Morgunblaðið - 10.04.1959, Side 1

Morgunblaðið - 10.04.1959, Side 1
20 slður 46. afgangrur 80. tbl. — Föstudagur 10. apríl 1959 Frentsmiðja Morgunblaðsbu Tíbetbuar mynda eigin stjórn Harðir bardagar viða i landinu. Viðtækar fangelsanir ASSAM, 9. apríl. — NTB-Reuter. — Dalai Lama kom í dag til Búddistaþorpsins Sang Ozong, sem liggur 40 km. frá Towang- klaustrinu í Norður-Indiandi. Hann er á leiðinni til Tezpur, sem er fyrsta stóra járnbrautar- stöðin á svæðinu sem hann ferð- ast um. Daiai Lama fór frá To- wang í gær og dvaldist í nótt i litlu þorpi, sem liggur í 20 km. fjarlægð frá hinu fræga klaustri. Leppurinn fer til Peking Peking-útvarpið skýrir frá því að Panchen Lama, sem er leið- togi kínversku leppstjórnarinnar í Tíbet, hafi farið frá Lhasa í dag áleiðis til Peking, þar sem hann á að taka þátt í alþýðu- þinginu sem hefst þar 17. apríl. Frá Nýju Dehli berast þser fréttir að hersveitir kínverskra kommúnista hraði nú för sinni til vesturhluta Tíbets til að koma í veg fyrir flótta íbúanna til Nepals og Indlands. Indland verður varið Indverski landvarnaráðherr- ann, Krishna Menon, lýsti því yfir í indverska þinginu í dag, að ef nokkurt ríki virti að vett- ugi landamæri Indlands, mundi herstyrkur Indverja skerast í leikinn. I umræðunum í þinginu í dag ræddu flestir þingmann- anna, sem til máls tóku, um þá ógnun sem Indlandi væri búin, eftir innrás kínversku hersveit- anna í Tíbet. Eðlileg tjáning á föðurlandsást Nehru forsætisráðherra komst svo að orði í þingræðu, að upp- reisnin í Lhasa virtist vera eðli- leg tjáning á föðurlandsást Tíbet- búa. Hann kvaðst ekki hafa orðið var við nein merki þess, að í vændum væri stórkostlegur flótti frá Tíbet til Indlands. Hann kvað her og lögreglu mundu vernda landamæri Indlands og verja ör- yggi þess. Indverjar vildu gjarna halda vináttu við Kínverja, en þeir mundu aldrei gangast inn á það, að Tíbetbúar hefðu fram- ið glæp með því að verja sjálfs- stjórn sína. Bráðabirgðastjórn í frétt frá Kalimpong seg- ir að frelsishetjurnar í Tíbet hafi myndað bráðabirgða- stjórn. Hafi þessi ríkisstjórn lýst því yfir, að baráttunni við Kínverja verði haldið áfram þar til Tíbet hefur heimt frelsi sitt undan Kín- verjum og Dalai Lama get- ur snúiðTieim aftur. Harðir bardagar Áreiðanlegar fregnir herma að harðir bardagar standi enn víða í Tíbet. Hafa Kínverjar flutt til Tíbet mikinn fjölda léttra skriðdreka, sem eru hentugir í fjalllendi. 25.000 í fangelsum U Nu fyrrverandi forsætisráð- herra Burma sagði frá því í dag, að hann hefði boðið Dalai Lama að koma í heimsókn til Burma. Indversk blöð fullyrða að Kín- verjar hafi þegar fangelsað 25 þús. Tíbetbúa í fimm fangabúð- um náiægt Lhasa. Rússar vilja nýja efna- hagsstofnun Evrópu GENF, 9. apríl. — NTB-Reuter. — Það er haft eftir áreiðanlegum heimildum í Genf í dag, að Rúss- ar hafi lagt til, að sett verði upp efnahagssamvinnustofnun fyrir alla Evrópu, sem komi í staðinn fyrir sameiginlega mark- aðinn og Efnahagssamvinnustofn un Evrópu (OEEC). Aðilar hinn- ar nýju stofnunar eiga að vera Bretar breyta um stefnu LONDON, 9. apríl. — NTB-AFP. — Stjórnmálafréttaritarar í London höfðu fyrir satt í dag, að brezka stjórnin hefði neyðzt til að breyta ýmsum þeim áætl- unum, sem að áliti Macmillans áttu að liggja til grundvallar um- ræðum Vesturveldanna við Sovét ríkin. Það eru bandamenn