Morgunblaðið - 11.02.1959, Side 18
MORGUWBLAÐ1Ð
Miðvikudagur 11. febr. 1959
Fimmfi landsleikur íslands i handknattleik karla
Noregur vann ísland 27:20
Islenzka liöið var lengi oð átta sig á
breyttri vallarstærd
OSLÓ, 10. febrúar. — Annar
landsleikur íslands og Noregs
í handknattleik var leikinn í
Nordstrandhallen í Osló
kvöld. Fóru svo leikar að
Noregur fór með sigur af
hólmi, skoraði 27 mörk gegn
20 mörkum íslendinga. I hið
fyrra sinn er löndin mættust
vann Noregur einnig, þá með
25 gegn 22. Það var árið 1958.
★
Norðmenn náðu fljótt undirtök-
unum í leiknum og við lok fyrri
hálfleiks stóð 14 mörk gegn 7.
Þetta forskot tókst Norðmönn-
um ekki að auka og lauk leikn-
um sem fyrr segir með 7 marka
sigri Norðmanna.
★
Fréttaritari norsku fréttastof-
Unnar NTB segir að það sem at-
hyglisverðast hafi verið í leikn-
um hafi verið hvað isL liðið
sótti sig eftir því sem á leikinn
leið. Hann segir að leikurinn
hafi verið góður og vel leikinn.
Sýndu bæði lið tilbrigðaríkan
sóknarleik og hraði var mjög
mikill í leiknum á köflum. Allt
þetta skapaði mikla stemmingu
meðal 700 áhorfenda er leikinn
sáu.
★
Sami fréttamaður segir að
beztu leikmenn Noregs hafi ver-
ið bakverðirnir Yssen og Knut
Larsen en þeir skoruðu sá fyrr-
nefndi 6 og síðarnefndi 4 mörk,
Knut Ström var bezti framherji
norska liðsins.
★
Fréttamaðurinn segir svo um
fslenzka liðið.
Ragnar Jónsson skoraði flest
marka fslendinga 7 talsins en
næstur kom Gunnlaugur Hjálm-
arsson með 6 mörk. önnur mörk
leiksins skoruðu, segir fréttamað
urinn, Einar Sigurðsson 4, Pétur
Sigurðsson, Hörður Felixsson og
Hermann Samúelsson 1 hver.
★
Fyrir Noreg skoruðu auk fyrr-
nefndra manna Erik Velland 4,
Kjell Svestad 3, Jan Flatla 2,
Erik Standsten 2, Jon Naavestad
og Odd Nilsen 1 hvor.
★
Lengra er ekki skeyti frétta-
stofunnar um leikinn. En af þessu
má ráða að það hafi tekið fs-
lendingana nokkra stund að
átta sig á breyttum staðháttum
fár hinu lélega húsnæði okkar á
Hálogalandi til hinnar ágætu
handknattleikshallar Norðmanna.
En síðan hafi þeir staðið hinu
norska liði fyllilega á sporði. Það
út af fyrir sig er ánægjuleg stað-
reynd og gefur vonir um að ekki
fari allt of illa móti Dönum og
Svíum þó nú megi fullyrða að
mótherjar fslendinga verði sterk-
ari.
Næsti leikur íslendinga verður
á fimmtudaginn og fer fram í
Slagelse gegn sterkasta landsliði
sem Danir eiga í handknattleik
— og er þá mikið sagt, því
Danir eru meðal allra fremstu
handknattleiksmanna heims og
þetta lið þeirra vann nýlega
Svía, heimsmeistara með nokkr-
um mun.
-9
Ágústa Þorsteinsdóttir
Sundmót Ægis í kvöld
SUNDMÓT Ægis fer fram í
Sundhöllinni í kvöld og hefst
keppnin kl. 8,30. Á mótinu
keppa sundmenn og konur
frá 7 sundfélögum og banda-
lögum, en keppnisgreinar eru
11 talsins.
Jónas Halldórsson í hinni nýju baðstofu sinni. —
Finnsk baðstofa opnuð
JÓNAS Halldórsson, íþróttakenn-
ari, hefur nú opnað mjög vistlega
baðstofu á Kvisthaga 29. Ætlar
Jónas að starfrækja þar finnsk
böð fyrir karlmenn, en þessi böð
eru mjög vinsæl erlendis og heilsu
samleg.
★
Þetta er ekki gufubaðstofa.
Armann 70 ára
Handknatlleihsmót onnað hvöid
HANDKNATTLEIKSFLOKKAR
Ármanns keppa í 7 flokkum
næstkomandi fimmtudagskvöld
kl. 8.15 í íþróttahúsinu við Há-
logaland, við flokka frá Kefla-
vík, F. H. og Haukum Hafnar-
firði í tilefni af 70 ára afmæli
félagsins.
