Morgunblaðið - 11.02.1959, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvik’udagur 11. febr. 1959
Fyrstu módelin saumaði hún
úr afþurrkunarklútum
ÞEGAR ég var að gera alls herj-
ar hreingerningu í skrifborðinu
núna um daginn, rakst ég á
„gamalt“ blað, eða síðan 11. júní
1957, og í því var meðfylgjandi
tízkumynd.
Finnst ykkur ekki athyglisvert
að sjá hinar „nýju“ línur þarna
á myndinni, góðu ári áður en
þær komu fram í París, mittið
upp undir brjósti, vítt bak og
ballon! —
— O —
Þessir kjólar voru á sumar-
tízkusýningu hjá ítalska tízku-
teiknaranum Simonettu, sem er
einhver frægasti tízkuteiknari
Itala. Það má með sanni segja
að hún hafi hér verið dálítið á
undan sinni samtíð — eða e. t. v.
hafa Frakkarnir fengið einhverj-
ar hugmyndir frá henni.
14 model úr afþurrkunar-
klútum!
Simonetta á sér merkilega sögu
í tízkuheiminum. Á fyrstu sýn-
ingunni, sem hún hélt sýndi hún
14 módel, sem voru eingöngu
búin til úr afþurrkunarklútum og
slátrarasvuntum!! Þetta er ótrú-
legt en satt. Það gerðist rétt í
stríðslok og þá var mjög þröngt
í búi í Rómaborg, ómögulegt að
fá tízkuefni eða neitt sem þurfti
til þess að halda tízkusýningu.
— En Simonetta réðst í fyrir-
tækið — og ekki nema 24 ára
gömul var hún eigandi yngsta
tízkuhúss Ítalíu.
Mál og vog í eldhúsinu
1 VETUR hringdi til mín frú ein,
sem var í vandræðum. Hún ætl-
aði að fara að baka eitthvað af
okkar góðu kökum, en málin í
uppskriftinni voru gefin upp í dl.
og þar sem hún átti ekki dl. mál
og vissi ekki um eðlisþyngd
hinna ýmsu hluta var hún í vand
ræðum!
Það sem ég geri fastlega ráð fyr
ir að til séu fleiri húsmæður en
þessi eina, sem ekki eiga dl. mál
(sem reyndar ætti að vera til á
hverju einasta heimili) ætla ég
að birta lista yfir helztu hluti,
sem þarf að mæla í eldhúsinu og
vil ég þar með biðja háttvirtar
húsmæður að klippa þennan
lappa úr og stinga honum á vísan
stað til þess að geta haft afnot
af honum í framtíðinni
1 dl. vegur nál.
Flórsykur 65 gr.
haframjöl 40 —
heilhveiti 50 —
hrísgrjón 90 —
hveiti 50 —
kakaó — 55 —
kartöflumjöl 80 —
rúgmjöl 50 —
möndlur 65 —
púðursykur 60 —
rúsínur 65 —
1 dl. vegur nál.
sagógrjón 90 gr.
brætt smjör 100 —
strásykur 85 —
sýróp 125 —
Flest heimili ættu að geta'orðið
sér úti um dl. mál.
Málin eru ódýrari en vigtirnar
og að mörgu leyti hentugri í notk
un. En til eru í búsáhaldaverzl.
mæliglös sem hægt er að mæla í
bæði sykur og hveiti allt upp í
500 gr. og það finnst mér hand-
hægustu mælitækin. En sjálfsagt
er að eiga ofangreindan lista
(sem raunar er frá Setbergi s.f.)
og væri ekki úr vegi að birta hér
einnig hvaða skammtar af sósum
og súpum eru áætlaðir fyrir 1
mann, — það getur verið gott að
vita, ef halda á miðdegisverðar-
boð í fyrsta sinn, að fá einhverja
hugmynd um hve mikið á að búa
til af súpunni, án þess að þurfa
að vera með öndina í hálsinum
yfir því að ekki sé nóg til.
Sósur
ójafnaðar sósur dl.
jafnaðar sósur %—1 ’/adl.
Súpur
Tærar soðsúpur 214—3 dl.
Jafnaðar soðsúpur 1 >/2—2 dl.
Sætsúpur 2—214 dl.
Giftist harðasta keppinaut
sínum!
Árið 1953 giftist Simonetta
harðasta keppinaut sínum í
tízkuheiminum, teiknaranum Al-
Simonetta
berto Fabiani, — en tízkuhús
þeirra héldu áfram að vera tvö,
þótt þau ættu margt sameigin-
legt eftir sameiningu eigend-
anna.:
Simonetta þykir vera mjög
ákveðin í tízkulínu sinni. Hún
er mjög vandvirk og lætur ekk-
ert verk frá sér fara fyrr en hún
er 100% ánægð með það, efnið,
litina, — allt valið af hinum hár-
fína og nákvæma smekk hennar.
Og sem sagt, Árið 1957 sýndi
hún kjólana á meðfylgjandi
mynd á sumarsýningu sinni!
... . sú kona sem getur tekið á
móti manninum sínum með
„krullupinna" í hárinu og með
nefið atað í kremi, ber annað
hvort ekkert skynbragð á karl-
menn eða er — mjög hugrökk ..
