Morgunblaðið - 13.03.1959, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.03.1959, Qupperneq 22
MORGUNBL ABIÐ Fðstudagur 13. marz 19 ) Mannvirkjagerð að Efra Sogi lýkur á þessu ári MBL. átti í gærdag tal við verk- fræðingana austur yið orkuverið !í Efra-Sogi. Skýrðu þeir svo frá, að gerðar hafi verið nýjar áætl- anir um byggingu allra aðalmann virkja við orkuverið. Er gert ráð fyrir að ljúka smíði þeirra á I þessu ári eða um ári fyrr en upphaflega hafði verið ráðgert. Svo sem getið er á öðrum stað ihér í blaðinu var þeim merka áfanga náð við Efra-Sog í gær, að jarðgöngin eru nú komin í gegnum Dráttarhlíð. Verkefnin eystra, sem næst liggja fyrir, auk steypuvinnu í jarðgöngunum, er ■ að fullgerða vatnsjöfnunarþró , fyrir ofan stöðvarbygginguna. i Þá verður gerður svo sem 30— 40 metrum fyrir neðan jarðgöng- í in, þar sem þau koma út í Þing- j vallavatn, í ósi þess, 100 metra i langur stíflugarður. Upphaflega var svo ráð fyrir gert að þessi I garður yrði ekki gerður fyrr en sumarið eftir að raforkuverið tæki til starfa. Verkfræðingarnir ] skýrðu svo frá, að áform um j þetta hafi verið breytt, og er nú ákveðið að stíflugarðurinn verði allur gerður næsta sumar og haust. Þetta verður að sjálfsögðu allmikið mannvirki. Fyrst var gert ráð fyrir að stíflugarðurinn ; yrði byggður í einu lagi með því að hægt yrði að þverstífla ós ! Þingvallavatns og beina þá vatns ] rennslinu úr vatninu í gegnum jarðgöngin og í orkuverið. Nú er hins vegar gert ráð fyrir að byggja stíflugarðinn áður en I stöðin verður tekin í notkun. Er I þetta framkvæmanlegt á þann I hátt að steypa stíflugarðinn í I tveimur áföngum eftir að varnar i veggur hefur verið gerður út ós- inn. verkfræðingarnir gera sér vonir um að geta iokið öllum helztu byggingum orkuversins á þessu ári, eða 10 mánuðum fyrr en áætlað var í fyrstu. Nú vinna 135 iðnaðar- og verkamenn austur við Sog, og er gert ráð fyrir að nokkru r Oskað eftir opin- berri rannsókn í DAGBLAÐINU „Tíminn“ var 6. marz sl. skýrt svo frá að lækn- ar myndu hafa rætt gagnráðstaf- anir gegn „Vikunni" vegna grein- ar (12. febr.) um eiturlyfjamál, en hætt við framkvæmdir. Af þessu tilefni vill stjórn Læknafélags Reykjavíkur upp- lýsa að þann 20. febr. ritaði hún dómsmálaráðuneytinu bréf um þetta mál og óskaði eftir að rann- sókn yrði nú þegar látin fara fram. Stjórn Læknafélagt Reykjavíkur. meiri mannafla þurfi í sumar. Mjög var ánægjulegt að koma austur og sjá hve vel þessu mikla mannvirki miðar. í stöðv- arhúsinu var t.d. unnið að niður- setningu vatnstúrbínunnar fyrir aðra vélasamstæðu orkuversins, og búið að steypa öflugar uppi- stöður fyrir þær báðar. Þá eru hafnar byrjunárframkvæmdir við smíði íbúðarhúsa vélstjóranna, en þau eiga að standa á uppfyll ingu fyrir neðan stöðvarhúsið. Að mörgu öðru er að sjálfsögðu unnið, en það of flókið venjuleg um leikmanni að skilja það allt til hlítar og of langt upp að telja. — En áður en komumenn héldu til Reykjavíkur í snjómuggu og kyrru veðri, var sem snöggvast komið aftur að opinu í jarðgöng- unum Þingvallamegin. Voru verkamenn þar önnum kafnir við að hreinsa úr þeim og opna þau, svo að þess var þá skammt að bíða að stóru grjótflutninga- bílarnir gætu ekið gegnum jarð- göngin. Álagningin hefir lœkkað, en erlent verðlag hœkkað Vegna blaðaskrifa um verð á benzíni og olíum vill ráðuneytið taka fram eftirfarandi. í samræmi við ákvæði og fram kvæmd laga nr. 1, 1959, um niður færslu verðlags og launa, hefur álagning