Morgunblaðið - 19.03.1959, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.03.1959, Qupperneq 1
20 síður Varamaður í miðstjórn Framsóknar sagði á flokksþingi hennar: „Staðreynd að útlit er fyrir að áhrif flokksins í þjóðlífinu fari minnkandi" „Ef SÍS væri í vandræð- um með fjármagn sitt“ Kristján greinir á milli I. flokks og II. flokks samvinnu, þ.e. sjálfstæðra fyrirtækja, sem samvinnufélög reka. Eru honum sum þeirra mikill þyrnir í aug- um, einkum smá-iðnaður SÍS. | Segir Kristján um þetta: „Ef SÍS vildi vera svo elsku- legt að hætta að seilast að nauð synjalausu inn á starfssvið smá- iðnrekendanna, sem ég get ekki séð að mundi skaða það neitt, þá tel égaðvið ættum vísan stuðning mikils meirihluta þeirra, því af- staða þeirra og aðstaða í þjóðfé- laginu er nákvæmlega sú sama og bóndans í sveitinni". Og skömmu síðar: „Og ef SÍS væri í vandræð- um með, hvað það ætti að gera við fjármagn sitt, teldi ég far- sælla að það veitti kaupfélögun- um, eigendum sínum, enn meiri stuðning en það nú hefur aðstöðu til — með svo mikið fjármagn bundið í II. flokks samvinnu — en auk þess gæti það veitt stuðn- ing ýmis konar annarri persónu* legri samvinnu, sem einstakling- ar kynnu að koma á fót“. „Ef Framsóknar* flokkutrinn ætlar“ Margt fleira fróðlegt segir Kristján í erindi sinu og verður e.t.v. færi á að víkja að sumu þess síðar. En efnislega er niður- staða Kristjáns þessi: „Ég býst við að menn séu mér sammála um það, að ef Fram- sóknarflokkurinn ætlar í framtíð inni að taka sinn þátt í ábyrgð á þjóðmálaframvindunni, þá verði fylgi hans í þéttbýlinu að aukast stórlega frá því sem nú er“. „Einu sinni átti flokkurinn helming þingmanna á Alþingi „Ef SfS vildi vera svo elskulegt að hœtta að seilast...........44 Herfylkingar í Austur-Þýzkalandi Þegar Krúsjeff, forsætisráðherra Rússlands, heimsótti Austur-Þýzkaland fyrir nokkrum dögum horfði hann m. a. á hersýningar og hergöngur austur-þýzka hersins. Mynd þessi var tekin af her- göngu austur-þýzkra kommúnista til heiðurs rússneska valdhafanum. Við það tækifæri lýsti Ul- bricht, foringi austur-þýzkra kommúnista, því yfir, að Berlínar-búar þyrftu ekkert að óttast þótt farið yrði að ráðum Rússa og Vestur-Berlín gerð hlutlaust og vopnlaust fríríki. — Rússar komu austur-þýzkum her á fót þegar 1948 og hafa síðan eflt hann og búið nýtízku vopnum. Ofsalegar árásir hefjast gegn Tító Kínverjar kalla hann erindreka heims- „EINU sinni átti flokkur inn helming þingmanna á Alþingi, en mjög er við- búið að eftir tvennar kosningar sem líkur eru til að í hönd fari, muni hann ef til vill ekki eiga nema um það bil einn fjórða af fulltrúunum á Alþingi. Um orsakirnar fyrir þessu má margt segja, en skal ekki rakið hér, en aðeins horfzt í augu við þá staðreynd að útlit er fyrir að áhrif flokksins í þjóðlífinu fari minnkandi þrátt fyr- ir sín góðu málefni og sína góðu fulltrúa — nema því aðeins að veru- leg breyting verði í þá átt að fylgi flokksins aukist. Þannig er tekið til orða f er- Indi, sem Kristján Friðriksson varamaður í miðstjórn Fram- sóknarflokksins, flutti flokks- þinginu í formi bæklings, er hann lét þar útbýta. Heiti bæklingsins er: „Um stjórnmálastefnu Fram- sóknarflokksins. Nýir bandamenn dreifbýlisins í þéttbýlinu". „Eieinhaesmunir undirmarkmið“ Þegar Kristján miklast yfir hinum góðu fulltrúum flokksins, er það bersýnilega mælt af hæ- versku í garð núverandi forystu manna, því að skömmu síðar seg- ir hann: „En takið nú vel eftir: Flokk- urinn á ekki að byggja á fáum einstaklingum, sem ef til vill eru framúrskarandi að einhverju leyti, heldur á hinum mörgu ein- staklingum". Og um málefnabaráttuna þyk- ir Kristjáni ástæða til að áminna flokksbræður sína á þessa leið: „Eiginhagsmunir eða stundar- hagsmunir vissra hópa eða stjórn málaflokka eiga ekki að koma þar til greina, nema þá sem und- irmarkmið eða tæki í baráttunni fyrir hagsæld heildarinnar“. „Við eigendurnir“ Enginn