Morgunblaðið - 29.04.1959, Síða 12

Morgunblaðið - 29.04.1959, Síða 12
12 MORCVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 29. apríl 1959 Rétt lega / blaðsins.-^,.r'| Réttur halli vélarvið rakstur. % Halli blaðsins og lega breytist eftir gerð vélar og einhver peirra hentar því skeggrót yðar og húð. Sérhver Gillette Trio rakvél er seld í vönduðum og fallegum plastkassa, og hentar vel í ferðalög. — Umræður um kjördæmamálið Framh. af bis. 11 gon, sem hefur byggt meginhluta ræðu sinr.ar í þessum umræðum á ósannindum, sem auðvelt- er að hr.ekkja, Hann sagði, að árið 1953 hefðu Sjáifstæðismenn ekki verið á því að breyta kjördæma- skipuninni. Pál Þorsteinsson las hins vegar upp ályktun frá Lands fundi Sjálístæðisflokksins frá ár- inu 1953, þar sem lögð var áherzla á að kjördæmaskipuninni yrði breytt og það skilyrði sett að sömu aðferð yrði að beita hvarvetna á iandinu, en Páll Þor steinsson má teljast sannsögul i samanburði við Eystein Jónsson. Það skyldi þó aldrei hafa verið svo að 2. þm. Kangæinga, Svein- björn Högnason, hafi ekki skrif- að sina ræðu, heldur hafi hún vérið tekin úr skjóðu, sem Ey- steinn Jónsson hefur verið að út- býta úr hér á þingfundinum. Þá vék Bjarni Benediktsson að starfi stjórnarskrárnefndar á sín- um tíma og rakti gang þess frá tipphafi og sýndi fram á að Fram- sóknarmenn hefðu stöovað störf hennar snemma árs 1953. Síðan staðfest það með því að semja um það 1956 að V-flokkarnir ein. ir skyldu leysa málið, aldrei til- nefnt menn í nefndina í stað Ólafs Jóhannessonar og aldrei éskað þess að nefndin kæmi sam- en. En nú loks veitt nefndinni traustyfirlýsingu með rökstuddu dagskránni, sem þeir báru fram viö 2. umræðu. Hvað vill Framsókn Þá vék Bjarni að tillögum Framsóknarmanna í kjördæma- málinu, og kvað erfitt að átta sig á þeim, á meðan þeir vildu ekki sjálfir segja, hverjar til- lögur þeirra væru. Páll Þorsteins son hefði sagt, að aðaltillaga þeirra væri sú, að hafa sérstakt Btjórniagaþing, Eysteinn héldi aft ur á móti fram að tillagan væri hin, er fram hefði komið á flokksþinginu í marz, rö skipta öllu landinu, nema Reykjavik og Akureyri í einmenn ingskjördæmi, og fella niður upp- bótaþingsæti. Tillögur þeirra nú tæri hinsvegar allt aðrar. Það væri erfitt fyrir þjóðina að fylgja þeim í þessum málum, meðan til- lögur þeirra væru svo á reiki. Fylking Framsóknarmanna værí ekki sigurstrangleg meðan þeir segðu ekki, hvað þeir vildu, en værú aðins á móti öllu. Röksemdafærslur Framsókn- armanna gegn kjördæmabreyt- ingunni væru og mjög á reiki, sumir talsmenn þeirra segðu, að hún væri til þess gerð að Sjálf- stæðisflokkurinn fengi einræðis- vald í landinu, en aðrir segðu að ' j allt myndi liðast upp í smáflokka. Það væri erfitt að sjá, hvern- ig þetta tvennt fengi staðist, sam- tímis, en þetta hefðu þingmenn orðið að hlusta á dag og nótt undanfarið. Það væri betra að hafa sömu kopíu af öllu, sem af- hent væri úr skjóðunni. Þá þyrfti heldur ekki að leiðrétta ræðurnar eins mikið, áður en þær væru sett ar í Tímann og gert hefði verið. Þá vék Bjarni Benediktsson að því, að Framsóknarmenn hefðu ekki viljað neitt samkomu- lag um kjördæmamálið, hvorki við Sjálfstæðisflokkinn, Alþýðu- flokkinn né Alþýðubandalagið. En mikið væri til í því, að Fram- sókn væri sá flokkur, sem helst mætti missa sig í slíku samkomu- lagi. Hann kvaðst játa, að ein- menningskjördæmi yrðu til styrktar tveggja flokka kerfi, þó að ókostir væru þeim samfara, eins og þeir að flokkur með 40% kjósenda eða jafnvel 15% gætu fengið meiri hluta í Alþingi sem reikningslega væri hægt að sýna. Það væri einnig fásinna að halda að unt væri að eyða áhrifavaldi kommúnista með breyttri kjör- dæmaskipun, eins og gert hefur verið í Frakklandi, þeirra