Morgunblaðið - 24.01.1959, Side 18
18
MORGVISBL AÐ1Ð
Laugardagur 24. jan. 1959
Valmundur Björnsson
brúarsmi&ur, Vík í Mýrdal sextugur
FERÐAFÓLK, sem ekur eftir
þjóðveginum austur yfir Mýrdals
sand austur að Rauðabergi eða
Núpsstað, í mjúkum bifreiðum á
scibjörtum sumardegi, gerir sér
naumast fyllilega grein fyrir
þeim erfiðleikum, er Skaftfelling-
ar áttu við að stríða í aldaraðir,
hvað samgóngur snerti.
Sundurskorið af fjölda jökul-
fljóta er þetta fagra hérað, ‘Skafta
fellssýslu, og var ekki á færi
nema kunnáttumanna að þekkja
duttlunga þeirra, og brjótast yfir
þau með fólk og farangur á öll-
um árstíðum. Skaftfellingar voru
líka víðfrægir vatnamenn, og
hestarnir þeirra orðlagðir fyrir
þrek og kjark í baráttunni við
kolmórauðar og straumþungar
jökulelfurnar, enda voru hest-
arnir eins og mennirnir, hertir
í þessari glímu frá unga aldri.
Á síðustu árum og áratugum,
hefur mikið áunnist í samgöngu-
málum landsins eins og öllum er
kunnugt, og þá einnig í Skafta-
fellssýslu. Þar má nú heita að
hver á og hver laekur hafi verið
brúuð, að minnsta kosti á öllum
helztu leiðum. Ungir Skaftfelling
ar eru því engir vatnamenn leng-
ur, og skaftfellzku hestarnir
kunna naumast að vaða straum-
vatn, og fæstir þeirra hafa nokk-
urn tímann fengið tækifæri til
þess að æfa sundtökin. Þetta er
svo mikil breyting, og að sjálf-
sögðu til bóta að varla er þess
að vænta að yngri kynslóðin meti
það eins og vert er í daglegu lífi,
þar sem hún þekkir ekki annað
nema af afspurn.
Það er engum vafa undirorpið,
að íslenzka þjóðin hefur unnið
þrekvirki á sviði samgöngumála
á undanförnum tímum, eins og
raunar á mörgum öðrum sviðum.
Þar eiga margir hlut að máli.
Éinn Skaftfellingur hefur komið
hér mjög við sögu á síðustu ára-
tugum, en það er Valmundur
Björnsson, brúarsmiður í Vík í
Mýrdal.
Hann átti sextugsafmæli bann
4. des. sl. og þótt nokkuð sé nú
liðið frá afmælinu, vildi ég ekki
láta hjá líða að ir.innast hans með
nokkrum orðurn í tilefni þess.
Enginn maður hefur unnið ar.nað
eins og hann að því að tengja
sveit við sveit í hinu víðáttu-
mikla og strjálbýla héraði, og
brjóta þá einangrun, sem sam-
gönguerfiðleikarnir óhjákvæmi-
lega sköpuðu.
Valmundur Björnsson er fædd-
ur að Svínadal í Skaftártungu
árið 1898, sonur hjónanna Vig-
dísar Sæmundsdóttur frá Borgar-
felli og Björns Eiríkssonar frá
Hlíð, Eru ættir þessar fjölmennar
í Skaftárþingi, og margt merkis-
fólk af þeim komið. Þau Svína-
dalshjón eignuðust 13 börn og eru
nú 12 þeirra á lífi, flest búsett
í Skaftfellssýslu, Björn í Svín-
dal var hagleiksmaður mikill, og
búþegn góður, en Vigdís kona
hans annáluð myndarkona. Börn
Björns hafa erft hagleik hans, og
eru synir hans völundar í hönd-
unum hver á sínu sviði. Björn
Eiríksson var tvíkvæntur, og átti
hann einn son með fyrri konu
sinni. Heitir hann einnig Björn og
er búsettur í Vík í Mýrdal. Einnig
hann er hagur vel, einkum á járn.
Valmundur Björnsson kvæntist
hið fyrra sinni árið 1928, Stein-
unni Jónsdóttur Bryjólfssonar í
Vík, en missti hana árið 1945. Þau
eignuðust tvö börn, Jón trésmíða-
meistara í Vík og Sigurbjörgu
kennara í Reykjavík. Aftur
kvæntist Valmundur árið 1949,
Guðnýju Ólafsdóttur frá Skarðs-
hlíð undir Eyjafjöllum, myndar-
legri og góðri konu. Þau eiga ekki
börn.