í meistaraflokki karla keppa
Ármenningar við F. H., 1. fl.
karla úr Ármanni keppir við
meistarafl. Keflvíkinga, í II. fl.
karla keppir Ármann við F. H.
í III. fl. karla Ármann — Haukar
Og í IV. fl. karla Ármann — F.H.
Meistaraflokkur kvenna úr
Ármanni keppir við stúlkurnar
frá Keflavík og í II. fl. k^enna
keppir Ármann — F. H.
í flestum keppnum þessara 7 fl.
er um mjög spennandi og tvísýn
úrslit að ræða, sérstaklega í II. fl.
kvenna og II. og III. fl. karla,
ennfremur mun margur hafa gam
an af að sjá IV. fl. frá þessum
þekktu handknattleiksfélögum
F. H. og Ármanni, því vafalaust
er í þeim liðum margur góður
efniviður.
Að lokum skal þess getið, að
allir þeir sem sækja þetta afmæl-
ismót munu taka þátt í „happ-
drætti“, sem dregið verður í um
kvöldið, þegar síðasti leikur
keppninnar hefst. Vinningurinn
er eftirprentun af hinu gull-
fallega málverki Kjarvals „Það
er gaman að lifa“, sem Helgafell
hefir gefið út.
Loftið í baðklefanum er hins
vegar mun heitara en í gufubaði,
allt að 75 stig, enda er rakinn
miklu minni.
Reiknar Jónas méð því, að geta
haft 10 menn í baðinu í einu,
þægilegir legubekkir eru fyrir
hendi til hvíldar að baðinu loknu,
en nudd verður sérstaklega að
panta fyrirfram — og það munu
allir fá sem vilja að afloknu
baði.
Undir venjulegum kringum-
stæðum mun taka eina og hálfa
klukkustund að fara í finnska
baðið hjá Jónasi — og ætlar hann
að hafa opið frá kl. 2—9 daglega,
nema laugardaga, þá frá 9—9 e.h.
Metinerki úr gulli
SVO var skýrt frá á dögunum, að
Guðmundur Gíslason vann til
metmerkis ÍSÍ úr gulli annað ár-
ið í röð fyrir að setja 10 íslands-
met. Var þá sagt að enginn annar
hefði unni ðslíkt afrek. Það er
rangt. Hið sama afrek vann
Ágústa Þorsteinsdóttir Á.
Meðal keppnisgreinanna eru t.
d. 200 m skriðsund karla, 50 m
baksund karla og 50 m skriðsund
karla, þar sem Guðmundur Gísla-
son ÍR er meðal keppenda. Má
ætla honum sigur í öllum grein-
unum, en ýmsir aðrir eru þó
harðir á sprettinum.
Þá keppir Ágústa Þorsteins-
dóttir í 100 m skriðsundi, en met
hennar þar sett á sl. ári, er
eitt af beztu afrekum, sem þá
unnust á Norðurlöndum.
Þá má búast við sérstaklega
tvísýnni keppni í 100 m bringu-
sundi kvenna milli Hrafnhildar
Guðmundsdóttur ÍR, sem er met-
hafi og Sigrúnar Sigurðardóttur,
Hafnarfirði. — Síðast en ekki sízt
af einstaklingssundunum skal
nefna 200 m bringusund karla,
en í þeirri grein hafa margir
barizt um sigur á undanförnum
mótum, og eru þeir enn allir
meðal keppenda.
Lokagrein mótsins er spenn-
andi boðsundskeppni í 4x50 m.
skriðsunci, þar sem sveitir Akra-
ness, Ármanns og Ægis reyna
með sér.
Um 200 imglingar
við tómstundaiðju
í Hvcragerði
SUNNUDAGINN 4. janúar 1959
var Æskulýðsráð Hveragerðis
stofnað með samtökum nokkurr
félaga og annarra aðila.Aðalhvata
menn að stofnun Æskulýðsráðsins
voru Oddgeir Ottesen oddviti og
Valgarð Runólfsson, skólastjóri.
Stofnendur eru fulltrúar frá ung-
mennafélaginu, skátafélaginu,
taflfélaginu, kvenfélaginu, leik-
félaginu, áfengisvarnarnefnd,
barnaverndarnefd, barna- og mið
skólanum og hreppsnefndinni.
Tilgangur Æskulýðsráðsins er
að koma á tómstundaiðju meðal
barna og unglinga í Hveragerði.
Kvikmyndaklúbbur, frímerkja
klúbbur og skákklúbbur hafa þeg
ar hafið starfsemi sína. Einnig-
verður tekin upp danskennsla á
vegum Æskulýðsráðsins. Hefst
hún um miiðjan mánuð, en dans
kennarar verða hjónin Sigríður
og Paul Michelsen.
Þeir Paul Michelsen, garðyrkju
maður og Þorsteinn Kristjánsson
verzlunarmaður verða aðalleið-
beinendur í frímerkjaklúbbnum.
