Morgunblaðið - 11.02.1959, Síða 13
Miðvikudagur 11. febr. 1959
MORGUNBLAÐIÐ
13
Vilhjálmur
laugsson
Minningarorð
í dag þér.
Á morgun mér.
VILHJÁLMUR Jón Gunnlaugs-
son Snædal bar nöfn afa sinna
beggja, Vilhjálms Oddsen alþm.
í Teigi og Jóns (eldra) Jónsson-
ar bónda á Eiríksstöðum. —
Hann var fæddur á Eiríksstöðum
18. júlí 1883.
Óvænt barst mér andlátsfregn
hans 2. þ.m., vissi engar líkur til
að það bæri svo fljótt að höndum.
f huga mínum var aðeins það,
hvenær við fengjum tækifæri til
að hittast á heimili annars hvors
okkar. Það var gömul og ný venja
okkar að sækja hvor annan
heim og rækja löng og góð kynni
með frændsemi og vináttu.
Þá vorum við í uppvexti innan
fermingaraldurs, þegar við vegna
frændsemi fengum fyrst að gjöra
heimsóknir á sumrum hvor til
annars. Við vorum þrímenningar
af Möðrudalsætt. Á beggja hugar
sjóði var Möðrudalur óðal okkar
þótt ekki væri framtalsskylt á
tíundarvísu. Á milli heimila okk-
ar var Fljótsdalsheiði og Jökulsá
á Dal, auk nokkurra bæjarleiða
innsveitis í Fljótsdal. En ekki var
það látið standa í vegi. Yfir heið-
ina voru farnar hinar fornkunnu
Bessagötur — alfaraleið þangað
til brú var byggð á Jökulsá hjá
Hákonarstöðum — og yfir Jök-
ulsá á Kláffergju skammt frá bæ
á Eiríksstöðum. Þessi fyrstu
kynni voru alla tíð verðmæti í
hugarsjóði okkar beggja.
Brátt eftir fermingu fór Vil-
hjálmur til náms á Flensborgar-
skólann einn vetur, og annan
vetur var hann við nám í Reykja-
vík.
Síðar, þau ár sem við bjuggum
búum okkar sinn hvoru megin
Fljótsdalsheiðar, hann á Eiríks-
stöðum (1908—10 og 1916—21),
ég í Hamborg, endurnýjuðum við
kynni okkar árlega. Og allt til
1935 mun vart hafa liðið svo
nokkurt ár að við hittumst ekki.
Eftir að Vilhjálmur fluttist til
Reykjavíkur (1946) höfum við
rækt frændsemi og fyrri kynni
með heimsóknum hvor til annars.
Vilhjálmur kvæntist 6. sept.
1908 eftirlifandi konu sinni, Elínu
Pétursdóttur Maack og öðlaðist
þar með mesta verðmæti og gæfu
lífs síns. Hófu þau þá búskap á
Eiríksstöðum móti móður hans,
Steinunni Vilhjálmsdóttur og Ein
ari Eiríkssyni siðari manni henn-
ar. Tveimur árum síðar fluttu
þau búskap sinn að Hofteigi og
þaðan aftur í Eiríksstaði eftir sex
ár. Þar bjuggu þau síðan í sam-
býli við ýmsa vandamenn til þess
er þau árið ’46 fluttust til Reykja-
víkur. Alls bjuggu þau 38 ár við
góð búþrif og ágætan orðstír.
Eiríksstaðir eru svo mikil og góð
bújörð, að þar þreifst vel búskap-
ur, þótt í tvíbýli væri eða þrí-
býli.
Heimili Elínar og Vilhjálms
var orðlagt fyrir gestrisni og fyr-
irbeina, veittan af alúð og rausn.
Vilhjálmur var að persónuleik
minnisstæður maður, vel að öllu
Jón Gunn-
Snædal
Hans Angstmann, matreiðslumaður í Central-Hotel í Zurich,
sem sýndi mikið snarræði og kjark við handtöku morðingjans,
fékk 1000 franka viðurkenningu fyrir afrek sitt frá borgar-
stjórn Ziirich.
gerður, þaulgreindur, lesínn,
minnugur og fróður. Hann var
geðspakur maður jafnhugaður og
þreklundaður. glaðvær, málglað-
ur, máldjarfur og hispurslaus í
fari og framkomu. Skoðanir hans
voru grundaðar af íhygli og
skarpri greind. Mál sitt sótti
hann og varði með spekt, lét
ógjarnan undan síga og varð
aldrei orðvant. Hispursleysi hans
og djarfmæli var svo samgróið
persónuleik hans og framkomu
allri, að engum kom til hugar að
fyrtast við.
Með Vilhjálmi Snædal er hnig-
inn til foldar drengur góður og fá
gætur persónuleiki, sem allir
mega sakna, sem kynnzt hafa, og
þeir mest, sem þekktu hann bezt.
, Halldór Stefánsson.
