Morgunblaðið - 11.02.1959, Side 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 11. föbr. 1959
*•
,Ég tel skoðanir þínar óviturlegar./
Frá umræðum á Alþingi um
áætlunarráð ríkisins
í'YRSTA málið, sem tekið var til
umræðu á fundi neðri deildar
Alþingis í gær, var frumvarp
JEinars Olgeirssonar um áætlun-
arráð ríkisins. Var það til fyrstu
umræðu og fylgdi flutningsmað-
ur því úr hlaði með fimm stund-
arfjórðunga ræðu.
Kom Einar Olgeirsson víða við
í ræðu sinni, rakti þróun efna-
hagsmála síðustu áratugina og
sagði meðal annars, að þegar
gjaldeyririnn var þjóðnýttur
hefði hið opinbera jafnframt átt
að sýna það framtak að efla sjáv-
arútveginn á alla lund, en því
hefði ekki verið að heilsa. Þá
rakti ræðumaður nokkuð efna
hagsmálatillögur Sjálfstæðis-
flokksins frá 18. desember og lét
sér einkum í því sambandi tíð-
rætt um ræðu Björns Ólafssonar,
2. þm. Reykvíkinga, við aðra um
ræðu um niðurfærslulögin.
Björn Ólafsson kvaddi sér
hljóðs að ræðu flm. lokinni.
Kvaðst hann ekki ætla að svara
mörgu, en »ér finndist hlýða að
standa upp þar sem Einari Ol-
geirssyni hefði þótt hlýða að
nefna sig sem andstæðuna enda
væri það rétt, að þeir væru á
öndverðum meiði, því Einar Ol-
geirsson vildi bönd og hömlur en
sjálfur vildi hann hið gagnstæða.
En Björn Ólafsson kvaðst vilja
leyfa sér að segja við Einar Ol-
geirsson eins og Voltaire hefði
eitt sinn sagt: „Ég tel skoðanir
þínar óviturlegar, en ég mun berj
ast fyrir því til síðasta blóðdropa,
að þú hafir frelsi til þess að láta
í ljós vitleysuna".
ilvægu máli, að hann gæti ekki
látið hjá líða að segja um það
örfá orð. Mistök í fjárfestingu
hefðu verið svo mikil undanfarin
ár, að virða bæri hverja tillögu,
sem fram kæmi til lausnar. Aðal-
atriðið í þessu sambandi væri,
að fjárfestingin hefði verið
meiri, en hægt hefði verið að
afla fjár til með eðlilegum hætti.
Þörf fyrir fjárfestingu hefði að
vísu verið meiri hér á landi en
í nágrannalöndunum, en það
væri þjóðfélaginu nauðsynlegt að
sníða sér stakk eftir vexti, og
samræmi yrði að vera milli fjár-
festingar og fjáröflunar, svo
ekki brytist út verðbólga.
Ólafur Björnsson sagði, að hér
á landi væri fjár til fjárfestingar
einkum aflað með tvennu móti.
Annars vegar með sköttum en
hins vegar með sparifé. Þegar
þessu fé væri eytt uppgötvuðu
menn, að fjárfestingin væri
miklu minni en heppilegt væri
frá almennu eða pólitísku sjón-
armiði. Þá væri farið í Seðla-
bankann og sótt þangað það sem
á vantaði og kæmi það fram sem
aukin verðbólga. Slíkar aðferð-
ir í fjárfestingu væru sjaldgæfar
nema þá helzt í Suður-Ameríku.
Þar hefði líka gjaldmiðill eins
ríkis fallið um 100% á einu ári.
Þetta ríki hefði ekki átt í styrj-
öld svo kunnugt væri og of mikil
fjárfesting hefði því verið orsök
þess hvernig hefði farið.
Þá vék ræðumaður að því, að
neyzla á mann hefði verið minni
að verðmætum árið 1957 en árið
1948. Væri þetta merkilegt rann-
sóknarefni og stafaðí að sínu áliti
af því, að hagkerfið hefði farið
úr skorðum vegna hinnar miklu
fjárfestingar, sem ekki hefði
aukið framleiðsluverðmæti að
sama skapi.