starf- semi gæti notið sín enn betur ef þeir fengju að starfa í myrkri. Ef þau þjóðfélagsöfl væru fyrir hendi, sem vildu veita þeim braut argengi, væri rétt að það kæmi fram á Alþingi. Dómur fólksins ætti að skera úr um, hverjir hefðu vald í landinu en ekki valdboð. Þjóðin sker úr Þá vék Bjarni Benediktsson að þeim ummælum Eysteins Jóns sonar, að kúgunaraðferðum væri beitt við kosningar hér í Reykja- vík. Mætti jafnan ganga út frá því sem vísu, að ef Framsóknar- menn bæru andstæðingum sínum á brýn, að þeir beittu einhverj- um vafasömum aðferðum, þá vildu þeir þar með draga athygli manna frá því að þeir hefðu sömu aðferðina í hávegum sjálfir. Það væri vitað, að Framsóknar- menn hefðu náð yfirráðum í mestu auðsöfnunarfyrirtækjum hér á landi og hefðu bókhald yf- ir hagi kjósenda í fjölmennum sýslum. Eysteinn Jónsson hefði lýst því yfir á fundum úti á landi, að það væru svik við samvinnu- stefnuna, ef menn kysu ekki Framsóknarflokkinn. í smáum kjördæmum nytu slíkar kúgun- araðferðir sín bezt, þar sem vitað væri um skoðanir flestra kjós. enda. Hér í Reykjavík gengi fylgi í öldum og hefði fylgi Sjálfstæðis flokksins hér stundum minkað nokkuð, en nú vaxið og væri það ekki sízt Eysteini Jóns- syni að þakka. Því að kjósend- ur höfðu séð, að fyrst keyrði um þverbak, er Eysteinn Jónsson fór að stjórna landinu án handleiðslu Sjálfstæðismanna. I Reykjavík og stærri kaupstöðum þar sem kosningaúrslit byggðust á frjáls- um skoðunum fjöldans, gæti eng- inn sagt kosningaúrslit fyrir, eins og í minni kjördæmum Framsókn arflokksins. Vaxandi ásælni Ey- steins Jónssonar heíði sýnt, a8 aðferðir Framsóknarmanna tjá ekki lengur, og því yrði aö skapa aðstöðu til þess að menn gætu verið frjálsir að því að kjósa. Ey- steinn Jónsson hafi einmitt sér- staklega harmað ef hin „persónu- laga“ áhrif hyrfu og tekið yrði upp flokkslegt réttlæti, því að Framsóknarmenn óttuðust ekk— ert meira en flokkslegt réttlæti. Fólkið úti á landsbyggðinni vill jafnrétti, sagði Bjarni Benedikts- son. Það hefur nógu lengi búið við ofríki Framsóknar. Umræð- urnar hér hafa sýnt að um er að ræða hvort einum flokki á að haldast uppi ranglæti á kostnað alls landsfólksins. Þjóðin á eftir að kveða upp sinn dóm um það, og við Sjálfstæðismenn bíðum hans óhrædair. Framsóknarmenn töldu veiga- meira að viðhalda ranglæfinu en tryggja rétt kjördæmanna Úr ræðu Jóhanns Hafstein á Alþ. i fyrrakvöld Jóhann Hafstein hóf mál sitt því, að þingmenn Framsóknar- flokksins hefðu keppzt um það í umræðunum, að hæla ræðum hvers annars. Það væri annarra að skera úr um hvernig málflutn- ingur hefði verið í þessum um- ræðum, en að gefnu tilefni væri ekki úr vegi að rifja upp þær sífelldu endurtekningar, sem gætt hefði í ræðum Framsóknar- manna. Þannig hefðu þeir lesið sömu ummæli hver eftir annan, rætt hvað núverandi ríkisstjórn hefðu verið mislagðar hendur, og haft hver eftir öð»um talið um rauðsyn þess að koma á þjóð- stjórn. Jóhann Hafsfem sagði að Ey- Virkilegur rakstur................hreinn......... hressandi- Gillette Einhver Gillette Trio* rakvélin hentar húð yðar og skeggrót. Veljið ])á réttu og öðlist fulikominn, hreinan rakstur. Létt Fyrir viðkvæma húð Meðal Fyrir menn með alla venjulega húð og skeggrót Þung Fyrir harða skeggrót Jóhann Hafstein steinn Jónsson heíði í langri ræðu jeynt að gera grtin fyrir stefnu Framsóknarmanna í kjördæma- málinu, sem hann hefði sagt að væri mjög glögg. Það væri þó erf- itt að átta sig á hver þessi stefna Framsóknarmanna raunverulega væri og fyndist sér hægt að lýsa henni með nokkuð öðrum hætti en Eysteinn Jónsson hefði gert. Stefna Framsóknarmanna í kjör- stæðisfulltrúanna í nefndinni En þarna hefði þó verið opin leið fyrir Framsóknarflokkinn að t^yggja rétt núverandi