Morgunblaðið - 19.03.1959, Blaðsíða 18
18
Sf O Ryhl’ NBL AÐIB
Fimmfudagur 19. marz 1959
ríttatfréttir ftct-phblafomA
Glœsilegur árangur Valdimars Örn■
ólfssonar á skíðamóti í Póllandi
^VALDIMAR örnólfsson, skíða-^
maður í ÍR tók nýlega þátt í
miklu alþjóðlegu móti í Zakat-
ane í Póllandi. Voru um 70 þátt-
takendur í mótinu, þeirra á með-
al margir landsliðsmenn og
meistarar frá- ýmsum löndum.
Árangur Valdimars á mótinu
varð mjög góður. Hann varð í 3.
sæti í alpaþríkeppninni. Varð
hann 7. í stórsvigi, 7. í bruni og
119. í svigkeppninni.
Valdimar Örnólfsson hefur áð-
ur getið sér góðan orðstír á skíða-
mótum erlendis, en hefur nú enn
bætt þar á, svo um munar.
# "
Cóður árangur
UM sl. helgi var haldið alþjóð-
legt skíðamót í Áre í Svíþjóð.
Voru þar þá staddir íslendingarn
ir fjórir, sem með svo miklum
glæsibrag tóku þátt í Holmen-
kollenmótinu í Noregi á dögun-
um. Sá fræknasti þeirra, Ey-
steinn Þórðarson gat ekki tekið
sþátt í mótinu í Áre vegna
meiðsla er hann hefur hlotið, en
hinir þrír kepptu með allgóðum
árangri.
Kristján Benediktsson frá fsa-
firði varð 6. í stórsvigskeppn-
inni, Svanberg Þórðarson níundi
og Árni Sigurðsson 21. í svig-
keppninni varð Svanberg 24. í
röðinni, en hinir tveir urðu úr
leik.
Heiðra kunna
forustumenn
Á ÁRSÞINGI Í.B.R. sæmdi
íþróttasamband fsl. Gísla Hall-
dórsson, formann Í.B.R., gull-
merki Í.S.Í. fyrir langt og mikið
starf að íþróttamálum Reykja-
víkur, en hann hefur verið í
stjórn Í.B.R. frá upphafi og for-
maður framkvæmdastjórnar
bandalagsins síðastliðin 10 ár.
Einnig hefur hann átt sæti í Sam
ibandsráði f.S.Í. og Olympíunefnd
íslands. Þá gat Forseti Í.S.Í. þátt
ar Gísla Halldórssonar í bygging
arframkvæmdum félags hans,
K.R., bæði á íþróttasvæði K.R.
©g í Skálafelli. Hann hefur frá
upphafi verið formaður bygging
arnefndar og Hússtjórnar K.R.
Á Ársþinginu sæmdi Frjáls-
fþróttasamband íslands Þorgils
Guðmundsson gullmerki F.R.Í.
fyrir langt og mikið starf að
frjálsíþróttamálum, fyrst I Borg-
arfirði og síðar í Reykjavík. Þor-
gils hefur um árabil átt sæti í
Olympiunefnd íslands, fþrótta-
dómstóli Í.S.Í. og Héraðsdómi
Í.B.R.
Þá var Gunnar Sigurðsson
sæmdur við sama tækifæri silfur-
merki F.R.f. fyrir ágætt starf að
f r j álsiþróttamálum,
Körfuknattleiksmót Islands hófst sl. sunnudag með skemmtileg-
um leikjum. Var þá dæmt eftir nýjum reglum, sem gera leikina
skemmtilegri á að horfa, og kom þetta í ljós þegar í fyrstu leikj-
unum. i kvöld verður mótinu haldið áfram og leika þá í 2. fl.
lið ÍKF og B-lið Ármanns og í meistaraflokki karla lið ÍKF, sem
er núverandi íslandsmeistari, og lið stúdenta. — Myndin er frá
körfuknattleikskeppni að Hálogalandi.