Þá vék Olafur Björnsson að
einstökum atriðum í frumvarpi
Einars Olgeirssonar. Kvað hann
í því sambandi nauðsynlegt,
hvað sem liði skipun áætlunar-
ráðs, að komið yrði á einni eða
annarri stofnun, sem gerði yfir-
lit yfir væntanlega þróun þjóðar-
búskaparins á næsta ári og væri
það í sjálfu sér jafnnauðsynlegt
og að gera fjárhagsáætlun um
ríkisbúskapinn.
í frv. væri ekki skorið úr um
það í hvaða fjárfestingu yrði ráð
izt. Kvað Ólafur Björnsson bú-
ast við að hér væri um að ræða
skoðanamun hjá sér og Einari
Olgeirssyni. Sín skoðun væri sú,
að einstaklingar ættu að hafa
sem mest frelsi til að ráðast í
þá fjárfestingu, sem þeir réðu
Við, þannig að aðeins meiri hátt-
ar fjárfesting væri háð leyfi hins
opinbera.
Ólafur Björnsson kvað sér
ekki fyllilega ljóst, hvernig
valdsvið áætlunarráðs yrði hátt-
að og að hvað miklu leyti það
ætti að hafa vald til að ákveða
fjárfestingu í einstökum atriðum.
Þá væri einnig mikið atriði
hvert frjálsræði ætti að veita
einstaklingunum og hvar ætti að
draga þau mörk. Þessi atriði
skiptu mestu máli er tekin væri
' afstaða til umrædds frumvarps.
Tvö innbrot
í fyrrinótt
í FYRRINÓTT voru framin inn-
brot á þremur stöðum hér í bæn-
um. Brotizt var inn í sölubúð
Orku hf., á Laugavegi 166 og þar
stolið lítilsháttar af rafmagns-
áhöldum, þ.á.m. tveimur raf-
magnsrakvélum.
Framið var innbrot í mjólkur-
isgerðina „Dairy Queen“ á Hjarð-
arhaga 47, og þar stolið skipti-
\nynt. Einnig var brotizt inn 1
Hagabúðina, sem er í sömu bygg-
ingu og þar stolið niðursoðnum
ávöxtum og sælgæti.
Málið er í rannsókn, og hafði
lögreglan í gær handtekið tvo
menn, sem haldið var að væru
valdir að innbrotunum.
Rossellini óttast, að börn hans verði
ekki alin upp i kaþólskum sið
Ræðumaður hélt áfram og
sagði að Einar Olgeirsson hefði
haldið þessa sömu ræðu á þingi
mörg undanfaria ár. Hún væri
byggð á því grundvallaratriði
kommúnismans, að hneppa þjóð-
ina í fjötra ríkisvaldsins, til að
hægt væri á eftir, að koma henni
undir ok kommúnismans. Yrði þá
eins komið og nú er komið fyrir
þjóðunum í Austur-Evrópu, þar
sem hvorki ríkir andlegt frelsi
né athafnafrelsi. Ef þetta frv. yrði
að lögum kvaðst ræðumaður
segja það fyrsta skrefið í átt til
einræðis kommúnismans.
Þá vék Björn Ólafsson að því,
að Einar Olgeirsson hefði haft
eftir sér, að hann hefði viljað
gefs gjaldeyri frjálsan. Hann
kvaðst hafa viljað fá gjaldeyri
rétt skráðan, ^n þá fyrst væri
hægt að gefa hann frjálsan.
Björn Ólafsson sagði að lokum,
að ef ræða Einars Olgeirssonar
væri tekin öll fyrir í einu og
dregin af henni ályktun, væri
hún sú, að hann og hans flokkur
vildi að þegnarnir gengju í
vinnumennsku hjá ríkisvaldinu.
Ríkið ætti að fá yfirráð yfir sál
og líkama þegnanna eins og tíðk-
aðist fyrir austan járntjald.
Þjóðin yrði hins vegar að vera
frjáls til að hugsa, starfa og tala,
ef hún ætti ekki að verða þræll
skipulagningar, sem færði allt á
ógæfuhlið.
