Morgunblaðið - 13.03.1959, Side 6
f
MORGVNBLAÐIE
Föstudagur 13. marz 1959
Sænskn blaðamennirnir, sem dvalizt hafa hér á landi og umboðsmaður Sölumiðstöðvarinnar.
Fremri röð frá vinstri: Kaj Neideman frá Kválls posten i Malmö, Sixten Holmkvist, forstjóri,
Sven Sandstedt frá Svenska Dagbladet og Frank Johnsson frá Göteborgsposten. Aftari röð:
Lennart Luthander frá Göteborgs Sjöfarts- och Handelstidning, Erik Liljeroth, ljósmyndari, K. E.
Hemzelius frá Arbetet og Bertil Xörnberg frá Dagens Nyhete'-
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
íslenzkur fiskur á framtíð
fyrir sér á sænskum markaði
Rætt við Sixfen Holmkvist, umboðs-
mann Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
husanna i Sviþjóð
ÞESSA viku hafa dvalizt hér á
landi sænskir blaðamenn frá
ýmsum helztu blöðum Svíþjóð-
ar. Komu _,eir hingað í boði Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna til
að kynna sér íslenzkan fiskiðn-
að, einkum freðfiskframleiðsl-
una. í för með blaðamönnunum
er umboðsmaður Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna í Svíþjóð,
leiðslan er enn ekki tilbúin að
ryðja sér braut inn á sænskan
markað.
— En helduðu að íslenzki fisk-
urinn eigi framtíð fyrir sér á
sænskum markaði?
— Vissulega. Við höfum komizt
að raun um að ísl. ýsan og stór-
lúðan eru langtum betri en norsk-
ur og danskur fiskur af sama
stofni.Þá er íslenzka rauðsprettan
einnig miklu betri en sú danska,
því flökin af danskri rauðsprettu
eru ekki nema 13 sentimetrar á
lengd. í Svíþjóð vilja menn fá
almennileg fiskflök á matborðið.
— Er fiskneyzla mikil í Sví-
þjóð?
— Á fyrra ári voru flutt inn
4000 tonn af hraðfrystum fisk-
flökum. Sá innflutningur var
mestmegnis frá Noregi, smávegis
frá Danmörku og næstum ekkert
frá íslandi. Norðmenn hafa aflað
sér öruggs markaðar í Svíþjóð.
Þess má geta, að fiskneyzla í Sví-
þjóð hefur aukizt um 50% síðustu
2 árin. Yngri húsmæður kaupa
eingöngu hraðfrystan fisk, sem er
seldur í nýlenduvöruverzlunum.
— Það er erfitt að komast inn
á sænska markaðinn. Samkeppn.
in er hörð og fyrirtæki okkar
eyðir t. d. 2Yz milljón sænskra
króna á ári í auglýsingar. Þegar
um er að ræða að koma íslenzka
fiskinum á markað, verður fyrst
að finna hentugar umbúðir, þá
er að gefa framleiðslunni nafn og
setja síðan áróðurinn í gang. Eitt
af því, sem við höfum í hyggju
að gera í áróðursherferð fyrir ís-
lenzka fiskinum, er að láta falleg-
ar íslenzkar stúlkur í þjóðbún-
ingum bjóða fiskinn í Nordiska
Kompaniet í Stokkhólmi, sem er
ein stærsta verzlun þar í borg.
Við erum að vísu enn ekki bún-
ir að útvega okkur íslenzkar
stúlkur í þjóðbúningum, en við
erum samt ákveðnir í að nota
þetta áróðursbragð.
Sixten Holmkvist segir frá ýms
um nýjungum, sem fyrirtæki
hans í Eslöv hefir hrundið í fram
kvæmd, meðal annars framleiðslu
á „kartöflumús" í duftformi, sem
hægt er að laga á 20 sekúndum
með því að blanda með vatni. Er
þessi framleiðsla ekki þekkt ann-
ars staðar í heiminum. Á vegum
fyxirtækisins vinna að staðaldri
11 vísindamenn og 20 aðstoðar-
menn þeim til hjálpar. Hvers
kyns nýjungar eru mjög vel undir
búnar og hefur fyrirtækið sér til
aðstoðar um 600 húsmæður í öll-
um stéttum og á öllum aldri.
Þegar ný framleiðsla kemur á
markaðinn, er hún send þessum
húsmæðrum, og þær segja fyrir-
tækinu síðan álit sitt á nýjung-
inni.
— Þegar búið er að betrum-
bæta framleiðsluna, samkvæmt
tillögum húsmæðranna, þá erum
við reiðubúnir til þess að verja
svo sem hálfri milljón í auglýs-
ingar á vörunni.
Sixten Holmkvist sagði að lok-
um, að hann og sænsku blaða-
mennirnir væru mjög hrifnir af
því, sem þeir hefðu séð og ky- ,t
hér á landi, og hér hefðu þeir
notið allt að því forn-norrænnar
gestrisni undanfarna daga.