Árið 1934 byrjaði Valmundur
að stjórna brúabyggingum fyrir
Vegagerð ríkisins, og hefur verið
starfsmaður þeirrar stofnunar á
hverju sumri síðan. Það var mik-
ið heillaspor er Valmundur réðist
til þessara starfa því að þar hefur
hann getið sér mikinn orðstír og
góðan. Á þessum tíma hefur hann
byggt milli 60 og 70 brýr stórar
og smáar. Allar nýrri brýr í V-
Skaftafellssýslu eru byggðar af
honum einnig nokkrar í Rangár-
vallasýslu og víðar um landið
í byggðum og óbyggðum.
Valmundur er viðurkenndur af
öllum, sem til þekkja fyrir fram-
úrskarandi útsjónarsemi, dugnað
og glögga verkstjórn. Hann er
hugmaður mikill að hverju, sem
hann gengur og krefst mikils af
mönnum ,sem með honum vinna,
en þó mest af sjálfum sér. Verk
þau, sem hann tekur að sér, eru
leyst af hendi af mikilli vand-
virkni og hyggindum, og verða
því ódýrari írá hans hendi en
flestra annarra.
Það mun ekkert fátítt að brýr,
sem hann hefur byggt, hafi orðið
allverulega undir kostnaðaráætl-
un. Þetta ætti nú kannske ekki
að segjast nú á tímum, sízt í
skiptum við hið opinbera, því að
það kvað ekki vera tízka að draga
úr útgjöldum þess. En ég segi það
nú samt, því að þetta vita fjölda
margir Skaftfellnigar. Það er þó
ekki af því að Valmundur sé að
flíka því sjálfur, því að sjálf-
hælinn maður er hann ekki. Kann
hann bezt við að láta verkin tala
fyrir sig, enda gera þau það svika
laust.
f verkstjórn sinni hefur Val-
mundur verið svo farsæll að
lengi mun í minnum haft, og það
í fleiru en einu tilliti. Aldrei hafa
orðið slys hjá honum við brúar-
gerðir, og engin óhöpp hent í
meira en 3 tugi ára. og hafa þó
aðstæðurnar oft verið misjafnar
og sum vatnsföllin engin barna-
leikvangur. Þetta út af fyrir sig
er mikil gæfa, en sýnir þó, að hjá
bonum fer saman kapp og forsjá.
Síðan 1952, hefur Valmundur
rekið trésmíðaverkstæði í Vík í
félagi við Jón son sinn, og hafa
þeir nóg að starfa þar aliai stund-
ir sem þeir ekki tinna að brúar-
gerðum eða húsabyggingum.
Valmundur Björnsson er yfir-
lætislaus maður eins og margir
miklir dugnaðarmenn, og það fer
ekki mikið fyrir honum hvers-
dagslega. En í hópi góðra vina er
hann glaður og reifur, og höfðingi
heim að sækja. Þar a kona hans
sinn hlut að máli.
Hann er vinmargur og vinfast-
ur eins og hann á kyn til, ein-
beittur í skoðunum og fylgir
þeim fram með festu og einurð
en engum bægslagangi. Hann er
óáreitinn og blandar sér lítt í
annarra málefni að óþörfu, en
tilbúinn að rétta hjálparhönd og
gera greiða, hvenær, sem hann
má því við koma.
Hlýjar óskir fjölmargra manna
og kvenna fylgja þessum mæta
manni og góða dreng er hann nú
byrjar sjöunda tug ævi sinnar, og
við, sem þekkjum hann og verk
hans bezt, vonum að honum end-
jst lengi kraftar til þess að brúa
árnar í landinu, tengja sveit við
sveit eins og til þess að brúa árn-
ar í landinu, tengja sveit við sveit
eins og hann hefur gert í áratugi,
því að ennþá bíða fjölmörg óleyst
verkefni eftir honum, og öllum
þeim, sem vilja vinna vel fyrir
land sitt og þjóð.