vafi er á því, að Krist- ján hefur þyngstar áhyggjur út af frammistöðu SÍS og áhrifum hennar á fylgi Framsóknar. Um samband SÍS og Framsóknar seg- ir Kristján: „Nú munu ýmsir hugsa sem svo, að það sé ekki verkefni Fram sóknarflokksins að segja SÍS eða kaupfélögunum fyrir yerkum. Auðvitað má segja sem svo. En við, eigendurnir, ættum þó að hafa rétt til að segja skoðun okk- ar á starfseminni. Hins er líka vert að minnast, að engum dylst að Framsóknarflokkurinn er skjól og skjöldur samvinnuhreyf- ingarinnar og ég tel að svo eigi að vera. Örlög samvinnuhreyf- ingarinnar og Framsóknarflokks ins eru og verða nátengd og eiga að vera tengd. Þess vegna er það siðferðileg skylda samvinnuhreyf ingarinnar að haga málum sín- um svo, að starfsemi sú, sem rekin er undir hennar merki, standi ekki í veginum fyrir heil- brigðum og nauðsynlegum vexti Framsóknarflokksins". Umtal sitt um SÍS byrjar Kristján svo: „Aðvörun Kem ég þá að kaflanum um Samband ísl. samvinnufélaga. Ég get ekki látið hjá líða, að skjóta hér inn í, að fyrir nokkr- um vikum var ég að segja einum vini mínum, sem er kaupfélags- stjóri úti á landi, frá efni þessa erindis. Hann sagði við mig: „Hugmyndirnar eru allar ágætar, eða a.m.k. athyglisverðar. En ég vil aðeins ráðleggja þér eitt: Slepptu kaflanum um SÍS“. Og mér skildist að ástæðan fyr- ir þessari ráðleggingu væri sú, að að það sem ég hefði um SÍS að segja í þessu sambandi, yrði skoðað sem árás á samvinnu- hreyfinguna, mundi valda deilum og meginkjarni hugmyndanna mundi hverfa í skuggann og týn ast í þeim deilum, sem þetta mundi vekja". valdasinna Belgrad og Hongkong, 18. marz. (Reuter) VA R L A höfðu fulltrúar Rauða-Kína og Júgóslavíu lokið við að undirbúa nýjan viðskiptasamning milli land- anna, í Peking í morgun, þeg- ar kínversku kommúnistarnir hófu hinar hatrammlegustu árásir á Tító og kommúnista- flokk Júgóslavíu. Hófust árás- ir þessar með því að sendi- herra Júgóslava í Peking var afhent mótmælaorðsending. Síðan hafa blöð og útvarps- stöðvar í Kína tekið að úthúða Júgóslövum. Viðskiptasamningur milli Kína og Júgóslavíu var undirritaður í Peking í morgun, eftir þriggja mánaða samningaumleitanir. — Samkvæmt honum verða við- skipti milli landanna skorin nið- ur um 60%. Samkvæmt síðasta viðskiptasamningi landanna fyr- ir árið 1958 áttu viðskiptin að nema 9,8 milljónum dollara, en samkvæmt hinum nýja samningi verða þau aðeins 3,5 milljónir dollara. Þá hætta Kínverjar að kaupa af Júgóslövum vöruflokka eins og tóbak, vefnaðarvörur og vélar, en munu halda áfram að kaupa aluminium-plötur, stálpíp- ur, trjákvoðu og efnavörur. Júgó- slavar munu kaupa soya-baunir, málma og silki af Kínverjum. I árásunum, sem hófust gegn Júgóslövum í dag, eftir samnings- gerðina, var það eitt af ásökunar- efnunum, að Júgóslavar hefðu tafið samningsgerð með harð- svíruðu prútti og alls kyns skil- yrðum. Talsmenn Júgóslava segja hins vegar, að þýðingarlaust hefði verið að gera hærri við- skiptasamning, en 3,5 milljónir dollara, vegna þess að Kínverjar hefðu á sl. ári torveldað umsamin viðskipti í pólitískum tilgangi. Sendiherra Júgóslava í Peking var í dag kvaddur í kínverska utanríkisráðuneytið og voru hon- um afhent harðorð mótmæli vegna þess, að Tító, forseti Júgó- slavíu, hefði á för sinni um Suður- og Austur-Asíu haldið uppi stöðugum lygaáróðri og rógi um Rússland og Sovét-Kína. Blöð í Kína og Peking-útvarp- ið fluttu mótmælaorðsendingu Frh. á bls. 19. ★-------------------------★ Fimmtudagur 19. marz. Efni blaðsins m.a.: Bls. 6: Rússar skera í sundur lífal yfir Atlantshafið. — 8: Ályktun landsfundar um uU»> ríkis- og landhelgismál. — 9: Kvenþjóðin og heimilið. — 10: Forystugreinin: Framsókn ela> angrar sig í kjördæmamálinu. Heywood kynbomba (Utan ú* heimi). — 11: Kjördæmamálið og sveitirnav. Ferskt vatn úr sjónum. —- 18: iþróttafréttir. ★-------------------------*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.