Morgunblaðið - 19.03.1959, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.03.1959, Blaðsíða 9
Timmtudagur 19. marz 1959 MORCVlSBLAÐlb 9 _J\ieiij)jú(fi11 ocj heimifié Foreldrar og börn ÍJSVÍÞJC® og á Norðurlöndum yfirleitt er mikið rætt og ritað um uppeldismál. Hér fer á eftir grein, sem nýlega birtist í saensku tímariti og eru höfundarnir tveir, Kirsten Thorvald Falk og Gustaf Jonsson frá Ská, doktor í barna- sálarfræði. Stundum dettur mér í hug, hvort lífið hafi ekki verið auð- ! veldara, þegar menn vissu ekki! svona mikið, á þeim gömlu góðu dögum, þegar börnin höfðu ekki j annan vilja en vilja foreldranna. : Þau voru „vond“ eða „góð“ eftir J því sem þægiiegast var fyrir hina ; fullorðnu. Fullorðið fólk hafði alltaf á réttu að standa, því það hafði lifað mikiu lengur og hiaut Þrjóskufull og samanbitin þar af leiðandi að vita allt miklu betur. Auk þess voru til alveg j ákveðnar uppeldisreglur. Allt frá j fæðingu voru börnum kenndir ] góðir siðir, sem siðan áttu að. halda alla ævi, uppaiendum til ævarandi sóma. Með nýja tímanum kom lýð- ræðisskipulag, jafnrétti kvenna og kenningar Freuds og í kjölfar þessa, nýjar afstöður til uppeldis- mála og barna. Áður var barnið ekki nema óþroskuð mynd af fullorðnum. Nú var litið á það sem barn, með öllum þess eigin- leikum. Börnin áttu að vera frjáls og glöð. Skapgerð þeirra mótaðist að mestu leyti á fyrstu árunum og það varð því bæðj vandasant og ábyrgðarmikið starf að ala upp börn. Samkvæmt nýju kenningunum var það mikilsvert fyrir barnið að vera i návist foreldra, sérstaklega móðurinnar. Nýjar reglur um uppeldi barna ruddu sér til rúms, reglur sem þó enn er deilt um. Við lifum á byltingartímum. Það er orðið svo alvarlegt og ábyrgðar mikill hlutur að eiga börn, að menn gleyma því, að það er líka skemmtilegt. Ungir foreldrar lifa í stöðugri óvissu Eldri kynslóðin gagnrýnir hinar nýju uppeldisaðferðir sem hún skilur ekki og fordæmir því. Eldra fólki finnst börn nútímans eins og siðlausir villimenn. Það hnyklar brúnir, setur upp vand- lætingarsvip og segir: „Hvernig enda þessi ósköp.“ Og ungu for- eldrarnir sem hafa kynnt sér grundvallaratriði í barnasálar- fræði og vita hvað helzt er uppi á teningunum í uppeldismálum, eru fullvissir um það með sjálf- um sér, að nýju aðferðimar séu réttar .. auðvitað. En hins vegar er það ekkert gaman þegar Anna litia segir „andskotans mamma" og Jónas litli stríðir ömmu Kenningin er einföld og góð, en hún er erfið í framkvæmd. Sjálf veit ég ósköp vel, hversu tillits- söm, blíð og þolinmóð ég á að vera gagnvart börnum mínum .. en þó kemur það fyrir. að ég gleymi öllu og rífst og skammast, einmitt eins og ég hafði ákveðið að gera ekki. Og á eftir blygðast ég mín og fer að velta því fyrir mér, hvað börnin muni halda um móður sína sem hagar sér svona. Áður var sagt: „Börn gleyma svo fljótt". Nú vitum við að það sem börn „gleyma“ getur lagst þungt í undirmeðvitund þeirra og orsak að taugaveiklun sem erfitt getur orðið að ráða við þegar þau eru orðin fullorðin. Allt þetta veit ég, en þó grípur mig stundum andúð á þesum nýju uppeldisreglum og ég hugsa: Já, en ég, hef ég ekki líka rétt á að lifa mínu lífi eins og mér er eðlilegt?". Ég