Um leið og ég bið vin minn,
Valmund afsökunar á þessum
fáu orðum, óska ég honum, konu
hans og börnum alls góðs í til-
efni sextugsafmælisins og bið hon
um og fjölskyldu hans blessunar
á hinu nýbyrjaða ári.og í allri
framtíð.
Skaftfellingur.
Bardagar blossa
upp í Alsír
Gullfoss er líka tígulegur í klakahjúpi.
ALSÍR, 23. jan. NBT-Reuter. —
I þessari viku hafa aftur brotizt
út blóðugir bardagar milli upp-
reisnarmanna í Alsír og franska
hersins, og hefur það dregið úr
líkunum á vopnhléi. Samkvæmt
opinberum heimildum í Frakk-
landi voru um 1500 uppreisnar-
menn drepnir eða teknir til fanga
undanfarnar tvær vikur. Á aðal-
bækistöðvum uppreisnarmanna í
Túnis var tilkynnt, að 513 Frakk-
ar hefðu verið drepnir í annarri
viku janúarmánaðar.
Ferö austur
á morgun
— á vegum Ferða-
skrifsfotu Páls
Arasonar
FERÐASKRIFSTOFA Páls Ara-
sonar efnir til ferðar austur að
Gullfossi um þessa helgi. — Farið
Monte Corlo-konnaksturinn
Reuter. — Hinum heimskunna
Monte Carlo-kappakstri, sem
hófst á sunnudaginn frá níu stöð-
um í Evrópu, lauk í dag í Monte
Carlo. í fyrstu fjórum sætunum
voru Frakkar. Af 322 bílum, sem
lögðu upp, komust 129 á leiðar-
enda, en alls var leiðin um 3200
kílómetrar.
tTrslitin urðu sem hér segir:
1. Paul Coltelloni og Pierre
Alexandre (Citroen DS-19)
2. André Thomas og Jean De-
liere (Simca Aronde)
3. Pierre Surles og Jacques
Piniers (D.B.-Panhard)
4. Henri Marang og Jacques
Bodoche (Citroen)
5. Ronnie Adams og Ernes Mc-
Millan (Sunbeam Rahier) —
Ronnie Adams vann kapp-
aksturinn 1956.
6. Gunnar Bengtson og Carl
Lohmander (Volvo)
7. Siegfried Eikelmann og Hans
Wencher (D.K.W.)
8. George Parkes og Geoffrey
Howarth (Jaguar)
9. Michel Grosgogeat og Pierre
Biagini (D.K.W.)
10. Fernand Schligler og Pierre
Berthemy (Reunault)
11. Jeffrey McAndrew og Ian
Walker (Ford Zodiac)
12. Gino og Pierre Deligne
að Gullfossi
verður frá skrifstofunni í Hafn-
arstræti 8 í fyrramálið kl. 9, og
er gert ráð fyrir, að komið verði
aftur til bæjarins kl. 6—7 annað
kvöld. Auk þess, sem dvalið
verður nokkra hríð hjá Gullfossi,
mun verða staldrað ögn við hjá
Geysi og í Skálholti. — Það er
gaman að sjá Gullfoss í klaka-
böndum eins og hann er nú, og
er hann ekki síður fagur og tígu-
legur í slíkum vetrarbúningi
heldur en að sumrinu — eins og
menn geta gert sér í hugarlund
af myndinni, sem hér fylgir með.
Þótt nú sé hávetur, er færi
þarna austur eftir hið bezta, næst
um eins og á sumardegi.
Þessi ferð að Gullfossi er fyrsta
ferðin, sem farin er á vegum
Ferðaskrifstofu Páls Arasonar á
þessu ári.
Mannskaðaveður
í Bandaríkjunum
NEW YORK, 23. jan. NTB-AFP.
Flóð, stórhríðar og þoka hafa
á síðustu tveimur dögum grand-
að 70 manns og valdið skaða, sem
nemur tugmilljónum króna í
fimmtán ríkjum í Bandaríkjun-
um norðaustanverðum.
Enska knattspyrnan:
Wolverhamton og Bolton
mcetast í dag
í dag fer fram 4. umferð Bik-
arkeppninnar. Fjórir af leikjun-
um eru reyndar úr 3. umferð-
inni, en í þeim hefir enn ekki
fengist úrslit, Ekki hefir það
komið fyrir áður í sögu bikar-
keppninnar í þau 87 ár, sem
hún hefir verið háð, að ekki hafi
fengizt úrslit í einni umferð áð-
ur en önnur hefst. Leikur dags-
ins er tvímælalaust milli sigur-
vegaranna í keppninni í fyrra,
Bolton og sigurvegara deild-
arkeppninnar, Wolverhampton.
