Morgunblaðið - 11.02.1959, Page 19
Miðvikudagur 11. febr. 1959
MORGUNBLAÐIÐ
19
Dr. Stephen C. Neill biskup ilyt-
ur iyrirlestur í Húskólunum
DR. STHEPHEN C. Neili, biskup,
flytur tvo opinbera fyrirlestra á
vegum Guðfræðideildar Háskól-
ans á morgun, fimmtudaginn 12.
þ.m. Hann er mjög ffamarlega í
kirkjulegu alþjóðasamstarfi og
kunnur rithöfundur og fyrirlesari.
Fyrir nokkrum árum kom hann
sem snöggvast hingað til lands
og eru ýmsir hér kunnugir hon-
um síðan. Hann er góður vinur
fslands.
Fyrirlestra sína flytur hann í
5. kennslustofu Háskólans. Fjall*
ar annar um boðun kristinnar
trúar (The Preaching of the
Gospel in the Modern World),
hinn um kristna einingarstarf-
semi og þróun hennar á næst-
liðnum árum (Recent Develop-
ments in the Movement for
Christian Unity).
Fyrri fyrirlesturinn verðuar
fluttur kl. 10,15 árdegis, hinn oí5-
ari kl. 11,15 og er öllum heimi-H
að sækja þá
I»að slys varð nýlega í borginni Milanó á Norður-ítalíu, að strætisvagn rakst á sporvagn og
klemmdist milii hans og húsveggjar með þeim afleiðingum, sem myndin sýnir. Vagnstjórarnir
sáu lítið út vegna dimmrar þoku. Sex manns í strætisvagninum létu lífið en tveir slösuðust.
Um viðkomustaði og
gjaldskipíi sérleyfisbíia
FYRIR nýárið var óvenjumikil
sig illa vegna hálku. Hjá mér,
hálka á vegum í Reykjavík og
nágrenni og bar gangandi fólk
sem þetta skrifa, voru staddir
eitt kveldið milli jóla og nýárs,
þrír gestir, sem þurftu að kom-
ast til Suðurnesja og ákváðu að
fara með 5 ferð þetta kveld. Eftir
ósk þeirra hringdi ég í síma 11585,
sem er afgreiðsla sérleyfisbif-
reiða í Hafnarstræti 7 og mæltist
til að teknir yrðu þrír farþegar
á vegkantinum austan við Foss-
vogsbúðina. Afgreiðslumaður,
sem svaraði I símann tók mála-
leitan minni neitandi, en gaf mér
samband við bílstjórann sem var
í þann veginn að hefja ferð sína.
Hann neitaði þessu einnig og
benti mér á að ferðalangarnir
gætu farið upp á Kópavogsháls-
inn og verið þar í vegi fyrir áætl-
unarbílnum, því þar væri lög-
legur viðkomustaður bílanna en
ekki hjá Fossvogsbúðinni. Eg
reyndi að benda bílstjóranum á,
að farþegarnir væru með beiðni
þessari að losna við hálkuna
upp á hálsinn. — „Sama er fyr-
ir okkur“, var svarið. Svona fór
með landferð þessa, að fólkið
varð að fá sér bíl upp á hlásinn
i veg fyrir sérleyfisbílinn.
Að óhugsuðu máli sárnaði mér
þetta og skoðaði það sem beina
ógreiðasemi, þar sem um svo
marga farþega var að ræða og
líka hitt, að mér hefir svo virzt,
sem þessir sérleyfisbílar hafi tek-
ið fólk hér og þar á vegköntun-
um án þess það séu beint lög-
boðnir viðkomustaðir. Eg tek t. d.
