Morgunblaðið - 22.02.1959, Síða 20

Morgunblaðið - 22.02.1959, Síða 20
20 MORCVTSBLAÐÍÐ Sunnudagur 22. febr. 1959 T1 J „Láta táka Ijósprentað afrit af því og láta það svo aftur í skúff- nna í nótt. Hérna er lykillinn. — Lokaðu skúffunni vandlega aftur“. „Ég skil ekki“. „Þú muna fljótlega skilja það“, *agði Morrison. Svo hrukkaði hann ennið. — ,Gerðu það sem ég segi þér. Ég held að það sé alger óþarfi að bera ritvélarskriftina saman, við Prag-skeytið. Ég hef getið mér rétt til. Þú þarft ekki að senda neina tilkynningu til Washington". Nsesta morgun, þegar Helen ▼aknaði, var henni tilkynnt að hr. Morrison hefði nú þegar yfirgefið ibúðina. Hann bað eiginkonu sína að hafa sig afsakaðan. Hann yrði kominn aftur um hádegið. Hún hafði engan tíma til að hugsa neitt frekar um atburð næt urinnar. Þegar hún kom inn í vinnuherbergið sitt, beið Haward Lee, forstjóri pólitísku deildarinn- ar, hennar þar. f dag yrði franska stjórnin felld. Æstar þingumræð- ur í vændum. Hún tók kápuna sína og fylgdist með Lee til þinghúss- ins. —• Þinghúsið, sem stóð næstum beint andspænis sendihe.rrabústaðn um, á vinstri bakka Signu, var líkast iðandi mauraþúfu. 1 hinni ný-grísku „Ohamfore dés Deputés" var sendiherra Bandaríkjanna óð- ar vísað til sæti* á diplomata-pall- inum. Klukkustundum saman fylgdist hún með því sem fram fór í sætaröðum þingmannanna, hlustaði á ræðu forsætisráðherr- ans, sem varði hina vonlausu að- KÆLISKAPURIIMN Eftirlæti hagsýnna húsmæðra Prýði eldhúsa — Stolt husmæðra • er rúmgóð og örugg matvælageymsla. • hefir stærra frystirúm en nokkur annar kæli- skápur af sömu stærð • er ódýrastur miðað við stærð. « Kr 10,920 - Gerið yður ljóst að kæliskápur er varanleg eign Jjekla. Austurstræti 14. Sími 11687 stöðu sína og beið loks eftir at- kvæðagreiðslunni, þar sem sam- þykkt var vantraust á stjórnina. Hún hugleiddi hvaða afleiðingar stjórnarfallið myndi hafa fyrir Ameríku og tók saman í huganum skeytið, sem hún ætlaði að senda til Washington. Skyndilega virtust einkamál hennar dvergsmá í sam- anburði við þau vandamál, sem hver sendiherra varð að fást við. Það var gott að hún gat ekki ein- beitt sér að einkalífi sínu. Hún hafði enn ekki lokið við að semja skeytið til Washington, þeg ar síminn á skrifborðinu hennar hringdi. „Þýzkur fréttamaður, hr. Möll- er, óskar eftir viðtali við yður“, tilkynnti ritarinn. Hjartað tók að slá hraðar í brjósti hennar. ,Gefið þér mér samband við hann“, skipaði hún. Út úr heyrnartólinu barst hin hlýlega og örlítið nefmælta rödd Jans. „Ég hefði ekki átt að vera að ónáða yður, ungfrú Cuttler. En ég fe.r á morgun til Berlínar og vinur minn og starfsbróðir, Kurt Kessen, bað mig um að kynna sig fyrir yður áður en ég færi. Gætuð þér ekki fórnað okkur nokkrum mínútum?" Einhver andleg ógleði náði tök- um á henni. Hún leit sem snÖggv- ast á almanakið. „Ég verð önnum kafin í allan dag“, svaraði hún þvinguðum rómi. — „Það væri þá. . . Ég hef einmitt núna hálfa klukkustund til umráða. Eruð þér 1-angt í burtu?" „Ég get verið kominn eftir fimm mínútur". „Jæja, gerið þér þá svo vel“. Hún lét símatólið aftur á sinn stað og hallaði sér svo aftur á bak í hægindastólnum þungt hugsandi. Hvers vegna hef ég svona mikinn hjartslátt? spurði hún sjálfa sig. Hvers vegna? Ég els'ka hann ekki lengur. Kannske hef ég aldrei elsk að hann. Þetta var allt víma, sem ekkert skildi e.ftir nema velgju og höfuðverk. Hvers vegna tek ég á móti honum. Af því að ég verð að j vita hvað hann raunverulega vill. Það getur ekki verið eingöngu vegna þessa starfsbróður hans. Meðan hún seildist eftir töskunni sinni, til þess að ná í varalit og