Enska bikarkeppnin:
Luton komst í úrslit,
sigraði Norwich 1-0
í ENDURTEKNUM leik undan-
úrslita bikarkeppninnar í gær,
sigraði Luton Town, 3. deildar
hetjurnar Norwich City með einu
marki gegn engu. Norwich átti
meira í leiknum og voru oft
nærri að skora, en hámark leiks-
ins var á 40. mín. er vinstri bak-
vörður Lutons, McNally, bjargaði
á marklínu. Ef Norwich hefði
tekizt að skora á þessu augna-
bliki — sagði fréttamaður frá
BBC — hefði 3. deildar liðið
komizt á Wembley. Markið kom
á 10. mín. seinni hálfleiks, Brown
fékk knöttinn sendan frá Gregory
og gaf hann til Mortons, sem
spyrnti með hæl til Binghams, en
Bingham skaut viðstöðulaust í
gegnum þvögu varnarleikmanha
Norwich og upp í hornið á mark-
inu. Leikinn, sem fór fram á
St. Andrews Park, Birmingham
Skíðamót á ísafirði
— ísafirði, 15. marz.
SKÍÐAMÓT VESTFJARÐA hélt
áfram sl. laugardag 14. marz.
Var þá keppt í göngu í þrem
flokkum. Fór keppnin fram á
Seljalandsdal.
f karlaflokki var 15 km. ganga.
II. Haukur Ó. Sigurðsson (Herði)
j 1:11,50 min.
2. Jón Karl Sigurðsson (Herði)
I 1:12,53 mín.
3. Gunnar Pétursson (Ármanni)
1:14,27 mín.
y í 17—19 ára aldursfl. var 5 km
'ganga. Þar var fyrstur Elías
Sveinsson (Ármanni) 1:20,58 m.
í drengjaflokki 13—16 ára var
6 km ganga. Fyrstur var Kristján
iR. Guðmundsson (Árm.) 25,15 m.
ÍSAFIRÐI, 15. marz. — Firma-
keppni á vegum Skíðaráðs ísa-
fjarðar var háð í dag hér frammi
á Seljalandsdal. Veður var ágætt
og færi sömuleiðis. Hér var um
svigkeppni að ræða og var braut-
in 150 m löng.
1. Theódór Nordquist 27,4 sek.
Keppti fyrir Útib. Landsb. fsl.
2. Guðm. Jóbanness. 28,2 sek.
Keppti fyrir Sýsluskrifstofuna.
3. Elías Sveinsson 29,0 sek. —
Keppti f. Hraðfrh. hf., Hnífsd.
4. Kristján J. Þorlákss. 29,2 mín.
Keppti fyrir afgr. flugfél. fsl.
5. Auður Halkiórsdóttir 29,5 sek.
Keppti fyrir Raf hf., ísafirði.
Þátttaka var ágæt og fjöldi
áhorfenda. — G .K.
sáu yfir 50 þús. áhorfendur.
Þetta er í fjórða sinn sem lið
úr þriðju deild, er stöðvað í und-
anúrslitum keppninnar: 1937 tap-
aði Millwall fyrir Sunderland,
sem vann bikarinn þetta sama ár,
1954 tapaði Port Vale fyrir West
Bromwich Albion og West Brom.
vann bikarinn, 1955 tapaði York
City fyrir Newcastle Utd., sem
sigraði á Wembley og nú tapaði
Norwich City fyrir Luton Town.
„Þess vegna held ég að Luton
vinni i ár“ sagði fréttamaðurinn
að lokum.
Luton og Nottingham Forest
leika því til úrslita á Wembley
2. maí í vor.
Aðalfundur Slysavarna
deildarinnar Ingólfs
AÐALFUNDUR Slysavarnadeild
arinnar Ingólfs í Reykjavík, var
haldinn 24. febr. s.l. Formaður
deildarinnar setti fundinn og
minntist látinna félaga, sérstak-
lega minntist hann þeirra
þriggja, Frú Guðrúnar Jónasson,
Jóns Loftssonar og Geirs Sigurðs
sonar, en þau störfuðu öll mikið
að eflingu slysavarnastarfsemi
landsins. Einnig minntist formað
ur þeirra er fórust með togaran-
um Júlí og vitaskipinu Hermóði.
Risu fundarmenn úr sætum í
virðingarskyni við hina látnu.
Því næst flutti formaður
skýrslu fráfarandi stjórnar og
gjaldkeri, Jón Jónsson, las upp
endurskoðaða reikninga deildar-
innar. Hagur deildarinnar stend
ur með ágætum og skuldlaus eign
deildarinnar nemur nú rúmlega
140.000,00 krónum.
Gunnar Friðriksson varafor-
maður deildarinnar gaf mjög ítar
legt yfirlit um gang húsbygg-
ingarmáls Slysavarnafélags ís-
lands, og ríkti á fundinum mik-
ill einhugur um þetta mál.
Þar næst sýndi Jón Oddgeir
Jónsson nýja, fullkomna tegund
af sjúkrabörum og björgunarflot
holt af nýrri og handhægri gerð,
ennfremur skýrði hann nýja að-
ferð til lífgunar úr dauðadái.
Einnig sýndi Jón Oddgeir nýj'a
gerð björgunarkaðla til notkunar
í húsum er eldsvoða ber að hönd
um.
Henry Hálfdánarson skrifstofu
stjóri S.V.F.f. sýndi ný radíó
senditæki til notkunar í gúmmí-
bátum.
Þá afhenti formaður deildar-
innar Birni Pálssyni, flugmanni,
fjögur björgunarbelti til notkun-
ar í flugvél hans, og þakkaði hon
um vel unnin störf og óskaði
honum blessunar í starfi.
Stjórnin var öll endurkjörin,
en hana skipa: Séra Óskar J. Þor
láksson formaður, Jón Jónsson
gjaldkeri, og Gunnar Friðriksson,
Baldur Jónsson og Jón Oddgeir
Jónsson meðstjórnendur, til vara
Sigurður Teitsson og Björn Páls-
son, endurskoðendur Þorsteinn
Árnason og Júlíus Ólafsson.
Á fundinum voru gerðar svo-
felldar samþykktir: Þar sem vit-
að er, að erfitt er, eða jafnvel
ekki leyfilegt að halda björgun-
aræfingar með gúmmíbjörgunar-
bátum um boð í skipunum sjálf-
um, þá beinir aðalfundur Slysa-
varnadeildarinnar Ingólfs þeim
tilmælum til stjórnar S.V.F.Í., að
hún fari þess á leit, við Skipaeft-
irlit ríkisins, að komið verði
einhverju föstu og viðunandi
formi á þessar æfingar í staðinn.
Vegna hinna tíðu umferða-
slysa vill aðalfundur Slysavarna-
deildarinnar Ingóifs í Reykjayík,
skora á alla ökumenn og stjórn-
endur ökutækja, að gæta sem
allra mestrar varúðar í umferð-
inni og fylgja í öllu settum regl-
um um hraða og svo öðrum
Nýtt, 250 lesta togskip
til Neskaupstaðar / gœr-
morgun
NESKAUPSTAÐ, 18. marz. —
Hingað kom í morgun nýtt, 250
lesta togskip úr stáli. Skipið heit-
ir Hafþór og lagðist að bryggju
hér í heimahöfn sinni kl. 11 í
morgun. Er skipið smíðað í Stral
sund í Austur-Þýzkalandi, og er
Hafþór fimmta skipið af þessari
stærð, sem keypt hefir verið
hingað til lands frá Austur-
Þýzkalandi.
Skipið er búið öllum nýjustu
siglingatækjum, sem sett voru í
skipið í Kaupmannahöfn, m.a.
sjálfstýringu, tveimur dýptar-
mælum með innbyggðri fisksjá og
þriðja dýptarmæli að auki. Rat-
sjáin var ekki tilbúin, en verður
sett í skipið hérlendis. Frysti-
geymsla fyrir beitu og lifrar-
bræðslu er í skipinu og kældar
lestar klæddar með aluminíum.
Klefar skipverja eru bjartir og
rúmgóðir, flestir klæddir innan
með kjörviði. Kojur eru fyrir 21
mann um borð.
f bátnum er 800 hestafla Mann
heimdeiselvél. Gekk skipið 12
mílur í reynsluför, en á heimleið
1014 mílu með 300 snúningum.
