Morgunblaðið - 28.01.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.01.1959, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 28. jan. 1959 MORfíUNBLAÐIÐ 3 Segja þarf þjóðinni sannleik ann umbúðalaust Úr ræðu Björns Ólafssonar við umræður á Alþingi i gær Björn Ólafsson kvaddi sér hljóðs í gær i neðri deild við aðra umræðu um niðurfærslufrum- varp ríkisstjórnarinnar. Hann kvaðst hafa ætlað að tala við fyrstu umræðu, en verið þá for- fallaður. Kvaðst hann vilja lýsa því yfir í byrjun, að hann fylgdi 'frumvarpinu vegna þess, að það væri nauðsynlegt spor í rétta átt. Kvaðst hann ekki ætla að ræða einstök atriði frumvarpsins, þar sem efnið lægi ljóst fyrir, en ætla í þess stað að ræða nokkuð um dýrtíðarmálið á víðari grundvelli. Lausnin verður að koma innan frá. Björn Ólafsson taldi, að það skipti ekki meginmáli, hvort við gætum ásakað einhverja, heldur skipti það mestu máli að við gæt- um lært af þeim mistökum, sem aukið hafa verðbólguna. Það væri óhugnanleg staðreynd, að allt efnahagslíf þjóðarinnar gæti hrunið í rúst í nálægri framtíð, ef ekki væru gerðar ráðstafanir því til hindrunar. Öngþveiti lítillar þjóðar, sagði Björn, brennur engum á baki nema henni sjálfri. Þess vegna þarf hún ekki að vænta, að lausn in út úr erfiðleikunum komi utan að. Lausnin verður að koma inn- an að, frá henni sjálfri. Hún verð- ur að bjarga sér sjálf. Hún verður að bera sína eigin byrði, hún verður að fórna, ef fórnar er þörf. En umfram allt, verður hún að að gera sér ljóst hvar skórinn kreppir, og hverra aðgerða er þörf. Ég hef ætíð verið þeirrar skoð- unar, að fyrst og fremst eigi að segja þjóðinni sannleikann um- búðalaust, þegar ætlazt er til af henni, að hún taki með skilningi og stillingu þungbærum ráðstöf- unum, sem gerðar eru af illri nauðsyn. í mínum huga, hélt Björn Ól- afsson áfram, eru engar efasemdir um það, að skemmsta leiðin að markinu er sú, að segja þjóðinni sannleikann hispurslaust. Enginn flokkur mun þegar til lengdar lætur tapa fylgi á því, að segj’a fólkinu hið sanna og rétta í hverju vandamáli, þar sem dóm- greind og raunsæi almennings er er á jafn háu stigi og hér á landi. Hin hættulega stéttarsefjun. Eina hættan sem, mér finnst vera á því að dómgreind og raun sæi almennings fái að njóta sín, er sú stéttarsefjun, sem nú er mjög róið undir hér á landi og kemur fram í því, að áróðurs- J menn þeirra hvetja stéttirnar, hverja um sig, til að heimta efna hagsleg gæði sér til handa án til- lits til þess hvaða áhrif kröfur þeirra hafa á hag og afkomu þjóð arheildarinnar. Engin stétt getur lifað út af fyrir sig eða starfað án annarra, ekki frekar en hjól í stórri vél, sem ekki getur snúizt án þess að öll hjólin snúist um leið. Stéttir þjóðfélagsins og félagsheildir verða fyrst og fremst að gera sér grein fyrir og viðurkenna þessa einföldu staðreynd ef skipulag þjóðfélagsins á ekki að liðast í sundur af deilum og sérhyggju. Landsmenn lifa á gjöfum og lánum. Björn Ólafsson sagði að undan- farið hefði það verið að skýrast í hugum manna af hvaða rótum erfiðleikarnir væru runnir. Taldi hann, að af mörgum orsökum, sem verðbólgu valda, ætti ein þó mesta sökina. Það er sú óhrekj anlega staðreynd, að landsmenn hafa síðustu áratugina lifað um efni fram. Lífskjör manna