olíufélaganna á benzíni og olíum verið lækkuð um 5%, og kom lækkunin til fram- kvæmda frá og með 1. febr. s.l. Á hinn bóginn hefur þessi lækk- un ekki haft nein áhrif á útsölu verð benzíni og olíum af þeim ástæðum, sem greindar eru hér á eftir. Innkaupsverð á benzíni og olí- um og flutningskostnaður á þeim Þetta er ekki hákarlskjaftur, heldur Viscount, séður aftan frá, eftir að nokkrar plötur hafa verið skrúfaðar af. Víðtœkasta skoðun, sem gerð hefur verið á Viscount hérlendis Flugfélag íslands hefur frá öndverðu annazt að mestu leyti viðhald flugvéla sinna. Með komu Viscount flugvélanna breyttust aðstæður allar, þar var um að ræða fullkomnari flugvélar og ólíkar eldri gerðum, sérstaklega hvað hreyflunum viðvék. Hóf félagið því að þjálfa flugvirkja sína í viðhaldi nýju flugvélanna — og hafa 17 þeirra nú notið fulln aðar þjálfunar hjá Viscountflug- vélaverksmiðjunum og Rolls Royce, framleiðendum hreyfl- anna. I fyrstu voru Viscount-flugvél- arnar samt skoðaðar og yfirfarn- ar erlendis, en þetta viðhald hef- ur nú smám saman færzt hingað heim með bættri aðstöðu og þekk ingu flugvirkja félagsins. Nú stendur yfir hin svonefnda „Skoðun 4.“ á annarri Viscount- Túnastœrð hefur aukizt 4,9 sinnum og töðufeng- ur sexfaldazi í NÝÚTKOMNU hefti af búnaðar blaðinu Frey er grein um tún- Jrækt á Suðurlandi í 50 ár eftir (Kristinn Jónsson. Henni fylgir itafla yfir þróun túnstærðar og heyskapar á starfssvæði Búnað- arsambands Suðurlands í hálfa öld. Sýnir tafla þess að árið 1908 var heyfengur 591.448 hestar, en árið 1957 var hann orðinn 1012.000 hestar. Á síðastliðinni hálfri öld hafa tún á þessu svæði stækkað úr 3.796 ha. í 18.532 ha. Á töflunni sést m.a. að stærð túnanna hefur ekki tvöfaldast á tímabilinu frá 1908 til 1938, en að frá 1937 til ársins 1957 hefur túnastærðin aukizt 2,5 sinnum. Töðufengurinn hefur á árun- um frá 1908—1957 nærri, sexfald- ast. Útheysskapurinn er aftur á móti þrisvar • sinnum minni en hann var 1908. flugvélinni, en það er næstvíð- tækasta skoðun, sem gerð er á þessum flugvélum — og sú mesta, sem gerð hefur verið hjá Flug- félaginu. Þessi skoðun er gerð eftir hverjar 2,400 flugstundir — og er það í annað sinn, sem slík skoðun fer fram á Viscount-vélunum ís- lenzku. Minniháttar skoðanir fara fram þess á milli, „Skoðun l.“ á 135 flugstunda fresti, „Skoð- un 2.“ á 400 fíugstunda fresti og Skoðun 3.“ á 800 flugstunda fresti. f þessari fjórðu og næst stærstu koðun má segja að flug- vélin sé endurnýjuð hátt og lágt yzt sem innst. Yfir 20 manns starfa við skoðunina og tekur hún 5—6 vikur. Má því nærri geta, að mikið sparast í erlendum gjald- eyri við að framkvæma verkið hér heima. Skoðun beggja flug- vélanna kostar hálfa milljón. Brandur Tómasson, yfirflug- virki, lét þess getið í gær, er blaðamenn gengu um verkstæði Flugfélagsins, að undraverð væru gæði hreyflanna í Viscount. ísing olli slysinu BRUNSWICK, 12. marz. — Rann- sókn flugslyssins, er varð í fyrra í Munchen og leiddi til þess að 28 létust, þar af margir helztu liðsmenn knatspyrnuliðsins Man- chester United, er nú lokið. Segir í niðurstöðum, að ising á vængj- um hafi valdið því, að flugvélin, sem var af Elizabethan gerð, náði ekki nægilega mikilli ferð og féll til jarðar strax eftir flugtakið. Hingað til hefði ekki komið fram ein einasta smábilun á þeim — eftir tveggja ára notkun. Auk vélaviðhaldsins annast radíoverkstæði félagsins allar viðgerðir og viðhald radiotækja í flugvélunum — og