Morgunblaðið - 11.02.1959, Síða 1
211 síöur
46. árgang-ur
34. tbl. — Miðvikudagur 11. febrúar 1959
Prentsmiðja MorgunT laðsina
Tveir kanadískir togarar og
spænskt skip i hafsnauð v/ð
Nýfundnatand
HALIFAX, 10. febrúar. — (Reuter). — Eftir mikinn storm sem
gekk yfir Nýfundnaland og Nýja Skotland síðustu þrjá daga er
saknað tveggja kanadískra togara og eins spænsks skips.
Komust í björgunarbáta
Kanadíski togarinn „Blue
Wave“ hefur horfið með 16
manna áhöfn um 60 mílur suður
af Nýfundnalandi og er hans nú
leitað. Annar kanadískur togari
„Cape Dauphin" fórst suðaustur
af Nýja Skotlandi. Á honum var
13 manna áhöfn. Mennirnir fóru
í björgunarbáta og var þeim
bjargað um borð í annan kanad-
ískan togara.
Neyðarskeyti frá spænsku
skipi
Þá sendi spænska skipið Mel-
Samkomulag i
Kýpur-deilunni ?
ZÚRICH, Svisslandi, 10. febr.
(Reuter) — Nú vantar aðeins
herzlumuninn til þess að Grikkir
og Tyrkir komist að fullu sam-
komulagi <um stjórnskipulag og
framtíð Kýpur. Forsætisráðherr-
ar Grikkja og Tyrkja þeir Kon-
stantin Karamanlis og Adnan
Menderes hafa átt fundi saman
í Zíirich í sex daga og er þeir
gengu í dag af sameiginlegum
fundi, sem staðið hafði í IV2 klst.
voru þeir báðir mjög bjartsýnir
um að Gordíons-hnútur Kýpur-
deilunnar væri leystur. Fundinn
sátm einnig utanríkisráðherrar
landanna, þeir Evangelos Aver-
off og Fatin Zorlu.
Zorlu sagði við blaðamenn: —
Nú fyrst er ég orðinn verulega
Kiúsjeff boðið
til Norðurlanda
KAUPMANNAHÖFN, lO.febr.
(Páll Jónsson). í dag var til-
kynnt samtímis á Norðurlönd-
unum, Noregi, Svíþjóð og Dan
mörku að Krúsjeff forsætis-
ráðherra Rússlands væri boðið
sameiginlega í heimsókn til
nefndra þriggja landa, vænt-
anlega næsta haust. Hafa Ger-
hardsen forsætisráðherra
Norðmanna og Erlander for-
sætisráðherra Svía staðfest
þetta.
Krúsjeff mun án efa taka
boðinu með ánægju, enda mun
það fram komið að undirlagi
hans sjálfs. Þegar hann hitti
Kekkonen forseta Finnlands
fyrir nokkru í Leningrad,
stakk hann því að honum,
hvort hann gæti undirbúið
fund með forsætisráðherrum
Norðurlandanna. Kekkonen
kom skilaboðum siðan áleiðis
til nágrannaþjóðanna.
etia í dag út neyðarskeyti þar
sem það var statt um 800 mílur
suðaustur af Cape Race á Ný-
fundnalandi. Hefur ekki síðan
heyrzt til þcss. Bandaríska varð-
skipið Ingham er farið því til
hjálpar.
Skip og flugvélar hafa leitað að
togaranum „Blue Wave“, en leit-
arskilyrði hafa verið slæm, þoka
snjókoma og stórsjór.
Debré heitir Serkjum
efnahagsframförum
ALGEIRSBORG, 10. febr. (Reut-
er). — Forsætisráðherra Frakk-
lands, Michel Debré er kominn
til Alsír og flutti hann í dag ræðu
fyrir hinu 43 manna æðsta ráði
Norður-Afríku. Forsætisráðherr-
ann talaði um framtíð Norður-
Afríku og óskaði hann eftir sam-
starfi íbúa landsins við að koma
í framkvæmd 200 milljón dollara
áætlun um efnahagslegar fram-
farir í lan<Jinu, en með henni á
að skapa 400 þúsund manns at-
vinnu á fimm árum.
Meginatriði áætlunarinnar eru
mikil nýsköpun landbúnaðarins
og bygging málmverksmiðja og
efnaverksmiðja, sem eiga að nýta
olíu og gas frá Sahara-eyðimörk-
inni. Þá á að byggja nýjar íbúðir
fyrir eina milljón manna og hefja
mikla nýsmíði á skólum, sjúkra-
húsum, þjóðvegum og höfnum.