púðurdós, velti hún því fyrir sér, hvort hún ætti ekki að kalla á Morrison. En hún gat ekki náð i Morrison. Svo var það líka alger- lega óleyfilegt, að sendiherra tæki á móti tveimur þýzkum frétta- mönnum að eiginmanni sínum við- stöddum. Hún leit í spegilinn. — Sendiherrann farðar sig og fegr- ar, hugsaði hún með sér. Varalit- urinn gerði fölvann í kinnunum enn meira áberandi. Nokkrum mínútum síðar var Jan vísað inn í herbergið. Hann var einn. Hún reis úr sæti sínu, bak við skrifborðið og gekk til móts við hann. Hún rétti honum höndina og leit spyrjandi á hann. „Kessen kemur undir eins“, sagði hann afsakandi. Hún leiddi hann að litla, kringl- ótta borðinu í stofuhorninu, þar sem Place de la Concorde blasti við augum manns. Það var byrjað að rigna. „Kessen er fulltrúi flestra þýz'ku blaðanna", útskýrði Jan. „Hann langaði til að biðja yður um við- tal frú sendiherra". Hún horfði ekki á hann. Frú sendiherra — hversu undarlega, hversu hátíðlega hljómaði þetta venjulega ávarp í munni hans. Myndin af gistihússherberginu í New York kom fram í huga henn- ar. Karlmenn voru kannske öðru vísi, en konur gleymdu því ekki, þegar karlmaður hafði einu sinni tekið þær í arma sína. „Viðtal?“ endurtók hún með fullkominni sjálfsstjórn. — „Til hvers?“ „Þér eruð nú eina konan í opin- berri þjónustu, sem orð fer af sök- um frábærra hæfileika. Slíkt vek- ur einnig áhuga í Þýzkalandi". Nú horði hún beint í augu hans. Hún efaðist sífellt meira og meira um það, að hann segði sannleik- ann. Var hann kominn til þess eins að kynna þennan Kessen? Gat Kessen ekki kynnt sig sjálfur? Allt í einu sagði hann: „Ég kom af ásettu ráði á und- an“. Og áður en hún gat tekið fram í fyrir honum: „Ég var ekki boðinn í Cocktail-boðið í gær. Ég notaði boðsbréf Kessens“. „Ég ve.it það“. „Ég varð að sjá yður“. „Jan, í öllum bænum. ..." Hann leit niður fyrir sig: — „Ég hef víst alltaf álitið mig sterk ari en ég er“, sagði hann. — „Því er ekki lokið. Fyrir mér er því ekki lokið. Það er nú fyrst að byrja. Og ég trúi ekki að fyrir yður sé því lokið Helen. Það sem var svo sterkt í gær getur í dag ekki....“ Nú kallaði hann hana Helen, en hann hélt áfram að þéra hana. Hún greip fram í fyrir honum. „Því er lokið“, sagði hún. Henni tókst, sjálfri sér til mestu furðu, að tala ákveðið og rólega. „Ég óska ekki eftir því að sjá yður aftur, Jan. Ég vænti þess af yður, að þér komið aldrei á minn fund framar“. „Er embættisframi yðar þá svona þýðingarmikill fyrir yður?“ „Ég er gift. Þetta kemur ekki neinum embættisframa við“. „Þér elskið ekki eiginmann yð- ar, Helen. Hann veit það. Hann vildi reyna að losna við mig, með því að senda mig til Wien“. „Hann sagði mér frá því. Þér hefðuð átt að taka þessu boði hans“. Jan leit til dyranna. „Kessen hlýtur að koma á næstu mínútum. Ég verð að sjá yður einu sinni aftur, Helen“. Hann lagði sérstaka áherzlu á orðið „verð“. — „Aðeins örskamma stund í kvöld“. Hann talaði eins og í óráði, „Þetta snertir yður lika, Helen. Ég bíð eftir yður klukkan átta í kvöld í „Café Mogador" á Place Pigalle". Hún gat ekki svarað, gat ekki sagt honum að hún myndi ekki koma — það var bankað á dyrn- ar og á næsta andartaki stóð hinn þýzki fréttamaður og starfs- bróðir Jans, inni í herberginu hjá þeim. Helen gekk eitt skref á móti honum og rétti honum höndina, um leið og hún bauð hann velkom- inn. n a r L $ u 1) „Ég fór að fiska með Míló I morgun. Mér datt í hug að ykkur þætti gott að fá nýjan lax f morgunmat". 2) „Það var fallega hugsað, en þú ættir ekki að eyða tíma þín- um í að snúast við okkur, segir Markús. „Mér er í mun að þið skemmtið ykkur vel. Hvað ætlið þið að gera í dag?