Miklubraut og Þóroddstaði, sem
er örstutt á milli og marga fleiri
staði mætti nefna. Enda ofur
eðlilegt vegna atvinnunnar að
sækjast eftir farþegum en slá
þeim ekki frá sér. Eftir viðtalið
við bilstjórann fór ég að velta
því fyrir mér hvort virkilega að
sérleyfisbílarnir væru svo aum-
lega útbúnir að þeir gætu ekki
stanzað nema á láréttu landi ef
hálka er? — Nei, slíku trúi ég
ekki. Eða hvernig fara Kópavogs-
og Hafnarfjarðarbílarnir að
stanza hér á þessum umrædda
stað á öllum tíma dagsins? Eg er
enginn bílstjóri og get vel viður-
kennt að ég hef litla þekkingu
á umferðarmálunum. Eg veit að-
eins það, -að hér á þessum stað
eru krossgöng og miskunnarlaus
umferð oft úr öllum áttum og
má það vel vera ástæðan fyrir
því að bílstjórar vilji ekki stanza
bíla sína í slíkri umferðarþvögu
þegar þeir eru ekki til þess
neyddir og vond er umferð, enda
þótt þeir hafi margoft gert það
að taka fólk einmitt á þessum
stað. En hvað um það. Þá veit
maður það nú, að hér er enginn
viðkomustaður sérleyfisbílanna
innan Fossvogsins. Vilji Fossvogs
búar fá far til Suðurnesja með
sérleyfisbílunum, verða þeir ann-
að hvort að fara suður á Kópa-
vogsháls eða norður að Þórodds-
stöðum. Milli þessara tveggja
viðkomustaða ber nefndum bíl-
um hvergi að taka fólk. Hitt er
annað, þó bílstjórarnir geri það
af greiðvikni sinni og mannkær-
leika að stanza bíl sinn og inn-
byrða þann úrtíning, sem ekki
hefir komizt á lögmætan við-
komustað bílanna.
Eg leyfi mér að koma hér fram
með þá uppástungu, að Fossvogs-
byggðin fái hér fastan viðkomu-
stað í vognum fyrir Suðurnesja-
ferðirnar, það er á landamótum
Reykjavíkur og Kópavogskaup-
staðar, norðan við lækinn hjá
„Nesti.“ Þar er slétt og hallalítið
land. Hér gæti verið eins konar
miðstöð, stutt að mætast frá báð-
um hliðum. Fengju Fossvogsbúar
þannig fastan viðkomustað, losn-
uðu þeir við símahringingar og
beiðni um að taka sig upp milli
viðkomustaða.
Svo er það gjaldskipti á þess-
ari Suðurnesjaleið, sem ég vildi
segja örfá orð um úr því ég stíng
niður pennanum. — Fargjöldin
byggjast vitanlega á vegalengd-
inni. Milli Reykjavíkur og Kefla-
víkur eru taldir 50 kílómetrar og
fargjaldið er 21 kr. eða 0,42 aur-
ar á hvern km. Hlutfallslega eft-
ir þessu hygg ég að önnur far-
gjöld eigi að reiknast á þessari
leið. Eg hygg að í Kópavogi sé
lokið 1/10 af leiðinni suður í
Keflavík eða sem næst því. Hér
eru sjálfsögð hin fyrstu gjald-
skipti. Kópavogsbúum ber þá að
greiða 19 kr.
Kæmi ákveðinn viðkomustað-
ur norðan við Fossvogslækinn,
ætti næsti viðkomustaður áætl-
unarbílanna að vera niður við
Kópavogslækinn en ekki upp á
há hálsi. Öllum sem vildu kom-
ast í veg fyrir áætlunarbílana,
mun þykja léttara að fara undan
brekkunni en að kjaga upp á
hálsinn.
í Hafnarfirði er lokið 1/5 af
leiðinni. Þeir greiða 18 kr. gjald
til Keflavíkur eða 0.45 aura á
hvern km. En ef þeir greiddu 17
kr. flytu þeir á svipuðu gjaldi
og Reykvíkingar. Þegar kemur
suður að Kálfatjörn, er lokið %
leiðarinnar. Farþegi frá Rvík að
Kálfatjörn á að greiða kr. 12,60
eftir sama taxta, en greiðjr 15
kr. Frá Hvassahrauni að Innri-
Njarðvík eru engin gjaldskipti.
Þó mun það vera helmingur af
leiðinni — 25 km. — Eg held að
gjald milli Innri-Njarðvíkur og
Keflavíkur sé 2 kr. Um vega-
lengdina veit ég ekki í kílómetr-
um, en hygg að það sé ekki lengri
leið en frá Reykjavík suður að
Kópavogslæk. Ef svo er, þá ættu
gjaldskipti í Kópavogi að vera
jafn rétthá.
Frá Keflavík út í Garð (Gerð-
ar) Og Sandgerði eru taldir 9
km. en gjaldið frá Keflavík er
5 kr. Þá hækkar gjaldið á hvern
km. Mér finnst þó í smáu sé, að
samræmi gæti verið hér betra.
Öðrum gæti aftur fundizt þetta
bara brosleg sparðatínsla á nú-
tíma mælikvarða.
10. — 1. — 1959
í allri vinsemd.
