Morgunblaðið - 29.04.1959, Side 19

Morgunblaðið - 29.04.1959, Side 19
Miðyikudagur 29. apríl 1959 MORCVNBLAÐIÐ 19 —Fiamsóknarmenn _ /amh. af bls. 12 dæmi. Þjóðfélagsfræðingur þar i landi ritaði þá grein, þar sem hann sýndi fram á, hve mikið ranglæti gæti leitt af slíku kosn- ingafyrirkomulagi. Vakti greinin slíka athygli, að kjördæmaskip- uninni var breytt þegar og teknar upp hlutfallskosningar í stórum kjördæmum. í Danmörku þurfti þannig ekki nema eina grein til að sýna fram á nauðsyn þess að breyta kjördæmaskipuninni, en hér kostaði það stofnun Hræðslu bandalagsins. Framsóknarmenn telja ein- menningskjördæmi höfuðstefnu sína í kjördæmamálinu. Slíkar til lögur hafa komið fram áður. Árið 1907 var lagt til að landinu yrði skipt í 34 einmenningskjördæmi, en þær voru felldar á þinginu. í þeim tillögum um einmennings- kjördæmi var algerlega raskað sýsluskiptingunni, sem Framsókn armenn telja nú allt að því helg- an dóm. Má þó ætla að þeir menn sem þessar tillögur fluttu, liafi ekki verið óþjóðhollir, því tillög- urnar voru eftir ábendingum frá héraðastjórnum um gervallt land ið. Á þeim árum litu menn ekki á sýsluskiptinguna sem fornhelga. Framsóknarmenn hafa haldið því fram í þessum umræðum að að frumvarpinu standi aðeins þeir, sem séu slitnir úr sambandi við landið. Hvað segja þeir þá um Þórhall biskup, sem lagði til að landinu yrði skipt í 4 kjördæmi og sagði hlutfallskosningar runn- ar af rót réttlætishugsjóna, Pé+ur á Gautlöndum, sem studdi þessar tillögur og kvaðst sannfærður um það að hlutfallskosningar efldu pólitískan þroska. Ólafur Briem sagði í þessu sambandi að har n gæti ekki betur séð, en það væri meira virði að hugsa á stærri aviðum en út frá þrengstu sjórar- miðum fámennustu hópa í land- inu. Jónas Jónsson fráHriflulagði til í bók sinni „Komandi ár“, að kosningalögunum yrði breytt og segir, að ef 3—4 sýslur séu saman í kjördæmi, reyni minna á fjár- magn og úrslit hinna síðustu and legu vesalinga, sem dregnir séu á kjörstað. Sumir þingmenn Framsóknar- flokksins hafa digurbarkalega vitnað til þess að þjóðin hafi tek- ið í taumana, þegar breyta átti kj ördæmaskipuninni 1931. Fram- sóknarflokkurinn fékk 30% at- kvæða í kosningunum 1927 en 35% í kosningunum 1931. Er hér um að ræða sömu aukningu og hjá Sjálfstæðisflokknum, frá kosningunum 1953 til 1958, en í kosningunum 1956 töpuðu Sjálf- stæðismenn nokkrum þingmönn- um eins og kunnugt er þrátt fyrir þessa aukningu í kjörfylgi. Það er rétt, að það var nokkur atkvæða- aukning hjá Framsóknarflokkn- um, en þjóðin studdi hann ekki í þessu, heldur greip flokkurinn í taumana fram fyrir hendurnar á þjóðinni. Kjördæmahreytingin mun hefja íslenzk stjórnmál á hærra svið Sveinbjörn Högnáson og Ey- steinn Jónsson töluðu um það í sínum ræðum, að Sjálfstæðis- flokkurinn gæti sízt ásakað aðra um að beita atvinnukúgun í sam- bandi við kosningar. Nefndi Sveinbjörn Högnason landshapp- drætti Sjálfstæðisfiokksins í þessu skyni og það fé, sem flokk- urinn aflaði sér þannig. Það vita allir, að kosningaumstang kostar fe og í þessu sambandi er ekki úr vegi að menn spyrji, hvenær Framsóknarflokkurinn efni til happdrættis eða annarrar fjár- söfnunar í kosningasjóð. Hvaðan skyldi þá flokkurinn fá þá pen- inga sem hann þarf, til að standa straum af flokksstarfsemi sinni. Jóhann Hafstein sagði að lok- um: Það mál, sem hér er til um- ræðu er mikið réttlætismál og það er mín skoðun, að