Finnakeppni
í badminton
stendur yfir
FIRMAKEPPNI TBR hófst síð-
astliðinn laugardag. Að þessu
sinni tóku þátt í keppninni 98
fyrirtæki. Keppnin er forgjafar-
keppni, þannig að. allir þátttak-
endur hafa jafna möguleika til
að sigra. Keppt er um farand-
bikar, gefinn af Leðurverzlun
Magnúsar Víglundssonar hf., en
auk þess fá þau tvö fyrirtæki,
sem keppa til úrslita bikar til
eignar. í dag fara fram úrslita-
leikirnir í íþróttahúsi Vals við
Hlíðarenda og hefst keppnin kl.
3. —^ Eftirtalin þrettán fyriræki
keppa til úrslita:
Fyrirtæki og keppendur
Verðandi hf., Haukur Gunnars-
son og Sigurgeir Jónsson.
Kristján Siggeirsson hf., Davíð
Sch. Thorsteinsson og Vagn
Ottoson.
Guðmundur B. Sveinbjörnsson,
Þórir Jónsson og Albert Guð-
mundsson.
Leðuriðja Stefáns Ólafssonar,
Karl Maack og Júlíanna íse-
barn. .
Rammagerðin, Kristján Benja-
mínsson og Einar Jónsson.
Bókfell hf., Halldóra Thoroddsen
og Lárus Guðmundsson.
Heildverzl. Alberts Guðmunds-
sonar, Páll Andrésson og Jón-
ína Nieliníusdóttir.
Vefarinn hf., Guðlaugur Þorvalds
son og Pétur Nikulásson.
Gamla kompaníið hf., Sigríður
Guðmundsdóttir og Hulda Guð
mundsdóttir.
Olíufélagið hf., Þorvaldur Ás-
geirsson og Rafn Viggósson.
Samvinnutryggingar, Finnbjörn
Þorvaldsson og Árni Ferdin-
antsson.
Ljósmyndastofan Loftur hf., Ósk-
ar Guðmundsson og Gunnar
Petersen.
Kristján G. Gíslason hf., Jón Jó-
hannesson og Leifur Miiller.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 10
Hog, voru einir í bankanum, þeg-
ar atburðurinn gerðist. — Gjald-
kerinn skellti peningakassanum í
lás, þegar Hume ógnaði honum
með skammbyssu. En ræninginn
hafði engar vöflur á, heldur
skaut gjaldkerann og særði hann
hættulegu sári. 1 sömu svifum
kastaði Hog pappírskörfu að
glæpamanninum, og féll hún yfir
höfuð honum. Hume tókst þó
jafnskjótt að losa sig við körf-
una og sló þá bankamanninn nið-
ur með byssuskeftinu. — En nú
var aðvörunarkerfi bankans kom
ið í gang. Mun Hume hafa orðið
skelfdur af hávaðanum og tekið
til fótanna. — Hog gamli hljóp á
eftir honum út á götuna og hróp-
aði á hjálp. Þar bar þá að bíl-
stjóra nokkurn, sem reyndi þeg-
ar að ná ræningjanum — en
Hume skaut hann til bana um-
svifalaust.
Næst miðaði hann býssu sinni
að Hans nokkrum Angstmann,
35 ára gömlum matreiðslumanni,
sem einnig var á hælum hans —
en nú hljóp skotið ekki úr byss-
unni. Eftir skamma stund hafði
Angstmann dregið morðingjann
uppi á hlaupunum og náð taki á
honum. Með hjálp fleiri manna,
sem þustu að, tókst honum að
afvopna Hume, sem gafst þá upp
fyrir ofureflinu. — Sennilegt er,
að margir hefðu legið í valnum
áður en Hume næðist, ef ekki
hefði viljað svo vel til, að byssa
hans „klikkaði" — því að tíu
skot voru enn eftir í henni.
Hugrekki það og snarræði,
sem hinn látni bílstjóri og mat-
reiðslumaðurinn sýndu, hefur
vakið aðdáun manna. Angstmann
var heiðraður sérstaklega í ráð-
húsi borgarinnar. Var honum þar
afhent 1000 franka viðurkenning
fyrir afrek sitt. Jafnframt greiddi
borgarstjórnin ekkju bílstjórans
50 þúsund franka bætur.
Dýrsleg grinimd
Hin dýrslega grimmd, sem
Donald Hume hefur sýnt í ráns-
ferðum sínum, nú síðast við
bankaránið í Zurich, kemur ekki
á óvart, þegar fyrsta morð hans
er haft í huga.
Eins og fyrr segir, var Hume
orrustuflugmaður í brezka flug-
hernum í síðustu styrjöld. Hann
kvað hafa verið góður hermaður,
gefinn fyrir æsilega atburði —
og sat sig því ekki úr færi að
vera þar með, sem átökin voru
hörðust. Sagt er og, að hann sé
góðum gáfum gæddur — og hafi
gengið mjög í augun á veika
kyninu.