.... sá maður sem kemur óvænt
heim með blóm, tekur óvænt upp
flösku af vím eða þá verður
óvænt bálvondur, þarf ekki að
kvíða því að konan hlaupi frá
honum. Konur bíða og vonast
eftir hinu óvænta....
Verðlaunakökur vinsœlar
vestanhafs — Viljið
þér reyna ?
VESTANHAFS er það mjög tíðk-
að að hafa alls kyns verðlaúna-
samkeppnir og eru það fyrirtæki
sem efna til þeirra í auglýsinga-
skyni fyrir vöru sina. Meðal vin-
sælustu keppnanna eru „köku
keppnir", sem framleiðendur
Pillsbury hveitisins efna að jafn
aði til. Eru veitt geysimikil verð-
láun fyrir beztu kökurnar. 50
þús. dollarar eru hæstu verðlaun
in. — Hér fara á eftir nokkrar
verðlaunakökur og eru verðlaun
in fyrir hverja köku tilgreind
með uppskriftinni.
25 þús. dollara verðlaun —
Appelsínukaka
Rífið niður 1 stóra appelsínu,
bæði kjötið og börkinn (geymið
safann þar til síðar) 1 bolla af
stéinalausum rúsínum og 14 bolla
af hnetum. — Sigtið því næst sam
an 2 bolla af hveiti, 1 teskeið af
sóda, 1 tsk. af salti og 1 bolla
af sykri. Blandið saman við þetta
14 bolla af mjólk. Hrærið deigið
síðan þar til það er orðið vel
blandað saman og bætið þá út í
það 2 eggjum og 14 bolla af
mjólk. Því næst er deigið hrært
aftur vel, þá er appelsínunni, rús
ínunum og hnetunum blandað
saman við. — Kakan er bökuð í
vel smurðu ferköntuðu frekar
grunnu formi, við fremur vægan
hita í 40—50 mínútur.
Ofan á hana kemur:
Hellið 14 bolla af appelsínu
safa yfir kökuna á meðan hún
er heit. Blandið saman 14 bolla
af sykri, 1 tsk. kanel og 14 bolla
af söxuðum hnetukjörnum og
stráið þessu yfir kökuna. Hana
má síðan skreyta með sneiðum úr
appelsínu ef vill.
sóda og 14 tsk. salt. Hrærið vel
% bolla af smjörl. og 1 bolla af
sykri, og 2 egg, 2 matsk. af mjólk
og 1 tsk. af vanillu. — Nú er
hveitinu blandað saman við, og
hrært vel í.
Þá er bætt út í það 1 bolla af
hökkuðum döðlum, 14 bolla af
hökkuðum kirsuberjum og deig-
ið er hrært vel.
Nú eru búnar til litlar kúlur,
1 matsk. í hverja. Myljið nú 214
bolla af „kornflakes". Veltið
hverri kúlu upp úr þessu raspi.
Látið þær síðan á vel smurða
plötu og látið bita úr kirsuberi
ofan á hverja köku. Bakast í 10—
12 mín. við frekar vægan hita. —
Mjög nauðsynlegt er að láta kök-
urnar kólna vel áður en þær eru
látnar í kassann.
1 þús. dollara verðlaun
Brúnkökur
með piparmyntukremi
Sigtið vel saman % bolla af
hveiti, 114 tsk. af lyftidufti 14 tsk.
salt. Hrærið vel 14 bolla af
smjörl. og 1 bolla af sykri, bætið
tveimur eggjum út í ásamt 3
matsk. af kókói og 1 tsk. vanillu.
Þá er hveitinu blandað saman
við ásamt 14 bolla ag söxuðum
hnetum. Hrært vel og síðan er
deiginu hellt í vel smurt form,
sem hveiti hefur verið stráð inn
í, bezt að hafa það ferkantað ca.
10—15 cm. djúpt. — Bakast við
frekar vægan hita.
Kirsuberjasmákökur
— 5 þús. dollara verðlaun
Sigtið vel saman 214 bolla af
hveiti, 3 tsk. lyftiduft. 14 tsk.
Flestir ímynda sér að kjólarnir
frá stóru tízkuhúsunum í Paris
séu óskaplega íburðarmiklir og
fínir. En þessi ullarkjóll frá
þeim getur varla verið einfaid-
ari og látlausari. Hálsmálið er
rúnnað, stórir vasar setja sinn
svip á hann — og við hátíðlegri
tækifæri má hafa við hann
satínbelti með slaufu.
Fyrir fáum ároim var alit í einu
farið að nota litað geitarskinn
í sportfrakka, jakka og dragtir.
Skinnið er þunnt, mjúkt og það
má þvo það, svo þetta er ákaf-
lega hentugt efni í utanyfir-
flíkur á ungar stúlkur. Hér er
hárauð dragt úr geitarskinni.
Jakkinn er víður í bakið, en að
framan ber hann greinilega
svip empire-stílsins.
.... væri það ekki heillaráð ef
lyfsalarnir skildu eftir rúm á
seðlinum, sem límdur er utan á
meðalaglös og flöskur, til þess
að við húsmæðurnar gætum skrif
að þar til hvers meðalið skal
notast. Við erum ekki svo vel að
okkur í latínunni og heldur ekki
svo minnisgóðar að muna hvað
er við hverju....