Eigandi skipsins er Óskar
Lárusson, útgerðarmaður, Nes-
kaupstað. Skipstjóri á Hafþór er
Steinn Jónsson, Eyjólfur Hall-
dórsson er stýrimaður, Björn
Einarsson fyrsti vélstjóri og Guð
mundur Sigmarsson annar vél-
stjóri.
Skipið býst nú á togveiðar.
— Fréttaritari.
ákvæðum hinna nýju bifreiða-
laga.
Með því að mjög er algengt, að
þeir, sem bifreiðaslysum valda,
reynast ölvaðir við akstur skor-
ar aðalfundur Slysavarnadeildar
innar Ingólfs á alla löggæzlu-
menn og lögreglustjóra, að taka
hart á slíkum brotum, og sýna
enga linkind í sviptingu ökuleyfa
í slíkum tilfellum.
Málarafélag Hafn-
arfjarðar 30 ára
NÆSTKOMANDI föstudag minn-
ist Málar: félag Hafnarfjarðar 30
ára afmælis síns, með samsæti í
Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði.
Málaraf-lag Hafnarfjarðar var
stofnað 27. febrúar 1929, og voru
stofnendur 5 starfandi málarar í
Hafnarfirði.
Tilgangur félagsins var sam-
kvæmt 2. gr. félagslaga: Að gæta
hagsmuna félagsmanna í hví-
vetna og efla samvinnu þeirra á
meðal.
Að stuðla að því, að félagar
beiti ekki hver annan órétti, eða
verði beittir órétti af öðrum óvið-
komandi, hvorki persónulega eða
fjárhagslega.
Fyrsta stjórn félagsins var
skipuð þessum mönnum: Magnús
Kjartansson formaður; Kristinn
J. Magnússon varaformaður; Ás-
geir Einarsson ritari; Árni Árna-
son gjaldkeri; Magnús Kjartans-
son var formaður félagsins um 20
ára skeið, og var gerður heiðurs-
félagi árið 1950.
Einar Risberg sem einnig var
einn af stofnendum félagsins var
kjörinn heiðursfélagi á 15 ára af-
mæli félagsins 1944.
Félagið er aðili að Landssam-
bandi iðnaðarmanna og hefir
verið frá stofnun þess. Félagar
eru nú 17.
í núverandi stjórn eru: Björn
Bjarnason formaður — Sigurður
Kristinsson varfaformaður, Her-
mann Ólafsson ritari og Eyþór
Júlíusson gjaldkeri.
Dönsk samúðar-
kveðja vegna sjó-
slysanna
DANSKUR kennari Axel Kals-
böll sem er mikill íslandsvinur
og hefur af góðum skilningi og
velvild til íslendinga skrifað um
handrita- og landhelgismálið í
dönsk blöð og þannig léð íslenzk-
um málstað lið, hefur sent fram-
lag í söfnunina vegna sjóslysanna
og fylgdu þessar línur með:
„Mig langar til að senda mínar
innilegustu samúðarkveðjur til
íslenzku þjóðarinnar, og aðstand-
enda hinna mörgu hugdjörfu sjó-
manna, sem fórust með b/v „Júlí“
og vitaskipinu ,,Hermóði“, er þeir
börðust við haf og storma í hinni
hættulegu þjónustu sinni fyrir ís-
land.
Það eru margir fslandsvinir i
Danmörku sem taka innilega þátt
í sorg yðar.
Ég bið blað yðar vinsamlegast
að taka á móti meðfylgjandi til-
lagi mínu í söfnunina vegna sjó-
slysanna. Um leið bið ég yður að
flytja kveðju mína, til minna
mörgu vina og kunningja á ís-
landi, með hjartanlegri þökk fyr-
ir hinar góðu móttökur sem ég
varð aðnjótandi á ferð minni um
ísland sumarið 1958.
Haderslev þ. 3/3 1959.
Axel Kalsb0ll, gymnasilærer.
Vestmannaeyjum, 18. marz. —
VEIÐI hjá Vestmannaeyjabátum
var mjög treg í dag, og voru flest
ir bátanna með sáralítinn afla.
Var aflamagnið frá 800—1200 fisk
um, og jaínvel enn minna.
— Bj. Guðm.