Ólafur Bjömsson, prófessor,
tók næstur til máls. Kvað hann
hér, að sínu áliti, hreyft svo mik-
Dagskrá Alþingis
1 DAG er boðaður fundur í
sameinuðu þingi kl. 1,30. Sex
mál eru á dagskrá. —
1. Fjárfesting, þáltill. — Hvern-
ig ræða skuli.
2. Lán vegna hafnargerða,
þáltill. — Hvernig ræða skuli.
3. Hagnýting síldaraflans, —
þáltill. — Ein umr.
4. Flugsamgöngur, þáltill. —
Ein umr.
5. Uppsögn varnarsamnings,
þáltill. — Ein umr.
6. Hlutdeildar -og arðskiptifyr-
irkomulag í atvinnurekstri,
þáltilL — Fyrri umr.
Dregið í 2. flokki
Happdrættis
Háskólans
í GÆR var dregið í Happdrætti
Háskóla íslands — 2. flokki þessa
árs — um 845 vinninga að upp-
hæð samtals kr. 1.095.000. —
Hæstu vinningarnir komu á eft-
irtalin númer:
Hæsti vinningurinn, 100 þús.
kr., kom á miða nr. 3445 (Vi miða
í umboði Frímanns Frímannsson-
ar, Hafnarhúsinu). 50 þús. kr.
komu á nr. 3611 (einnig 14 miði
í umboði Frímanns). — Þessi
númer hlutu 10 þús. kr. vinn-
inga: 1540, 8457, 18463, 39795,
43742 og 46901. — Og 5 þús.
kr. komu á eftirtalda miða: nr.
6235, 9626, 11265, 24183, 27923,
33732, 41219, 47505 og 49813.
(Birt án ábyrgðar.)
RKI-merki og
öskupokar
í DAG er fjáröflunardagur Rauða
Kross íslands. f flestum kaup-
stöðum landsins munu deildir
hans selja merki til ágóða fyrir
hina margþættu starfsemi hans.
f dag er frí í skólum bæjarins
svo sem venja er á öskudaginn.
Litlar telpur voru önnum kafnar
í gær við að sauma öskupoka og
mikil títuprjónakaup höfðu far-
ið fram.
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 10.
febr. — Fyrstu íslendingarnir
sem taka sér far með hinum
nýju hraðfleygu farþegaþotum,
fóru héðan í kvöld með Boeing
707 þotu frá PANAM, en íslend-
ingarnir eru Egill Vilhjálmsson
Iframkvæmdastjóri og frú Helga
Undanfarið hefir mikið verið
skrifað um þessi þrjú börn í blöð
um um allan heim. Þetta eru
börn Ingiríðar Bergman og
Rossellinis, tvíburasysturnar
Ingiríður og ísabella og eldri
bróðir þeirra Robertino. Þau
hjónin eiga nú í málaferlum út
BORG, Miklaholtshreppi, 30. jan.
— Það sem af er þessum vetri hef
ir verið sérstaklega snjólétt,
varla hægt að segja að snjó hafi
fest í byggð, að heitið geti. Frost
hafa verið töluverð 8—14 stig, er
því jörð alldjúpt frosin. Hey hafa
gefist töluvert, þótt snjólétt sé,
norðanátt hefir verið ríkjandi
oft mjög hvasst og frosthart og
ekki verið hægt að beita sauðfé
þess vegna. Hross eru víðast hvar
úti ennþá. Skepnuhöld hafa verið
ágæt sem af er vetri. — Töluvert
hefir verið um byggingar og rækt
unarframkvæmdir hér í sveit á sl.
ári, þrátt fyrir allverulega hækk-
un á byggingarefni. Bygginga-
framkvæmdum seinkaði nokkuð
Vilhjálmsson kona hans. Þau
fóru til New York. Þotan kom
frá París og voru með henni 107
farþegar og 11 manna áhöfn. .Er
flugvélin lagði héðan upp um
klukkan 9,30 voru því innanborðs
120 manns. Áætlaður flugtími til
New York var 5 klukkustundir
39 mínútur — B.Þ
af börnunum. Urskurðað hefir
verið, að Ingiríður skuli hafa
börnin í sinni vörzlu, þar til
dómur hefir endanlega verið
kveðinn upp í málinu. Rossellini
heldur því fram, að börnin muni
ekki verða alin upp í kaþólskum
sið, þar sem bæði Ingiríður og
eiginmaður hennar Lars Schmidt
vegna þess, hvað seint járn kom
til landsins.