hef leitað til eins af frum- herjum hinna nýju kenninga í uppeldismálum doktor Gustafs Jonssons frá Ská. Honum mælt- ist m. a. á þessa leið: „Það er talað mikið um það nú á dögum, hversu erfitt það sé að vera barn, en það er ekki síður erfitt að vera foreldri. Við lifum á byltingartímum. Hver kenni- setningin rís upp á móti annarri og það er eðlilegt að foreldrar lifi í stöðugri óvissu. Sá sem er alveg viss um, hvernig á að með- höndla börn, á áreiðanlega engin börn sjálfur. Sjálfur er ég þeirrar skoðunar, að það sé ekki svo yfir- máta hættulegt þótt foreldrum verði á smá-skyssur í uppeldi barna sinna. Það getur orðið hættulegra, ef foreldrar fórna sér algerlega fyrir börnin. Menn mega ekki rugla saman uppeldi sinna eigin barna og læknis- fræðilegri sálgreiningu. Á heim- ilinu skiptir það ekki svo mklu máli. hvað sagt er eða gert. Að- alatriðið er að þar riki samheldni og samúð. Börn eru tilfinninga- Börn sem nýlega hafa lært að ganga, fara stundum á stjá ein síns liðs á næturnar. næm og skynja ótrúlega fljótt alla misklíð og sundrung. Slíkt verkar á þau þannig að þau verða ódæl og erfið, án þess að foreldr- arnir geti gert sér ljóst af hverju það stafar. Á heimilinu eiga allir að fá að vera eins og þeim er eðlilegast.Bæði börnog fullorðnir. Ef móðurinni er eðlilegt að skipta oft skapi þá á hún líka að gera það í umgengni við börnin. Hún á ekki að hlæja með þolinmæði, þegar sonurinn brýtur postulíns- vasann, sem henni þótti svo vænt um. Mest langar hana til að segja við hann „nokkur velvalin orð“ og kannske dangla í hann. En henni finnst hún vera betri mann eskja ef hún stillir sig. Það er óþarfi fyrir hana að leggja það á sig. Börn skilja eðlileg viðbrögð og finna strax hvað er tilgerð. Þau kannast við reiðiköst frá sjálfum sér og vita, að þegar því er lokið, þá verður mamma glöð aftur. Auðvitað á þó móðir, sem að eðlisfari er hæglátari, ekki að gera sér upp reiði. Það væri óeðlilegt fyrir hana. Kjarninn í nútíma barnaupp- eldi er ekki sá, að láta börnin ráða sér sjálf, heldur skilningur fólks á því, að börn eru ólík hvert öðru á hinum ýmsu þroskastigum. Fólk einblínir oft óþarflega mik- ið á það að börnin séu „vel van- in“. „Vel vanin“ börn eru þau börn sem gera í pott frá því fyrsta, borða fallega, hneigja sig fyrir ókunnugum í stuttu máli eftirlíkingar hinna fullorðnu í minni mælikvarða. Víst er hægt að „venja“ börn svo að þau verði hæf í hvaða veizlu sem er, en þá er hætta á því að þau glati barns- legri sjálfsvild sinni, verði augna- þjónar fullorðinna .... hneigi sig og þakki kurteislega þegar það á við en blóti og reki út úr sér tunguna þegar þau eru komin úr augsýn. Oft er það svo að mæður hafa miklar áhyggjur af því, hve erf- lega gengur að venja barnið við pottinn. Og þá ekki sízt ef móðir- in fréttir af jafnöldrum dóttur innar, sem hafa gert í pott í marga mánuði. Móðirin kennir sjálfri sér um þessi miklu mistök. En það er gömul hjátrú að hægt sé að venja barn á hreinlæti áður en það hef- ur náð þroska til þess. Hreinlætið kemur af sjálfu sér og það er engin skömm að því þótt eitt barn taki út þennan þroska nokk- uð seinna en önnur. Gamlar kreddur um matar- venjur og svefnsiði barna