verkstæðinu veitir forstöðu Aðalsteinn Jóns- son, útvarpsvirki. Yfirmaður rafmagnsdeildar er Halldór Þorsteinsson, mælitækja deildar Sveinbjörn Þórhallsson, skrúfudeildar Einar Sigurvins- son og Jón N. Pálsson er yfir- maður skoðunardeildar. til landsins er sífelldum breyt- ingum undirorpinn. Til þess að forðast það, að þessar breytingar leiði til sífelldra verðbreytinga innanlands heldur verðlagsstjóri verðjöfnunarreikning yfir benzín og olíur. Á þessum reikningi kem ur fram sá mismunur, sem er á hverjum tíma á ríkjandi útsölu- verði, sem ætti að vera miðað við innkaupsverð, flutningskostn að og leyfða álagningu sam- kvæmt gildandi reglum. Þegar út söluverð er hærra en vera ber, myndast innstæða á reikningn- um, þegar það er lægra myndast halli. Útsöluverðið er síðan leið rétt, þegar verðlagsyfirvöldin telja það eðlilegt vegna þess að innstæðan eða hallinn hafi vaxið of mikið. Sú lækkun álagningar, sem til framkvæmda kom þann 1. febr. s.l., hefur verið færð inn á þennan verðjöfnunarreikning og hefði það að öðru óbreyttu átt að verða til þess að útsölu- verð lækkaði áður en langt um liði. Á hinn bóginn hefur verðlag á benzíni og olíum erlendist far- ið hækkandi síðan útsöluverði var breytt síðast, en það var á s.l. sumri. Af þessum sökum hef ur lækkun álagningarinnar þann 1. febr. s.l. ekki leitt til neinnar lækkunar á útsöluverði. Viðskiptamálaráðuneytið 11. Kveimasendi- nefnd frá Sovét- ríkjnnum I DAG kom til Reykjavíkur fjögra kvenna sendinefnd frá Sovétríkjunum í boði Húsmæðra deildar MíR og fleiri félaga. Nefndina skipa þessar konur: Yelena Khakalina, varaborgar stjóri Leningradborgar. Hún á sæti í stjórn Kvennasambands Sovétríkjanna og Friðarnefnd Sovétríkjanna. Meshkauskene Mikhalina, vara menntamálaráðherra Lításka So- vétlýðveldisins, þingmaður. Agnia Barto, kunnur rithöfund ur. Olga Ushanova, fulltrúi blaðs- ins „Sovétkonan“ og ein af rit- stjórum hinnar ensku útgáfu þess. Þær munu kynna sér eftir föng um störf kvenfélaga hér og menn ingarlíf höfuðstaðarins. Fyrsti rauðmaginn í búðum í Reykjavík Var fluttur á b'il norðan úr landi í GÆRMORGUN sást fyrsti rauð- maginn á þessum vetri í fisk- búðum í Reykjavík, og voru marg ar húsmæður fljótar að ná sér í í soðið. Mun hann hafa komið norð an frá Dalvík, sendur þaðan land leiðina daginn áður. Er óvenju- legt að Dalvíkingar sendi nýjan rauðmaga til Reykjavíkur á þess- um tíma árs, að því er fréttarit- ari blaðsins á staðnum tjáði Mbl. í gær. Rauðmagaveiði byrjaði á Dalvík snemma í febrúar, en veiði var léleg þangað til núna. Hyggjast Dalvíkingar halda á- fram að senda rauðmaga suður, MOSKVU, 12. marz. — Krúsjeff ef sæmileg veiði helzt kom flugleiðis aftur til Moskvu Blaðið átti tal við fréttaritara úr förinni til Austur-Þýzkalands. sinn á Húsavík og kvað hann rauð Meðal þeirra, sem tóku á móti magaveiðina góða þar. Ekki hefði honum á flugvellinum voru verið sendur neinn rauðmagi frá I Mikojan, Furtseva og fleiri sam- Húsavík suður enn sem komið ' verkamenn. væri, en það stæði til. Það af aflanum, sem ekki seldist strax á staðnum, væri reykt. Rauðmaga veiðin byrjaði í febrúar, en vegna ógæfta hefir varla verið hægt að leggja net fyrr en núna í vikunni. En útlit er fyrir góða rauðmaga- veiði í vor. Þorskafli Húsavlkurbáta er heldur lélegur, en menn gera sér vonir um að hann fari að glæðast, því loðna er komin á miðin. II {oiHO, Ml\ \Mirmr Truibenísed T£i6bl

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.