Morgunblaðið - 10.04.1959, Qupperneq 4
MORGVNBLAÐI
í dag er 100. dag-ur ársins.
Föstudagur 10. apríl.
Tungl fjærst jörðu.
Árdegisflæði kl. 6,40.
Síðdegisflæði kl. 18,57.
Heilsuverndarstöðin er opin all
an sólarhringinn. Læknavörður
L.R. (fyrir vitjanir) er á sama
stað frá kl. 18—8. — Sími 15030.
Næturvarzla vikuna 5. til 11. apríl
er í Vesturbæjarapóteki, sími
22290.
Holts-apótek og Garðs-apótek
eru opin á sunnudögum kl. 1—4
eftir hádegi.
Hafnarf jarðarapótek er opið
alla virka daga kl. 9—21. Laugar-
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
dag kl. 13—16 og kl 21.
Næturlæknir í Hafnarfirði er
Ólafur Einarsson, sími 50952.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
E Helgafell 59594107 — IV/V 2.
I.O.O.F. 1 = 1404108% = 9 O.I.
« AFMÆLI «
E^Hjönaefni
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Ingibjörg Sigfúsdótt
ir, Hrísateigi 18, og Aðalsteinn
Ingólfsson, Laugarnesvegi 110,
Rvík.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Anna María Vals-
dóttir, bankamær, Seljavegi 3, og
Karl Karlsson, vélstjóri, Báru-
götu 37, Rvík.
Skipin
80 ára er i dag frú Júlíana
Jónsdóttir, Blönduhlíð 6.
50 ára er í dag, Þórhallur Sig-
urjónsson, til heimilis Suður-
landsbraut 94 H.
H. f. Eimskipafélag Islands.
Dettifoss kom til Gautab. 7/4
fer þaðan til Árhus, Ystad og
Riga. Fjallfoss kom til Rvíkur
5/4 frá Hull. Goðafoss frá frá
New York 7/4 til Rvíkur. Gull-
foss er í Khöfn. Lagarfoss fór frá
Rvík 5/4 til New York. Reykja-
foss fór frá Rvík 7/4 til Rotter-
dam og Hamborgar. Selfoss hefur
væntanlega farið frá Hamborg
8/4 til Rvíkur. Tröllafoss fór frá
Ventspils 8/4 til Gdansk, Khafn
ar, Leith og Rvíkur. Tungufoss
fór frá Gufunesi 6/4 til Vestfj.
og Norðurlandshafna. Katla fer
frá Rvík 13/4 til vestur- og norð
urlandshafna.
Skipaútgerð ríkisins. — Hekla
fer frá Rvík kl. 9 annað kvöld
vestur um land í hringferð, Esja
er í Rvík. Herðubreið fór frá
Rvik í gær austur um land til
Þórshafnar. Skjaldbreið er á
Húnaflóa á leið til Akureyrar.
Þyrill er í Rvík.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell
fór frá Rieme 6. þ.m. Arnarfell
losar á Austfj.höfnum. Jökulfell
er á Húsavík. Dísarfell er í Gufu-
nesi. Litlafell er í olíuflutningum
í Faxaflóa. Helgafell er á Reyðar
firði. Hamrafell væntanlegt til
Rvíkur 12. þ.m.
Ymislegt
Húnvetningar, Reykjavík.
Munið spilakvöldið í Skáta-
heimilinu í kvöld. Ómar Ragnars
son skemmtir.
Frá Guðspekifélaginu: — Sept-
ima heldur fund í kvöld kl. 8,30 í
Guðspekifélagshúsinu, Ingólfs-
stræti 22. — Sr. Jakob Kristins-
son flytur stutt erindi: „Hugur
enn það veit“. — Á eftir verða
sýndar litskuggamyndir, og að
lokum verða kaffiveitingar.
Þetta er mynd af hcn-
um Kobba, skemmti-
lega karlinum í barna-
leiknum „Undraglerin",
er hefir verið sýndur 12
sinnum í Þjóðleikhús-
inu og alltaf fyrir fullu
húsi. — „Undraglerin“
verða sýnd á morgun
kl. 6 og á sunnudag
kl. 3.
Sjálfsta-ðKskvennafélagið Hvöt
gengst fyrir hlutaveltu n.k. sunnu-
dag í Listama.maskálanum. Mikið
hefur þegar borizt af góðum man-
um, en betur má ef dupa skal, og
er hér með heitið á allar Sjálfstæð-
iskonur og aðra velunnara félags-
ins að gefa muni á hlutaveltuna.
Gróa Pétursdóttir, Öldugötu 24 og
María Maack, Þingholtsstræti 25,
taka á móti gjöfum og veita allar
nánari upplýsingar. Munir verða
sóttir heim til þeirra, sem þess
óska. —
l^Pennavinir
Dönsk húsmóðir óskar eftir
bréfaskriftum við ísl. húsmóður.
Nafn hennar er: Martha Snedker,
Ommestrup, pr. Mörke, Danmark.
SLYSASAMSKOT
afhent Morgunblaðinu:
Söfnun vegna sjóslysanna afh.
Mbl. — Starfsfólk Kjötbúðinni
Borg 2050; áheit Rakel Helgad.
50; Starfsfólk Kassagerðar Rvík-
ur 7050; L.R.V. 300; K.S. 100; S.B.
200; Kristín Sigurðard. Hverfisg.