JHA.
Nýjui upplýsingor um þörf ut-
vinnuvegunnu fyrir sérmenntuð
fólk séu jufnun fyrir hendi
Þáltill. Ragnhildar
Helgadóttur sam-
þykkt á Alþingi
Á FUNDI sameinaðs Alþingis í
fyrradag var framhald einnar um
ræðu um þingsályktunartillögu
Ragnhildar Helgadóttur um upp-
lýsingar um þörf atvinnuveganna
fyrir sérmenntað fólk.
Benedikt Gröndal hafði fram-
sögu í málinu af hálfu allsherjar-
nefndar. Skýrði hann svo frá, að
allsherjarnefnd mælti með tillög-
unni svo framarlega sem ekki
þyrfti að setja á fót nýja stofnun
í þessu augnamiði.
Gylfi Þ. Gíslason, menntamála-
ráðherra, kvaddi sér hljóðs og
kvað þetta mál hafa verið til at-
hugunar á vegum stjórnarinnar
skrifar ur.
dagleqa iifinu
| að undanförnu, því efnahags-
samvinnustofnun Evrópu hefði
óskað eftir upplýsingum um þessi
efni. Ráðherrann vék einnig að
því, að við úthlutun námsstyrkja
væri rétt að taka tillit til þarfa
atvinnuveganna fyrir sérmenntað
fólk.
Ragnhildur Helgadóttir þakk-
aði allsherjarnefnd góða af-
greiðslu á tillögunni. Kvað hún
það mestu varða, að jafnan yrðu
tiltækar nýjar upplýsingar um
þörf atvinnuveganna fyrir sér-
menntað fólk íyrir þá, sem væru
að taka ákvarðanir um framtíð-
arstarf sitt.
Tillagan var samþykkt með
atkvæðum allra viðstaddra þing-
manna og afgreidd til rikisstjórn-
arinnar sem ályktun alþingis.
+ KVIKMYNDIR *
Sixten Holmkvist
Sixten Holmkvist, forstjóri. Tíð-
indamaðuT Mbl. hitti Sixten Holm
kvist að máli og spurði hann um
fyrirtæki hans í 'Svíþjóð og hverj
ir möguleikar væru á að afla ís-
lenzkum ÍLki markaðs þar í landi
o. fl.
— Fyrirtækið heitir Felix og
er í bænum Eslöv á Skáni. Það
leggur stund á djúpfrystingu
matvæla, einkum grænmetis. Um
1100 manns vinna við fyrirtækið
auk þess sem 4000 manns eru
starfandi á vegum þess úti um
landsbyggðina. f Simríshamn
starfrækjum við svo djúpfryst-
ingu á fiski og þar starfa um 250
manns.
— Nú erum við að koma á fót
samvinnu við Sölumiðstöð hrað
frystihúsanna í því augnamiði að
selja þann djúpfrysta fisk, sem
hún framleiðir. Þessi samvinna
hefur nú staðið í hálft ár og er
enn á byrjunarstigi. Tíminn hef-
ur farið í undirbúning og fram-
Skjótari læknishjálpar
þörf
VIO“ kvartar í bréfi til Vel-
vakanda undan því að ekki
virðist nægilega margir læknar á
vakt á læknavarðstofunni. Hann
skrifar:
„Á þessum síðustu tímum fram
fara, aukinnar tækni og væntan-
lega bættrar þjónustu fyrir borg-
ara þessa bæjar á flestum sviðum,
hefir okkur hlotnazt ný og glæsi-
leg heilsuverndarstöð. Komu
hennar var almennt fagnað, að
vonum.
Skyldi það nú vera munur að
búa í hjarta höfuðstaðarins, ef
slys bæri að höndum, en fram
í afdal til sveita, þar sem miklar
fjarlægðir og slæmar samgöngur
hamla læknishjálp á hættustund.
En hvað skeður í sjálfum höfuð
staðnum, þar sem læknar eru á
hverju strái og heilbrigðismál
raunar á mjög háu stigi? Jú, árs-
gamall drengur hlýtur stóran
skurð á höfuðið, honum blæðir
töluvert og ekið er í ofboði með
hann niður á slysavarðstofu. Þar
eru læknar á verði allan sólar-
hringinn og skjótrar hjálpar að
vænta.
En — biðstofan er full, af-
greiðsla hvers einstaks sjúklings
um það bil að falla í svefn, klukk
tekur ískyggilega langan tíma,
an er líka að ganga níu.
Litli drengurinn bíður eftir að
röðin komi að honum, það líður
heill klukkutími, tveir klukku-
tímar, loksins er hann næstur og
um það bil að falla í svefn, klukk
an er líka að ganga níu.