geta einnig oft ruglað dómgreind for eldra. Barnið á að borða svo og svo mikið á þessum og þessum tíma. Bregði út af fyllist móðirin strax áhyggjum. Sannleikurinn er sá að börn svelta sig aldrei af frjálsum vilja. Þau borða vel þetta tímabil og minna annað. Bezt er að láta barnið sem mest sjélfrátt. Annars getur það líka átt sér stað að barnið missi matar- lyst ef misklíð og ósamlyndi ríkir við matarborðið og þá eru það oft foreldrar en ekki barnið sem þarfnast leiðbeiningar. „Drengurinn minn sefur ekki nóg“, segja margar órólegar mæð ur. „Stundum vakir hann tímun um saman um nætur og stundum sofnar hann ekki fyrr en seint á kvöldin". Bækurnar segja að börn eigi að sofna klukkan 8 á kvöldin og vakna klukkan 8 á morgnana. En það eru ótal undantekningar frá þeirri reglu. Talað er um að hættulegt sé að venja barnið á að stinga sér í rúmið hjá mömmu. Þá muni það heimta að fá að halda því áfram fram eftir öllum aldri. En börn fá yfirleitt ekki fastar og óumbreytanlegar venj- ur. Ef tveggja ára snáði vill fá að sofa hjá mömmu sinni , um tíma, hættir hann því sjálfkrafa, „seinna“ og „bráðum“. Það vill hafa sitt fram og það strax. En það er ekkert hættulegt, þótt börn öskri í heift. Það er einn þáttur- inn í skapgerðarþroska þeirra. Um 6 ára aldurinn fá börn oft mikla þörf fyrir að þroska sjálf- stæðiskennd sína, þau lítilsvirða fyrirmæli foreldranna, félagarnir skipta þau meiru máli, foreldr- unum til mikillar skelfingar. Og það er fleira í fari barnanna sem veidur foreldrunum áhyggj- |um. t. d. þegar þriggja ára snáði tekur upp á því að viðhafa „ljót orð. Sjaldnast man fólk eftir því, að börnin sjálf skilja ekki, hvers vegna orðin eru ljót. Þau vita bara að það er eitthvað skugga- legt við þau og langar til að sjá hvaða áhrif þau hafa á foreldr- ana. Heiftarleg reiðiköst samfara hat römum ásökunum valda margri móðurinni þungri sorg. „Baminu mínu þykir ekki vænt um mig“, hugsar hún. En þess ber að gæta, að það ber vott um góða andlega heilsu, þegar börn þora að gefa sér lausan tauminn í reiði sinni gagnvart foreldrunum. Með því sýna þau trúnað þeim sém þykir vænt um þau. Allir kannast við söguna um ókunnugu barnfóstr- una sem segir: „Ó, börnin hafa verið eins og englar allan tím- ann“, en um leið og mamma kem- ur inn úr dyrunum, breytast engl- arnir í hina verstu grenjandi óþekktarorma. Og þá eru það foreldrarnir sem stöðugt og einatt hafa það efst í huga að vera börnum sínum gott fordæmi og vera hinir fullkomnu uppalendur. En ef til væru al- gerlega óaðfinnanlegir foreldrar, sem aldrei segðu eða gerðu nema það eina rétta, þá væru þeir áreið anlega alveg óþolandi og alls ekki börnum sínum hollir for— eldrar. Börn eiga að „upplifa" og kynnast íoreldrum sínum sem manneskjum, lifandi verum, sem getur skjátlast.“ Niðurstaðan er þvi sú: Allir eiga rétt á því að vera glaðir, blíðir, fjörugir, hávaðasamir, þreyttir, nægðir, rétt til að lifa sínu lífi eins og þeim er það eðlí* legast, hvort sem um börn eða fullorðna er að ræða. (Lauslega þýtt og stytt) Sex ára félagamir skipta stundum meiru máli en for- eldrarnir þegar þeirri þörf hans hefur ver- ið fullnægt. En auðvitað verður að setja þau skilyrði að nætur- svefn móðurinnar truflist ekki um of. Ákveðinn tímabil á þroska- skeiði barna eru erfiðari en hin, í fyrsta lagi 2—3 ára aldur, svo- kallað þrjóskuskeið, síðan 6 ára aldur og loks kynþroskaskeiðið. 