kjördæma, ef það hefði verið þeirra æðsta áhugamál. Sannleikurinn væri sá, að Framsóknarmenn hefðu talið veigameira að viðhalda ranglætinu en að tryggja rétt kjördæmanna. Eftir þessa afstöðu Framsóknar manna lýstu fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins í milliþinganefndinni 1932, þeir Jón Þorláksson og Pét- ur Magnússon, því yfir, sem vara- tillögu að þeir gætu fallizt á þá tillögu Alþýðuflokksins, að kjósa þingfulltrúa í 6 stórum kjördæm- um með hlutfallskosningu. Þegar stjórnarskrárbreytingin var gerð 1942 hélt Jóhann Haf- stein áfram, gátu Sjálfstæðis- menn vel iiugsað sér að ganga inn á tillögur svipaðar þeim sem fram komu í milliþinganefndinni 1932. Sama kom einnig fram í stjórnar- skrárnefndinni hjá fulltil'úum Sjálfstæðismanna í nóvember 1952 og samhljóða ályktun var gerð á Landsfundi Sjálfstæðis- manna 1953, að hafa annaðhvort eintóm einmenningskjördæmi eða Eina leiðin til fullkomins raksturs. , ii* . , , stór kjördæmi og fá með hlut- dæmamalinu hefði ætið verið su.i - ^ . , __I fallskosmngum. Það er þvi eng- | inn vandi fyrir Sjálfstæðisflokk- i inn að standa við fyrri yfirlýsing- I ar í þessu efni. að viðhalda ranglátri kjördæma skipun. Eysteinn Jónsson hefði sagt, að Sjálfstæðismenn hefðu átt opna leið til að leysa kjör- dæmamálið með Framsóknar- mönnum, og nú ætti að heita svo sem frv. væri í ósamræmi við fyrri yfirlýsingar Sjálfstæðis- manna í kjördæmamálinu. Þetta væri rétt að taka til nánari at- hugunar. Framsókn vildi ekki leiðrétta ranglætiS Kjördæmamálið hefði fyrst kom ið á dagskrá árið 1931, er Fram- sóknarflokkurinn hefði hafnað landskjöri. Hefðu þeir rofið þing, er samþykkt hefði verið í efri deild að taka mætti inn í kosn- ingalög að þingmenn skyldu kosnir hlutfallskosningu. Sjálf- stæðismenn hefðu ætíð verið á móti því að landið yrði allt geri að einu kjördæmi, og hefðu lagt til að landinu jrrði skipt í ein- menningskjördæmi en hlutfalls- kosningar þó hafðar jafnhliða til þess að skapa jöfnun milli flokka. Þessar tillögur hefðu Framsóknar menn ekki fallizt á, og ekki viljað samþykkja að misrétti yrði leið- rétt. í milliþinganefndinni sem hefði starfað 1932, hefðu komið fram tvær megintillögur, sú fyrri á þann veg, að rétt hlutfall væri milli þingmannatölu og kjósenda- tölu og að réttur kjósenda yrði gerður sem jafnastur. f öðru lagi að réttur núverandi kjördæma til að kjósa sérfulltrúayrðitryggður. Þegar þessar tillögur hefðu verið bornar upp í heild hefðu þær að- eins fengið tvö atkvæði, Sjálf- Atvinnukúgun og f járkúgun í kosningum Það getur margt skeð á skemmri tíma en 25 árum. Bar- áttuaðferðir Framsóknarflokksins og hvernig þeir beita kaupfélaga- valdinu fyrir sig í kosningum, hefur sýnt fram á, að það er var- hugavert að hafa smá einmenn- ingskjördæmi. Kjósendur liggja þar undir ofurþunga atvinnukúg- unar, og fjárkúgun er beitt til að hafa áhrif á kosningaúrslit. Þá vék ræðumaður að því, hve Framsóknarflokkurinn hefði allt- af haft meiri þingstyrk en honum bar miðað við kjósendatölu. f kosningunum 1953 hefði Fram- sóknarflokkurinn fengið miklu fleiri þingmenn en honum bar miðað við atkvæðatölu, þó hefði þeim ekki fundizt þetta nóg held- ur stofnað bandalag fyrir kosn- ingarnar 1956 til að fá enn meira af þingmönnum. Það hefðu aldrei verið hagsmunir sveitanna, sem Framsóknarflokkurinn hefði bar- izt fyrir í sambandi við kjör- dæmamálið, heldur aðeins hags- munir Framsóknarflokksins Hræðslubandalagið gerði kjör- dæmabreytingu knýjandi Eftir stofnun Hræðslubanda- lagsins gat kjördæmabre./ting ekki dregizt. Má benda á það hér til samanburðar, að árið 1918 tóku Danir upp hlutfallskosningu í sambandi við einmenningskjör- Frh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.