Morgunblaðið - 10.04.1959, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 10.04.1959, Qupperneq 3
Föstudagur 10. apríl 1959 MORCVNBLAÐIÐ 3 Billy Graham í predikunarstól. Milliþinguneind geri tillögur um lnusn vondumdla öryrhju Fjárhagsnefnd efri deildar flytur þáltil- lögu þess efnis í GÆR var útbýtt á Alþingi till. til þingsályktunar um kosningu milliþinganefndar um öryrkja- mál. Flutningsmenn tillögunnar eru Gunnar Thoroddsen, Bern- harð Stefánsson, Jóhann Jósefs- son, Eggert Þorsteinsson og Björn Jónsson, en þeir skipa fjárhags. nefnd efri deildar. Tillagan “er á þessa leið: Alþingi ályktar að kjósa fimm Kvikmynd með Billy Graham trú- boða synd í KFUM á sunnudag Billy frelsaði 07 þusundir í New York a 16 vikum 1 GÆR var fréttamönnum gefinn kostur á að sjá hinn heimsfræga trúboða, Billy Graham, á kvik- mynd í húsi K.F.U.M. Gunnar Andrésson talaði um trúboðann aður en myndin var sýnd, en að sýningu lokinni ræddu frétta- mennirnir við Gunnar og séra Magnús Runólfsson um trúboða 1 og vaknmgarstarfsemi. Billy Graham er fæddur og uppalinn á búgarði í Bandaríkj- unum og sýndi trúmálum ekki neinn sérstakan áhuga á upp- vaxtarárum sínum, en sótti þó kirkju að jafnaði. Köllun sína fékk hann á samkomu hjá um- ferðapredikara og varð það til að breyta lífsstefnu hans. Billy hafði ætlað sér að verða baseball- leikari, en fór nú í skóla og vakti strax á sér athygli sem predikari rúmlega tvítugur að aldri. Hann lauk prófi í mannfræði, en komst um svipað leyti í kynni við hreyf inguna Æskan fyrir Krist og hef- ur upp frá því helgað starf sitt útbreiðslu Kristindómsins. Eins og kunnugt er hefur Billy Graham ferðazt víða um heim og hvarvetna verið húsfyllir á sam- komum, sem hann hefur haldið. Um þessar mundir er hanníÁstra líu og kvað sprengja utan af séx öll samkomuhús. Helztu aðstoð- srmenn predikarans eru söngvar- inn George Beverly Shea, sem hefur sungið á samkomum hjá Billy Graham í meira en tíu ár og Cliff Barrow, sem stjórnar samkomunum. Kvikmyndin, sem heitir Krafta verkið í Manhattan er af kross- ferð Billys í New York, sem hófst 15. maí 1957 og stóð í 16 vikur samfleytt. Á hverju kvöldi kl. 7,30 voru haldnar samkomur í geysirúmgóðu samkomuhúsi en auk þess útisamkomur víðs vegar um borgira. Ein slík útisamkoma var haldin á stærsta baseball- leikvangi í New York og var mannfjöldi samankominn slíkur sem leikvangurinn rúmaði. Nix- on, varaforseti Bandaríkjanna, ávarpaði Billy og samkomugesti og sagði að predikarinn gæti ver ið hreykinn af að hafa náð svo miklum mannfjölda til samkom- unnár. ,.Ég fyllti ekki leikvang- inn. Guð gerði það“, svaraði Billy Graham. í lok hverrar samkomu biður Billy þá, sem vilji ganga Kristi á hönd, að gera svo vel og koma upp að ræðupallinum. Á kvik- myndinnr sést er fólk streymir upp að ræðupallinum. Þar talar predikarinn til þess nokkrum orð um og vísar því síðan til þess lútherska safnaðar, er næstur er heimilis hvers og eins. Á þessum 16 vikum, sem Billy predikaði í New York er talið að 57 þúsund- ir manna hafi gengið kristninni á hönd. Kvikmyndin um Billy Graham