Morgunblaðið - 13.03.1959, Page 15
Föstudagur 13. marz 1959
MORCVNBLAÐIÐ
15
Nú ríður á styrkri stjórn
við stefnu okkar og starf á und-
anförnum áratugum. •
S j álf stæðisf lokkurinn
má aldrei hika
Flokkurinn, sem jafnan stýrði
förinni á síðasta áfanga sjálf-
stæðisbaráttunnar, flokkurinn,
sem síðan sá stóri sigur vannst,
hefir tryggt hann með viturlegri
stjórn utanríkismála allan fyrsta
áratug lýðveldisins, flokkurinn,
sem á faldi frelsisöldunnar ný-
skapaði allt atvinnulíf þjóðarinn-
ar, flokkurinn, sem borið hefir
hita og þunga hinnar nýju frelsis
baráttu í sambandi við víkkaða
landhelgi, flokkurinn, sem mestu
réð í nær tvo áratugi og beitti
völdum sínum til að breyta mýr-
arflákum og fúgfenjum í iðgræn
ar síbreiður, moldarhreysum í
varanlegar, steinsteyptar vistar-
verur, flokkurinn, sem mestan
þáttinn átti í hinum nýja ís-
lenzka iðnaði, allri uppbygg-
ingu fiski- og kaupskipaflotans
og flugflotans, flokkurinn, sem
var hinn skapandi máttur þjóð-
lífsins jafnt á sviði efnahagsstarf
seminnar sem menntunar og
menningar, flokkurinn, sem í
baráttunni fyrir nýjum verðmæt-
um missti þó aldrei sjónar af
öryggi hinna öldnu og sjúku,
flokkurinn, sem átti þá hugsjón
æðsta, að kjör allra stétta og
allra manna yrði betri og jafnari
en jafnvel dæmi eru til, og tókzt
það, — þessi flokkur hann má
aldrei hika. Slíkur flokkur verð-
ur að setja markið hátt. Og þeirri
skyldu ætlum við ekki að bregð-
ast.
Reynsla okkar
varðar veginn
Reynsla okkar segir til vegar.
Fyrir því óttumst við engan
Vanda í eigin málum, er á vegi
okkar verða, heldur mætum hon-
um með manndómi og sigrum
hann með mannviti og atorku.
Við fáum að sönnu ekki frem-
ur en aðrir „séð hvað öldin ber í
skildi“. Við vitum vel, að valið
stendur milli gereyðingar og tor-
týmingar mannkynsins og hins
vegar stórstígustu framfara, sem
veraldarsagan kann skil á. En
við ætlum ekki að leggja hendur
í skaut og bíða kvíðnir örlaganna.
Við ætlum að trúa hinu betra,
þar til hið verra reynist. Við
ætlum að breiða út faðminn móti
þeim gæðum, sem hin nýja kraft-
öld kann að bjóða þeim, sem
með framtaki og kunnáttu reyna
að höndla hnossið, en búa á með-
an að því, er við nú höfum
handa á milli í breyttu og bættu
formi eftir beztu getu.
Okkur er vel ljóst, að gæs-
irnar fljúga ekki upp í sofandi
þjóð. Okkur er líka Ijóst, að Sjálf
stæðisflokkurinn einn er fær um
að veita þá forustu, sem þjóðin
þarfnast. Hvort við fáum einir
að ráða eða verðum að slá eitt-
hvað af kröfunum með samstarfi
við aðra, fer eftir því hvort okk-
ar nýju liðsmenn verða nægilega
margir, svo sem reyndist í sigr-
inum mikla í janúar 1958. En
hversu sem um það fer, þá er
það víst, og ætti raunar öllum að
skiljast, eftir úrræðaleysi, ófarn-
að og uppgjöf V-stjórnarinnar,
að það, sem heill þjóðarinnar nú
veltur öðru fremur á er að hún
beri gæfu til að tryggja sjálfri
sér forustu athafnamikillar, víð-
sýnnar, frjálslýndrar, þróttmik-
illar og framfarasinnaðrar ríkis-
stjórnar, sem veit, hvað hún vill
og þorir að framfylgja því.
Ekkert tryggir þetta annað en
stórsigur Sjálfstæðisflokksins við
þessar kosningar.
Góðir Sjálfstæðismenn.
Við höfum jafnan goldið vax-
andi fylgi þjóðarinnar með aukn-
um framkvæmdum henni til vel-
farnaðar.
Svo munum við enn gera.
Að biðja um aukið fylgi, er
því að biðja þjóð okkar bless-
unar. Það gerum við öll hér í
kvöld og munum jafnan gera.
Byggingarsamvinnufélag símamanna
í I. byggingarflokki er til sölu 3ja herbergja íbúð ásamt
tilheyrandi herbergi í risi og eignarhlutdeild í venjuleg-
um kjallaraþægindum. Félagsmenn, sem vilja nota for-
kaupsrétt, snúi sér til félagsstjórnarinnar fyrir 20. marz.
