Morgunblaðið - 13.03.1959, Blaðsíða 24
VEÐRID
Þykknar upp með vaxandi
suðvestan átt.
Landsfundarrœða
Ólafs Thors hefst á bls. 3.
60. tbl. — Föstudagur 13. marz 1959
Söfiiimin vcgna
sjóslysanna
ENN berast peningagjafir til
þeirra aðila, sem taka á móti
söfnunarfé vegna aðstandenda
þeirra sem fórust í sjóslysunum
miklu. í gær bárust Morgunblað-
inu liðlega 45 þús. kr.
í gær hafði Bæjarútgerðin í
Hafnarfirði tekið á móti 140
þús. kr. í ailt og Adolf Björns-
son, formaður útgerðarráðs, við
276 þús. krónun*.
Leikirnir hefjast
kl. 8,15
ÞAÐ er 1 kvöld kl. 8,15 sem
keppnin hefst milli úrvalsliða
Handknattleikssambandsins og
liða, sem blaðamenn hafa valið
í karla- og kvennaflokki. — í
þeim fyrrnefnda eru hinir sömu,
er kepptu við Dani í Slagelsi í
fyrra mánuði og stóðu sig þá
afbragðsvel, en í kvennaflokkn-
um á móti blaðaliði eru stúlkur,
sem valdar hafa verið í landslið.
— Keppnin fer fram að Háloga-
landi.
Svo mikinn púðurreyk lagði út um opið á jarðgöngunum, að ckki sá handaskil. Framan við opið eru verkfræðingarnir Árni
Snævarr á miðri myndinni, tii vinstri við hann Gestur Stefánsson og Sören Langvad og verkamennirnir, sem hafa unnið
við göngin, við sprengingarnar og grjótflutningana úr þeim. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Lokasprengingin er opnaði göngin
Dráttarhlíð heppnaðist vel
KLUKKAN 8 í gærmorgun kváðu
við þrjár öflugar sprengingar í
Dráttarhlíð, austur við Efra-Sog,
Þingvaliavatnsmegin. Út úr berg-
inu stóð nokkur grjóthríð, og í
sama mund opnaðist eins
og hellir í hlíðinni. Þar
með voru jarðgöngin í gegnum
hlíðina frá orkuverinu við Efra-
Sog og að Þingvallavatni komin
í gegn.
Margir verkamenn voru nær-
staddir, er þessi síðasta spreng-
ing var gerð, en þeir höfðu ýmist
unnið við sprengingarnar í jarð-
göngunum eða við grjótflutninga
úr þeim. Þá voru þar og verk-
fræðingarnir Árni Snævarr, Sör-
en Langvad og Gestur Stefáns-
son, sem haft hefir daglegt eftir-
lit með sprengingum fyrir jarð-
göngin.
Nokkru eftir að sprengingarnar
urðu, en í þær hafði farið um
200 kg. af sprengiefni, tók mik-
inn gráleitan púðurreik að leggja
út um opið, og þeir, sem komnir
voru til þess að skoða verksum-
merki, urðu að hörfa frá. — Þeir,
sem unnið höfðu við að bora og
undirbúa sprenginguna um nótt-
ina, héldu nú heim í mötuneytið
ásamt verkfræðingunum. Voru
menn glaðir í bragði og töldu
þessa lokasprengingu hafa heppn
azt mjög vel. 1 mötuneytinu var
setzt að kaffidrykkju. Árni Snæ-
varr verkfræðingur dró þar upp
þriggja stjörnu koníak og dálítil
staup, og var verkamönnunum,
sem tilheyra svonefndum bor-
flokki, færðar þakkir fyrir vel
unnið starf. Kvaðst Árni vilja
leggja áherzlu á hve vel hefði
farið úr hendi hin erfiða og á
stundum hættulega vinna við
borun og sprengingar í jarð-
göngunum. Gat hann þess, að
enginn verkamannanna héfði orð
ið fyrir meiðslum allt frá því
vinna hófst.
Jarðgöngin í gegnum Dráttar-
hlíð eru nú 355 metra löng. Þau
eru tæplega 9 metrar á hæð og
breiddin rúmir 8. Til þess að
leggja þau í gegnum hlíðina hefir
þurft að framkvæma 110 spreng-
ingar, en við hverja þeirra hafa
göngin lengzt um 3—3,5 metra.