„Úlfarnir", sem leika á heima-
velli, eru taldir hafa meiri vinn-
ingslíkur. f haust, er liðin leiddu
saman hesta sína í deildarkeppn-
inni töpuðu „Úlfarnir" á heima-
velli, eitt mark gegn tveim. í þess
um liðum eru allmargir landsliðs
menn, en frægastir eru þeir
Billy Wright (Wolves), fyr-
irliði enska landsliðsins og „Úlf-
anna og Nat Lofthouse fyrirliði
Boltons. Þessir tveir menn eiga
eftir að elda saman grátt silfur
í dag, Lofthouse leikur miðherja,
og Wright miðframvörð.
Af öðrum leikjum milli 1. deild
ar liða, en þeir eru 4, má nefna
leikinn í Chelesa, milli Aston
Villa og heimaliðsins. Með
Chelsea liðinu leikur 23 ára gam
all framvörður að nafni Stan
Crowther. Crowther þessi hef-
ur nefnilega leikið í úrslitaleikj-
um á Wembley í tvö ár í röð.
Hann var með Aston Villa 1957
er þeir unnu bikarinn, en eftir
flugslysið í Múnchen seldi Aston
Villa hann til Manchester Utd.
og komst hann enn í úrslit í
bikarkeppninni 1958, með United,
sem keypti Crowther af M. U.
í haust, hefur mikla möguleika
að komast áfram í 5. umferð.
Arsenal, sem virðast vera í
miklu áliti hér heima, — enda
ekki að ástæðulausu, liðið er
efst í fyrstu deild — heim-
sækja 3. deildar liðið Colchester
United. Forráðamenn Colchester
liðsins eru himinlifandi yfir
þessari heimsókn, því á þessum
leik verður met-aðsókn. Mesta
aðsókn í Cholchester er 19072
áhorfendur, gegn Reading árið
1948.
Þessir leikir fara fram í dag í
Bikarkeppninni:
3. umferð:
MiddJesbrough ... Brimingham City
(þessi leikur hófst á sínum tíma, en
var frestað eftir 60 mín. leik og var
staðan 1—1)
Manchester City .... Grimsby Town
Nottm. Forest .. Totting & Mitcham
Peterbrough ................ Fulham
4. umferð
Accrington ............. Portsmouth
Blackburn Rovers .......... Burnley
Bristol City ............ Blackpool
Charlton .................. Everton
Chelsea ............... Aston Villa
Clochester ................ Arsenal
Leicester City ... Luton Town
Norwich City ..... Cardiff City
Preston N. E...... Bradford City
Stoke City ....... Ipswich Town
Tottenham ...... Newport County
West Bromwich ....... Brentford
Wolverhampton Bolton Wandrs.
Worcester City ... Sheffield Utd.
Hraðkeppni
1 handknattleik
í kvöld og annað kvöld efnir
Handknattleikssamband íslands
til hraðkeppni í handknattleik og
verður leikið í meistaraflokkum
karla og kvenna. Keppnin hefst
bæði kvöldin kl. 8,15. f kvöld
leika saman í þessari röð:
kvenflokkar Keflavík — Valur
— — Ármann —Víking.
— — Þróttur situr yfir
karlaflokkur F.H. — Keflavík.
— — Fram — Ármann
— — Víkingur — Í.R.
— — Þróttur — Valur
Þeta er síðasta keppni fyrir ís-
landsmótið, sem hefst þann 31.
jan. og má búast við mjög spenn-
andi keppni, þar sem allir keppn-
isflokkar félaganna eru komnir
í ágæta þjálfun.
Tveir nýliðar bætast nú við til
keppni í meistaraflokki kvenna,
en það eru flokkar Keflvíkinga
og Víkings. Mikill áhugi er á
handknattleik í Keflavík og ungl
ingarnir í Víkingi hafa þegar vak
ið á sér athygli og verður gaman
að fylgjast með hvernig þeim
gengur í þessari keppni.
(Fréttatilkynning frá HSÍ)