68a 50; G.K. 200; Kvenfél. Njarð-
víkur 1000; Fél. pípulagninga-
meistara 1000; Chr. Cristensen og
frú 500; Tryggvi Sveinbjörnsson
sendiráðunautur Khöfn 500; KKK
100; V.K. 100; S.K. 100; R.S. 200;
I.H. 50; Félagar úr U.M.F. Dreng
Kjós 2300; N.N. 100; P.J 100; H.K.
500; Lionklúbbur Borgarness
12.551,50. — Söfnun alls hjá Mbl.
kr. 1.218.856,40.
Föstudagur 10. apríl 1959
Læknar fjarverandi
Árni Björnsson um óákveðinn
tíma. — Staðgengill: Halldór Arin
bjarnar. Lækningastofa í Lauga-
vegs-Apóteki. Viðtalstimi virka
daga kl. 1:30—2:30. Sími á lækn-
ingastofu 19690. Heimasími 35738.
Esra Pétursson fjarverandi til 2.
maí. Staðgengill: Ólafur Tryggva
son.
Guðmundur Benediktsson um óá
kveðinn tíma. — Staðgengill:
Tómas Á. Jónasson, Hverfisgötu
50. Viðtalstími kl. 1—2, nema
laugardaga, kl. 10—11. Sími 15521
Kjartan R. Guðmundsson til
aprílloka. — Staðgengill: Gunnar
Guðmundsson, Laugavegi 114. —
Viðtalstími kl. 1—2:30, laugar-
daga kl. 10—11. — Sími 17550.
Þórarinn Guðnason frá 9. apríl
til 14. mai. — Staðgengill: Guð-
jón Guðnason, Hverfisgötu 50. —-
Viðtalstími þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga kl. 13:30—
14:30 — mánudaga og föstudaga
kl. 16—17. Sími í lækningastofu:
15730. Heimasími: 16209.
BLOÐ OG TIMARIT
Hjúkrunarkvennablaðið, 1. tbl.
35. árg., er komið út. — Af efni
þess má nefna: Epilepsi, grein
eftir Esra Pétursson lækni. —
Baráttan fyrir bláa stimplinum
eftir Margréti Jóhannesdóttur. —
Minningarorð um dr. med. Helga
Tómasson. — Smithættan á
sjúkrahúsunum okkar eftir Rie-
werts Eriksen, lektor. — Sagt er
frá tilhögun 13. alþjóðaráðstefn-
unnar um atvinnusjúkdóma og
heilsuvernd á vinnustöðum, sem
haldin verður í New York 25.—
29. júlí 1960. — Þá er ársskýrsla
Hjúkrunarfélags íslands, kvæði,
ýmsar fréttir og tilkynningar o.
m.fl.
rncrt<pm&affirw
— Jú, ég held, að ég taki þessa!
ELDFÆRIIM — ævintýri eftir H. C. Andersen
zp-
7. Þetta var yndislegur blær, I ingahúsið, heimtaði beztu her-1 inn sinn, því að nú var hann . ríkur, þar sem hann hafði eignazt
og hann fór inn í fallegasta veit-1 bergin og pantaði eftirlætismat- I Isvona mikið af peningum.
FERDIIM AIMD
Rraftar í kdgglum
— Má ég sýna yður nýjustu teg
undina af ryksugunum okkar?
spurði farandsalinn frúna.
— Hún hlýtur að vera alveg
stórkostleg, sagði frúin.
— Má ég þá koma inn?
— Nei, ég kaupi enga ryksugu.
Ég fæ hana alltaf að láni hjá
frúnni í næsta húsi. En þér ættuð
að reyna að sýna henni hana.
Hún hefði þurft að vera búin að
kaupa sér nýja ryksugu fyrir
löngu.
★
Tveir skipbrotsmenn voru að
ræðast við á eyðiey.
— Þetta er hræðilegt, sagði
annar. Hér finnur okkur ekki
nokkur maður!
— Þér ættuð ekki að hafa á-
hyggjur af því. Við verðum áreið
anlega leitaðir uppi mjög fljót-
lega. Ég á sem sé ógreiddan- tölu-
verðan hluta af skattinum mín-
um!
★
Ræðumaðurinn talaði af mikl-
um ofsa gegn áfengisneyzlu.
— Ég vildi óska, hrópaði hann
æstur, að allar koníaks-, romm-
og viskíflöskur væru komnar
niður á hafsbotn.
— Það segi ég með yður! var
hrópað í áheyrendasalnum.
— Það gleður mig að fá slíkar
undirtektir! Loksins hitti ég
mann, sem er 100% bindindis-
maður!
— Nei, það er ekki rétt! Öðru
nær. Ég er kafari að atvinnu.
★
í hádegishléinu fór aðstoðar-
skrifstofustjórinn fram í eldhúsið,
I sem var inn af skrifstofuhúsnæð-
j inu, og fór að reyna að steikja sér
I kjötbita. Það gekk ekki vel. Að
lokum gafst hann upp og kallaði
á skrifstofustúlkuna sér til að-
stoðar.
— Sjáið þér til, ungfrú Herdis.
Nú er ég búinn að steikja þenn-
an bita í rúman stundarfjórðung,
og hann er ólseigur ennþá. Hvað
á ég að gera til bæta úr þessu?
Ungfrú Herdís leit á hann
dreymandi augum:
— Þér ættuð bara að gifta yður,
herra aðstoðarskrifstofustjóri!