Morgunblaðið - 19.03.1959, Page 6

Morgunblaðið - 19.03.1959, Page 6
e MORCVNBL4ÐIÐ Fimmtudagur 19. marz 1959 Rússar skera í sundur lífæð yfir Atlantshafið Sæsimastrengur klipptur þvert yfir KLUKKAN 10,43 fyrir hádegi laugardaginn 21. febrúar slitnaði skyndilega símasambandið yfir Atlantshaf. Ameríska símafélag- ið A. T. & T. komst í stökustu vandræði. Þetta var á mesta anna tímanum, þegar verzlunarmenn beggja megin úthafsins voru hvað mest að ræða um viðskipta málin. Upp úr hádeginu áttu að hefjast venjuleg þjónustusamtöl utanríkisráðuneytanna við sendi- menn sína handan hafsins. Frétta stofur áttu pantaðan tíma til að senda fréttamyndir yfir hafið. Öll þessi samtöl varð að afboða. Starfsmenn símafélagsins undr uðust það, hvað komið hefði fyr- ir. Símalínan var nýleg og sérlega vel til hennar vandað, svo ótrú- legt var, að hún hefði bilað. Línan hafði aldrei bilað síðan hún var lögð fyrir þremur árum. Lagning hennar kostaði 40 milljónir doll- ara, sem jafngildir um milljarði ísl. króna. Hún var eina full- komna símalínan yfir Atlantshaf- ið, sem gat borið samtöl milli heimsálfanna. Fara um 2000 sím- töl fram um hana á degi hverj- um. Hins vegar liggja fjölmarg- ar ritsímalínur milli Evrópu og Ameríku. VIÐ útleiðslumælingar komust símvirkjar að því, að bilun- in myndi vera í hafinu um 190 sjómílur austur af Nýfundna- landi. Vegna þess hve grunsamleg þessi bilun var fór símafélagið þess á leit við ameríska sjóher- inn, að hann léti könnunarflug- vélar sínar gæta að því, hvað sæist á þessum slóðum. Nokkru síðar flaug Neptune-könnunar- flugvél yfir staðinn og hvað haldið þið, að hún hafi fundið. Aðeins eitt skip, stóran rússnesk- an togara, sem bar nafnið Nov- orossisk, Hann var að veiðum á þessum slóðum. Ekki er öll sagan þar með sögð, því að á næstu dögum slitnuðu fjórir ritsímastrengir Western Union ritsímafélagsins á sömu slóðum. Og alltaf var þessi sami rússneski togari nálægur. Bandarískum yfirvöldum þótti nú nóg komið af svo góðu og föstudaginn 26. febrúar sigldi bandaríska freigátan Roy O. Hale upp að hinum rússneska togara, þar sem hann var þá staddur um 120 mílur austur af Nýfundna landi, gaf honum stöðvunarmerki og sendi fimm vopnlausa sjóliða um borð til að rannsaka togar- ann. R ► ANNSÓKNIN stóð yfir í rúm- Iega klukkustund. Foringi sjóliðanna, sem réðust til upp- göngu í rússneska togar- ann, Donald Sheeley sjóliðs- foringi kveðst aðallega hafa rann sakað skipsskjölin, veiðarfærin og reynt að hafa auga með öllu því sem grunsamlegt mætti telj- ast. Rússarnir kunnu ekki ensku og sjóliðarnir ekki rússnesku, en meðal bandarísku sjóliðanna var einn fær í frönsku, sem rúss- neskur skipsstjórnarmaður skildi. Sheeley foringi segir, að Rúss- arnir hafi enga mótspyrnu sýnt. Þeir hafi verið kurteisir en hins vegar hafi þeir ekki sýnt gest- risni eins og tíðkast á sjónum. Þeir hafi ekki einu sinni boðið Bandaríkjamönnunum kaffibolla eða sígarettu. Hinn rússneski togari Novor- ossisk var