verður sýnd almenningi á sunnu dagskvöldið í húsi K.F.U.M. Verð ur samkoma þar í húsinu kl. 8,30 og myndin sýnd að samkomunni lokinni. , STAKSTEINAR manna nefnd til þess að rannsaka og gera heildartillögur um lausn á atvinnumálum og félagslegum vandamálum öryrkja í landinu. Skal nefndin afla álits sérfræð- inga og hafa samráð' við samtök öryrkja. Nefndin skal hraða störfum svo sem unnt er. Kostnaður við störf hennar greiðist úr ríkissjóði. f greinargerð segir svo: í sambandi við frv. til laga um framlengingu á vöruhappdrætti Sambands íslenzkra berklasjúkl- inga hefur fjárhagsnefnd efri deildar rætt öryrkjavandamálin í heild og fengið fróðlegar upplýs- ingar og umsagnir, munnlegar og skriflegar, frá Sambandi ís- lenzkra berklasjúklinga, Styrktar félagi lamaðra og fatlaðra og Sjálfsbjörg — félögum fatlaðra á Siglufirði, Akureyri, ísafirði, Reykjavík og Selfossi. Nefndarmenn telja nauðsyn- legt, að fram fari hið fyrsta heild- arathugun á atvinnumálum og fé- lagslegum vandamálum öryrkja í landinu, og flytja því í sameinuðu þingi tillögu þessa um kosningu milliþinganefndar í málið. Námskeiðog mötNor- rænu félaganna 20 sterlingspund BREZKA sendiráðið hefur beðið Mbl. að geta þess, að nýlega hef- ur gjaldeyrislöggjöf Bretlands verið breytt þannig, að fólk sem fer úr landi í Bretlandi má hafa með sér 20 sterlingspund í seðl- um. Áður mátti fólk aðeins hafa 10 sterlingspund. I SUMAR verða fjölmörg mót og námskeið haldin á Norður- löndum á vegum Norrænu fé- laganna. Danmörk. í Hindsgavlhöllinni á Fjóni, sem er félagsheimili Norræna félagsins í Danmörku verða eft- irtalin norræn mót og námskeið haldin. 25. maí—2. júní: Mót norrænna verzlunarmanna, bankamanna og iðnaðarmanna. Þetta er í þrítugasta skiptið, sem Norrænu félögin gangast fyrir slíku móti. 5.—12. júlí: Norrænt námskeið fyrir kenn- araskólakennara í samvinnu við Kennaraskólann í Kaupmanna- höfn. 12.—18. júlí: Námskeið fyrir fulltrúa nor- rænna sveitarstjórna í sam- vinnu við samband sveitar- stjórnarfélaga. 19,—26. júlí: Norræn æskulýðsvika. 26. júlí—1. ágúst: Mót norrænna kennaranema. Ungum kennurum er einnig boð- in þátttaka. 23.—30. ágúst: Fræðslumót um norr'æna bóka- gerð. 18.—25. október: Mót norrænna menntaskóla- nema. Ennfremur verður norrænt kennaranámskeið haldið í Askov á Jótlandi í sumar eins og venja er til og fjölmörg hálfsmánaðar- námskeið, „14 dage pá höjskole", verða haldin á lýðháskólum víðs vegar um Danmörku á tímabilinu frg júníbyrjun til septemberloka. Finnland, Eftirtalin mót og námskeið verða haldin í Helsingfors á veg- um félagsins í Finnlandi. 16.—22. marz: Norrænt námskeið fyrir æsku- lýðsleiðtoga og ungt fólk, sem hyggst leggja fyrir sig félagslegt leiðbeiningarstarf. 31. maí—6. júní: Norrænt námskeið fyrir þá sem sjá um starfsmannahald fyr- irtækja og félagssamtaka. 9.—15. ágúst: Norrænt æskulýðsmót. Noregur. Námskeið fyrir norræna land- mælingamenn haldið á landbún- aðarháskólanum í Ási. 1.—7. júlí: Norrænt kennaramót á Sjusjö- ens háfjallahóteli við Lille- hammer. 12.