framgang- ur þess verði til að hefja íslenzk stjórnmál upp á hærra svið og lagfæra þær misfellur, sem hafa þróazt í skjóli ranglátrar kjör- dæmaskipunar. TémstoBdaheínili Keflavíkur KEFLAVIK, 25. apríl. — Tóm- stundaheimiiið í Keflavík hefur nú lokið sínu fyrsta starfsári og voru hinir fyrstu nemendur kvaddir af forráðamönnum í gær kvöldi að lokinni sýningu Tóm- stundaheimilisins í Tjarnarlundi. Frú Vilborg Ámundadóttir, form. stjórnarinnar, ávarpaði nemendur og kennara og þakk- aði þeim fyrir hið árangursríka starf, sem unnist hefði á þessum fyrsta vetri Tómstundaheimilis- ins. Þá skýrði frú Vilborg frá tildrögum að stofnun heimilisins. Kvað hún Kvenfélag Keflavíkur lengi hafa haft hug á að koma af stað hér einhverri tómstunda vinnu fyrir unglinga og þar sem þeim kvenfélagskonunum hefði verið kunnugt um að fleiri fé lög hér í bæ hefðu verið sama sinnis, ákváðu þær að reyna að sameina þessa aðila um að hrinda þessari framkvæmd af stað. Þessi félög voru: Kvenfélag Keflavíkur, Ungmennafélag Keflavíkur, sem áður hafði haft tómstundavinnu fyrir unglinga í flugmódelsmíði við góðan ár angur, Skátafélagið Heiðarbúar, Taflfélag Keflavíkur, Stúkan Vík, Rotary-klúbburinn, Lions- að ljósmyndagerð og tágvlnnu. Ljósmyndagerð fór síðan fram í húsi Ungmennafélagsins og var Heimir Stígsson kennóiri þar. — Við kennsluna í tágvinnu var nokkuð erfiðara að eiga, þar sem erfitt var um kennara í þeirri grein, en Kvenfélagið leysti þá þraut með því, að fá hingað til bæjarins ungfrú Ingi- björgu Hannesdóttur frá Reykja- vík, er kenndi 11 konum úr fé- laginu bast-, tág-, filtvinnu og perlusaum. Þessar konur urðu síðan kennarar á námskeiðinu er haldið var í Tjarnarlundi. Alls sóttu um 100 unglingar þetta fyrsta námskeið, sem stóð yfir í tvo mánuði og var árang- ur með afbrigðum góður, eins og kom fram á sýningunni. Að lokum þakkaði frú Vilborg öllum þeim, sem aðstoðað hefðu við að koma þessu Tómstunda- heimili af stað og kvað það von sína, að þessi starfsemi ætti eft- ir að vaxa og verða fjölbreytt- ari með árunum, börnum og ung- lingum til gagns og ánægju. Þá ávarpaði Höskuldur Goði Karlsson, form. Ungmennafélags ins, nemendur. Ræddi hann gildi tómstundavinnunnar og hvatti þá klúbburinn og Áfengisvarnar- til nota frístundir sínar sem nefnd Keflavíkur. Að loknum ! bezt, Því glötuð stund yrði aldrei bætt upp. Að lokum var nem- endum sýndar kvikmyndir frá starfi erlendra tómstundaheim- ila. — Ingvar. nokkrum viðræðum þesssira að- ila, var kosin framkvæmdanefnd Tómstundaheimilisins, en hana skipa auk frú Vilborgar, Ólafur Þorsteinsson, gjaldkeri, Höskuld ur Goði Karlsson, ritari, Margeir Jónsson og Brynleifur Jónsson, meðstjórnendur. Jón Pálsson, sá er stjórnaði tómstundaþætti barna- og ung- linga hjá útvarpinu kom síðan hingað til Keflavíkur til við- ræðna við fulltrúa félaganna. Varð að ráði að fyrst yrði horfið að hefjast 11. maí. LONDON, 28. apríl. — Brezka sendiráðinu í' Prag hefur borizt orðsending tékknesku stjórnar- innar varðandi hugsanlega þátt- töku Tékka í væntanlegum ut- anríkisráðherrafundi austur og vesturs í Genf, en fundurinn á Félagið Fílharmónía óskar eftir söngfólki, konum og körlum, í væntan- lega söngsveit. Þeir, sem áhuga hafa á þátttöku, eru beðnir að hringja í sma 23700 kl. 5—7 í dag og tvo næstu daga eða skrifa félaginu í pósthólf 1251. — Bréflegum umsóknum þurfa að fylgja upplýsingar um aldur, raddtegund og