mjög stór eða 1670 tonn. Hann er byggður í Belgíu og er einn af tólf nýjum rúss- neskum togurum sömu stærðar, sem fóru að stunda Nýfundna- landsmið í maí sl. Sjóliðsforingj- anum fannst hann óvenjulega vel búinn að ýmiss konar radar-tækj um, en skipsskjölin virtust vera í lagi. Þetta var greinilega fiski- skip. Var fiskurinn verkaður um borð og hraðfrystur. Var skipið með þriðjung fullfermis. Áhöfn- in var 54 manns þar af átta kon- ur. — Sjóliðarnir athuguðu veiðar- færi togarans, og fannst þeim varpan risavaxin. Einkum tóku þeir eftir því að hlerarnir voru heldur illa farnir, virtust brotn- ir og kvarnaðir og einnig fannst á þilfarinu togvír sem hafði slitn að. Taldi Sheeley sjóliðsforingi ekki ólíklegt að Rússarnir hefðu skemmt sæstrenginn með hler- unum, þótt ekki væri hægt að færa neinar sönnur á það. En rússnesku skipsstjórnarmennirnir neituðu því eindregið að þeir væru valdir að skemmdunum. Við það varð að sitja að sinni, banda- rísku sjóliðarnir fóru frá borði og freigátan sigldi brott. E KKI leið á löngu þar til Rúss- ar fóru að yggla sig yfir þess um atburði. Hefur Sovétstjórn- lagabrot og ögranir á opnu hafi. Segja fyrirlesarar Moskvu-út- Varpsins, að tilgangur uppgöng- unnar á skipið hafi ekki ver- ið að rannsaka sæstrengsmálið, heldur að efna til illinda og auka kalda stríðið einmitt á þeim tíma, sem verið er að ræða um samninga milli Austurs og Vest- urs. Bandarísk yfirvöld hafa hins vegar hafnað ásökunum Rússa um að uppgangan væri ólögleg. Benda þau á, að hún hafi verið framkvæmd skv. heimild í al- þjóðasáttmála, ParíSar-sáttmál- anum frá 1884 um aðgerðir til verndar sæsímastrengjum. En í 10. grein hans er skýrt tekið fram, að þegar skip eru grunuð um að hafa valdið spjöllum á sæ- síma, megi ráðast um borð í þau, þótt þau sé á opnu hafi til að rannsaka málið. Keisarastjórn in rússneska var á sínum tíma aðili að þessum sáttmála, en stjórn Bolsévika hefur talið hann meðal þeirra alþjóðaskuldbind- inga keisarastjórnarinnar, sem hún viðurkennir. Myndin var tekin úr lofti þegar bandaríska freigátan Roy O’Hale (í baksýn) stöðvaði rússneska togarann Novorossisk. N' Ú hefur það komið í Ijós, að mál þetta er ennþá alvarlegra en í fyrstu var haldið. Þegar bil- unarinnar var vart, lagði síma- Uppdrátturinn sýnir lauslega hvernig sæsímastrengurinn ligg- ur yfir Atlantshafið. Þar sem krossinn er gengu bandariskir sjóliðar um borð í rússneskan togara. in nú mótmælt þessari árás og afskiptum af rússnesku veiði- skipi á opnu hafi. Heldur hún því fram að uppgangan á Novor- ossisk hafi verið með öllu ólög- leg. Síðan hefur Moskvu-útvarpið fjölyrt um atburðinn og sakar Bandaríkjamenn um óþolandi viðgerðarskipið Lord Kelvin út frá Halifax á Nýja Skotlandi. Viðgerðarmenn fundu bráðlega bilunina og náðu símastrengnum upp. Það kom þá í ljós, að sæ- strengurinn hafði verið hrein- lega klipptur í sundur. Þessar skemmdir gátu ekki orsakazt af tilviljun, heldur var greinilegt að klippum hafði verið