Debré, sem er hægri hönd de
Gaulles forseta hefur mætt all-
mikilli mótspyrnu evrópskra
landnema í Alsir, sem finnst að
de Gaulle sé að svíkja þá með
því að bæta aðstöðu innfæddra
á kostnað rnanaa sem eru af
evrópsku bergi brotnir. Debré
mun dveljast þrjá daga í Alsír.
bjartsýnn á lausn deilunnar. Aver
off tók undir þessi ummæli og
sagði: Við erum búnir að byggja
hús. Það er aðeiiis eftir að flytja
inn í það.
Einn af blaðamönnunum
spurði: — En hvar á að hafa
lyklavöldin að húsinu? Averoff
svaraði: — Ibúar Kýpur.
Ráðherrarnir hafa aðallega at-
hugað möguleika á stofnun sjálf
stæðs ríkis á Kýpur, þar sem
gætt sé réttinda þjóðernisminni-
hluta Tyrkja á eynni. Mun í ráði
að brezkt og grískt gæzlulið verði
sent til eyjarinnar. En það hef-
ur verið þröskuldur í vegi, að
Tyrkir heimta að fá líka að hafa
þar gæzlulið.
Ef samkomulag tekst milli for-
sætisráðherra Grikkja og Tyrkja
mun ekki líða á löngu þar til
efnt verður til ráðstefnu Grikkja,
Tyrkja, Breta og fulltrúa Kýpur-
búa um framtíð eyjarinnar.
Á Kýpur búa 400 þúsund grísku
mælandi menn *g 100 þúsund
Tyrkir. Lengi kröfðust Grikkir
þess að eyjan sameinaðist Grikk-
landi, en upp á síðkastið háfa
þeir breytt um stefnu og krefj-
ast þess að Kýpur verði veitt
sjálfstæði. Þar með er skapaður
grundvöllur fyrir samkomulagi.
Ráðherrarnir munu koma sam-
an til nýs fundar á morgun og
verður það úrslitafundur.
Ferðalög
LONDON, 10. febr. (Reuter). .—
Macmillan forsætisráðherra Bret
lands mun fara til Parísar og
Bonn að lokinni hinni fyrirhug-
uðu ferð sinni til Moskvu. Hann
kemur heim úr Rússlandsferð
sinni 5. marz. Síðan dvelst hann
í þrjá daga í Norður írlandi.
Hann mun ræða við de Gaulle og
Michel Debré í París 9. og 10.
marz og Adenauer í Bonn 12. og
13. marz. Vesturveldin hafa náin
samráð við Macmillan um viðræð
ur við Krúsjeff.
Vickers flugvélaverksmiðjurnar brezku hafa nýlega smíðað helmingi stærri flugvél en Viscount-
flugvélarnar, sem þær hafa framleitt. Hin nýja flugvél nefnist Vickers Vanguard og sést hún hér
hefja sig til flugs af tilraunaflugvelli.
"" ........ ' ' ■!■■■"■' — "■■■ 1 .1' ....... " ........* ■’ 1
Dulles leggst á sjúkrahús og
verður frá starfi í margar vikur
Verður nýr utanrikisráðherra skipaður?
WASHINGTON, 10. febrúar. — (NTB) — Dulles utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna varð í dag að leggjast inn í Walter
Rcid hersjúkrahúsið í Washington. Verður að skera hann
upp við kviðsliti Hann mun verða að dveljast á sjúkrahúsi
í minnst einn mánuð og verður að því búnu að taka sér
hvíld frá störfum í nokkrar vikur.
Stjórnmálaritarar víða um
heim bollaleggja mjög um þenn-
an sjúkdóm Dullesar. Telja þeir
að hann sé alvarlegur hnekkir
fyrir Vesturveldin, af því að
Dulles hafi unnið allra manna
mest með skarpleika og ein-
beittni að því að viðhalda öruggu
Ofsalegur fellibylur
veldur manndauða og
skemmdum í St. Louis
NEW YORK, 10. febrúar. —
Þegar er vitað að 31 maður
hefur látið lífið og um 400
hafa særzt í ægilegum felli-
byl, sem skall í morgun yfir
borgina St. Louis í Miðríkj-
unum á bökkum Missisippi-
fljóts. Rauði krossinn segir
þó að enn geti fjöldi látinna
og særðra leynzt undir húsa-
rústum eftir fárvirði þetta.
