Morgunblaðið - 10.04.1959, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.04.1959, Blaðsíða 12
1? MORGVHBLAÐi' Fðstudagur 10. apríl 1959 WELLIT einangrunarplötum Birgðir íyrirliggjandi Mars Trading Co. h.f Sími 1-73-73 • Klapparstíg 20. Einangrið hús yðar með Czehoslovak Ceramis Frag KVIKMYNDIN f jöklanna skjóli Svipmyndir úr Skaftafellsþingi verður sýnd í Aust- urbæjarbíói sunnudaginn 12. apríl kl. 1,30. Fyrri hluti: Kvöldvaka, Fýlatekja, Kolagerð, Meltekja og þáttur úr Öræfum. Mánudaginn 13. apríl kl. 7. Síðari hluti: Ferðalög fyrr og nú. Aflabrögð í sjó og vötnum. Vöruuppskipun í Vík. — Aðgöngumiðar fást í Austurbæjarbíó frá kl. 2 á laugardag. — S**»,sta tækifæri að sjá þessar einstöku myndir. Skaftfellingafélagið. Cardínuefni Fyrirliggjandi í miklu úrvali: Storesefni, Popinet, Damask og abstrakt bómullareíni. Fjölbreytt litaúrval. ó. V. Johannsson & Cotnpany, Hafnarstr. 19, símar 12363 og 17563. Atvinnurekendur Ungur maður utan af landi, vanur þunga- og lang- ferðaflutningum, óskar eftir einhverskonar akstri. Einnig vanur bílaviðgerðum, góður rafsuðumaður Uppl. í síma 23698 milli kl. 18—20. Aðstoðarstúlkc Aðsfoðarstúlka óskast í möfuneyti. Upplýsingar í síma 1-14-25. - O’Neill Framh. af bls. 11. fræðilegum hugmyndum. Hvar- vetna var gerður aðsúgur að sjálfsánægjunni, virðuleikanum og velsæminu. Ibsen, Shaw og Strindberg voru hin ríkjandi á- hrifaöfl í dramatískum bókmennt um, og ungir leikritahöfundar fóru hátíðlegum orðum um það, sem þeir kölluðu „sveita- mennsku“ og „púrítanisma" í bandarískum bókmenntum. >ess í stað boðuðu þeir „hina nýju sálfræði" og auk þess frjálslynd- ar og róvtækar hugmyndir um siðgæði og félagslegt réttlæti. O’Neill fylgdi þessayi nýju stefnu, á yfirborðinu að minnsta kosti. Hann var uppreisnarmaður stjórnmálalega, siðferðilega og þjóðfélagslega. Að þessu leyti var hann sannur sonur samtíðar sinnar. En hann var einnig sjálf- stæður og átti engan sinn líka. Og ekki leið á löngu, þar til hann fór að bera höfuð og herðar yfir aila aðra í „hópnum" eða „stefn- unni,“ þegar hvert leikrit hans rak annað með stuttu millibili, ekki aðeins vegna þess að hann var auðsjáanlega mestum hæfi- leikum búinn, heldur og vegna þess að fólki varð smám saman ljóst, að hann hafði eitthvað nýtt að segja. Leikrit hans voru að vísu þjóðfélagsádeilur. og hann hefur vafalaust fengið nytsamar hugmyndir og „búninga" að láni úr sálarfræði Freuds. En þó var hann ekki fyrst og fremst ádeilu- skáld eða boðberi Freuds. Það var óhjákvæmilegt, að þjóðfélags- ádeila, _.'.lfr:-3i Freuds fengi rúm í huga hans, vegna þess að hann var „maður nútímans." En við hjartarætur allra stærstu leik rita hans voru spurningar, ráð- vana undrun og sársauki, sem voru yfirleitt ótímabundin. O’Neill sóttist engu síður eftir samfyigd við Sófókles en Ibsen og Strindberg. Og það er þetta sem veldur því, að það er jafnvel auðsærra nú en þá að O’Neill var allt að því ótímabundinn, þar sem samtíðarmenn hans í bandarísk- um leikbókmenntum „tilheyrðu þriðja tug aldarinnar." Það er ekki „vandamál" ákveðins tíma- bils eða þjóðfélags, sem hann fæst við, heldur „vandamál" manns- ins sjálfs. O’Neill var ákaflega afkasta- mikill rithöfundur, hann unni sér engrar hvíldar og var sífellt að þreifa fyrir sér um ný form og ný efni. En öil miðaði þessi óstöðv andi leit hans að því að fmna, hvaða form væri áhrifamest til að túlka viðfangsefni, sem var alltaf hið sama í stórum dráttum. Og það var vegna þess hve frum. leikinn og einlægnin í verkum hans var rík og augljós, jafnvel þótt þau væru aðeins lesin yfir,að farið var að sýna leikrit O’Neills í London, París, Moskvu og Berlín, þegar fyrir 1930. Ekkert annað bandarískt harmleikaskáld haíði áður híotið slíka viðurkenningu í Evrópu, og árið 1936 varð hann fyrsti bandaríski leikritahöfund- urinn, er hlaut Nóbelsverðlaunin. í hverju felast yfirburðir hans? Sviðsáhrif leikrita hans út af fyr- ir sig eru stórkostleg, en þau nægja ekki til að skýra þann al- vöruþunga, sem maður kemst ekki hjá að finna í þeim. Þekk- ing hans á afstöðu samtíðar- manna til þjóðfélags- og siðgæðis- mála er augljós, en langt frá því að vera nokkuð sérstök, því að hún er hin sama og hjá flestum alvarlegum leikritaskáldum þessa tíma. Því síður geta yfirburðir hans legið í leikni, kænsku ,g hugviti. Honum hefur jafnvel stundum verið borið það á brýn, að hann skorti tilfinnanlega hæfi- leika til þess að fara með orð af lipurð og leikni.