brugðið á strenginn sem er 1% tomma í þvermál og honum skellt í sundur. Og vart getur nokkur annar hafa verið að verki en Rússarnir. Forstjóri símafélagsins skýrði frá þessu, en vildi þó ekki taka of djúpt í árina. Kvaðst hann vera þeirrar skoðunar, að veiðar- færi togarans hefðu flækzt í sæ- strenginn, þá hafi varpan verið dregin inn og hafi sæstrengur- inn komið upp. Hafi Rússanir þá gripið til þess ráðs til að losa vörpuna, að klippa á símalínuna. Ef til vill hafi það verið í at- hugunarleysi gert. M ARGIR eru þó þeírrar skoð- verið á seyði en gáleysi. Líkar Bandaríkjamönnum stórilla við stöðuga fjölgun rússneskra veiði skipa við strendur Ameríku. Þau stunda að vísu fiskveiðar þar, en hafa njósnir að hjáverkum. Telja menn að einn megintilgangurinn með ásókn Rússa á Nýfundna- landsmið sé að njósna um radar- kerfi Vesturálfu og fylgjast með kafbátavörnum þeiira, sem eru reyndar við austurströnd Ameríku. Það er og hernaðar- lega mikilvægt fyrir Rússa, að vita nú nákvæmlega, hvar hinn þýðingarmikli sæsímastrengur yfir Atlantshafið liggur. Ná- kvæm staðsetning hans hefur verið talið hernaðarleyndarmál, því að í styrjöld væri hann mikil- væg boðleið yfir Atlantshafið. Ef til stríðs kæmi gætu rússneskir kafbátar nú haldið beint að sæ- strengnum og klippt á þessa líf- æð. Af þessum röksemdum eru margir þeirrar skoðunar, að hér hafi ekkert gáleysi verið á ferð- um, hinn rússneski togari hafi verið að leita skipulega að sæ- strengjum við Nýfundnaland og geymi þær upplýsingar til betri tíma. Átthogaiélag Strandamanna ÞEGAR Átthagafélag Stranda- manna í Reykjavík var stofnað, var það eitt höfuðmarkmið fé- lagsins að gefa því fólki, sem flutt er frá átthögunum kost á að koma saman öðru hverju, rifja upp minningar og viðhalda göml- um kynnum. Jafnframt hefir fé- lagið hug á ?sð halda tengslum við heimabyggðina, þannig að hugur og hönd fólksins heima og heiman geti unnið að sameigin- legum hugðarefnum byggðinni í hag. Til þessa hefur starfsemi skrifar úr daglega lífína ] Mjólkurverðið GAMLI daglaunamaðurinn, sem í gær kvartaði hér í dálkun- um undan verðinu á mjólkinni á greiðasölustöðum, mun hafa farið rangt með verðið á mjólkur- pelanum á matsölustaðnum Vík í Keflavík. Pelinn af mjólkinni þar lækkaði niður í 2,50 um ára- mótin. Velvakandi fullvissaði sig aðeins um að rétt væri farið með verðið á nefndum greiðasölustað í Reykja'úk, og biður eigendur Víkur afsökunar á þessari mis- sögn. Mánudagsmjólk á sunnudagsmorgni AÐUR hefur verið á það minnzt hér í dálkunum að mjólkur- samsalan eigi það til að merkja mjólkina með rangri dagsetningu. Enn einu sinni veit Velvakandi til að þetta hefur verið gert. Kl. 10.30 sl. sunnudagsmorgun seldi a. m. k. ein mjólkurbúðin hér í bænum mjólkurflöskur með mánudagsmerktum töppum, sem þá væntanlega hafa verið settir á á laugardag. Til hvers er þetta gert? Til að við kaupum mjólkina síðan fyrir helgi með glöðu geði á mánudag? H' Gæf varningur EYRZT hefur að