Vegir hafa alltaf haldist svo að
segja auðir, og samgöngur ver-
ið í bezta lagi. Vegaframkvæmd-
ir hafa verið litlar á sl. ári, þrátt
fyrir ríflegt framlag til vega.
Félagslíf hefir verið nokkurt
sem af er vetrinum. Mikill áhugi
hefir verið fyrir skáklist, hafa
sveitir frá einstökum félögum
komið saman til taflæfinga á
Vegamótum,
Þá hafa leikfélög kamið með
leikþætti og sýnt þá að Breiða-
bliki, t.d. Ungmennafélag Stykk-
ishólms sýndi „Skyggna vinnu-
konan“. Leikfélag Akraness sýndi
„Gamla Heidelberg", Leikfélag
Ólafsvíkur sýndi „Leynimel 13“.
Áhorfendur hafa allir skemmt sér
vel á þessum leiksýningum, og
margir leikendur skilað sínum
hlutverkum af mestu prýði. Hafi
þeir allir þökk fyrir komuna og
góða skemmtun,
Heilsufari fólks hadir verið nokk
uð ábótavant nú í vetur. T.d. hér
í Miklaholtshreppi hafa veikindi
verið með meira móti. Farsóttir
hafa þó ekki borizt í sveitina,
þótt mislingar séu nýlega komnir
upp í héraðinu. Þegar þessar frétt
ir eru ritaðar, þá eru fimm bænd-
ur hér í sveit rúmliggjandi, þrír
á spítala en tveir í heimahúsum.
Nýlega er látia frú Kristín
Stefánsdóttir, kona Júlíusar Jóns-
sonar bónda í Hítaraesi.
séu mótmælendatrúar. Til þess
að vega upp á móti ákæru
Rossellinis lætur Ingiríður börn-
in vera viðstödd kaþólska messu
í þorpinu Chevreuse, sem er um
5 km leið frá Choiselukastalanum
sem er bústaður Ingiríðar og
Schmidts. Þar að auki sækja
börnin daglega ítalskan barna-
skóla í París.
Húsmæðra*
fræðslu Kron
HÚMÆÐRAFRÆÐSLA Kron
hefst 16. febr. kl. 8,30 í Sam-
bandshúsinu og er ætlunin að
átta til tíu kvöld verði að þessu
sinni.
Húsmæður í Kron kunna vel
að meta þá fræðslu og uppörvun,
sem þeim var veitt á fræðslu-
kvöldunum í fyrravetur og voru
þakklátar fyrir þetta framtak. Á
síð&sta aðalfundi Kron var Kven-
fulltrúum þar ásamt félagsstjórn
falið að halda þessu fræðslu-
starfi áfram. Kaupfélag Reykja-
víkur og nágrermis býður nú fé-
iagskonum þátttöku, sem áður
þeim að kostnaðarlausu. Ekki er
unnt að hafa fleiri þáttakendur
en 50 í sýnikennslu, og verður
því að miða þátttökuna hvert
kvöld við þá tölu.
Dagskrá verður þessi:
1. Ávarp.
2. Fyrirlestur um næringar-
efnafræði og myndræma, Olga
Ágústsdóttir.
3. Mataruppskriftir og sýni-
kennsla, Vilborg Björnsdóttir
húsmæðrakennari. Bragðað á
réttunum.
4. Kaffi.
5. Vörusýning.
Áríðandi er, að konurnar, sem
taka ætla þátt í húsmæðrakvöld
unum, láti skrá sig sem allra fyrst
í sinni hverfabúð, og, fá þær þá
jafnframt upplýsingar um hve-
nær þeirra kvöld verður.
Fyrstu íslendingarnir
fljúga með þotu vesiur
Fréttabréf úr Miklaholtshreppi:
Snjóbíll á Snœfellsnesi