Skömmu eftir stríðslok hafði
hann komið á fót sjálfstæðu fyr-
irtæki, en það fór fljótlega út um
þúfur. Þá tók hann að starfa
fyrir alræmdan svartamarkaðs-
braskara og bílasala í London,
Stanley Setty. — Starf Humes
var einkum í því fólgið að stela
bílum fyrir Setty.
En brátt tók vinnuveitandinn
að gera hosur sínar grænar fyrir
konu hans, Cynthiu. — Og dag
nokkurn sparkaði hann óþyrmi-
lega í hundinn Tony, sem var
yndi og eftirlæti Hume. Þá var
mælirinn fullur. Það var sem
berserksgangur rynni á Hume —
og hann stakk vinnuveitanda
sinn til bana með hníf. Síðan
limaði hann líkið sundur í fjóra
parta, bjó vandlega um þá í þykk
um umbúðapappír og ók með
þá til einkaflugvallar í nágrenn-
inu, þar sem hann fékk leigða
litla flugvél. Flaug hann síðan
með hinn óhugnanlega farm sinn
til hafs og varpaði pökkunum
fjórum í sjóinn.
En hann hafði ekki flogið nógu
langt frá landi. Fiskimaður
nokkur fékk einn af pökkunum
á öngulinn. — Þá kom Scotland
Yard til sögunnar, og eftir um-
fangsmikla leit * fundust hiniv
hlutar líksins í Romneyfenjun-
um, en þangað hafði þá rekið
fyrir straumi.
Aðeins dæmður meðsekur
Grunur féll þegar á Hume, og
var hann handtekinn. En mála-
ferlin gegn honum urðu að ýmsu
leiti hálfskopleg. Hann lék á til-
finningar áheyrenda, og vann sér
nokkra samúð, þar sem hinn
myrti hafði reynt að fleka konu
hans. Cynthia var Hume hin
styrkasta stoð með vitnisburðí
sínum. Hún hélt ákveðið fram
sakleysi hans og hughreysti
hann með öllum mögulegum ráð-
um. Og áheyrendur í réttarsaln-
um gátu ekki annað en dáðst að
óbilandi baráttuþreki hennar.
Hume varð að lokum að játa,
að hann hefði varpað hinu sund-
urlimaða líki í sjóinn, en hélt
fast við þann vitnisburð, að hann
hefði verið leigður til verknaðar-
ins — af hinum raunverulegu
morðingjum. Og ákæruvaldið
gat ekki hnekkt því. Hann var
því aðeins dæmdur sem meðsek-
ur um morð — til 12 ára fanga-
vistar.
★ ★ ★
En hann var látinn laus að
átta árum liðnum, sakir góðrar
hegðunar í fangelsinu — og þá
birti hann fyrrgreindan greina-
flokk, þar sem hann sagði frá því
í smáatriðum, hvernig hann
hefði myrt vinnuveitanda sinn,
Setty. — Samúðin sem Hume
hafði áunnið sér við réttarhöldin
átta árum áður, vék nú fyrir
almennri fyrirlitningu og hryll-
ingi. En hins vegar lifði hann
um skeið í vellystingum praktug-
lega fyrir hin ríkulegu ritlaun,
sem Sunday Pictorial hafði greitt
honum.
Scotland Yard mun hafa séð
fyrir, hvað verða vildi — en lög-
um samkvæmt var ekki hægt að
skerða hár á höfði hins forherta
morðingja.
ISýkomnir ýmsir hlutir fyrír
VOLKSWAGEIS
Hillur undir mælaborð
Hillur aftan við aftursæti
Benzinmælar, margar gcrðir
Vacuumnmælar
Stundaklukkur
Flautuhringar
Flautur (lúðrar)
Aurhlífar, ný gerð
Brettahlífar, aftan og fram-
an
Felguhringir
Rúðuþveglar, rafknúnir og
venjulegir
Gólfmottur, ýmsar gerðir og
litir
HHfar á stuðarajárn
Krómlistar á þakrennur
Lásar a gírstöng og stýri, sem
útiloka að bílnum verði
stolið
Nýjasta gerð stefnuljósa
(Blossaljós)
Vindlakveikjarar
Krómhlífar undir hurðar-
Ihandföng
Aukasólhlífar, inni
Farangursgrindur
Benzínbrúsar
P. STEFÁANSSON h.f.
Hverfisgötu 103
RAGNAR JÓNSSON
hæstaréttarlögmaður.
Laugavegi 8. — Sími 17752.
Lögfræðistörf. — Eignaumsýsla
I
Við sendum menn heim til yðar eða í fyrirtæki yðar, ef þér óskið, tii að aðstoða
yður með allt, sem tryggja þarf. Reynið þjónustu vora — Iægstu og beztu kjör.
Sími 1-54-34 — 1-64-34.