Guðm. Hermannsson hefir verið
verkstjóri í jarðgöngunum, stjórn
að borflokki, sém í voru 8 menn,-
og einnig flokki þeim, sem sér
um að hreinsa til í göngunum
eftir sprengingarnar og flytja
grjótið úr þeim.
Þótt göngin séu nú komin í
gegnum Dráttarhlíð, verður enn
um hríð haldið áfram borvinnu
og sprengingum í aðrennslis-
skurði gangnanna, Þingvalla-
vatnsmegin. Síðan hefst svo að
sjálfsögðu undirbúningurinn að
steypuvinnu í göngunum, við að
fóðra þau, eins og það er kallað,
en nú þegar er því verki lokið á
125 metra löngum kafla.
Bergsteinn Guðjónsson
Lýðrœðissinnar sigruðu
í Hreyfli
STJORNARKOSNING fór fram
í bifreiðastjórafélaginu Hreyfli 1
gær og í fyrradag. Atkvæði voru
talin í gærkvöldi og úrslit urðu
þau, að A-listi lýðræðissinna fékk
228 atkvæði, en B-listi kommún-
ista 120. Auðir og ógildir voru 11.
í stjórnarkosningunum í fyrra
í/ 4 'T' "
Hér opnaðist Dráttarhlíð Þmgvallamegin
sprengingu í gærmorgun. Opið myndaðist
bogauum.
eftir hina miklu
undir steinsteypta
Stjórnmdlaskóli Varðar:
Svavar Pálsson viðskiptafræðmgur
talar um skattamálin í kvöld.
f KVÖLD hefst fyrsta erindið í
fimmta og síðasta málaflokki
stjórnmálaskólans, en þau fjalla
um skattamál, viðskiptamál,
verkalýðsmál og félagsmál.
Á mánudagian í þessari viku
flutti Jóhann Hafstein erindi um
kommúnismann. Skýrði hann hug
sjónir, hugtök og kenningar
stefnunnar og ræddi síðan ýtar-
lega um þá reynslu sem fengizt
hefði af þessu þjóðskipulagi í
hinum austrænu ríkjum. Var er-
indi hans fróðlegt og skemmti-
legt og svaraði hann að lokum
mörgum fyrirspurnum sem fram
komu.
Svavar Pálsson viðskiptafræð-
ingur og löggiltur endurskoð-
andi talar um skattamálin í
kvöld. Þau mál eru meðal allra
þýðingarmestu mála í íslenzku
efnahagslífi í dag. Mun hann fyrst
stuttlega ræða nokkur skatt-
teknisk atriði, en síðan aðallega
um stefnuna í skattamálum und-
anfarin ár og að lokum gera
grein fyrir þeim breytingum á
skattalögum sem nauðsynlegt er
að gera á næstu árum.
ovavar Pálsson
munaði 90 atkvæðum á listum
lýðræðissinna og kommúnista, en
nú 108. í stjórn voru kosnir:
Bergsteinn Guðjónsson, Hreyfli,
formaður; Andrés Sverrisson,
BSR, varaformaður; Bergur
Magnússon, Borgarbílast., ritari,
og meðstjórnendur þeir Guðman
Heiðmar, B.S.R. og Ármann
Magnússon, Hreyfli.
Stóreignaskatts-
skráin lögð f ram
SKRÁ um stóreignaskatt á hluta
félög hefur nú verið lögð fram að
nýju, en svo sem kunnugt er felldi
hæstiréttur þennan hluta stór-
eignaskattsins úr gildi og lagði
fyrir skattayfirvöld að leggja
hann á að nýju.
Stóreignaskattur á hlutafélög
var upphaflega rúmar 80 millj.
en hins vegar aðeins 300 þúsund
á öll samvinnufélög í landinu.
Eftir að kært hafði verið til skatta
nefnda lækkaði skatturinn niður
í 75 milljónir, en samkvæmt
þeirri skrá, sem nú liggur frammi
nemur skatturinn rúmum 62
milljónum.
Matsverð hlutabréfanna er að
langmestu leyti miðað við sama
grundvöll og áður. í þetta sinn
er þó örlítið tillit tekið til tekna
félagsins og arðgreiðslna á und-
anförnum árum.
SANDGERÐI, 12. marz. — 16
bátar voru á sjó og fengu 137
tonn. Aflahæst var Guðbjörg með
19,5 tonn og næstur Mummi með
14 tonn. — A.