söngreynslu. Þakka innilega þeim er ógleymanlega heiðruðu mig á sextugsafmælinu 22. apríl s.l. Gleðilegt sumar. Aðalbjörg Haraldsdóttir, Miðdal Hugheilar kveðjur og þakkir til allra, sem mundu mig á sjötugsafmælinu 15. apríl s.l. Pétur Siggeirsson frá Oddsstöðum Ég sendi öllum nær og fjær hjartans þakkir og kveðj- ur, sem minntust min og glöddu mig á 60 ára afmæli mnu 15 þ.m. með blómum, skeytum og gjöfum. Sérstaklega þakka ég vinum mínum á Akureyri fyrir þær góðu gjafir, er þeir færðu mér, og fyrir hið veglega samsæti að Hótel KEA. Börnum mínum færi ég einnig hjartans þakkir. Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars og bið ykkur allra blessunar á komandi tímum með þakklæti fyrir ógleymanlegar samverustundir. Lára Ágnstsdóttir, Bjarmastíg 3, Akureyri. Hjartanlega þökkum við öllum þeim er vottuðu okkur samúð sína við jarðarför ÞÖRARINS KR. ÓLAFSSONAR, Patreksfirði Sigurrós Guðmundsdóttir Börn, tengdaböru og barnabörn tfrjMeiMisíipmw ODDNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR frá Isafirði, lézt að Landakotsspítala 26. þ.m. Vandamenn Faðir okkar og tengdafaðir DANlEL JÖHANN DANlELSSON andaðist 27 þ.m. Magnús Daníelsson, Páll Daníelsson Margrét Kristinsdóttir, Þorbjörg Jakobsdóttir Jóna Olsen, Robert Olsen. Hjartkær eiginmaður minn og faðir BENEDIKT ÞÓRARINSSON fyprverandi Bankabókari, frá Seyðisfirði lézt á St. Jósepspítala 27. þ.m. Ragnhildur Guðmundsdóttir Guðmundur Benediktsson, Anna Þóra Benediktsdóttir Móðir okkar ÓSK BJARNADÓTTIR, er andaðist 21. þ.m. að Grund við Langholtsskóla, verður kvödd í Fossvogskirkju, fimmtudaginn 30. apríl kl. 1,30 e.h. Jarðarförin fer fram laugardaginn 2. maí og hefst að Svalbarði kl 2 e.h. Jarðsett verður að Tjörn á Vatnsnesi. Bílferð verður frá Hvammstanga. Börn hinnar látnu Minningarathöfn um eiginkonu mína HERMANÍU BRYNJÓLFSDÓTTUR, Ránargötu 33A er andaðist í Heilsuverndarstöðinni, 27. apríl, fer fram fimmtudaginn 30 apríl frá Fossvogskirkju kl. 16,30. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Albert Kristjánsson Hjartkær eiginmaður minn, faðir, sonur og bróðir, GUNNAR H. ÓLAFSSON arkitekt verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 30. apríl kl. 10,30. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað Þorbjörg S. Sigurbergsdóttir og böm Ólafur J. Gestsson, Andrés Ólafsson. Hjartanlega þökkum við þeim ættingjum og vinum, sem sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför mannsins míns og föður okkar. KRISTJÁNS fr. jónssonar Guðrún Arnþórsdóttir og börn Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu samúð og vinarhug, við andlát og jarðarför eiginmanns míns, JÓNS LÁRUSSONAR, frá Hlíð Sérstaklega þakka ég þeim, sem veittu höfðinglega og ómetanlega aðstoð, sem unnin var af alúð og fórnfýsi. Guð blessi ykkur öll. Fyrir mína hönd, barna, tengdabarna og barnabarna Halldóra M. Guðmundsdóttir Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför fósturmóður okkar GUÐLAUGAR GlSLADÓTTUR Bergþóra Magnúsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Gestur Ólafsson Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar- för móðir okkar INGUNNAR BJÖRNSDÓTTUR frá Ljótarstöðum Margrét Jóhannsdóttir, Ársæll Jóhannsson . Alúðar þakkir sendum við þeim, er sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför bróður okkar ÓLAFS A. GÐUJÓNSSONAR Systkinin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.