—18. júlí: Norrænt æskulýðsmót á Hundorp lýðháskólanum í Gud- brandsdal. Síðari hluta ágúst- mánaðar verður haldið blaða- mannamót í Ósló. Svíþjóð. 6.—16. júní: Námskeið um ntrræn efna- hagsmál og efnahagssamvinnu Evrópuþjóða. Námskeiðið er haldið á Biskops-Arnö, hinum nýstofnaða lýðháskóla Norræna félagsins sænska á eyju í Mal- aren skammt frá Stokkhólmi. 17. —25. júní: Námskeið um norræna sam- vinnu á sviði menningarmála, haldið á Biskops-Arnö. 18. —25. júní: Norrænt æskulýðsmót á Bohus g&rden, sem er miðstöð sumar- námskeiða sænska félagsins við vesturströndina nokkru fyrir norðan Gautaborg. 26.—27. júní: Fulltrúaþing (kongress) Nor- rænu félaganna og ýmissa félags- deilda þeirra háð í Stokkhólmi og í tengslum við það vinabæja- mót víðsvegar um Svíþjóð. 28.—29. júní: Fulltrúafundur Norrænu félag anna, hinn árlegi aðalfundur heildarsamtakanna haldinn á Biskops-Arnö. 1. —8. júlí: Norrænt námskeið, sem kallast Norðurlönd í dag verður haldið á Bohusgárden. 4,—12. júlí: Norræn bókmenntavika á Biskops-Arnö. 9.—18. júlí: Norrænt námskeið sem nefnist: Litir og form okkar nánasta um- hverfis, haldið á Bohusgárden. 23.—29. júlí: Norræn fjallanáttúra, kenn- aranámskeið, haldið í Abisko í Lapplandi. 2. —8. ágúst: Norrænt kennaranámskeið sem nefnist: „Att spela teater", haldið á Bohusgárden. Auk þess ráðgerir sænska fé- lagið að efna til móts fyrir unga lögfræðinga síðari hluta sumars og námskeiðs fyrir leiðbeinend- ur í félagsmálum. Ennfremur verða ýmiss konar kennaranámskeið haldin í sumar á vegum sænsku fræðslumála- stjórnarinnar og fleiri aðila, þar á meðal a. m. k. 5 námskeið á Naás, skammt frá Gautaborg, fyrir liandavinnukennara, teikni- kennara og íþróttakennara, og á Sigtuna fyrir kennara tornæmra barna og unglinga. íslenzkum kennurum gefst kostur á þátt töku í þessum námskeiðum. Einn- ig verða haldin námskeið fyrir norræna kennara í Englandi í júní og júlímánuði í sumar. Þess má að lokum geta, að 15 danskir kennarar munu dveljast hér á landi um þriggja vikna skeið í júlímánuði í sumar, í boði Norræna félagsins og íslenzkra kennarasamtaka. Þá mun sum arnán\skeið á vegum fræðslu- miðstöðvar Gautaborgarstúdenta haldið hér um mánaðamótin júní og júlí og hafa þeir notið fyrirgreiðslu Norræna félagsins í sambandi við undirbúning. Nánari upplýsingar um nám skeið þessi og mót gefur Magnús Gíslason, framkvæmdastjóri Nor ræna félagsins í Reykjavík. Aflabrögð Hafnar fjarðarbáta HAFNARFIRÐI — Síðasta hálfan mánuðinn hafa bátarnir nær stanzlaust getað stundað veiðar, en aflabrögð hafa verið fremur rýr, þótt einstaka bátur hafi hins vegar aflað vel af og til. Um síðustu mánaðamót höfðu bátarn ir, sem eru 23 að tölu, aflað 4569 tonn en á sama tíma í fyrra 4947. Hæstu bátarnir höfðu þá aflað sem hér segir: Faxaborg 468 tonn (slægt og óslægt) í 44 róðrum, Fákur 406 (slæg.t og óslægt) í 43, Dóra 290 (óslægt) í 24, Haförn 260 (sl. og ósl.) í 31 róðri, Fiska- klettur 255 (ósl.) í 40, Reykjanes 236 (ósl.) í 23, Álftanes 229 (ósl.) í 39, Örn Arnarson 228 (ósl.) í 27, Fjarðarklettur 217 (sl. og ósl.) í 24 og Flóaklettur 212 (ósl.) í 17 róðrum. Hinir bátarnir höfðu