Brúarósi, Fossvogi.
Emil Tómasson
Bókagjöf til
Meðallendinga
Á 50 ára afmæli Ungmennafélags
Meðallendinga, ánöfnuðu þau
hjónin Herdís Kristjánsdóttir og
Bjargmundur Sveinsson félaginu
bókasafn sitt að gjöf, að þeim
látnum. Til minningar um fóstur
foreldra Bjargmundar, Ingimund
Eiríksson hreppstjóra Rofabæ og
konu hans Ragnhildi Sveinsdótt
ur.
Bjargmundur er nú á áttræðis-
aldri en var nálægt tvítugu er
hann fór frá Rofabæ. Fósturfor-
eldrar hans voru þá dáin. Þau
létust nálega samtímis úr lungna-
bólgu.
Þótt svo langt sé um liðið síðan
Bjargmundur fór úr Meðallandi
er hans þar enn minnzt, sem
mikils myndar og röskleika
manns og veiðimanns svo að með
ólíkindum þótti. Þessi gáfa hans
kom sér vel, því fátækt var mikil
í Meðallandi, eins og víðar á
þeim árum. Munu fleiri hafa af
notið en hans heimili.
Þau Herdís og Bjargmundur
búa nú á Njálsgötu 64 í Reykja-
vík. Þau eru í hópi þess mæta
fólks, sem hefur flutt úr sveitan-
um til bæjanna, en þau eru líka
í þeim hópi, sem verður ætíð
sínum fæðingarsveitum til sóma
hvar sem leið liggur.
Vilhjálmur Eyjólfsson.
VlDWtUAVINNUSTOfA
OG VIOIÆKJASALA
T íufásveg 41 — Simi 13673
BF.ZT 40 AUC.I.ÝS4 A
' I MOiWUMSl.AtítlW “
Öllum þeim, sem minntust mín á sextugsafmæli mínu,
með gjöfum og góðum óskum, færi ég þíðar þakkir.
Steinn Leós
Konan mín elskuleg og dóttir okkar
GUÐRÚN KARLSDÖTTIR,
andaðist i Bæjarspítalanum, þann 10. febrúar.
Sigurður Ilallgrímsson
María Hjaltadóttir, Karl Guðmundsson
Eiginmaður minn
SIGURÐUR HALLBJÖRNSSON,
Brúarhrauni,
andaðist á Landakotsspítala sunnudaginn þann 8. þ.m.
Kveðjuathöfn fer fram í dómkirkjunni föstudaginn 13.
þ.m. kl. 10,30 f.h.
Elenborg Þórðardóttir.
SIGRÚN SIGURHJARTARDÖTTIR ELDJÁRN
húsfreyja að Tjörn í Svarfaðardal,
verður jarðsungin þar fimmtudaginn 12. febrúar kl. 1,30
Þórarinn Eldjárn og f jölskylda
Útför föður míns
BJÖRNS ÞORKELSSONAR
frá Hnefilsdal
sem andaðist 4. þ.m. fer fram frá Fossvogskirkju, föstu-
daginn 13. þ.m. kl. 10,30 f.h. Athöfninni verður útvarpað
Fyrir hönd vandamanna.
Stefán Björnsson
Útför mannsins míns,
ÞORVALDAR KOLBEINS,
prentara,
Meðalholti 19, fer fram frá Frikirkjunni n.k. fimmtudag
þann 12. febrúar kl. 2,30 síðdegis. Samkvæmt beiðni hins
látna eru blóm afbeðin, en bent á líknarstofnanir.
Hildur Kolbeins
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir
ARNGRlMUR KRISTJÁNSSON
skólastjóri
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 13.
þ.m. kl. 1,30 e.h. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað
Þeim sem vildu minnast hins látna, er bent á Bama-
spítalasjóð Hringsins eða aðrar líknarstofnanir.
Henny Kristjánsson
Áslaug Arngrímsdóttir, Unnur Arngrímsdóttir
Baldur Maríusson,Hermann Ragnar Stefánsson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
VALDIMARS EYJÓLFSSONAR
skósmiðs,
Pálmar Valdimarsson, Bryndís Jacobsen.
Öllum fjær og nær, sem veittu mér aðstoð og sýndu
samúð og hlýhug, við andlát og jarðarför eiginmanns
míns,
FRIÐRIKS TÓMASSONAR
votta ég mitt innilegasta þcikklæti.
Guð blessi ykkur öll.
Vigdís Jónasdóttir