Bret- lands með Vestur-Þýzkaland í broddi fylkingar, sem hafa feng- ið brezku stjórnina til að hverfa frá upphaflegri áætlun sinni um svæði í Mið-Evrópu, þar sem vígbúnaður verði takmarkaður. Nú hefur náðst samkomulag um að semja beri aðeins um svo- kallaða „frystingu" þess herafla sem nú er fyrir hendi, þ. e. a. s. að vígbúnaðarkapphlaupið verði stöðvað. öll vestræn ríki leggja áherzlu á það, að komið verði upp gagnkvæmu eftirlitskerfi, og telja það skilyrði þess að hægt sé að takmarka herafla og víg- búnað. ; Góðar heimildir herma, að brezka stjórnin sé enn reiðubú- in að ræða stöðu Berlínar við Rússa til að fá réttindi Vestur- veldanna staðfest. Hins vegar er hún ekki þeirrar skoðunar, að breyta beri núverandi stöðu borgarinnar. Hún vill aðeins tryggja stöðu hennar með nýjum samningum, ef með þarf, með aðstoð Sameinuðu þjóðanna. öll ríki, sem taka þótt í starfi efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Evrópu. Tillaga Rússa kom fram í orð- sendingu til efnahagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, og verður hún tekin til umræðu á 14. þingi nefndarinnar, sem kemur saman í Genf 20. apríl. í orðsendingunni leggja Rúss ar til, að viðskiptamálaráðherrar hlutaðeigandi landa komi sam- an til að ræða efnahagssamvinnu allra landa í Evrópu. Hin nýja stofnun á að vinna að því að binda enda á allt ójafnræði viðskiptum Evrópuríkjanna og athuga möguleikana á að lækka tolla. Einnig á hún að auðvelda aðildarríkjunum að afla gagn- kvæmra lána og tryggja langan lánsfrest. Frank Lloyd Wright látinn NEW YORK, 9. apríl. — Einn frægasti húsameistari samtímans, Bandaríkjamaðurinn Frank Lloyd Wright, lézt í dag 89 ára gamall. Wright var frægur fyrir opinská- ar og frumlegar yfirlýsingar sín- ar varðandi nútímabyggingarlist og var sjálfur merkur brautryðj. andi á sínu sviði, þótt hann væri mjög umdeildur, eins og títt er um merka menn. Myndin til vinstri er af einu þeirra húsa, sem Wright gerði upp drátt að á sínum tíma. Það átti að verða hæsta hús í heimi, hvorki meira né minna en 510 hæðir, eða 1732 metrar. Ætlað var að þar gætu starfað um 100 þúsund manns. Wright vildi að húsið yrði byggt í Chicago. Bygg- ingin hefði orðið fimm sinnum hærri en Empire State Building í NewYork, sem enn er stærsta hús I heimi. Sézt hún yzt til hægri á myndinni. Ekki hefur enn verið ráðizt í að byggja húsið, sem Frank Lloyd Wright gerði upp- dráttinn að, en hver veit hvað verða kann? Grotewohl skrifar Adenauer BERLÍN, 9. apríl. — NTB-AFP. • Otto Grotewohl forsætisráð- herra Austur-Þýzkalands hefur lagt til við Adenauer forsætis- ráðherra Vestur-Þýzkalands, að fulltrúar beggja þýzku ríkjanna hittist til að ganga frá sameigin- legri stefnu þeirra fyrir utan- ríkisráðherrafundinn í Genf- 11. maí. Útvarpið í Austur-Berlín flutti þessa frétt í kvöld. Tillag- an var í bréfi sem Grotewohl sendi til Adenauers, og las Grotewohl sjálfur bréfið í út- varpið. 