hér á landi eru að meðaltali betri en í flest- um öðrum löndum, en til þess að halda þessum lifskjörum við hefir þjóðin þegið miklar gjafir og tekið stór lán. Lífskjörúnum hefur verið haldið uppi með er- lendri hjálp. Síðan sagði Björn: Engin þjóð getur til lengdar byggt efnahags- líf sitt á slíkum grundvelli. Þeg- ar hin utanaðkomandi aðstoð rennur til þurrðar, — og að því hlýtur að koma — stöðvast hjól atvinnulífsins og erfiðleikarnir halda innreið sína, nema þjóðin Björn Ólafsson takmarki eyðslu sína við þau gæði sem hún aflar sjálf. Ræðumaður kvaðst vilja benda á það í þessu sambandi, að er- lendar skuldir þjóðarinnar um sl. áramót hefðu numið 718 millj. kr. með skráðu gengi, en ef reikn að væri með 55% yfirfærslugjaldi væru skuldirnar 1113 milljónir króna. Skulda-aukning þjóðarinnar síðustu árin er gífurleg og þótt telja megi að talsverður hluti erlendu skuldanna hafi gengið til þarflegra fyrirtækja, getur það varla leikið á tveim tungum, að skuldabagginn er orðinn svo þung ur, að fullrar aðgæzlu er þörf. Þessi skuldasöfnun, að því leyti sem hún hefur gengið til að greiða eyðslu þjóðarinnar um- fram aflaðra tekna, hefur stuðlað að þeirri fjármálaupplausn sem nú blasir við. ísland hefur ekki átt samleið með V-Evrópu. í þessu sambandi benti Björn AKUREYRI, 27. jan. — Búið er að semja um smíði á nýjum flóa- bát fyrir Eyjafjörð og nágrenni. Þessi nýi bátur kemur í stað flóabátsins Drangs, sem nú er orðinn 55 ára að aldri, og er fylli lega timi til kominn að fá nýtt skip í hans stað. Mbl. átti í gær tal við Steindór Jórvsson eiganda flóabátsins og innti hann eftir smíði hins nýja skips. Ekki kvaðst Steindór hafa fengið skeyti um að búið væri að leggja kjölinn að bátnum, hins vegar hefði fyrir nokkru verið gengið endanlega frá samningi um smíði skipsins. Hafði forstjóri skipasmíðastöðvarinnar komið til landsins vegna þess fyrir skemmstu. Skipið verður smíðað í Florö í Noregi. Skipið mun taka 40 farþega og lestarrými þess verða um 140 rúmm., en sjálft verður skipið 165 tonn að stærð. Það verður með 400 hestafla vél og Ólafsson á það, að síðasta ára- tug hefðu Vestur-Evrópuríkin verið að treysta fjárhag sinn og atvinnuvegi með samvinnu milli landanna og skynsamlegum efna hagsráðstöfunum. Allan þennan tíma hefði fsland verið þátttak- andi í viðskiptasamvinnu þessara þjóða, án þess að uppfylla nema að litlu leyti skilyrði, sem sett voru fyrir þátttöku. Og síðustu árin hefur ísland enga samleið átt með öðrum löndum V-Evrópu í þessum efnum. Þau héldu í átt- ina til aukins frjálsræðis í við- skiptum, meðan við héldum á ný inn á braut hafta, opinbers eftir- lits og nefndaskriffinnsku. Og nú fyrir áramótin gerðust þau merkilegu tíðindi, að flest þau lönd, sem að efnahagssam- vinnunni stóðu gáfu gjaldeyris- söluna þjóða í milli frjálsa meðan ástandið er slíkt hér á landi, að engan hlut, sem kostar meira en ein máltíð á veitingahúsi má afsson kom heim í gær úr hinni frækilegu sigurför á skákþingið í Beverwejk. Skákmótið hófst 8. janúar og lauk þann 18., en þetta mót er haldið árlega og nefnist nýárs- mót líkt og Englendingar hafa jólaskákmót í Hastings. Friðrik lét vel af för sinni á mótið og kvaðst vera mjög ánægður með árangur sinn. Keppendur á mót- inu voru um tvö