Ákveðið er, að Jón Pálsson, starfs
maður Æskulýðsráðs Reykjavík-
ur, heimsæki frímerkjaklúbbinn
mjög bráðlega.
Félagar í taflfélaginu munu sjá
um fundj skákklúbbsins. Mun
Axel Magnússon, kennari við
Garðyrkjuskólann á Reykjum,
verða þar aðalleiðbeinandinn, en
hann er formaður taflfélagsins
hér og einhver færasti skákmaður
austanfjalls.
Aðsókn að klúbbum Æskulýðs-
ráðsins varð strax .jög mikil og
eru þegar skráðir um 200 þátt-
takendur.
Formaður Æskulýðsráðsins er
Snorri Tryggvason, garðyrkju*
maður, varaformaður Hjörtuí
Jóhannsson, íþróttakennari, en
framkvæmdastjóri Valgarð Run-
ólfsson, skólastjóri.
Fréttabrét úr Holtum
Mykjunesi, 9. febr.
U M hálfsmánaðarskeið hefur
verið ríkjandi hér suðlæg átt og
þíðviðri. Allmikil rigning með
köflum og nokkuð stormasamt.
Eftir hin miklu frost í desember
og janúar var kominn allmikill
klaki í jörðu og veldur nú því að
mikil aurbleyta er komin á suma
vegi og lítur helzt út fyrir að
sums staðar verði ófært innan
tíðar. Snjór hefur aldrei fallið
hér í vetur svo teljandi sé og
hafa jafnan verið hagar fyrir fé
og hross, þegar óveður eða frost-
hörkur hafa ekki hamlað ástöðu.
Mislingar hafa stungið sér nið-
ur hér í héraðinu í vetur af og
til en ekki breiðzt neitt út og
mun heilsufar hafa verið yfirleitt
gott.
Fátt er nú yfirleitt um fólk á
bæjum og fullhlaðið störfum við
búskapinn, það sem heima er.
Af er nú samt sem áður var,
að menn fari til sjós á vertíð-
inni, heldur er það vegna skól-
anna og svo annarra starfa, sem
fólki fækkar hér í sveit á vetr-
um. Má segja að teflt sé víðast
á tæpasta vað og tæplega að
nokkurn mann megi lama af til
að ekki skapist hálfgert vand-
ræðaástand. Er þetta vissulega
alvörumál, en búskapurinn er nú
ekki arðvænlegri en það að hann
ber ekki neitt fólkshald umfram
brýnustu þarfir, þó að sumir
framámenn í landbúnaðinum
telji að bændur eigi að byggja
tugmilljóna -höll í Reykjavík,
sem enginn virðist í raun og veru
vita til hvers á að nota nema
að mjög litlu leyti. En það má
þó segja bændunum til hróss, að
óskin um þennan skýjaklúf er
ekki frá þeim sjálfum komin,
heldur hljóta að vera þar ein-
hver önnur og líttskiljanleg öfl
að verki.
Síða., áratuginn hefur sú
breyting orðið á búskaparháttum
hér um sveitir að hrossum hef-
ur mjög víða fækkað og óvíða
munu nú vera hestar á gjöf, sem
kallað er. í stað þess sem áður
var að menn tóku alda gæðinga
og þeystu á þeim ef eitthvað
skyldi bregða sér, ræsa menn
nú bílinn eða þá dráttarvélina
ef halda skal úr hlaði. Hér skal
enginn dómur lagður á þessa
breytingu, en ekki má þó hest-
urinn með öllu hverfa úr vitund
þjóðarinnar, því í meira en þús-
und úr þjónaði hann manninum
og þjónaði honum vel.
Og þá eru verðlækkanir stjórn-
arvaldanna að koma til fram-
kvæmda. Of fljótt er ennþá að
segja um hvernig það verkar
gagnvart landbúnaðinum, til
þess gefst tækifæri innan tíðar.
Og svo að lokum ein spurning:
Hvernig er með þjónustu þess
opinbera, eins og t. d. gjöld til
pósts og síma, eiga þau ekki að
lækka líka?
M. G.
Georg Sanders
kvænist
MADRID, 10. febr. (Reuter). —
Georg Sanders kvikmyndaleikari
kvæntist í dag Benitu Hume,
ekkju kvikmyndaleikarans Ron-
alds Colman. Giftingarathöfnin
fór fram í brezku ræðismanns-
skrifstofunni í Madrid. Brúð-
hjónin eru bæði 52 ára. George
Sanders er nú að leika í kvik-
myndinni „Salmon og drottningin
af Saba“ ásamt þeim Yul Brynner
og Gínu Lollobrigídu. Sanders
var síðast kvæntur kvikmynda-
leikkonunni Zsa Zsa Gabor, en
þau skildu 1954. Ronald Colman
fyrri maður brúðarinnar lézt í
maí sl.