Morgunblaðið - 13.03.1959, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 13.03.1959, Qupperneq 17
Fðstudagur 13. marz 1959 MORC.VNBLAÐIÖ 7 • \ Ólafur Eyjólfsson bóndi Saurbœ — Minningarorð í DAG verður jarðaður frá Saur- bæjarkirkju á Kjalarnesi Ólafur Eyjólfsson bóndi í Saurbæ, merk- ur og mætur maður. Var hann elzti bóndinn í Kjalarneshreppi. Hann lézt að heimili sínu 2. þ. m. eftir stutta legu. Ólafur var fæddur í Saurbæ 22. okt. 1879, sonur Eyjólfs Kunólfs- sonar hreppstjóra, Þórðarsonar í Saurbæ. Kona Eyjólfs, móðir Ól. afs, var Vilhelmína Eyjólfsdóttir, Þorvarðssonar frá Jófríðarstöðum við Hafnarfjörð. Eyjólfur og Vil- helmína bjuggu allan sinn búskap í Saurbæ. Var heimili þeirra róm að höfðingsheimili fyrir gestrisni, myndarskap og hjálpsemi við þá, sem fátækari voru. Auk þess var Eyjólfur læknir góður, þótt væri ekki lærður. Var hans oft leitað utan og innan sveitar sinnar. Hann tók á móti fjölda barna. Það kom fyrir, að hann gat hjálp- að, þegar ljósmóðir gekk frá og ekki var hægt að ná í lækni. Einn ig af þesu varð hann kunnur langt út fyrir sveit sína. Ólafur ólst upp hjá foreldrum sínum j Saurbæ. Eftir að hann komst upp, hvíldi heimilið að miklu leyti á honum, þar til hann fór sjálfur að búa fullt fertugur. Hann hafði allar útveganir, við- skipti og ferðalög fyrir föður sinn. Var það oft mikið verk, því heimilið í Saurbæ var stórt og mannmargt. Þá var allt flutt á hestum eða sjóveg. Ólafur var gætinn og athugull ferðamaður, mikill hestamaður og nærgætinn að fara með þá. A þessum tíma var mikið gert að því hér um slóðir, í nágrenni Reykjavíkur, einkum hér á Kjalarnesi, að lána hesta til ferðalaga á sumrin, í lengri og skemmri ferðir fyrir innlenda bg útlenda menn. Var þá Ólafi æði-oft falið að fara slík- ar ferðir, til þess að sjá um með ferð á hestum reiðtygjum, sem oft urðu að fylgja, og koma því -til skila að ferðinni lokinni, og var alltaf talið öruggt, ef í um- sjón Ólafs í Saurbæ var. Ekki bar það ósjaldan við, að Ólafur færi skyndiferðir fyrir sveitunga sína í læknisvitjun og fleira, sem á lá, og lagði þá sjálfur til hestana, því í Saurbæ var góð. ur hestakostur. Ekki finnst mér líklegt, að Ólafur hafi verið dýr- seldur í þessum ferðum, líklega stundum guðsblessun ein. Árið 1921, 2. jan. kvæntist Ól- afur eftirlifandi konu sinni, Guð- laugu Jónsdóttur frá Króki á Kjalarnesl, mikilli myndar- og dugnaðarkonu. Hefur sami heim- ilisbragur ríkt hjá þeim hjónum og áður er getið um gamla heim- ilið. í Saurbæ er útkirkja frá Reyni- völlum. Aldrei mun hafa verið framkvæmd þar messugjörð eða önnur kirkjuathöfn svo, að það væri ekki talið sjálfsagt, að allir kirkjugestir kæmu í bæinn að þiggja góðgerðir. Við jarðarfarir í Saurbæ var ævinlega siður að veita góðgerðir að lokinni athöfn- inni. Veit ég fyrir víst, að hjá þeim hjónum hefir verð látið í té hús og vinna án endurgjalds að minnsta kosti. Ólafur virti og unni kirkju sinni af heilum hug. Veit ég að honum hafa fundizt messudag. arnir í Saurbæ hátíðisdagar, prestinum tekið með virðingu og einlægri vináttu. Ólafur var með- hjálpari um áratugi, einnig sókn- arnefndarformaður og safnaðar- fulltrúi fyrir Saurbæjarsókn um langt skeið. Þegar Saurbæjarkirkja fauk í ofviðri miklu laust eftir aldamót- in, stóð Ólafur við hlið föður síns við að endurbyggja hana úr var- anlegu efni. Kostaði það mikla vinnu og fjármuni. Og fyrir fáum árum hefur Ólafur látið endur- bæta kirkjuna utan og innan, og girt kirkjugarðinn vandaðri girð- ingu. Ólafur var ágætlea greindur, athugull og fróður um liðna við- burði, sem gerzt höfðu I hans samtíð. Hann var gæddur frá- bæru minni, sem mun vera ætt- gengt í íöðurætt hans, og svo öruggur cj vandaður um allt, sem hann sagði frá og vitnaði í, að ekki skeikaði. Nefndi hann oft- ast stund og stað máli sínu til sönnunar, er rætt var um liðna atburði. Oft var líka sagt og jafn- vel haft að orðtaki: „Þetta veit Ólafur í Saurbæ." Það var líka oft gert, að leita til hans með það, sem skipti máli. Ólafur var óvenju háttvis og grandvar í allri framkomu. Hann talaði :.ldrei ógætnis- eða óvirð- ingarorð til nokkurs manns. Ef hann var ekki sammála, sagði hann ekkcrt, en átti þó til að fara sínu fram, því hann átti stóra lund og viðkvæma. Aldrei sagði Ólafur niðrandi orð um náung- ann á bak; var hann þó eins og flestir aðrir menn, að honum féll misvel við menn. Vinum sínum var hann tryggur, ég hygg hann hafi aldrei slitið vináttu við neinn að fyrra 1 -agði.Ég hugsa líka, að fáir hafi slitið vináttu við hann. Víst er um það, að góðir nágrann- ar hans voru honum hjálplegir, þegar hann var orðinn fullorðinn og fáliðaður. Eyjólfur í Saurbæ og kona hans áttu aðeins 2 sonu. Ólafur og kona hans áttu ekkert barn. Það mætti ætla að Saurbæjarheimilið hafi verið létt langa tíð. En Saur- bæjarheimilið hefur í raun ög veru alltaf verið barnaheimili. I uppeldistíð Ólafs og á fullorðins- árum hans hjá foreldrum sínum og í búskapartíð hans sjálfs hafa margir menn og konur alizt að nokkru eða öllu leyti upp þar.Auk allra þeirra mörgu unglinga og i barna, sem hafa dvalizt um i lengri eða skemmri tíma, oft | mörg í einu að sumrinu. Öllum ! skyldum og vandalausum kom , saman um það, að vel væri fyrir i þeim börnum séð, er komust að ! Saurbæ. Þar var nóg að borða,1 góð hirða og sá hlýi andi, sem! laðar börnin. Ólafur var annálaður fyrir • hvað hann var barngóður. Nú, þegar hann kveður gamall maður, veit ég að hann er ekki fámennur hópurinn, sem minnist þess að hafa gengið smáum sporum við hlið hins stillta, prúða manns, sem nóg hafði að tala við börnin, því hann . ar fróður og eftirtöku- samur um mafga hluti, allt frá litla lambinu á vorin eða öðrum ferfætlingum í haganum upp í ættfræði samtíðarmanna sinna, eftir því sem hverjum hentaðj í það skipt-ð að heyra. Ekki var þeim heldur ofgert í vinnu, enda J hygg ég, að engu af þessu fólki finnist, að það hafi alizt upp hjá vandalausum. Margt af því hefur sýnt tryggð og rækt þeim hjónum eftir því sem ástæður hafa leyft. Ólafur 'éttaði túnið í Saurbæ. Það var eins og víðast annars staðar þýft og ekki hægt að vinna það nema með handverkfærum. Nú er það allt orðið véltækt og til muna stækkað. Þetta var að mestu gert áður en hinar stór- virku véla_r komu til sögunnai nú á allra síðustu árum. Þó lét Ól- afur þurrka land með skurðtröfu. Verður það allverulegur túnauki, þegar það er fullræktað. Nú fyrir u.