hundruð, og keppti Friðrik í aðal-flokknum, en hann skipuðu 10 keppendur, fimm útlendingar og fimm Hol- lendingar. Mikill taugaspenning- ur ríkti hér heima þegar Friðrik tefldi við stórmeistarann E. Elis- kases, og kvað Friðrik það sína erfiðustu skák þar sem segja má að hún hafi ráðið úrslitum í mót- inu. Aðspurður sagði Friðrik að Larsen hefði verið of bjartsýnn og oft virtist hann álíta vinning- ana koma sjálfkrafa. Á móti mér reyndi Larsen vitaskuld að tefla upp á vinning og valdi byrjun sem komið hafði fram í skák milli Griinfelds og Aljekins á skákmótinu í Karlsbad 1925, með lítilsháttar breytingum. Friðrik vann skákina í 23 leikjum. Friðrik fær væntanlega send 100 eintök af fjölrituðum bækl- ingi, sem inniheldur skákirnar í ganghraðinn 11—12 mílur. Skip- ið verður búið öllum nýtízku siglingartækjum. — Samningar hljóða upp á að skipið skuli af- hent fullsmíðað 15. september næstkomandi. — vig. Er ófœr bifreiðum sem stendur KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 27. jan. — Miðsvetrarþeyrinn var okkur kærkominn eftir nærri þvi fjögra vikna samfellt frost og hreinviðri. Fjallalækirnir, sem knýja rafstöðvarnar á flestum bæjum hér á Síðu, voru orðnir mjög vatnslitlir, svo að víðast flytja til landsins án leyfis. Enga krónu er hægt að yfirfæra til út- landa, án þess að útfylla leyfis- beiðnir og bíða svars í nokkrar vikur. Ef farareyrir fæst til út- landa, er hann af svo skornum skammti, að svartur markaður með erlendan gjaldeyri hefur sprottið upp á öðru hverju götu- horni. En allt þetta taldi ræðumaður að væri afleiðing af þeirri rir.gul- reið, sem orðið hefur í efnahags- kerfi landsins. ísland gangi úr Sterling-svæðinu. í sambandi við þessar hugleið- ingar um gjaldeyrisaðstöðuna taldi Björn Ólafsson rétt að minnast á eitt mál, sem almennt er lítill gaumur gefinn. Eins og margir vita eru til gjaldeyrissamtök sem nefnast Sterling-svæðið. í því eru Bret- land, nýlendur þess, Ástralía, Nýja Sjáland, írland og ísland. Hafði ísland í byrjun stríðsins 'gerzt aðili að þessum samtökum, vegna þess að álitið var, að það gæti bjargað okkur frá dollara- Framh. á bls. 18. aðalflokki skákmótsins, en það er góður fengur fyrir íslenzka skákunnendur. Um framtíðina vildi Friðrik lítið tala, en kvaðst mundu fara á skákþingið í Zúr- ich, en það verður haldið í maí næstkomandi. Meðal þátttakenda í Zurich- mótinu verða sovézku stórmeist- ararnir P. Keres, M. Tal, Júgó- slavinn Gligoric, Bandaríkjameist arinn Fischer, danski stórmeist- arinn Larsen, Donner frá Hol- lgndi, Dúkstein, Unchiker frá Þýzkalandi og dr. Filip frá Tékkó slóvakíu ásamt sex svissneskum skákmeisturum. hvar var rafmagnið af skornum skammti. í gær var hér stöðug rigning og stórfelld úrkoma. Kom mikið flug í árnar, sprengdu þær af sér ísinn og byltust fram með miklum jakaburði. Ekki hefi ég heyrt að þessir vatnavextir hafi valdið spjöllum hér um slóðir annars staðar en á brúnni yfir Geirlandsá. Brúin er löng járn- bitabrú á steinstöplum. Hefir næstaustasti stöpullinn farið í flóðinu, og hefir brúin sigið það mikið á kafla, að hún er ekki fær bifreiðum sem stendur. — Fréttaritari. STAKSl U\AI» „Ætlaði að svíkja eitt loforð í viðbót“ Með þessari fyrirsögn birti ís* lendingur á Akureyri hinn 