Þó er óhugsandi, að hægt sé að kynnast neinum af stærri leikritum hans án þess að gera sér grein fyrir. að hér er á ferðinni rithöfundur, sem kafar djúpt niður í mannlegt eðli og spyr í fyllstu alvöru spurning- anna, sem hinir miklu harmleika- höfundar hafa alltaf spurt. Á sama hátt og það snart Eskílos og Shakespeare, Tolstoí og Dostojevskí, snart það O’Neill djúpt að sjá, hve ómannúðlegir menn eru i samskiptum sínum hver við annan, og að sjá óham. ingjuna sem stafar af stjórnmála- legum, efnalegum og þjóðfélags- legum órétti. En það fór eins fyrir honum og þeim — hann gat ekki látið þar við sitja. Ofar spurn- ingunni um samskipti mannanna hver við annan liggur spurningin um samskipti mannsins við al- heiminn. Eru þau samskipti vin- gjarnleg, fjandsamleg eða ómerk? Er til eitthvað æðra en maðurinn sjáifur, sem hugsanlegt er að hann geti hafið skilningsrík sam- skipti við, eða er það inntak til- verunnar, að það sem hann þarfn- ast mest er ekki til? Söguhetjur hans eiga sorgleg hlutskipti, vegna þess að þær trúa því að þær lifi fyrir eða séu ofurseldar einhverju ofar þeim sjálfum, sem er stærra, voldugra og veigameira heldur en hyggindi og almenn skynsemi. Þetta fólk getur haft réttar eða rangar fyrir sér en óbrotnari og hugmynda- snauðari menn. En frá dramatísku sjónarmiði er það athygiisverð- ara, og að því er bezt verður séð hefur þetta alla tíð verið skoðun allra mikilla harmleikaskálda. Hann lýsir hugsjónum, vónleysi og kvöl söguhetja sinna — ekki vegna þeirra sjálfra, heldur til að spyrja hinnar alvöruþrungnu spurningar. hvort hugsjónir, von. leysi og kvöl hafi þýðingu vegna þess að þetta eigi skylt við eitt- hvað annað, eða hvort þetta sé aðeins innantómur hávaði og iæti. ¥ Einstaklingsherbergi Ensk stúlka ,sem gerir ráð fyrir að dvelja hér eitt eða tvö ár, óskar eftir að leigja herbergi með eða án húsgagna, sem næst miðbænum. Aðgangur að eld- húsi og baði nauðsynlegur. Upplýsingar óskast sendar blaðinu fyrir n.k. mánu- dag 13. þ.m. merkt: „Ensk stúlka — 9513“. TÖLUR HNAPPAR SKELPLATA FJÖLBREYTT ÚRVAL fynrliggjandi Fatatölur Úlputölur Skelplötutölur Plast-skyrtutölur Káputölur Kjólatölur povcnfívlny INI P Einhver athyglisverðustu um- mæli, sem talið er að O’Neill hafi iátið frá sér fara um merkingu verka sinna, voru eitthvað á þá leið, að hann hefði ekki áhuga á að skrifa um samskipti mann- anna innbyrðis, heldur um sam- skipti manns og guðs — og með því átti hann augsýnilega við sam skipti mannsins við eitthvað fyrir utan og ofan hið veraldlega. Þetta er hið sanna sorgarstef í verkum hans, og spennan í beztu leikritum hans hvílir alltaf á þeim nagandi efa, hvort guð sé í raun og veru til eða ekki, jafn- vel í þessari mjög svo víðtæku merkingu. Grikkir töluðu um ör- lög, nútímamenn tala um erfðir, áhrif umhverfisins og sálfræði- iegan „trjáma“. Tilgangur allra þessara hugmynda er að útskýra, hvers vegna persónurnar í sorg- arleik gátu ekki verið annað en það sem þær voru. Og þó væri ekki hægt að skrifa harmleiki, ef menn gerðu sig fyllilega ánægða með þessar kenningar. Grikkir fundu sig knúða til að spyrja, hvort örlög manna væru fyrirfram ákveðin, þannig að þeir fengju engu um ráðið. Shakespeare gat aldrei svarað í eitt skipti fyrir öll spurningunni, hvort örlög okkar væru í stjörn- unum eða hvort eitthvað í okkur sjálfum réði því að við værum svona eða hinsegin. Og enn í dag geta menn því aðeins skrifað harmleiki, að þeim nægi ekki eig- in útskýringar í þessu efni, heldur þurfi þeir að spyrja. Á sama hátt og Ödipus voru allir meðlimir Tyronefjölskyldunnar í sjálfsævi- söguleikritinu „Húmar hægt að kvöldi" að leita að einhverjum sem þeir gætu áfellzt. Það verður aldrei uppvíst, hvort þeir hefðu ekki gert sömu uppgötvun og Ödipus sjálfur, ef leit þeirra hefði borið árangur. Óvinurinn bjó í þeim sjálfum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.