Þolinmæði föðurins er á þrot-
um, hann knýr dyra „er nokkur
von um afgreiðslu hér?“ „Jú,
augnablik, það var nú bara verið
að koma með slasaðan mann rétt
í þessu, þið komið næst“.
Klukkan var orðin níu þegar
loksins var búið að sauma saman
höfuðsár litla drengsins og biðin
orðin hartnær þrír klukkutímar.
Það kom í ljós að í slysavarðstof-
unni í Reykjavík, yfir 60 þús.
manna bæ, var aðeins einn lækn-
ir á vakt, kandidat með takmark-
aða reynslu.
Hvílík þjónusta, hvað veldur?
Er skammtað svo naumlega fé til
slysahjálpar að smábörn megi
liggja blæðandi við fótskör sér-
fræðinganna klukkutímum sam-
an hjálparlaus? Ég heimta ský-
laus svör. fbúar þessa bæjar
greiða nægar íúlgur fjár í bæjai'-
sjóð til þess að mega, aðstöðu
sinnar vegna, vænta skjótari
læknishjálpar en afdalabúinn.“
Einn er ekki nóg
KONA nokkur kom hér fyrir
nokkru og ræddi við Vel-
vakanda um Heilsuverndarstöð-
ina. Hún var ákaflega hrifin af
allri þjónustu sem þar er veitt.
Kvaðst hún vera ákaflega þakk-
lát fyrir að fá tækifæri til að
koma þar með börn sín.
En um leið, lét hún í ljós þá
skoðun, að ekki væri nóg að hafa
einn lækni á vakt, til að gegna
sjúkravitjunum á kvöldin og næt-
urnar. Kvaðst hún hafa hringt á
læknavarðstofuna, þegar eitt af
börnum hennar var orðið fárveikt
um kl. 10 um kvöld. Var henni
þá sagt, að læknirinn væri farinn
út með þær vitjanir, sem þegar
hefðu borizt, og að ekki væri
hægt að siima hennar beiðni fyrr
en kl. 1, þegar annar kæmi á
vakt. Hún náði ekki í sinn lækni
og annar læknir, sem hún náði
sambandi við, var allönugur yfir
ónæðinu, enda var hvorugur
þeirra skyldugur til að gegna
sjúkravitjunum þetta kvöldið.
sjúklingar fara líka beina leið til
læknanna, framhjá biðstofunni.
Úr því slík atvik koma fyrir,
er sýnilega ekki nægileg læknis-
hjálp tiltækileg f bænum, ef eitt-
hvað kemur fyrir að kvöldi eða
nóttu til.
Árétting
AF gefnu tilefni vill Velvakandi
taka það fram, að ekki var
ætlunin að deila á póstafgreiðslu-
mennina hér 1 dálkunum í gær,
þó einhverjir hafi e. t- v. getað
skilið það svo. Það sem deilt var
á, voru þær reglur hjá póst-
stjórninni að innheimta fé fyrir
meiri þyngd en flutt er, og að fá
þannig fé í hinn almenna póst-
sjóð.
Bæjarbíó:
7. BOÐORÐIÐ
ÞAÐ er alltaf eitthvað heillandi
við franskar kvikmyndir, hvort
sem það eru gamanmyndir eða
þær fjalla um hádramatísk efni.
Kvikmyndin 7. boðorðið hefur til
að bera öll helztu einkenni
franskra kvikmynda. Hún er
ágætlega samin, atburðarásin
hæfilega hröð og hún er bráð-
smellin. Fjallar myndin, sem tit-
ilinn ber með sér, um brot á
boðorðinu: Þú skalt ekki stela.
Segir þar frá tveimur náungum,
sem gera yfirleitt ekki annað en
að stela og svíkja fé út úr ná-
unganum og þeim til aðstoðar
er fremur ung og mjög glæsileg
kona, sem þeir hafa sem tálbeitu.
Og það er ekki að sökum að
spyrja að fransmennirnir eru all-
ir fúsir til að gína við beitunni.
— En þó fer svo að lokum að eitt
af fórnardýrum skötuhjúanna
vekur ást hinnar fögru konu —■
og nú snýst allt við. í stað þess
að ginna Kið nýja fórnardýr,
snýr hún mjög skemmtilega á fé-
laga sína og er sú saga og fram-
hald hennar öll bráðsnjöll og
brosleg.
Eins og áður er sagt er myndin
hin ánægjulegasta og afbragðs-
vel leikin.
Ego.
AKRANESI, 12. marz. — í dag
láta sjómenn heldur illa yfir
aflabrögðunum. í gær var heild-
araflinn 118 lestir og afla hæstir
voru Sæfari með 12 lestir og
Farsæll með 11 lestir. En þess
ber að geta að bátar þeir sem
minnst fengu í gær fluttu netin
til og héldu sjó í nótt. — Oddur.