Fárviðri þetta gekk frá suðri
og beint yfir miðhluta borgar-
innar. Var vindhæðin svo mikil,
að múrsteinsveggir húsa brotn-
uðu og timburhús splundruðust
eins og sprengja hefði hitt þau.
Stormurinn reif tré upp með rót-
um og tók sum þeirra með sér
nokkra vegalengd. Þá felldi hann
sterkar loftskeyta- og sjónvarps-
stengur og sleit háspennulínur.
Auk þess sem fjöldi húsa lagð-
ist í rúst í þessum náttúruham-
förum urðu meiri og minni
skemmdir á flestum húsum borg-
arinnar, rúður brotnuðu, reyk-
háfar féllu niður og þakstein-
ar fuku eins og fis út um
allt. Við eina aðalgötu borgar-
innar er hvert einasta hús mikið
laskað. f mörgum húsum kvikn-
uðu eldar, þar sem gaslagnir
höfðu rifnað í sundur. í borginni
St. Lous, sem er mikil verzlun-
arborg og menningarsetur búa 2
milljónir manna. Hún er höfuð-
borg Missouri-ríkis-
samstarfi Vesturveldanna í þýð-
ingarmestu heimsmálum. Minna
þau í þessu sambandi sérstaklega
á síðustu för hans til Evrópu,
þar sem Dulles tókst að minnsta
kosti um stundarsakir að sætta
nokkuð ólík viðhorf Vesturveld-
anna í Berlínardeilunni.
Eisenhower forseti lýsti því
yfir á blaðamannafundi í dag, að
hann harmaði veikindi Dullesar.
Hann lýsti utanríkisráðherran-
um sem frábærum vitmanni,
sem hefði unnið meira starf en
nokkur annar maður í utanríkis-
málum Bandaríkjanna. Eisen-
Kista Dan á leið
til Grænlands
KAUPMANNAHÖFN, 10. febr.
(Páll Jónsson). — Hið þekkta
íshafsfar Kista Dan, sem er eign
Lauritsens útgerðarmanns siglir
á morgun af stað frá Kaupmanna
höfn til Grænlands. Vegna um-
ræðnanna í Danmörku um það
hve mikil hætta sé samfara Græn
landssiglingum mun skipið enga
farþega flytja nema með sér-
stöku leyfi jönsku ríkisstjórnar-
innar. Verður þá aðeins flutning
ur með skipinu.
Leitinni að Hans Hedtoft er nú
hætt og munu Grænlandsförin
Umanak og Disko halda frá
Grænlandi næstu daga
hower kvaðst þó um leið fagna
því að Dulles hefði nú loks eftir
langvarandi veikindi séð, að það
var honum fyrir beztu að leggj-
ast á sjúkrahús.
Þegar Dulles kom til sjúkra-
hússins var hann þrátt fyrir allt
glaðlegur og brosti til blaða-
manna, sem biðu hans við inn-
ganginn. Kona hans fylgdi hon-
um til sjúkrahússins.
Heaton yfirlæknir sjúkrahúss-
ins sagði blaðamönnum ,að upp-
skurðurinn væri ekki aðkall-
andi. Dulles yrði sennilega skor-
inn upp á föstudag eða laugar-
dag. Kviðslitið mun stafa frá
fyrri uppskurðum á Dulles, sem
munu hafa slitnað upp.
Það er margra álit að Dulles
muni ekki eiga afturkvæmt í
sæti utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna. Miklir atburðir eru nú
að gerast í utanríkismálum
Bandaríkjanna og telja margir,
að Eisenhower komist ekki hjá
því að skipa nýjan mann í emb-
ætti Dullesar.
Miðvikudagur 11. febrúar
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Stjórnmálaskóli Varðar settuf,
— 6: Heilsuleysi Dullesar (Erl. yfir-
litsgrein). — Sanngjarnar grein
ar um landhelgismálið í erlend-
um blöðum.
— 8: Kvenþjóðin og heimilið.
— 9: Gróska í starfsemi Skógræktar-
félagsins.
— 10: Forystungreinarnar: „Bændur
völdu hlutfallskosningu til bún-
aðarþings“ og „Svar verksmiðjv
fólksins“.
Utan úr heimi: Donald Humi
og gálginn.
— 11: Bókaþáttur.
— 12: Óttinn við þotuöldina.
— 18: íþróttir.