tómasar sam- þykkt og bauð forseti sameinaðs þings hann velltominn til starfs. Að loknum fundi í sameinuðu þingi var settur fundur í neðri deild. Þrjú mál voru á dagskrá. Frumvarp um atvinnuleysis- tryggingar var til 3. umr. og sam þykkt samhljóða og þar með af- greitt sem lög frá Alþingi. Framhald annarrar umræðu var um frumvarp um breytingu á lögum um Búnaðarmálasjóð. Tók Ingólfur Jónsson fyrstur til máls, en hafði vart lokið þriðjungi ræðu sinnar, er þingfundi var frestað. Þriðja dagskrármálið var þá og tekið af dagskrá. Verið að upplýsa tugi innbrota I GÆR tókst rannsóknarlögregl- unni að komast á slóð þeirra, sem talið er að framið hafi hin tíðu innbrot og þjófnaði í mannlausar íbúðir í Suðvesturbænum að und anförnu. Frá því var skýrt í blöð- unum fyrir nokkrum dögum, að þessi innbrot myndu skipta tug- um. f gærkvöldi höfðu verið hand teknir fjórir drengir og munu þeir hafa verið jafnaldrar eða þar um bil. Meðal þeirra er tólf ára drengur, sem grunur leikur á að sé a.m.k. einn af forsprökk- um „þjófafélagsins“. Leyninielur 13 sýndur í Stykkishólmi STYKKISHÓLMI, 12. jan. — Leikfélag Ólafsvíkur kom til Stykkishólms í gær og sýndi þar sjónleikinn Leynimelur 13 tvisv- ar sinnum við húsfylli og ágæt- • is viðtökur. Leikstjóri var Sig- urður Sheving, sem jafnframt lék eitt aðalhlutverkið. Meðferð leik enda og leikstjórn var með ágæt- um, mjög jöfn og yfirleitt hraði leiksins góður. Ungmennafélagið hélt leikendum og starfsmönnum samsæti eftir leikinn í samkomu- húsinu. — Bruni á Fáskrúðsfirði REYÐARFIRÐI, 12. jan. — Milli klukkan tvö og þrjú síðastliðinn laugardag kviknaði í íbúðarhús- inu Gullbringu á Fáskrúðsfirði. Húsið, sem er gamalt timburhús, ein hæð og ris, er eign Jóns B. Jónssonar. Enginn var í húsinu þegar eldsins var vart. Þegar slökkviliðið kom á vettvang, var mikill eldur kominn í húsið og tók það slökkviliði og aðra sem komu til aðstoðar, um það bil hálfan annan tíma að ráða niður- lögum eldsins. Húsið stórskemmdist bæði af eldi og vatni, og er talið óvíst að hægt verði að gera við það. Talið er að kviknað hafi út frá reyk- röri. Hús og innanstokksmunir voru vátryggð. — A.Þ. BEZT AÐ AUGLÝSA t MORGUNBLABINU Ingi R. vann 9 skákir af 11 KEFLAVÍK, 12. jan. — Ingi R. Jóhannsson tefldi í gær klukku- fjöltefli við 11 menn úr meistara- flokki skákfélagsins í Keflavík. Ingi vann 9 skákir, tapaði einni og gerði eitt jafntefli. Óli Karls- son .skákmeistari Suðurnesja var sá sem vann hann. — H.S. HafnarfjörÖur Hefi jafnan til 8Ö’ ýmsar gerðir einbýlishúsa og íbúðarhæða. — Skipti oft möguleg. Guðjón Steingrímsson, hdl. Reykjavíkurv. 3, Hafnarfirði. Sími 50960 og 50783 ALLT f RAFKERFIÐ Bilaraftækjaverzlun Halldórs Ólafssonar Rauðarárstig 20. — Simi 14775. Lokað frá hádegi í dag vegna jarðarfarar H. A. TULINIUS Unglinga vantar til blaðkurðar í eftirtalin hverfi Nesvegur Bráðræðisholt Álfheimar Aðalstræti 6 — Sími 22480. Lokað í dag, allan daginn vegna jarðarfarar. SILKIBÚÐIN Lokað ■ dag Skrifstofur Tónskáldafélags íslands og Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, eru lokaðar í dag vegna jarðarfarar. einangrunarkork 1 — 1 Vz — 2 — 3 og 4 tommu þykktir fyrirliggjandi Símið — Við sendum Borgartúni 7 — Sími 22235 Innilegar þakkir til allra fjær og nær, sem heiðruðu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 60 ára afmæli mínu 29. desember s.l. JÓHANNA HALLDÓRSDÓTTIR Hrísateig 21 Innilegar þakkir færi ég öllum skyldum og vanda- lausum, sem glöddu mig á 70 ára afmæli mínu 6. þ. m. GUÐRÚN EINARSDÓTTIR Ölduslóð 8 Hafnarfirði Lokað í dag frá kl. 12—4. Verzlunin PfaSf h.f. SIGURÐUR ÓLAFSSON frá Ásólfsstöðum, lézt að Elliheimilinu Grund laugard. 10. jan. Jarðarförin ákveðin síðar. Fyrir hönd aðstandenda. Ásólfur Pálsson. Konan mín GUÐLAUG JÓNASDÓTTIR andaðist 12. þessa mánaðar í sjúkrahúsinu Sólvangi. Þorlákur Guðmundsson. Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar TORFI KR. GlSLASON verkstjóri Merkurgötu 2, Hafnarfirði, lézt að heimili sínu 12. þ.m. Ingileif Sigurðardóttir Kristinn Torfason, Gísli Torfason Sigurbjörn Torfason Konan mín INGIRJÖRG SVEINSDÓTTIR Bræðrarborgarstíg 12 andaðist 10. þ.m. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir mína hönd og aðstandenda. Björn Jónsson Jarðarför litlu dóttur okkar, sem andaðist 8. þ.m. fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 14. þ.m. og hefst með bæn á heimili okkar Kirkjuveg 6, Hafnar- firði kl. 1,30 e.h. Una Nikulásdóttir, Ósbar Kr. Sigurðsson. Útför ÞÓRARINS STEFÁNSSONAR, er andaðist 7. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju á morg- un, miðvikudaginn 14. þ. m. kl. 10.30 árdegis. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Dætur og aðrir vandamenn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vlð andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar, tengda- föður og cifa JÓNS BACH. Sérstakar þakkir flytjum við stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur fyrir auðsýndan heiður og samúð, ennfrem- ur hjúkrunarfólki Elliheimilisins Grundar fyrir hjúkrun og umönnun alla. Jónína Jónsdóttir, Olga Jónsdóttir, Jón M. Jónsson, Héðinn Jónsson, Lilja Kristinsdóttir og barnabörn. Alúðarþakkir til hinna mörgu, sem hafa sýnt okkur samúð og vináttu við andlát og útför STEFÁNS og PÉTURS HÓLM Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg og Pétur Hólm Hrafnborg Guðmundsdóttir Sólveig Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.