þ.b. 3 árum leigði Ó1 afur meirihluta af jörðinni fóstur dóttur þeirra hjóna og frænda sínum, manni hennar. Búa ungu hjónin í gamla bænum með börn- in sín, en Ólafur byggði hús yfir þau eldri hjónin. Einnig hafði hann hluta af jörðinni og skepn- ur, sem hann gat hugsað um sjálf- ur. Nú um nokkur ár hefur verið fátt í heimili hjá þeim hjónum, en Ólafur átti lítinn nafna, sem hann sagði sjálfur fyrir skömmu síðan um, „að vont væri veðrið, ef nafni sinn kæmi ekki daglega‘% en hann er elztur af 4 litlum börn um þeirra ungu hjónanna. Nú kveðja vinir og ættingjar Ólaf í Saurbæ mannkostamann- inn, er var sveit sinni og samtíð til sóma. Jónas Magnússon. Nauðungaruppboð verður haldið að Síðumúla 20, hér í bænum, föstudaginn 20. marz n.k. kl. 1,30 e.h. eftir kröfu bæjargjaldkerans í Reykjavík. Seldar.verða eftirt. bifr.: R-262, R-944, R-1216, R-1858, R-1874, R-1947, R-1961, R-2179, R-2768, R-3290, R-3572, R-4220, R-4246, R-4471, R-4538, R-4655, R-4725, R-5719, R-5857, R-5873, R-5941, R-6688, R-6770, R-6778, R-6850, R-7098, R-7193, R-7267, R-7340, R-7552, R-7984, R-8098, R-8270, R-8299, R-8496, R-8647, R-8707, R-8827, R-9212, R-9317, R-9369, R-9428, R-9717, R-10147, og R-10248. Greiðsla fari fram við hamarshögg. "ORGARFÓGETINN I REYKJAVÍK. Jörö til sölu Til jörðu í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, átta hundruð hesta tún, lax og silungsveiði. Góður húsa- kostur, rafmagn og sími. Tún og engi girt. Skipti á íbúð í Reykjavík koma til greina. Jörðin er 2 Vz km. frá kaupstað. Allar nánari upplýsingar gefur IIGNASALAN • P E YKJ AV I K • Ingólfsstræti 9B — Sími 19540. opið alla daga frá ki. 9—7. ______________________________________________________ Viljum ráða til okkar verkamann í starf, sem gæti orðið til frambúðar. Æskilegt að umsækjandi væri á aldrinum 30—40 ára og hefði einhverja æfingu í meðferð rafknúinna véla. Upplýsingar á skrifstofunni í dag og á morgun. LÍSI H.F., Grandaveg 42. TIL SÖLU Vélskófla hentugt moksturstæki fyrir beinamjöls- verksmiðjur og ljósavél 35 Kw. UpplýsingaT gefur Baldur Kristinsson sími 1 Fiskimjölsverksmiðjan í Vest- mannaeyjum h.f. jgendur jeppabifreiða Framleiðum úr þykku stáli: úffur á amerískar jeppabifreiðar, Framgólf með .óstum gólfbitum, Hliðar á hvalbak, stuðara o. fl. Virðingafyllst Oifreiðaverkstæðið Múli Suðurlandsbraut 121 Sími 32131. Jálningar mesta talfoveringameisfara í heimi Gleymdar og glafaðar konur Leifturstríð í Póllandi / helgreipum hafsins E T J A ERNST UDET orustuflugmaðurinn ésigrandi Sanihir sögur af svaúilförum, mamraunum og Itfueynsltt,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.