Morgunblaðið - 16.01.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.01.1959, Blaðsíða 18
18 fr morgvishi. Anin Föstudagur 1G. jan. 1959 ; i Stúlka óskast til starfa við heildverzlun. Aðalvinna símavarzla og að vélrita nótur. Nafn og heimilisfang sendist í Box 1031 77/ sölu Til sölu er hæð og ris í steinhúsi við Sörlaskjól. Nánari upplýsingar gefur. Málflutningsskrifstofa VAGNS E. JÓNSSONAR Austurstræti 9 — Sími 14400 r'* Útidyraskrár Útidyralamir Innidyraskrár Innihurðalamir Bréfalokur Smekklásar c | Siml 15300 | Ægisgötu 4 N Ý K O M I Ð ÞAKSAUMVR GALV. SAUMUR 1”, iy2”, 2”, 2y2”, 3“, 4“, 5“ og 6“. íþróttafréttamenn mœta ísSandsmeisturunum Á SUNNUDAGSKVÖLDH) verð- ur efnt til nýstárlegrar handknatt leikskeppni að Hálogalandi. Fara þá fram tveir leikir, en keppnin er haldin á vegum Samtaka íþróttafréttamanna. Leikirnir sem fram fara eru annars vegar milli úrvalsliðs Hafnfirðinga, sem margoft hafa orðið íslandsmeist- arar og úrvalsliðs Reykjavíkur að Ieikmönnum KR undanskildum. Leikmenn KR, þ.e. fslandsmeist- ararnir og Reykjavíkurmeistarn- ir eru undanskildir í Reykjavík- urúrvalinu vegna þess, að þeim ætla íþróttafréttamennirnir sjálf ir að mæta. Það er víst að leikur Reykja- víkur og Hafnarfjarðar verður einn af stórleikjum ársins. Hug- myndin er nýstárleg að skilja KR frá Reykjavíkurliðinu. Að vísu hafa Hafnfirðingar oftast staðið Reykjavík á sporði, þó höfuðborg in tefli fram öllum sínum há- trompum en það að íslands og Reykjavíkurmeistararnir eru und anskildir, gefur öðrum og nýjum mönnum tækifæri — mönnum sem sjaldan fá tækifæri til að leika í slíkum „bæjakeppnum“. Og víst er það að leikur Hafn- arfjarðar og Reykjavíkur verður í fullri alvöru leikinn. „Landsliðsnefnd“ á erfitt Ætla má að léttari svipur verði yfir hinum, þó að alvaran sjóði og bulli undir niðri. Víst væri það kærkomið blaðasnápunum að sigra íslandsmeistara. En það hef ur komið í ljós á æfingum frétta- mannanna að þolið er ekki upp á það bezta, þó það hafi aukizt mjög síðustu vikurnar. Æfingarn ar hafa verið vel sóttar, og „lands liðsnefnd“ Samtaka íþrótta- fréttamanna hefur átt erfiðan dag. Hún er enn í standandi vand ræðum með hvernig eigi að skipa liðið og fundir hennar hafa verið háværir. Framkvæmdanefnd samtak- anna er einnig klofin. Minnihlut- inn Sigurður Sigurðsson og Ein- ar Björnsson hjá stjórnarblaðinu, sem eru óragir við að bjóða íþróttaforystunni byrginn, vilja að blaðamennirnir mæti ís- landsmeisturunum á jafnréttis- grundvelli. Slíkt finnst meiri- hlutanum með Frímann Helga- son í broddi fylkingar, ekki koma til mála. Þeir heimta KR- inga „í haft“ eða poka — þó ekki Guðjón Ólafsson í markinu, því skyttur eru nægar í blaðamanna- liðinu — og sumar þykja harð- skeyttar mjög, og einkar lagnar við að finna veiku punktana hvar sem er. Til ÍSÍ Hvað ofan á verður um „höft- in“ eða pokana var með öllu óvíst er blaðið var fullbúið til prentun- ar í nótt, en þá stóðu «æfingar og fundir í báðum nefndum sem hæst. Var ákveðið að ef ekki fengjust úrslit fyrir sólarupprás yrði málinu skotið til ÍSÍ, „til skjótrar „athugunar“ og úrlausn- ar“. Ætti því endanlegur úrskurð ur að liggja fyrir um hádegið í dag. En sem sagt. Þarna verða tveir óvenjulegir leikir og þar sem all- ir beztu handknattleiksmenn landsins og færustu menn á sviði fræðilegrar leiktækni takast þarna á, er ekki að efast um að almenningur fær algerlega nýja innsýn í handknattleiksíþróttina. Norrænt mót íþróttafréttamanna Samtök íþróttafréttamanna voru stofnuð í anda samsvarandi klúbba á Norðurlöndum. Hefur komizt á allnáið samband milli slíkra klúbba á Norðurlöndum. Leikirnir á sunnudaginn eru ætl- aðir til fjáröflunar fyrir mót norr ænna íþróttafréttamanna á fs- landi, þar sem aðaláherzla verð- ur lögð á kynningu ísl. íþrótta. Eru íþróttafréttamenn þakklátir handknattleiksmönnum, stjórn ÍBRogstjórn HKRR fyrir að hafa fyrstir orðið við beiðni þeirra um stuðning við þetta mál. Gólfflísar <JR L E I R gular og rauðar fyrirliggjandi A. JÓHANNS & SMITH h.f. Brautarholti 4 — Sími 24244 flugvélum eða radiotækni, sntíðar þú flugmódel eða báta. Ertu hínn góði heimilinu með smálagfæringum og srníði, .... en jþað er sama hvaða áhugamál þú hefur, í FLUGMÁL. ÖG TÆKNI er allt um áhugamál allra. EF PU Átrsoti EJL- VliíA'RA FVfcÍILÞÍOr (\T> KAUPA ’T'VÖ EÍNfÖIO EF 4»Ú YÍLT' LE3A ÞAÐ ðJÁLFURV.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.