þá ekki náð 200 tonnum. — Togar- arnir halda sig yfirleitt á Selvogs banka og hefir verið þar reytings fiskirí. Eitthvað mun þó hafa glæðzt á þessum miðum síðustu daga. —G.E. Ekki frá S. í. S. Eins og frá hePur verið skýrt var svo að sjá af fréttatilkynning unni um hinn nýja forstjóra Hins íslenzka steinolíuhlutaféiags og Olíufélagsins sem hún væri send frá S. f. S. en ekki félögunum sjálfum. Síðar var beðið um leið- réttingu þessa og sagt, að tilkynn ingin hafi raunverulega verið frá félögunum en ekki S. í. S. Hafl þar verið um „rnistök" að ræða, voru þau gerð af þeim, sem til kynninguna sendi út, en ekki blöðunum, er birtu hana. Aðalat- riðið er, að þessi „mistök“ sýna hið nána samband S. í. S. og þess arra tveggja félaga. Engin athugasemd hefur verið gerð við frásagnir blaðanna af orsökum forstjóra-skiptanna. S.I. miðvikudag var hér drepið á frá- sagnir Alþýðublaðsins og Þjóð- viljans af þeim. Auk þess, sem þá var hér tekið upp, sagði Þjóð- viljinn í framhaldi frásagnarinn- ar af skiptum á amerískri og rússneskri olíiu: „Neðan j arðarleiðsla úr flugvallartönkum Olíufélagið mun hafa haldið því fram, að það hafi ekki fram- kvæmt þessi sérkennilegu við- skipti í auðgunarskyni, heldur hafi hernámsliðið fengið eins mikið magn af rússneskum vör- um og íslendingar höfðu fengið af amerískum. Erfitt mun ráða- mönnum þó hafa reynzt að leggja fram gögn því til staðfestingar, enda mun hafa verið fullkomið samkrull á hernámsviðskiptum Olíufélagsins og innlendum við- skiptum þess. Þannig kom það í ljós við rannsóknina að neðanjarðar- leiðsla var úr tönkum hernáms- liðsins á ISeflavíkurflugvelli j tanka Olíufélagsins í Keflavík þannig að hægt var að tappa af flugvallartönkunum eftir því sem ráðamenn Olífélagsins töldu henta! Munu yfirmenn hernáms- liðsins ekki hafa talið sig vita neitt um þessa neðanjarðarleiðslu, og var henni lokað om síðustu áramót. Hcu-fnir bílar fundust hjá olíufélaginu Þá mun Olíufélagið einnig hafa blandazt inn í hin stórfelldu þjófnaðarmál sem upp kom- ust á Keflavíkurflugvelli á s. 1. ári en svo sem kunnugt er var stolið frá hernámsliðinu mjög miklu magni af vélum og verkfærum, bílum o. s. frv. Munu að minnsta kosti tveir af hinum horfnu bílum hafa fundizt sem „eign“ Olíufélags- ins. í rannsókninni munu ráða menn Olíufélagsins hafa haldið því fram að bílarnir hafi verið keyptir af svonefndri Sölunefnd varnarliðseigna, en sá framburð- ur stóðst ekki þegar að var gáð“. Morgunblaðið dæmir að svo komnu ekki um, hvað rétt er í þessium ásökunum. En víst hlýt- ur það að auka styrk þeirra, að engin mótmæli birtast. Tíminn biðst ekki afsökunar Greinlegt er af Tímanum i gær, að mjög hef ur verið komið • við kaun hans með aðfinningum út af „menningar“-skrifum hans og myndum s.l. sunnudag. Morg- unblaðinu er ánægja að því, að Tímann svíður sárast undan hirtingunni, sem hann hefur hlot- ið hér í blaðinu. Enn neitar Tím- inn að biðja stúlkurnar sex af- sökunar á móðguninni í þeirra ■ garð. Það mundi hvert sæmilegt blað hafa gert þegar í stað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.