flugfélögin hafi það til athugunar, hvort ekki sé heppilegt að þau slái sér saman og gangi í eina sæng. Ekki ætti hið nýja félag að vera í vand- ræðum með nafnið — Gæðaflug- félagið er samkvæmt nýjustu tízku. Bragð er að þá barnið finnur E’FTIRFARANDI samtal heyrð- J ist einn morguninn á heimili eins kunningja míns. — Mamma, BJ hvaða smjör er þetta. sagði litla telpan og fitjaði upp á nefið. — Þetta er gæðasmjör, svaraði móð- irin. — Nú, verðum við að hafa gæðamiða til að kaupa það? Fyrsta kirkjubygging á íslandi S.F. skrifar: JÖRN Th. Björnsson hefir útbúið prýðilegan þátt um Vestmannaeyjar, sem hefir verið fluttur í útvarpið, mörgum til ánægju, ef að líkum lætur. Vel og skilmerkilega var í þætti þessum sagt frá mörgu hér í Vestmanna- eyjum. En með eitt atriði var þar rangt faríð, þegar sagt var frá kirkjubyggingu þar. Sú kirkja, sem byggð var á Hörgseyri kristnitökuárið, var ekki fyrsta kirkja á íslandi. Þorvarður Spak-Böðvarsson er sagður Ijnfa byggt kirkju að bæ sínum, Ási í Hjaltadal. í annál- um er sú kirkjubygging talin hafa átt sér stað árið 984 og vera fyrsta kirkjubygging á Islandi. í þessu efni sem öðru ber að hafa það sem sannara reynist. Ég væri þér því þakklátur, Velvak- andi góður, ef þú vildir láta þessa getið í dálkum þínum.“ félagsins nær eingöngu byggst á samkomum, hafa þær oftast ver_ ið mjög vel sóttar. Hefur Björn Kristmundsson frá Borðeyri ver- ið formaður skemmtinefndar frá stofnun félagsins. Nú hefur fé- lagið hug á að auka nokkuð starf- semi sína. Hefur það ásamt Hún- vetningafélaginu átt hlut að því að komið verði upp sameiginlegu byggðasafni fyrir Húnavatns og' Strandasýslur. Yrði því safni vel- inn staður að Reykjum í Hrúta- firði. Strandamenn munu eiga í fórum sínum ýmsar minjar frá fyrri tímum, sem nauðsyn er að bjarga frá eyðileggingu. Meðal þess merkasta af því tagi er há- karlaskipið Ófeigur, sem nú situr í nausti heima í Ófeigsfirði. Má án efa telja skip þetta eitt af merkustu þjóðlegum minjum ís- lendinga. Ennfremur hefur fé_ lagið hug á að hefjast handa um útgáfu ársrits, kvikmyndatöku o. fl. Næstkomandi fimmtudag 19. þ. m. hefur félagið mannfagnað í Skátaheimilinu í Reykjavík, býður það hér til öllum Stranda- mönnum 60 ára og eldri, búsett- um í Reykjavík og Kópavogi, ásamt konum þeirra eða mönn- um. Undanfarin ár hafa hóf þessi verið fjölsótt og vinsæl og er von félagsins að svo verði ennþá. Skráðir félagar í Átthagafélagi Strandamanna eru nú nokkuð á þriðja hundrað. Stjórn félagsins skipa: Þorsteinn Matthíasson kennari frá Kaldrananesi formaður, Har- aldur Guðmundsson bifreiðastjóri frá Kollsá, Sigurbjörn Guðjóns- son trésmíðameistari frá Hólma- vík, Magnús Sigurjónsson úrsmið ur frá Hólmavík, Lýður Jónsson bifreiðastjóri frá Skriðnisenni Kristín Tómasdóttir frú frá Hólmavík og Ólafur Guðmunds- son framkvæmdastjóri frá Eyri í Ingólfsfirði. Varaformaður er Skeggi Samúelsson járnsmiður frá Miðdalsgröf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.