2—3 ára barni er stöðug athafna- semi eðlilegust og allar hömlur sem lagðar eru á athafnafrelsi þess vekur hjá því reiði. Barnið skilur ekki hugtök eins og Þessi fallega peysa er mjög hent ug til útivistar um vortimann. Trefillinn, sem einnig má nota sem herðasjal er úr ullarefni og ákaflega hlýr. Takið eftir mitt- isbandinu á peysunni, sem heldur treflinum í skorðum. (Dor ville -model). Hver getur staðist þenna hvíta, úfna hárkolluhatt? Efnið er hvitt mohair og kemur einnig frá Dorville ♦ V BRIDCE ♦ * NÆSTKOMANDI sunnud. hefst í Breiðfirðingabúð sveitakeppni Bridgesaimbands Reykjavíkur. Eftirtaldar 8 sveitir taka þátt í móti þessu: Hörður Þórðarson, Sigurhjörtur Pétursson, Vigdís Guðjónsdóttir, Hjalti Elíasson, Stefán Guðjohnsen, Ásbjörn Jónsson, Ólafur Þorsteinsson og Hiimar Jónsson. Þetta er í þriðja skipti, sem keppni þessi fer fram, og hefur sveit Harðar Þórðarsonar sigr- að tvö undanfarin ár. Er búizt við mjög jafnri og spennandi keppni, og mjög erfitt að spá fyrir um, hver hljóta muni Reykjavíkurmeistaratitilinn að þessu sinni. Keppninni mun ljúka 5. april n.k. • Að fjórum umferðum loknum í parakeppni þeirri, er nú stend- ur yfir hjá Bridgefélagi kvenna, eru þau Rósa og Tryggvi efst með 719 stig. í öðru sæti eru þau Elín og Zophanías með 706 stig og númer þrjú eru þau Rannveig og Júlíus með 700 stig. Bridgefélag kvenna gengst fyrir hófi í Silfurtunglinu annað kvöld í tilefni af 10 ára afmæl- inu. — Að þrem umferðum loknum í tvímenningskeppni starfsmanna ríkisstofnana eru þeir Júlíus og Ólafur efstir með 401 stig, í 2. sæti eru Björn og Hjörtur með 382 stig og númer 3 eru Krist- ján og Sveinn með 380 stig. — Fjórða og síðasta umferð fór fram í gærkvöldi. • Að tveim umferðum loknum í einmenningskeppni Tafl- og Bridgeklúbbsins er Gylfi Gunn- arsson efstur með 217 stig, í 2. sæti er Aðalsteinn Guðmunds* son með 208 stig og númer 3 er Reynir Snjólfsson með 202 stig. Þriðja umferð fer fram í kvöld. • Spilið, sem hér fer á eftir er mjög skemmtilegt, því aðferðin til að vinna spilið er þannig, að útilokað er, að sagnhafi geti komið auga á hana, nema þvi að- eins að sjá allar hendur. * G 10 9 8 7 V Á 3 * 987 * Á 5 4 ♦ 6 5 4 * — » D G 10 8 N V9 7654 +KG10 ♦ D V A 6 3 2 * D S + K G 10 6 3 2 * Á K D 3 2 V K 2 * Á 5 4 * 9 8 7 Suður er sagnhafi og spilar fjóra spaða og vestur lætur út hj artadr ottningu. Ef litið er á spil suðurs og vesturs þá er útlitið ekki glæsi- legt. Tveir gjafaslagir á tigli og tveir í laufi. Hvað getur suður gert? Eina leiðin til að vinna spilið er að drepa hjartadrottn- ingu með ás og kasta hjarta- kóngi i. Síðan er trompi spilað þrisvar og tigulás og laufhás teknir. Nú lætur suður út hjarta tvist og vestur verður að drepa. Nú getur vestur ekki spilað öðru en hjarta og suður gefur tvisvar og kastar í hjörtun tveim tiglum úr borði og tveim laufum heima og trompar síðan tvö lauf heima og tvo tigla í borði. A-V fá þvi aðeins þrjá slagi á hjarta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.