30 kappar fórnuðu sér fyrir Dalai Lama Villtu um fyrir Kinverjum, meban leiðtogi þeirra komst til fjalla Debré f er til Bonn BONN, 9. apríl. — NTB-Reuter. — Franski forsætisráðherrann, Michel Debré, kemur í heimsókn til Bonn í byrjun maí, sam- kvæmt upplýsingum vestur- þýzku stjórnarinnar í dag. Til- gangur heimsóknarinnar er að ræða aðkallandi vandamál við Adenauer forsætisráðherra Vest- ur-Þýzkalands, m. a. undirbún- inginn að fundi utanríkisráð- herranna, sem hefst í Genf 11. maí. — DANSK-ENSKI blaðamaðurinn Noel Barber hefur fengið nánari fregnir af flótta Dalai Lama frá Tíbet og hefur símað þær til Vesturianda. Það var Khamba- ættflokkurinn sem hélt verndar- hendi yfir Dalai Lama á flóttan- um, eins og skýrt hefur verið frá. í föruneyti hans var 30 manna „sjálfsiiiorðssveit", sem var sér- staklega búin, og var leiðtogi hcnnar maður sem þóttist vera Dalai Lama, Var um það séð, að fréttin um „flótta“ þessarar sveitar sem fór í vesturátt bærist til Kínverja, þannig að athygli þeirra beindist frá hópi þeim, sem flúði með Dalai Lama. Fór sá hópur í austurátt til Assams. Noel Barber, sá er fyrstur birti fréttir af bardögunum í Tí- bet, kveðst hafa öruggar heimild ir meðal Khamba-ættflokksins um flóttann. Kínverjar óvitandi um flóttann í 3 daga Þegar Dalai Lama flúði, meðan barizt var í Lhasa, fór fylgdar- lið hans, sem var úr flokki hinna tryggu Khamba-manna með hann vestur þjóðveginn í áttina til Gyantse. Það virðist nokkurn veginn ljóst að Kínverjar vissu ekki um flóttann fyrstu þrjá dag ana og héldu sýnilega að Dalai Lama væri um kyrrt í Pokla • höllinni. Vegurinn til Gyantse er góður og hópurinn fór hratt yfir á hestbaki eða í vörubíl, þegar færðin leyfði. Þannig komst hann að vesturhorninu á Yandrak- vatninu, en þar beið öflugur liðs styrkur frá Khamba-ættflokkn- um. Dulbúinn Dalai Lama var klæddur eins og tíbezkur bóndi, og enginn sem á vegi hans varð hafði hugmynd um hver hann var. Það var ætlu" in að halda áfram til Gangtok í Sikkim, en þá uppgötvuðu Kín- verjar flóttann. Tólf vörubílar með kínverskar hersveitir voru í snatri sendir til bæjarins Thangla, en þaðan var auðvelt að loka veginum til Gangtok. Khamba-mennirnir fengu veður af þessu og voru um kyrrt einn dag við Yandrak-vatnið til að hugsa ráð sitt. 30 sjálfboðaliðar Það var á þessum stað sem skæruliðsforingi bauðst til að mynda 30 manna hóp, sem létist vera Dalai Lama og föruneyti hans og reyndi að villa um fyrir Kínverjum. Ilermennirnir 30 voru sjálfboðahðar. Þessi hópur lagði af stað til Gyantse með tví- fara Ðalai Lama. í fyrsta þorpini: sem hópuriim kom til var sú fréti látin berast út, að hér væri Dalai Lama á ferð. Á staðnum voru engir kinverskir hermenn, en þeg ar allir þorpsbúar komu saman til að hylla þjóðhöfðingja sinn, var fréttinn ekki lengi að berast til eyrna Kínverja. Falsfréttir Það var för þessa hóps sem olli fyrstu fréttunum um það, að Frh. á bls. 19. Friðrik tapaði MOSKVA, 9. apríl. — Spassky sigraði Friðrik Ólafsson í þriðju umferð á skákmótinu hér. Frið- rik tapaði snemma peði og stóðst síðan ekki ásókn Rússans. Hann missti drottninguna og gafst upp í 39. leik. Aðrar skákir fóru svo, að Filip vann Portisch, en jafntefli varð hjá Vasjukov og Smyslov og Lutikov og Bronstein. Bið- skákir urðu hjá Aronin og Milev og Larsen og Simagin. Smyslov hefir unnið biðskák sína við Spassky úr 2. umferð. Föstudagur 10. apríl Efni blaðsins m.a.: Bls. 3: Kvikmynd um Billy Graham sýnd hér. * — 6: Ályktun landsfundar Sjálf- stæðismanna um verzlunar- mál. — 8: Síða S.U.S. — 10: Ritstjórnargreinin: Stærri skip — fullkomnari hafnir. Utan úr heimi: Frönskukenn- arinn okkar heitir Piere Men- dés-France. — 11: Eugene O’NeilI grafinn ÚK gleymsku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.