STJÓRNIN.
Keflvikingar Keflvikingar
Reykjavíkurskátar, sýna Skátaskemmtun 1959 í Ung-
mennafélagshúsinu fyrir skáta og almenning, laugar-
daginn 14. marz kl. 8,30 e.h.,dans á eftir.
Sunnudaginn 15. marz kl. 3 eh fyrir börn.
Aðgöngumiðar seldir í Ungmennafélagshúsinu á laugar-
dag frá kl. 6—7,30 og á barnasýningu sunnudag frá kl.
11—12 f.h.
Skátafélögin í Reykjavík.
I ðna&arhúsnœði
200 til 400 ferm. iðnaðarhúsnæði til leigu frá 14. maí
n.k. Húsnæðið er á ágætum stað í bænum. Er skiptan-
legt til fjögra leigutaka. Upplýsingar í síma 11820.
3KIPAUTGCRB RIKISINS
SKJALDBREIÐ
fer til Ólafsvíkur, Grundarfjarð
ar, Stykkishólms og Flateyjar
hinn 17. þ.m. Vörumóttaka í dag
og árdegis á morgun. — Farseðlar
seldir á mánudag.
HEKLA
vestur um land til Akureyrar
hinn 18. þ.m. — Tekið á móti flutn
ingi til áætlunarhafna í dag og
árdegis á morgun. Farseðlar seldir
árdegis á þriðjudag.
M.s. Helgi Helgason
fer til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka í dag.
Samkomiar
Æskulýðsvika Laugarnesskirkju.
Sigursteinn Hersveinsson útvarps
virki, talar á samkomunni í kvöld.
Frásöguþáttur, tvísöngur, einsöng
ur. — Allir velkomnir.
K. F. U. M. og K.
Kristileg samtoma
verður haldin í Hjálpræðishern-
um í kvöld kl. 8,30. Allir velkomnir
Ólafur Björnsson frá Bæ.
Félagslíl
Ármenningar og annað
skíSafólk!
Skíðaferð í Jósefsdal um helg-
ina. — Svigkeppni skíðamóts
Reykjavíkur verður haldið í Jós-
efsdal, sunnudaginn 15. marz og
hefst kl. 10. Ferðir frá B.S.R.
— Stjómin.
Sigurður Olason
Hæstarcttarlögmaður
Þorvaldur Lúðvíksson
Héraðsdónislögmaður
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 14. Sími 1-55-35
Vélaleigan
Sími 18459
PALL s. pAlsson
MÁI.FLUTNIN GSSKRIFSFOFA
Baukastræli 7. — Sími 24 200.
U ngling
vantar til blaðburðar í eftirtalin hverfi
• Nesveg
Aðalstræti 6 — Sími 22480.
Aðalfundur
Styrktar- og sjúkrasjóðs verzlunarmanna í Reykja-
vík, verður haldinn föstudaginn 13. marz kl. 8,30 e.h.
I Tjarnarcafé uppi.
Stjórnin
Kvikmyndasýningarvél
Tilboð óskast í 16 m/m B. T. H. kvikmyndasýningar-
vél. Vélin er notuð en nýuppgerð. Hentug fyrir félaga
sambönd eða skóla. Upplýsingar gefur Benedikt
Jónsson í síma 2 44 20 milli 9—12 í dag og næstu
daga.
Olíufélagið Skeljungur hf.
Kaupum hreinar
léreftstuskur
Prentsmiðja
l/Yloryimblah
'ómó
Sumarbústaður
Til sölu er sumarbústaður í Borg&rfirði. 20 h. þurrk-
að land, laxveiði, vegur heim að húsinu. Lítil út-
borgun. Allar nánari upplýsingar gefur
EIGNASALAN
• REYKJAV í K •
Ingólfsstræti 9B — Sírni 19540.
opið alla daga frá kl. 9—7.
Fokheld 3ja herb íbúh
Af sérstökum ástæðum er til sölu 3ja herb. fokheld
íbúðarhæð við Sólheima. íbúðin selst fokheld fyrir
kr. 140 þús. ef kaupandi óskar að láta fullgera íbúð-
ina greiðist að auki kr. 2000 þús. á mánuði þar til
hún er fullgerð. Og er áætlað að íbúðin muni kosta
fullgerð kr. 250 þús. Allar nánari upplýsingar gefur
EIGNASALAI
• P EYKJAV í K •
Ingólfsstræti 9B — Sími 19540
opið alla daga frá kl. 9—7.
Billiardborð
Til sölu nýlegt, stórt billiardborð, eitt hið vandaðasta
og fullkomnasta sinna tegundar á landinu. Borðinu
fylgja 28 kúlur og 10 kjuðar, teljari og annað til-
heyrandi. Tilboðum sé skilað á skrifstofu blaðsins
fyrir 20. þ.m. merkt: „ Billiard — 4494“.