“ 3) „Ég vildi gjarnan fara í gönguferð með Míló, ef ég má“, segir Sússana. „Ágætt. Það kann hann vel að meta.M Kurt Kessen var meðalmaður á hæð, um þrítugt og líkastur beina grind í útliti. Hárlaust höfuðið með útstandandi kinnbeinum og innföllnum kinnum minnti óhugn- anlega mikið á hauskúpu. Bleik- fölt andlitið var enn ógeðfeldara vegna brossins, sem stöðugt lé'k um þunnar, blóðlausar varirnar. „Ég er yður mjög þakklátur fyrir að þér skulið veita mér áheym, yðar hágöfgi", sagði hann. „Eins og Möller starfsbróðir minn hefur sagt yður, þá vilja blöð mín gjarnan leggja fyrir yð- ur nokkrar spurningar". Hún benti honum að taka sér sæti. Á meðan komst aðeins ein hugs- un að hjá henni: Ég hef heyrt þessa rödd áður, einhvern tíma, einihvers staðar. Þetta var óvenju- leg rödd, djúp, en þó óstyrk. „Ég er mjög störfum hlaðin þessa stundina“, svaraði hún út í hött. — „Franska stjórnarkrepp- an....“ „Já, við verðum líka að fara til þinghússins r'tt strax“, svaraði Kessen. — „Ef þér vilduð leyfa mér að leggja fram nokkrar skrif- legar spurningar....“ ajlltvarpiö Sunnudagur 22. febrúar: Fastir liðir eins og venjulega. 11,00 Messa í Dómkirkjunni (séra Pétur Magnússon í Vallanesi pré- dikar; séra Úskar J. Þorláksson þjónar fyrir altari. Organleikari: Dr. Páll ísólfsson). 13,15 Erinda- flokkur um náttúruf ræði; III: Halldór Þormar magister talar um veirur og veirurannsóknir. —. 14,00 Miðdegistónleikar (plötur), 15.30 Kaffitíminn: Carl Billich og félagar hans leika. 16,30 Hljóm sveit Ríkisútvarpsins leikur. — Stjórnandi: Hans Antolitsch. — 17,00 Harmonikulög: Franco Scarica leikur (plötur). — 17,30 Barnatími (Skeggi Ásbjarnarson kennari). 18,30 Miðaftanstónleik- ar (plötur). 20,20 Erindi: Kleó- patra drottning (Einar M. Jóns- son rithöfundur). 20,45 Gamlir kunningjar: Þorsteinn Hannesson óperusöngvari spjallar við hlust- endur og leikur hljómplötur. 21,30 Upplestur: „1 trúnaði milli landa“ smásaga eftir Friðjón Stefánsson (Höfundur les). 22,05 Danslög (plötur). 23,30 Dagskrárlok. Mánudagur 23. febrúari Fastir liðir eins og venjuleg*. 13,10 Búnaðarþáttur: Frá setn- ingu búnaðarþings. 18,30 Tónlist- artími barnanna (Jón G. Þórarins- son kennari). 18,50 Fiskimál: Um loðnuvinnslu (Dr. Þórður Þor- bjarnarson). 19,05 Þingfréttir. — Tónl. 20,30 Einsöngur: Nanna Egilsdóttir syngur; Fritz weiss- happel leikur undir á píanó. 20,50 Um daginn og veginn (Úlfar Þórð arson læknir). 21,10 Tónleikar (plötur). 21,30 Útvarpssagan: „Victoría" eftir Knut Hamsun, í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi; IX. —• sögulok (Úlöf Nordal). 22,10 Passíusálm- ur (23). 22,20 Úr heimi myndlist- arinnar (Bjöm Th. Bjömsson list fræðingur). 22,40 Kammertónleik- ar (plötur). 23,30 Dagskrárlok. Þriðjudagur 24. febrúar: Fastir liðir ein« og venjulega, 18.30 Barnatími: Ömmusögur. — 18,50 Framburðarkennsla í esper- anto. 19,05 Þingfréttir. — Tónleik- ar. 20,30 Daglegt mál (Árni Böðv- arsson kand. mag.). 20,35 Erindi: Eina ráðið (Ámi Árnason dr. med.). 21,00 Erindi með tónleik- um: Baldur Andrésson talar um íslenzk tónskáld; V: Sigfús Ein- arsson. 21,35 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson). 21,50 Kórsöngur: Kór dómkirkjunnar í Treviso syng ur mótettur eftir tvö 16. aldar tónskáld, Gabrieli og Nasco; Giovanni d’Alessi stjórnar (plöt- ur). 22,10 Passíusálmur (24). — 22,20 Upplestur: Anna frá Mold- núpi les kafla úr bók sinni „Ást og demantar". 22,40 Islenzkar dans- hljómsveitir: Árni Elfar og hljóm- sveit hans. Söngvari: Haukur Morthens. 23,10 Dagskrárlok. f

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.