23- jan. s.l. forystugrein um kjör- dæmamálið. Hún hljóðar svo: „Eins og margoft hefir áður verði bent á, efndi ríkisstjóm Hermanns Jónassonar aðeins eitt af loforðum sínum á Zy2 valda- ári, en það var loforðið um að breyta bankalöggjöfinni. Öll hin loforðin annaðhvort hirti hún ekki um að efna eða megnaði ekki að efna. Meðal þeirra lof- orða er Framsókn kvað hafa gef- ið samstarfsflokkum sínum við myndun stjórnarinnar, var end- urskoðun kjördæmaskipunarinn- ar á yfirstandandi kjörtímabilL Því máli hafði ekki verið hreyft i ríkisstjórninni s.l. haust, er Al- þýðusambandsþing krafðist ein- róma endurskoðunar á kjördæma skipuninni og flokksþing Alþýðu flokksins fám dögum síðar. Og af skrifum Framsóknarblaðanna og ræðum Framsóknarmanna síðustu vikurnar kemur glögg- lega í ljós, að þetta loforð liafði Framsókn ekki ætlað sér að efna. Gísli Guðmundsson, þingmað- ur Framsóknar sagði í ræðu á fundi nýlega: „Ég sé ekki, að neitt hafi leg- ið á eða liggi á því að afgreiða kjördæmamálið á þessu ári. Með því, út af fyrir sig, er enginn vandi leystur". Og í sama tón skrifa blöð Framsóknarflokksins næstum daglega. Loforðið um að taka upp kjör- dæmamálið á núgildandi kjör- tímabili átti því að fara í pappírskörfuna eins og hin lof- orðin. Enda veit og finnur Fram- sókn það, að fyrir henni sjálfri er „enginn vandi leystur", ef koma á lýðræðislegri skipan á kosningar til Alþingis. Meðan ekki þarf nema 240 kjósendur á Seyðisfirði til að koma Björgvin kaupfélagsstjóra að en 3076 kjós- endur í Gullbringu- og Kjósar- sýslu þarf til að koma Ólafi Thors að, þá er ekki von að Framsókn rjúki upp til handa og fóta með að standa við loforð um endurskoðun á kjördæmaskip- uninni fremur en önnur loforð. Hins vegar mun ekki reynast seinunnið verk að sannfæra kjós- endur um, að einum kjósanda á Seyðisfirði beri jafn atkvæðis- réttur og 18 kjósendum á Kjalar- nesi. Og enn vonlausara verður fyr- ir hana að ætla að sannfæra Sjálfstæðismenn hvar sem er á landinu um, að þeim beri ekki að hafa nema hálfan atkvæðisrétt á móti Framsóknarmanninum, eins og Herjólfur í Degi þykist eygja von um í fyrradag“. Framsóknarmenn viðurkenna i öðru orðinu að núverandi kjör- dæmaskipun sé ótæk en segja, að unnt sé að leiðrétta hana á hag- kvæmari hátt en Sjálfstæðis- menn gera tillögur um. En hverj- ar eru tillögur Framsóknar? Af hverju fær enginn að heyra þær? „Ekki mikið ólært“ í sama blaði íslendings og til- vitnuð grein birtist segir og: „Tíminn skýrði nýlega frá þvL að Framsóknarhúsið í Reykjavík hefði fengið „sýningarpar“ inn- flutt, sem væri meðal snjöllustu sjónhverfingamanna heimsins. Áður hafði húsið fengið Nínu og Friðrik, sem kostuðu víst engan smápening. En ef við þurfum að nota hinn torfengna erlenda gjaldeyri til innflutnings á er- lendum skemmtikröftum, hvar verðum við þá staddir um það er lýkur. Það kann að vera nokk- urt atriði fyrir Framsókn að kynna sér sjónhverfingar, en ég hélt nú samt, að hún ætti ekki mikið ólært í þeirn efnum“. Nýtt skip í sfað hins 55 ára gamla flóabáts Erfiðasta skákin mín var gegn Eliskases — sagði Friðrik Olafsson í sfuttu viðtali við Morgunblaðið STÓRMEISTARINN Friðrik Ól- Brúin á Ceirlandsá hef- • • • JkC ir sigio

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.